Þjóðviljinn - 23.12.1984, Side 9

Þjóðviljinn - 23.12.1984, Side 9
Heimilisrekstur Engar jólagjafir í ór Þrátt fyrir sœmilegar tekiur (með gífurlegu vinnuálagi) ná endar ekki saman hjá sex manna fjölskyldu Meðfylgjandi efnahagsyfirlit er fyrir tímabilið 1.1. 1984 til 1.12., sama ár. Eiginmaðurinn vélvirki, meistararéttindi frá 1978, fastur starfsmaður fyrir- tækis á landsbyggðinni, í 6 ár. Yfirvinna hans er að mestum hluta unnin í fjarvistum frá heim- ili, viku í senn á 6 vikna fresti. Ekur 2x15 km. daglega v. vinnu. Eiginkonan heimavinnandi hús- móðir í hlutastörfum eftir því sem barnagæsla og atvinnuframboð leyfa. Vegna skólagöngu barna ófært að vinna utan heimilis á skólatíma. Börn 4, fædd 1969, - 1974, - 1978, - 1979. Barn í 9. bekk í hérðasskóla, þar sem ekki er annarra kosta vöí. í september 1983 stóð heimilis- rekstur þessarar fjölskyldu á „núlli“, þ.e. engar skuldir aðrar en húsn.m.stj.lán, og lífeyrissj.- lán v. húsbyggingar. Framtal þess árs hljóðaði upp á: A ■■ UTGJ0LD Matur, hreinl.vörur, pappírsvörur o.þh., tóbak, sokkar, nærfatnaður o.þ.u.l., skv. heimilisbókhaldisamtals: 210.512,- Rafmagn, hiti 66.809,- Álagðir skattar 81.291.- Frádr.barnab. 22.500,- Skattartilgreiðslu 58.791,- Fasteignagjöld 4.437,- Sóknargjöld 1.874,- Lífeyrissj. (eiginm.) 9.161,- Stéttarf.gj. (eiginm.) 2.937,- Tryggingar, íbúðarhúsnæði 1.422.- Tryggingar, bifreið, 3.636.- Bifr.skattur 275,- Afnotagjald útv. sjónv. 3.056,- Pósturogsími 21.436,- Tannlæknar, þ.m.t. tannréttingar 36.858,- Lyf, lækniskostn, 5.849,- Fæðiskostn. barna ískóla 25.200.- Önnurskólagjöld 3.540,- Bækur barns í 9.bekk grunnskóla 2.079,- Viðhald íb.húsn. (einangrun í ris) 28.667,- Viðhald bifr., varahlutir 3.313.- Bensín.olíur 63.040.- Vextirog afb. aflánum 83.823.- Samtals: 636.355,- Gjöld samtals: 636.355.- Tekjur samtals. 567.835,- Mismunur: h-68.520.- Brúttótekjureiginmanns: 360.572.- eiginkonu 45.224.- Bak við þær lá mun minni vinna, t.d. aðeins einföld atvinna eigin- manns. í efnahagsyfirlitinu er ekki get- ið atriða svo sem mánaðarlegs akstur til Akureyrar v. tannréttinga, ferða eiginmanns til rannsókna á Landsspítalann, o.fl. í þeim dúr. Geta má að símtal við lækni er langlínu- samtal, svo er og um flest símtöl önnur við opinbera þjónustuað- ila. Varðandi orkukostnað má geta að fjölskyldan hefur raf- magnskyndingu og býr á orku- veitusvæði RARIK. Um heimilisútgjöld er það annað að segja, að fatakaup eru ekki tíunduð. Þau voru: Einar gallabuxur á mann, ódýrasta teg- und, tvennar skólaúlpur, á 6 og 10 ára, útsala, einar „dýrari“ bux- ur, kvenmanns, ein fullorðins- peysa og fimm stykki bómullarp- eysur. Að auki eitt par af íþrótt- askóm á hvert barn og stígvél á það elsta. Annar fatnaður saumaður og prjónaður heima, ellegar gefinn af öðrum, einkum skófatnaður. Hlunnindi teljast væntanlega að fjölskyldan fær 5 ærskrokka gegn aðstoð við slátrun. Annað kjöt tæpast á borðum. Að lokum úttekt (lítillega) á lúxus fjölskyldunnar: Hjón reykja bæði, u.þ.b. karton á viku samtals. Áfengi: 1 flaska, böll; 3 (ekki allir) bíó: eiginm. 4 sinnum, börn 2svar - þrisvar, eiginkona 1 sinni. Leikhússferðir: á vegum skólans einu sinni 2 börn, hjón 0. Ferðalög: 0. Sumarleyfi: 0. Tóm- stundaiðkanir í lágmarki, þar sem á árinu er búið að selja allt sem seljanlegt er af dóti þar að lútandi. Jólagjafir í ár aflagðar, við dræmar undirtektir sumra fjölskyldumeðlima. En ef guð lofar tórir þessi fjölsylda jólin af, og verði þá Alberts dýrðin. EIGNIR íbúðarhús, 142 m2 auk riss, (geymsla) ekki fullklárað, byggt 1976-1978. Fasteignamat Bifr.Ladasport, '78, kaupv. 569.000.- 50.000.- Samtals: 619.000.- SKULDIR: Húsn.m.stj.lán frá 1977, núgildi: (’83) Lífeyrissj.lán húsb. frá 77, Bygg.lán, samt.: 122.082,- Neyslulán í lífeyrissjóði, tekið um síðustu áramót: bankalán ífebr. '84 bankaláníjúní’84 bankalánísept. '84 119.082,- 3.000.- 70.000,- 30.000,- 55.000.- 50.000.- Skuldirsamtals 327.082,- ATH: frá lánum ekki dregnar þegar greiddar afb., Nýrri lán eru vaxtaaukalán til 1 og 1 1/2 árs. TEKJUR Eiginmaður: Föstlaunfyrir40 dagv.st. áviku Föst yf irvinna, 8. st. á viku Önnuryfirvinna Orlof Bifreiðastyrkur F. dyravörslu um helgar (aukavinna) F. landvörslu (unnið í sumarleyfi) 229.056,- 23.930.- 112.434.- 14.582,- 24.773,- 10.000.- 27.985,- Samtals: 442.762,- Eiginkona: Afgr.störf, vaktavinna, 8 st. vaktir, unnin önnur hver frívakt Frá afl.þj. landb., ræstingar Höfundarlaun, ýmsirgreiðendur Endurgreiðsla barnabóta 65.873.- 7.700,- 29.000,- 22.500,- Samtals: 125.073,- Tekjur beggja frá 1.-1. til 1.-12. 84, samtals: 567.835.- Húsgógn Kœrkomin nýjung ó ís- lenskum húsgagnamarkaði Það er enginn vafi á því að hér á landi eru að verða stökk- breytingar í íslenskum hús- gagnaiðnaði enda hafa ís- lenskir hönnuðir og fram- leiðendur getið sér gott orð á erlendum mörkuðum nú ásíð- ustu árum. Þannig fórust orð Jóni Arnarri forstöðumanni íslensks húsbún- aðar hf., sem er nýtt sýningarfyr- irtæki íslenskrar húsgagnafram- leiðslu. Þetta fyrirtæki er sérstætt að því leyti að eigendur þess eru 10 húsbúnaðarfyrirtæki sem ætla með þessu móti að gera átak í markaðsmálum og á boðstólum er eingöngu innlendur húsbúnað- ur sem stenst strangar kröfur um hönnun og framleiðslu. Fyrirtækið var stofnað sl. vor og að sögn Jóns Arnarrs hafa við- tökur almennings verið mjög góðar. Þetta væri í fyrsta skipti sem hér á landi væri gerð tilraun til að flokka íslensk húsgögn eftir gæðum en slík aðstoð við neytendur væri algeng erlendis. Sérstök vöruvalsnefnd velur hús- búnaðinn í sýningarsalinn, sem er að Langholtsvegi 111 í Reykjavík og verður rík áhersla lögð á að munir uppfylli ströng skilyrði um góða hönnun og vandað hand- bragð. „Tilgangurinn með þessu er annars vegar sá að aðstoða kaupendur við að greina á milli vandaðrar framleiðslu og lélegrar sem nóg er af í íslenskum verslun- um eins og annars staðar en hins vegar ætti fyrirtækið að hvetja ís- lenska hönnuði og framleiðendur til dáða“, sagði Jón Arnarr. „Á íslenskum húsgagnamark- aði höfum við allmörg dæmi um þá góðu þróun sem hefur átt sér stað varðandi íslenska húsbúnað- arframleiðslu. Trésmiðjan Víðir fékk til liðs við sig finnskan hönnuð, Ahti Taskinen, og Jón Arnarr forstöðumaður islensks húsbúnaðar hf: ætlum okkur að örva íslenska húsbúnaðarframleiðslu og aðstoða fólk við að greina kjarnann frá hisminu. Ljósm. E.ÓI. árangurinn varð Salix línan sem hefur selst mjög vel á erlendum mörkuðum, m.a. í Bandaríkjun- um. Axis í Kópavogi er einnig gott dæmi um fyrirtæki sem náði góðu samstarfi við einn okkar besta húsgagnahönnuð, Pétur Lúthersson og frá því fyrirtæki hafa komið og eru að koma hús- gögn sem vakið hafa alþjóða at- hygli, m.a. á Bella Center hús- gagnasýningunni í Kaupmanna- höfn. Mörg fleriri dæmi um ís- lenska framleiðslu mætti nefna eins og t.d. Stacco stólinn, Dato-svefnherbergishúsgögnin, Tabella skrifstofuhúsgögnin, Ero stólana. Þá eru norsku Ekones leðurhúsgögnin og stóll fyrir fatl- aða eftir Fleming Hvitd dæmi um íslenska framleiðslu eftir erlendri hönnun. „Það er enginn vafi á því að aukinn innflutningur húsgagna með EIH'A aðildinni ýtti undir innlenda hönnun og framleiðslu. Við höfum hins vegar áttað okk- ur á því að ekki þýðir að keppa við fjöldaframleiðsluna og hafa því framsæknustu íslensku fyrir- tækin lagt áherslu á gæðahúsgögn sem þola allan samanburð", sagði Jón Arnarr ennfremur. Að íslenkum húsbúnaði standa eftirtalin fyrirtæki: Álafoss, Axis, Epal, Gamla Kompaníið, Húsgagnaiðja Kaupfélags Rang- æinga, Iðnaðardeild Sambands- ins, Málmsteypa Ámunda Sig- urðssonar, Stálhúsgagnagerð Steinars, Topphúsgögn og Trésmiðjan Víðir. Meðal þess sem þessi fyrirtæki framleiða er áklæði, gluggatjöld, lampar, hús- gögn fyrir skóla, skrifstofur, sjúkrahús o.fl. Fyrirtækið er til húsa að Lang- holtsvegi 111 í Reykjavík. Hægt er að kaupa húsbúnað þar á fram- leiðsluverði með góðum greiðsluskilmálum. -v. Sunnudagur 23. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.