Þjóðviljinn - 14.02.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.02.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Sleppibúnaður Búið að lagfæra hjá flestum Páll Guðmundsson Siglingamálastofnun: Astandið orðiðgott. Ný úttektgerð bráðlega. Geysilegar endurbœturfrá ífyrstu B úið er að skipta um víra í flest- gálgunum sem stóðu á sér þegar um sjálfvirku Sigmundar- Siglingamálastofnun gerði úttekt Húsnœði Viðbótarlánin í gang Þeirsem hafa lent í vanskilum geta sótt ráðgjöf og aukalán til Húsnœðisstofnunar. Hámarksfjárhœð 150 þúsund Undanfarin ár hafa sífelld móðuharðindi dunið á húsn- æðisböslurum þrátt fyrir fögur orð ráðamanna. Þeir sem verst eru settir við kaup eða byggingu geta nú tekið hluta gleði sinnar: félagsmálaráðherra hefur ákveð- ið að Húsnæðisstofnun veiti ný lán þeim sem eiga á hættu að draumurinn breytist í martröð vegna vanskila. 19. þessa mánað- ar hefst hjá Húsnæðisstofnun sér- stök ráðgjafarþjónusta og mega þeir sem komast gegnum nálar- augað eiga von á viðbótarláni allt að 150 þúsundum króna. Umsóknareyöublöð um slíkt lán veröa tilbúin hinn 19., og er umsóknarfrestur til 1. júní. Helstu reglur um lánin: fyrri lán úr Byggingarsjóöi árin 1980-84, íbúð byggð/keypt í fyrsta skipti, greiðsluerfiðleikar svo miklir að menn eiga á hættu að missa íbúð- ina, aðrir lánamöguleikar fullkannaðir og nýttir, gjald- fallnar vanskilaskuldir a.m.k. 150 þúsund fyrir síðustu áramót. Lánstími viðbótarlánanna er fimm til tíu ár, fjárhæð 50-150 þúsund. Húsnæðisstofnun tekur jafnframt að sér milligöngu við lánastofnanir um að lengja erfið skammtímalán. Umsóknareyðublöð fást hjá Húsnæðisstofnun í þarnæstu viku, líka hjá lánastofnunum og skrifstofum sveitarstjórna. _ m Ragnhildur Blóðtaka fyrir menirtakerfið Ályktun frá Æskulýðsfylkingunni Æskulýðsfylkingin í Reykjavík lýsir yfir fullum stuðningi við launakröfur kennarastéttar- innar og krefst þess að ríkisstjórn íslands gangi þegar í stað til samninga við hana. Æskulýðsfylkingin í Reykjavík bendir á að ef til uppsagna kemur þann 1. mars, mun ein megin undirstaða velferðarþjóðfélags- ins, menntakerfið, verða fyrir gífurlegri blóðtöku sem erfitt Lýðháskólar Nám á Norðurlöndum Kynning á lýðháskólanámi í Norrœna húsinu Lýðháskólahreyfingin á Norð- urlöndum er öflug fræðslu- og félagsmálahreyfing, sem stendur á gömlum merg. Lýðháskólarnir bjóða upp á fjölbreytt nám á ölium sviðum og eru iíka með sér- hæfða skóla fyrir s.s. hreyfihaml- aða og heyrnarskerta. Lýðháskólar eru ætlaðir öllu fólki 18 ára og eldri og engar sér- stakar kröfur eru gerðar til undir- búningsmenntunar. Nú næstkomandi laugardag efnir Reykjavíkurdeild Norræna félagsins til kynningar á lýðhá- skólanámi á Norðurlöndum í samvinnu við skrifstofu Norræna félagsins. Kynningin hefst, eins og áður segir, nk. laugardag 16. febrúar kl. 15.00. Eftir dagskrá verður fyrir- spurnum svarað. Upplýsinga- bæklingar um lýðháskóla á Norð- urlöndum liggja frammi. g.O. á björgunarbúnaðinum í lok sl. árs. Ekki hefur verið gerð nein skyndiskoðun ennþá á búnaðin- um eftir þessa breytingu og sagði Páll Guðmundsson hjá Siglinga- málastofnun í gær að beðið væri eftir meiri frostum til að kanna búnaðinn á ný. „Það er ekkert annað en reynslan sem getur skorið úr um hæfni búnaðarins. Við verðum- því að láta þetta vera um borð einhvern tíma áður en við skoðum þetta skipulega." Páll sagði að ástandið nú væri orðið nokkuð gott. Þessi sjálf- virki búnaður á að vera kominn um borð í öll skip og hann hefur tekið miklum framförum og verið endurbættur frá því hann kom fyrst fram. „Ég segi það rétt að í dag myndi enginn vilja taka þann búnað urn borð sem fyrst kom fram þó hann hafi þótt mikil framför frá því sem áður þekkt- ist. Slíkar hafa endurbæturnar orðið eftir þessa reynslu", sagði Páll. - lg verður að bæta fyrir í náinni framtíð. Ef þessi kjaradeila leysist ekki strax, mun það koma illilega niður á þúsundum náms- manna, bæði hvað varðar menntun og fjárhag. Æskulýðsfylkingin í Reykjavík lýsir ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar eina ábyrga fyrir af- leiðingum deilunnar og krefst þess að hægriflokkarnir láti af stöðugum ofsóknum sínum á menntakerfið og launafólk." Fiskiskip Island er í 19. sæti Sovétmenn eiga fiskiskipastól uppá 3,7 miljónir brúttólesta ísland er í 19. sæti hvað varðar stærð fiskiskipastóla í heiminum, með 330 skip samtals 99,926 brúttólestir að stærð. Sovétríkin eiga lang stærsta fiskiskipastól í heimi, samtals 3.501 skip 3,7 miljónir brúttólestir að stærð. Næstir koma Japanir með 2.875 skip samtals 893,520 brúttólestir að stærð og í þriðja sæti eru Bandaríkjamenn með 3.141 skip 620,992 brúttólestir að stærð. Það vekur athygli í þessu sam- bandi að Sovétmenn eiga 938 skip sem eru 2 þúsund brúttólest- ir að stærð eða meira, Japanir 39 skip og Bandaríkjamenn aðeins 4. - S.dór SERSTOK LAM VEGISIA GREIÐSLUERFIDLEIKA Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að settur verði á stofn nýr lánaflokkur með það markmið, að veita húsbyggjendum og íbúðarkaupendum lán vegna greiðsluerfiðleika. I framhaldi af þvi er Húsnæðisstofnun ríkisins að iáta útbúa sérstök umsóknareyðublöð, sem verða tii afhendingar frá og með 19. febrúar 1985 í stofnuninni og verða þá jafnframt póstlögð til lánastofnana og sveitarstjórnarskrifstofa til afhendingar þar. Umsóknir skulu hafa borist fyrir l.júní 1985. Þeir einir eru lánshæfir sem fengið hafa lán úr Byggingarsjóði ríkisins á tímabilinu frá l.janúar 1980 til 31. desember 1984 til að byggja eða kaupa fbúð í fyrsta sinn. Tímamörkskulu miðuð við lánveitingu en ekki hvenær lán er hafið. RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA Jafnhliða stofnun þessa lánaflokks hefur verið ákveðið, að setja á fót ráðgjafaþjónustu við þá húsbyggjendur og fbúðarkaupendur, sem eiga f greiðsluerfiðleikum, og mun hún hefja störf 19. febrúar næstkomandi. ~ Sfmaþjónusta þessarar ráðgjafaþjónustu verður í síma 28500 á milli kl. 8.00 og 10.00 f.h. alla virka daga. Að öðru leyti vfsast til fréttatilkynningar Húsnæðis- stofnunarinnar, sem send hefur verið fjölmiðlum. Húsnæðisstoínun ríkisins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.