Þjóðviljinn - 23.12.1984, Blaðsíða 20
Morgunfundir
Geirs
Framkoma Geirs Hallgríms-
sonar utanríkisráðherra í
kjarnorkusprengjumálum á
Keflavíkurflugvelli hefur vakið
furðu alþjóðar. Hann kemur
fram eins og lítill auðtrúa
drengur, þegar Bandaríkja-
menn „svara" spurningum
hans. Allt sem þeir segja er
satt að mati utanríkisráð-
herra. ( þessu sambandi rifj-
ast það upp að þegar Geir var
forsætisráðherra og Þorska-
stríðið við Breta stóð yfir, þá
átti hann bágt. NATO-þjóð
barði á annarri NATO-þjóð og
hvað var þá til ráða? Jú, hann
leitaði á náðir bandaríska
sendiherrans og hvern ein-
asta vinnudag hóf Geir þá
með því að sitja morgunfund
með bandaríska sendiherran-
um við Laufásveg. Þar fékk
hann línuna hvernig bestværi
að haga sér í málinu. ■
Sprengjur
í leyni
Fyrir skömmu upplýsti fræði-
maðurinn William Arkin að
bandarísk forsetaheimild væri
til fyrir því að á stríðstímum
yrðu fluttar hingað kjarnork-
usprengjur. Á móti því mælti
auðvitað Geir blessaður Hall-
grímsson, einsog hans var
von og vísa. Um þetta var þá
ort í orðstað Geirs útí skafli í
Síðumúla:
Trúin rík og rétt hjá mér.
Reagan aldrei hengjum:
þó í laumi landi hér
litlum sæturn sprengjum. ■
Det er svært
Barátta kynjanna tekur á sig
ýmsar myndir, hér á Þjóðvilj-
anum sem annarsstaðar. Ný-
verið hengdu kvenkynsverur
upp þessa dönsku speki á rit-
stjórnarskrifstofunum:
Det er svœrt at vœre kvinde...
Man skal tœnke som en mand,
opfpre sig som en dame,
se ud som en ung pige,
og arbejde som en hest...
Skömmu síðar hékk annað
Ijóð við hlið hins:
Det er svœrt at vœre mand...
Man skal tœnke som en
kvinde,
opfpre sig som en kavaler,
se ud som en olding
- udrustet som en hest!
Prófarkalesarinn okkar,
Elías Mar, er grunaður um
höfundskap hins síðara Ijóðs-
ins. ■
Jólagjafavandi
leystur
Eins og menn vita er það mik-
ill vandi, ekki síst fyrir lítt búða-
vanan karlpening að hitta á
réttu jólagjöfina handa kon-
unni sinni elskulegri. Því ekki
geta menn verið þvílíkir
aumingjar að þeir spyrji blátt
áfram hvað hún helst vilji.
Við fréttum reyndar í merku
blaði á dögunum af konu sem
alltaf fékk einmitt þá jólagjöf
sem henni kom best. Vinkona
hennar spurði hana að því
hverju þetta sætti.
- Þetta er mjög einfalt,
sagði konan farsæla. Ein-
hvern tíma í nóvember byrja
ég að tala upp úr svefni. ■
Uppsagnir
á Orkustofnun
Einsog menn rekur minni í var
Hagvangur látinn gera úttekt
á Orkustofnun. í Ijós kom, að
þrátt fyrir að stofnunin fengi
tiltölulega góða einkunn, þá
var niðurstaða Hagvangs eigi
að síður að fækka þyrfti um
ein 40 stöðugildi á stofnun-
inni.
Þegar þetta var borið undir
Guðmund Pálmason, yfir-
mann jarðhitadeildarinnar,
var svar hans stutt og laggott:
„Til að sinna þeim verkefn-
um sem bíða, þurfum við að
ráða sex starfsmenn í viðbót!"
Úttekt
á NT
Fjárhagserfiðleikarnir á NT
eru nú komnir á nýtt stig.
Þannig óskaði Einar Birnir,
einn af stjórnarmönnum Nú-
tímans hf., eftir því að Rekstr-
artækni sf. yrði fengin til að
gera úttekt á rekstri blaðsins. í
skýrslunni, sem út úr könnun-
inni kom, kenndi margra fróð-
legra grasa, þar var meðal
annars haldið fram að skýrsl-
ugerðarmenn Rekstrartækni
hefðu rætt við um 70 prósent
starfsmanna. Liðið á NT held-
ur því hins vegar fram aö það
sé af og frá að það hafi verið
haft samband við svo marga.
Því er jafnframt haldið fram,
að sambandsleysi sé á milli
ýmissa yfirmanna og undir-
manna á blaðinu. Þetta er
ekki undarlegt þegar þess er
gætt, að könnunin fór fram í
byrjun desember, þegar ást-
andið var þannig á blaðinu, að
starfsfólk vissi ekki hvort það
myndi fá útborgað fyrir þenn-
an mánuð fyrr en á næsta ári.
Undir slíkum kringumstæðum
er mönnum kannski ekki neitt
sérlegahlýtttilstjórnanna... ■
Langtímalán
til íbúðakaupa
Allt að 10 ára lánstími og 200% lánshlutfall
RÍKULEGUR AFRAKSTUR:
íbúðalánareikningur með Kaskó ávöxtun.
Með fyrirhyggjusemi getur þú nú loksins
tryggt þér langtíma bankalán til íbúðarkaupa.
Þú stofnar sérstakan innlánsreikning í
Verzlunarbankanum, ÍBÚÐALÁNAREIKN-
ING, sem tengist rétti til lántöku.
Vaxtakjörin eru þau sömu og á KASKO-
reikningnum góðkunna. Þannig er tryggt að
spamaðurinn ber alltaf raunvexti.
TÍMAMÓT í BANKAÞJÓNU STU:
Allt að 10 ára lánstími og 200% lánshlutfall.
Lánshlutfallið verður því hærra og endur-
greiðslutíminn lengist því lengur sem sparað er.
Við lánveitingu er tekið mið af spamaði með
vöxtum eða verðbótum, ef þær reynast hærri.
EFTIR 2 ÁRA SPARNAÐ 150% LÁN, ENDURGREIÐSLUTÍMI 3 ÁR.
EFTIR 3 ÁRA SPARNAÐ 165% LÁN, ENDURGREIÐSLUTÍMI 5 ÁR.
EFTIR 4 ÁRA SPARNAÐ 180% LÁN, ENDURGREIÐSLUTÍMI 7 ÁR.
AUÐVELDUR SPARNAÐUR:
Misháar upphæðir á milli mánaða.
Samfelldur spamaðartími íbúðalánsins er
skemmstur tvö ár en lengstur fimm ár. Fastur
gjalddagi er mánaðarlega.
En það getur vissulega staðið misjafnlega á
hjá þér fjárhagslega og þess vegna ræður þú sjálfur
þeirri upphæð sem þú leggur inn frá einum mánuði
til annars. Spamaðurinn er auk þess alltaf laus.
Sannarlega auðveldur og áhyggjulaus spamaður.
EFTIR 5 ÁRA SPARNAÐ 200% LÁN, ENDURGREIÐSLUTIMI 10 AR.
íbúðalán Verzlunarbankans gerir gæfumuninn
þegar íbúðarkaup em annars vegar og er því
langþráð lausn fyrir fjölmarga. Ert þú einn af þeim?
Komdu við í næstu afgreiðslu Verzlunar-
bankans og náðu þér í upplýsingabækling um
ÍBÚÐALANIÐ eða hringdu og fáðu hann sendan
heim.
VÍRZLUNfiRBflNKINN
-vittvucimebfiéri!