Þjóðviljinn - 20.01.1985, Qupperneq 13
FURÐUR
Sérstakttungu-
mál kvenna
er komið
á dagskrá
Hið nýja kvennamál á að vera
„líkamlegra" en það sem við erum vön
Fyrir skömmu var efnt til eins-
konarsamkeppni íDanmörku
um kvennatungu og sendu
um hundraö konur inn texta
sína. Niöurstaöan þótti stað-
festa þá hugmynd, aö mikill
munur væri á málnotkun karla
og kvenna og að konur væru
ekki í stakk búnar til aö tjá sig
til fulls á „ríkjandi" tungutaki,
sem karlar heföu náttúrlega
ráðiðmestuum.
Þessi samanburður á tungutaki
karla og kvenna er útskýrður í
viðtali sem nýlega birtist í In-
formation m.a. með því að kynin
tvö hafi tvennskonar lykla að ver-
uleikanum. Nynne Koch, sem
hefur orð fyrir kvennatungufræð-
ingum, segir á þá leið að karlar
hafi tilhneigingu til að ganga
beint til verks, tala sig áfram í
beinni línu til niðurstöðu. Konur
hafi aftur á móti tilhneigingu til
að tala í hring, eða réttara sagt í
spíral, mál þeirra sé ekki eins
marksækið og karla en á hinn
bóginn auðugra að ýmsum blæ-
brigðum og tengslum.
Nynne Koch telur að konur
eigi ekki að reyna að tileinka sér
það sem hún kallar mál karla og
stundum „mál valdsins", heldur
halda áfram með sín sérkenni og
skapa kvennamál, sem tekur
m.a. meira mið af hreyfingum
líkamans, látbragði og þar fram
eftir götum.
Hvað þýðir
þetta dœmi?
Allt er þetta nokkuð fróðlegt.
Þó getur sá sem viðtalið les ekki
annað en undrast þegar hann les
dæmi eins og þetta um kvenna-
tungutak og karla:
Kvennamál: „Þegar karl og
kona elska hvort annað þá er
ósköp eðlilegt að þau gifti sig.
Það er líka best fyrir börnin."
Þetta verður á karlamáli: „Til-
gangur hjónabandsins er að
fullnægja tilfinningaþörfum og
að setja sambandi einstaklinga af
andstæðu kyni löglegan og hag-
rænan ramma“.
Samanburður af þessu tagi
byggir á þeirri staðhæfingu að
það séu fyrst og fremst karlar sem
hafi tileinkað sér „stofnanamál
samfélagsins". En spyrja mætti:
Er ekki munurinn á þeim tveim
klausum sem vitnað var í hér að
ofan fyrst og fremst munur á
hversdagslegu tali fólks af báðum
kynjum og svo tali þeirra, sem
hafa orðið fyrir áhrifum af mál-
fari kennslubóka í félagsfræði?
En ekki að hann verði rakinn til
þess, að karla og konur eigi sér
ólíka lykla að veruleikanum?
áb.
í Nizza er gengið á skíðum undir frægum pálmatrjám
Vestur-Evrópa
er að krókna úr kulda
Sumir spá því að hörkurnar stanái út febrúar
Pegar Gromiko utanríkisráö-
herra Sovétríkjanna kom til
Sviss á dögunum til að tala viö
bandarískan starfsbróður
sinn, þá er haft fyrir satt að
hann hafi hryllt sig mjög og
kvartað um kulda. En þá var
15 stiga frost í Genf. Austur í
Þvert á allar markaðsspár
kaupa Bandaríkjamenn
myndbandatæki af miklu
kappi og er skýringin umfram
annaö talin vera þreyta áhorf-
enda á auglýsingum í sjón-
varpsstöövunum.
Áður var talið að Bandaríkin
myndu ekki falla fyrir
myndabanka(video)-tækjum
Rússlandi var kuldinn reyndar
miklu minni.
Meðan Moskva og Reykjavík
sleppa sæmilega vel hafa miklar
frosthörkur gengið yfir Vestur-
Evrópu. Norður í finnska Lapp-
landi var sett kuldamet, þar
mældist 50 stiga forst dag einn
eins og Evrópubúar, þar sem svo
margar sjónvarpsstöðvar eru á
boðstólum. Það reyndist aldeilis
rangt, því að á síðasta ári seldust
7 miljón tæki vestra, 4 miljónir
árið 1983 og á árinu 1985 er nú
gert ráð fyrir að tvöfalt fleiri tæki
seljist meðan talið er að aukning
sölunhar í Evrópu verði ekki
nema um 10%.
Sérfræðingar telja skýringuna
skömmu eftir áramót og hefur
annað eins ekki gerst í 120 ár.
Úlfar svangir hafa leitað sér at-
hvarfságötumplássanorðurþar. .
Og kuldabeltið lá suður um '
alla Evrópu. Ár og hafnir frusu í
Júgóslavíu. í Nizza á Miðjarðar-
hafsströnd Frakklands lá 20
á þessari eftirspurn eftir mynd-
bandatækjum vera offramboð á
auglýsingum og að langlundar-
geð áhorfenda sé einfaldlega
þrotið. Myndbandaleigur og
-sölur tilkynna sömuleiðis á sl.
ári, að fólk vilji kvikmyndir, sem
ekki eru bútaðar niður með
auglýsingum. Verður fróðlegt að
fylgjast með þróuninni hérlendis
þegar ísfilm kemur á koppinn.
óg.
sentimetra djúpur snjór undir
frægum pálmum. 1 París var reynt
að bjarga heimilisleysingjum frá
bráðum bana með því að láta þá
sofa í upphituðum neðanjarðar-
brautarstöðvum. Engu að síður
er talið að fyrstu daga kulda-
kastsins hafi um þrjátíu manns
frosið í hel í Frakklandi og svipuð
tala kemur nú síðast frá Spáni.
Óviðbúnir
f Róm er sagt, að það snjói
aldrei nema þegar páfinn deyr.
Það gerðist að vísu ekki, en sam-
göngur í þeirri eilífu borg hafa
truflast verulega vegna snjókomu
- til dæmis þurfti að fljúga með
um þúsund bandaríska ferða-
menn til Napóli í stað Rómar
fyrir skemmstu.
Víða verður þess vart, að kuld-
akastið kemur fólki mjög í opna
skjöldu: það veit ekíci hvernig
bregðast á við. Götuhreinsunar-
menn í Madrid héldu áfram að
sprauta vatni á gangstéttirnar
þótt komið væri frost. Sú vitleysa
var ekki stöðvuð fyrr en Madrid-
arbúar fóru að hrynja unn-
vörpum á hálkunni.
Á Þýskalandi og á Niður-
löndum eru kuldar miklir, hafnir
undir ís, umferðarhnútar margir
á vegum, lestum seinkar um
marga klukktíma. í frægum ka-
þólskum kirkjum geta menn ekki
dýft fingrum í vígt vatn áður en
þeir krossa sig: vatnið er frosið í
botn.
Eins dauði...
Meðan gamalt fólk og fátækt,
sem býr í vondum húsum og illa
kyntum, biður guð að stytta þess-
ar hörkur, eiga aðrir sér gullöld
og gleðitíð. Skíðafólk og þeir sem
þjóna þörfum þess og selja skíða-
búnað og annað þessháttar fagna
ákaflega. Einnig þeir sem selja
bílkeðjur. Olíuríkin í OPEC sjá
fram á að olíuverð muni ekki síga
eins og búist var við fyrir
skemmstu. Og þótt frostið geri
ávaxtabændum og grænmetis-
bændum marga skráveifu, þá
hugga þeir sig einnig við það, að
það drepi margt meindýra.
Enginn veit hve lengi kulda-
kastið muni enn standa. Til eru
veðurfræðingar sem spá að það
muni standa langt fram í febrú-
(áb byggði á Spiegel).
Bandaríkjamenn
Þreyttir á auglýsingum
Mynábönáin að kaffœra sjónvarpsstöðvarnarvestra
Sunnudagur 20. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Ortölvur
Flóða-
varnir í
Cóloradó
Fjarnemarsenda
upplýsingarum
vatnsborð og
rennslishraðaíám
um gervihnött
til aðalstöðvanna
Flóðahætta er mikil í sumum
hlutum Cóloradó í Bandaríkj-
unum. Flóöingetaskolliöáán
mikils fyrirvara, og áriö 1976
uröu mannskæð flóð, Big
Thompson flóðin svonefndu,
sem kostuöu líf rösklega 130
manna.
Nú hafa vatnsverkfræðingar í
Cóloradó tekið örtölvutæknina í
þjónustu sína til að byggja upp
forvarnarkerfi. í þessum mánuði
munu 80 fjarnemar, staðsettir á
bökkum flóðgjarnra áa, taka til
starfa.
Fari rennslishraði yfir ákveðið
mark, eða vatnsborðið rísi yfir til-
tekna hæð, þá vekur það ákveðið
boð frá fjarnemunum. Boðið
berst frá þeim til gervihnattar
sem kemur þeim áfram til aðal-
stjórnstöðvarinnar í höfuðstöðv-
um þeirrar stofnunar sem fylgist
með ánum. Þannig er hægt að bú-
ast við flóðum mun fyrr en ella,
og gera tilrækar varúðarráðstaf-
anir. - ÖS.
Þjóðverjar
Vilja
hlutlaust
sameinað
Þýskaland
Sífellt fleiri Vestur-Þjóðverjar
vilja sameina Vestur- og
Austur-Þýskaland í eitt ríki,
sem standi utan hernaöar-
bandalaga. Nákvæm skoö-
anakönnun leiddi nýveriö í
Ijós aö 53% allra borgara yfir
16 ára væru þessa fýsandi, -
en einungis 26% þessu and-
vígir.
Fréttaskýrendur telja þetta
merkilega þróun í ljósi þess, að
árið 1978 voru 38% þessa
óskandi en 34% á móti.
í spurningunni var tekið fram
að þjóðfélagskerfið í nýju sam-
einuðu Þýskalandi yrði ákveðið í
frjálsum kosningum og að
Vestur- og Austur-Þýskaland
gengju úr Nató og Varsjárbanda-
laginu. Einnig þykir merkilegt að
hægri menn (CDU) hafa færst
yfir á þessa skoðun sem aðrir.
48% kjósenda þeirra voru fylgj-
andi hlutlausu sameinuðu Þýska-
landi en einungis 32% á móti, - af
kjósendum sósíaldemókrata
voru 59% fylgjandi, 23% á móti.
Meðal kjósenda Græningja voru
73% með sameiningu en 8% á