Þjóðviljinn - 23.12.1984, Qupperneq 17
Ánna Jóhannesdóttir 15 óra
Austurbœjarskóla:
- Það er dálítið erfitt að svara þessu.
- Aðallega til að létta sér upp í skamm-
deginu. Upphaflega héldum við jólin
vegna fæðingar frelsarans en það vill
nú gleymast. Gjafirnar skipta orðið
miklu máli og jólin gleðja kaupmenn-
ina. Veturinn væri langur og leiðinlegur
ef ekki væri jólahátíðin.
Andri Úlfarsson 6 óra Hjalla-
skóla:
- Af því Jesús á afmæli og líka til að
fájólagjafir. Líkatil að hafajólatré. Svo
fáum ekki bara við jólagjafir, líka
frændur og frænkur.
Elín Matthildur Andrésdóttir 13
óra:
- Ég veit það eiginlega ekki. Ég held
að það sé vegna þess að Jesús átti
afmæli þá. Það væri leiðinlegt ef ekki
væru jól. Skemmtilegast er að kaupa
gjafir og fá þær!
Magnea Árnadóttir 6 óra
Hjallaskóla:
- Út af því að Jesúbarnið fæddist á
jólunum og þá er afmælið hans. Við
gefum honum samt enga afmælisgjöf
bara frænku okkar og ömmu og afa og
vinkonu.
Þorgeir Valur Pólsson 11 óra úr
Breiðholti:
- Það er svo gaman að hafa jól og
spennandi að fá jólapakka!
Elvar B. Helgason 11 óra,
Austurbœjarskóla:
- Til að gleðjast og gleðja aðra.
Borða jólamatinn. Pakkarnir eru líka
ágætir. Veturinn væri ekki eins
skemmtilegur ef jólin væru ekki.
Dagbjört Norðfjörð 9 óra,
Austurbœjarskóla:
- Til að skemmta okkur og opna
pakkana sem við fáum.
Sylvía Arnfríður Kristjónsdóttir 6
óra í Hjallaskóla:
- Hann Jesús hann fæddist þá.
Hann átti afmælið sitt á jólunum.
Sveinbjörn Pólmason 11 óra úr Breiðholti:
- Það er spennandi, gaman og fallegt. Vegna þess líka að Jesús fæddist þá!
Björgvin Jóhannsson 12 óra,
Austurbœjarskóla:
- Til þess að minnast fæðingar Jesú
Krists. Gefum hvort öðru gjafir. Ég held
að veturinn væri ekki næstum jafn
skemmtilegur ef jólin væru ekki.
Erika Erna Arnarsdóttir 12 óra,
Austurbœjarskóla:
- Við erum að halda upp á afmæli
Jesú. Gefum pakka og borðum góðan
mat. Skemmtum okkur og skreytum
heima.
Sunnudagur 23. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17