Þjóðviljinn - 20.01.1985, Síða 9
Stórveldi
Samráð á 19. öld
klofningur
I umræðunní um togstreitu
risaveldanna er algengast að
ganga út frá því, að þar sé um
hagsmunastreð að ræða. En
oft er svo að sjá að í raun sé
miklu fremur deilt um metnað,
og er það engan veginn frá-
leitt með tilliti til þess, sem vit-
að er um sálarstrúktúr og hug-
arfarmannkindarinnar. Ur
haugi sínum kvað Gunnará
Hlíðarenda að hann hefði
fremur kosið að deyja en
vægja, og sú meginregla, eða
aðrar svipaðar, hafa á öllum
tímum ráðið miklu og oft
mestu um viðbrögð einstak-
linga, fjölskyldna, samfélaga,
ríkja og stórvelda.
Hegöun Bandaríkjanna í al-
þjóðamálum stjórnast að miklu
leyti af því, að þau vilja að viður-
kennt sé afdráttarlaust, að þau
séu öllum stórveldum meiri að
mætti og dýrð, eina raunverulega
risaveldið. Sovétríkin leggja fyrir
sitt leyti engu minna kapp á að
vera talin risaveldi til jafns við
Bandaríkin. Petta er mikilvæg
skýring á þeirri brjálæðislegu
meiningarleysu, sem atómvíg-
búnaðarkapphlaupið er.
fyrirmyndir
Kissingers
Á ríkisárum Nixons tóku
Bandaríkin þann kostinn að gefa
dálítið eftir fyrir Rússum í metn-
aðarstreitu þessari. Stefna þeirra
Nixons og Kissingers gagnvart
Sovétríkjunum fól í sér að vissu
marki viðurkenningu á keppi-
nautnum sem risaveldi á borð við
Bandaríkin sjálf.
Jafnframt vingaðist Nixon við
Kína, og þar sem fjandskapurinn
milli kommúnísku stórveldanna
tveggja hélt áfram að vera samur
og jafn, þýddi þetta að valdahlut-
föllin breyttust Bandaríkjunum í
hag. Nixon græddi því meira á
borði en hann gaf eftir í orði.
Engu að síður varð þessi form-
lega viðurkenning hans á risa-
veldisvirðingu Sovétríkjanna til-
að draga úr spennunni milli
tveggja mestu stórveldanna.
Þetta breyttist eftir daga Nix-
ons og sérstaklega eftir að Reag-
an kom til ríkis. f>á fóru Banda-
ríkin á ný að leggja áherslu á að
þau væru öllum stórveldum ofar,
í sérflokki sem risaveldi. Af-
leiðingin varð nýtt kalt stríð.
Rússar áttu vitaskuld einnig
drjúgan þátt í þeirri þróun mála,
sérstaklega með hernaði sínum í
Afganistan.
Á tímum Nixons var Kissinger
áhrifamesti maðurinn um mótun
utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Hann er Evrópumaður og fyrir-
myndir hans í stórpólitíkinni voru
evrópskir valdhafar á nítjándu
öld, menn eins og Metternich og
Talleyrand. Á því tímabili var
heimurinn nær því að vera undir
einskonar sameiginlegri stjórn en
nokkru sinni fyrr eða síðar.
Tímabilið 1815-1914 - frá Wat-
erloo til Sarajevo - einkenndist af
tiltölulega miklum friði og sam-
ráði í samskiptum stórvelda. Sla-
gurinn við Waterloo batt endi á
stórveldastyrjöld, sem staðið
hafði næstum látlaust í nærri
aldarfjórðung, með Frakkland
aðallega öðrumegin, en hinu-
megin önnur Evrópuveldi. En að
Napóleoni mikla brottfluttum til
St. Helenu liðu næstum fjörutíu
inni miðri sló að vísu nokkrum
sinnum í blóðuga brýnu milli
stórveldanna (Krímstríð Breta og
Frakka gegn Rússum 1854-1856,
stríð Frakka og Austurríkis-
manna 1859, prússnesk-
ár áður en á ný kæmi til styrjaldar
milli Evrópuvelda. Upp úr öld-
austurríska stríðið 1866, þýsk-
franska stríðið 1870-1871), en öll
þau stríð stóðu tiltölulega stutt og
breiddust ekki út. Og eftir lok
fransk-þýska stríðsins 1871 liðu
enn næstum þrjátíu og fimm ár
svo að friður ríkti milli Evrópu-
veldanna.
Ástæðurnar til þess að svo
gekk til eru auðvitað margar. Ein
var sameiginlegur vilji valdhafa
til þess að útrýma áhrifunum frá
frönsku byltingunni eða að
Þessi skopmynd af Kissinger á að
minna á andlegan skyldleika hans við
Metternich, kanslara Austurríkis,
sem átti mikinn þátt í samtryggingu
stórvelda Evrópu á 19. öld.
minnsta kosti halda þeim í
skefjum. En stríðsþreyta eftir
alla slátrunina 1792-1815 átti hér
einnig hlut að máli. Eftir það var
lengi um að ræða meira eða
minna ákveðna viðleitni af hálfu
framámanna stórveldanna til að
hindra, að svoleiðis nokkuð
kæmi oftar fyrir.
Evrópa
aldrei voldugri
Petta ásamt með fleiru hafði í
för með sér að á þessu tímabili
var Evrópa voldugri en nokkru
sinni fyrr eða síðar, í samanburði
við aðra hluta heimsins. Við-
leitnin til þess að forðast árekstra
milli stórvelda og sérstaklega
þess að þau skiptust á ný í tvær
andstæðar fylkingar, eins og ver-
ið hafði í byltingar- og
Napóleonsstríðunum, leiddi til
verulegs samráðs þeirra á milli,
sem stundum var það náið að tal-
að var um „Evrópukpnsertinn"
(Consert of Europe). Á því tíma-
bili var stundum, líkt og nú, tal-
sverður órói í löndunum fyrir
Miðjarðarhafsbotni, en í stað
þess að etja þar einhliða kappi
hvert við annað, eins og nú,
komu stórveldin sér þá niður á að
jafna málin í einskonar bróðerni,
þótt flátt væri. í Afríku og Kína,
þar sem flest eða öll stórveldin
kepptu um áhrif og völd, náðu
þau samkomulagi í svipuðum
anda. Margskonar yfirgangur,
kúgun og óréttlæti viðgekkst
vissulega í skjóli þessa samráðs,
en vera kann, með tilliti til þess
sem á undan gekk og á eftir hefur
gengið, að hinn valkosturinn
hefði orðið ennþá og jafnvel
miklu meiri hörmungar.
Undir lok nítjándu aldar tók að
draga ískyggilegar blikur á loft á
himni Evrópukonsertsins. Til
þess leiddu einkum hræringar
þær, er urðu út af því er mestur
hluti þýska málsvæðisins samein-
aðist í eitt ríki 1871. Allt frá því í
lok miðalda höfðu pólitískar afl-
stöðvar Evrópu einkum verið í
vestur-, suður-, austur- og jafnvel
norðurhluta hennar; miðsvæðið,
Þýskaland, var pólitískt sundrað
og því tiltölulega veikt pólitískt.
Allan þennan tíma hafði hinn
pólitíski þrýstingur í álfunni eink-
um verið frá ytri hlutum hennar
inn að miðjunni; nú, þegar nýtt
þýskt keisaradæmi, ölfugasta ríki
meginlandsins í krafti sterkrar
miðstjórnar, iðnmáttar, her-
styrks, auðlinda, legu og fólks-
fjölda, var komið til sögunnar,
hlaut sá þrýstingur að snúast við
að einhverju marki. Þetta mislík-
aði mest Rússum og Frökkum,
sem frá 1815 höfðu lengst af verið
hvað áhrifamestir í flokki megin-
landsríkja; hvað þá síðarnefndu
snerti, hafði sú vegsemd varað frá
því í þrjátíu ára stíðinu, og Rúss-
ar höfðu verið áhrifamikið Evr-
ópuveldi frá og með tíð Péturs
mikla. Til stórslysa út af þessu
kom að vísu ekki um sinn, meðal
annars vegna hófsemdar og klók-
inda af hálfu Bismarcks
járnkanslara, en líka vegna þess,
að lengst af tímabilsins 1871-1914
tortryggðu Bretar Rússa öllu
meira en Þjóðverja, enda þótt
saman gengi með Bretum og
Frökkum. En smátt og smátt risu
úfar með Bretum og Þjóðverjum,
og kom þar einkum til harðnandi
keppni þeirra á milli sem
iðnaðar- og sjóvelda, óheppileg
ummæli Vilhjálms Þýskalands-
keisara við óheppileg tækifæri og
síðast innrás Þjóðverja í Belgíu;
allt frá því á miðöldum höfðu
Englendingar verið sérlega áfram
um að hindra að nokkurt meginl-
andsstórveldi hefði sterka stöðu á
því svæði, sem næst er ströndum
þeirra handan sunds.
Klofningur
Þar með var til sögunnar kom-
ið ekki ósvipað ástand og á Nap-
óleonstímanum; Evrópuveldin
höfðu skipað sér í tvær fylkingar,
er stóðu gagnvart hvor annarri,
magnaðar hatri og tortryggni.
Það ástand hefur varað allt til
þessa dags og færst yfir á allan
Napóleon tekur á móti Prússadrottn-
ingu í Tilsit 1807 - á málverkinu sjást
þeir líka Talleyrand og Alexander
Rússakeisari: tvískipting álfunnar þá
eins og nú.
Bismarck: þegar mikill hluti hins
þýska málsvæðis sameinaðist undir
forystu Prússa 1871 fór að hrikta í
„Evrópukonsertinum".
neiminn. Það hefur á sjötíu árum
leitt af sér tvær heimsstyrjaldir og
geggjunarkennt atómvígbúnað-
arkapphlaup. Framan af var liði
skipt þannig, að aðalveldið örðu-
megin var Þýskaland, hinumegin
vesturveldin og Rússland. Eftir
síðari heimsstyrjöld urðu á þessu
þær breytingar að síðan eru So-
vétríkin öðrumegin, en hinu-
megin Bandaríkin, Vestur-
Evrópa og Japan, og nú má segja
að Kína hafi að vissu marki bæst
við í þann hóp.
Það stórhættuástand, sem
þessi skipting stórveldanna í tvær
fylkingar hefur í för með sér,
mætti hverfa að miklu leyti ef í
staðinn skapaðist með stórveld-
unum hliðstætt samráð og var á
nítjándu öld, og í þetta sinn dygði
ekki minna en heimskonsert.
Líkt og á nítjándu öld myndi því
fylgja margskonar kúgun og ö-
réttlæti (hvort ástand heimsins
sem heildar myndi við þetta
versna eða batna, er ómögulegt
um að segja), og hætt er við að
undir þeim kringumstæðum
myndi mörgum kotbóndanum
þykja þröngt fyrir dyrum. En
spurningin er hvort boðið sé upp
á betri valkosti.
dþ.
Sunnudagur 20. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Marlín-tóg
línuefni
blý-teina-
tóg
flotteinn
nælon-tóg
landfestar
stálvír
alls konar
Bauju-
stengur
ál, bambus, plast
baujuluktir
endurskinshólkar
endurskinsborðar
línubelgir
netabelgir
baujubelgir
önglar - taumar
MÖRE-
NETAHRINGIR
NETAKEÐJA
netalásar
netakóssar
lóðadrekar
baujuflögg
netaflögg
fiskkörfur
fiskgoggar
fiskstingir
flatningshnífar
flökunarhnifar
beituhnífar
kúluhnífar
sveðjur
stálbrýni
HVERFISTEINAR
í kassa og lausir
rafmagns-
hverfisteinar
•
SNJÓSKÓFLUR
KLAKASKÖFUR
SALTSKÓFLUR
ÍSSKÓFLUR
•
GÚMMÍ-
SLÖNGUR
allar stærðir
PLASTSLÖNGUR
glærar með
og án innleggs
SLONGU-
KLEMMUR
ALLAR STÆRÐIR
EINNIG ÚR RYOFRÍU STÁLI.
STORZ-
SLÖNGU-
TENGI
STORZ-SLÖNGU-
STÚTAR
BRUNASLÖNGUR
SÍMI28855
Opið laugardag 9-6