Þjóðviljinn - 23.12.1984, Page 5

Þjóðviljinn - 23.12.1984, Page 5
Frá v.: Guðmundur Einarsson, frú Sólveig Asgeirsdóttir biskupsfrú, hr. Pétur Sigurgeirsson, biskup, Páll Jónsson. Mynd: eik. // Komum heim hlaðin oakkce' // Heimboð biskupshjónanna til Póllands Biskupshjónin, herra Pétur Sigurgeirsson og frú Sólveig Ásgeirsdóttir, eru fyrir nokkru komin heim úrPóllandsför. Fóru þau þangað í boði pólskasamkirkjuráðsins, sem með því vildi sýna þakklæti fyrir hjálparstarf íslendinga við Pólverja, e.n því er nú að Ijúka. Síðan hjálparstarfið hófst fyrir 4 árum hafa Islendingar sent Pól- verjum á milli 800 og 900 tonn af hjálpargögnum að verðmæti um 26 milj. kr. í för með biskups- hjónunum voru þeir Páll Jónsson og frú, og Guðmundur Einars- son, á vegum hjálparstarfsins, og höfðu meðferðis 20 lestir af síld. Að sögn Pólverja hafa íslending- ar hjálpað þeim hlutfallslega mest allra þjóða og „við komum heim blátt áfram hlaðin af þakk- læti“, sagði biskup og bætti við: „Auðvitað eiga Pólverjar ennþá í miklum efnahagsörðugleikum en þjóðin sveltur ekki lengur. Og henni er orðið það ljóst nú að það var skakkt að láta iðnaðinn ganga fyrir en ekki landbúnaðinn þegar endurreisnarstarfið var hafið upp úr stríðinu". Pólverjar hyggjast endurgjalda aðstoð íslendinga með því að senda hingað lista- menn. Á næsta ári er t.d. væntan- legur pólskur píanóleikari. Við komuna til Varsjár tók S. Pavlik, framkvæmdastjóri Sam- kirkjuráðsins, (samtök mótmæl- endakirkna í Póllandi) á móti biskupshjónunum. Var fyrst haldið til höfuðstöðva pólska Biblíufélagsins, sem starfar alveg sjálfstætt. Er það ári yngra en ís- lenska Bibílufélagið, stofnað 1816. Pá heimsóttu biskupshjón- in ráðuneyti það, sem fer með málefni hinna 36 mótmælenda- kirkna í landinu og ræddu við æðstu ráðamenn þar. Fyrsta degi heimsóknarinnar lauk svo með boði til höfuðstöðva kaþólsku kirkjunnar í Varsjá þar sem bisk- upinn tók á móti biskupshjónun- um. Á laugardaginn var sótt heim menningarsafn í Varsjá, sem er til húsa í konungshöllinni fyrrver- andi. Par hélt kammerhljómsveit Sinfóníuhljómsveitarinnar í Var- sjá tónleika til heiðurs biskups- hjónunum. Á sunnudag flutti biskup guðsþjónustu í aðalkirkju lút- erskra í Varsjá. Var þar mikið fjölmenni. Lagði biskup út af tex- ta dagsins en fjallaði einnig um samskiptasögu íslands og Pól- lands og sögu landanna í gegnum aldirnar, sem um margt er áþekk. „Sagan hefur kennt okkur“, sagði biskup, „að þrátt fyrir mis- munandi stjórnvöld og mismun- andi gengi þjóðanna hefur Guð síðasta orðið“. Biskupshjónin fóru fram á það að fá að koma að gröf sr. Popul- eskys þótt ekki væri það á dag- skránni. Var það fúslega leyft. Var gröfin og umhverfi hennar allt blómum þakið og pólski fán- inn blakti yfir leiðinu með áletr- uninni „Samúð“, skrifað með letri Samstöðuhreyfingarinnar. í bakaleiðinni heimsóttu bisk- upshjónin söfuð íslendinga í Kaupmannahöfn og þar prédik- aði biskup í St. Pálskirkjunni fyrsta sunnudag í aðventu, ræddi við safnaðarfólk og sóknarnefnd og fluttu ávarp í Jónshúsi en dag- inn áður voru 10 ár liðin síðan safn Jóns Sigurðssoar var opnað. -mhg kenwood, KENWOOD chef Qggjfl ELDHÚSHJÁLPIN KENWOODa er engin venjule hrærivél. Innifalið í verði: Skál, þeytari, hnoðari og hrærari. . Kaffikvörn k.-. Hraðgengt rlfjárn Malar kaffið eins gróft Sker niður og afhýðir eöa flnt og óskað er og grænmeti á miklum ótrúlega fljótt. hraða og er meö fjórum mismunandi járnum. Þrýstisigti Rjómavél Aðskilur steina og Býr til Ijúfféngan, fersk- annan úrgang frá ávöxt- an rjóma á nokkrum um. Auðveldar gerð sekúndum, aðeins úr sultu og ávaxtahlaups. miólk og smjöri. Kartöfluhýðari Hetta Eyðið ekki mörgum Yfirbreiðsla yfir Ken- stundum I aó afhýða wood Chef vélina. kartöflur sem Kenwood afkastar á svipstundu. HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD HF LAUGAVEGI 170 172 SIMAR 11687 21240 Sitrónupressa Býr til Ijúffengan fersk- an sitrussafa á litlu lengri tima en tekur að skera sundur appelslnu. Grænmetisrifjárn Sker niöur rauðrófur, agúrkur, epli, kartöflur. Raspar gulrætur, ost, hnetur og súkkulaöi. Stálskál Endingargóð og varan- leg skál, tilvalin I alla köku- og brauðgerð. Ávaxtapressa Skilar ávaxta- og græn- metissafa meö öllum vltamlnum. Dósahnífur Opnar allar tegundir dósa án þess að skilja eftir sköröóttar brúnir. Grænmetisrifjárn Sker og raspar niður I salat. — Búið til yöar eigin frönsku kartöflur með til þess gerðu járni. Hakkavél Hakkar kjöt og fisk jafn- óðum og sett er I hana. Einnig fljótvirk við gerð ávaxtamauks. Grænmetiskvörn Blandar súpur, ávexti, kjötdeig og barnamat. Saxar hnetur, o.fl., malar rasp úr brauði. Urvalið aldrei fjölbreyttara Ananaustum Grandagarði Símar 28855 og 13605

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.