Þjóðviljinn - 14.02.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.02.1985, Blaðsíða 5
 Alþingi Spurtum.. ...beitusmokk Skúli Alexandersson hefur lagt fram fyrirspurn til sjávarútvegs- ráðherra um veiði, nýtingu og kaup á smokkfiski. Skúli spyr m.a. hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar á vegum ráðuneytisins til að auðvelda og tryggja að aflað yrði smokkfisks til beitufrysting- ar úr smokkfiskgöngunni sem var við Vestfirði og Vesturland í haust. Þá spyr Skúli hversu mikið hafi verið fryst til beitu, hvort gerðar hafi verið tilraunir til að vinna smokkfiskinn til manneldis og hvort markaðir séu fyrir slíka vöru. Einnig spyr hann hversu mikið hafi verið flutt inn af beitusmokki 1983, hversu mikið sé áætlað að flytja inn á yfirstand- andi vertíð og hvert áætlað sölu- verð þeirrar beitu sé. ...skatta milliliðanna Svavar Gestsson hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráð- herra um skatta verslunar, banka og skipafélaga árið 1983. Hann spyr hver hagnaður smásölu- og heildsöluverslunarinnar hafi ver- ið samkvæmt skattframtölum 1983 og hversu margar smásölu- verslanir og heildverslanir hafi talið fram á því ári. Einnig spyr Svavar hver hagnaður skipafélag- anna hafi verið á sama ári svo og hver hagnaður bankanna hafi verið. ...beinar greidslur til bænda Eyjólfur Konráð Jónsson hefur lagt fram tvær fyrirspurnir til landbúnaðarráðherra og við- skiptaráðherra um beinar greiðslur til bænda. Eyjólfur spyr landbúnaðarráð- herra hvernig bændur hafi tekið því nýmæli að fá nú rekstrar- og afurðalán sín beint í hendur, en viðskiptaráðherra gerði kröfu þar um 22. maí s.l. þegar fimm ár voru liðin frá því Alþingi sam- þykkti tillögu sama efnis. Eyjólfur spyr hvort brögð hafi verið að því að afurðasölufélög reyndu að sniðganga þessi fyrir- mæli eða hvort einstaka bankar hafi hliðrað sér hjá því að þesum fyrirmælum væri hlýtt. Einnig hvort sláturhús hafi stuðlað að því að bændur fengju greitt fullt grundvallarverðás.l. hausti og ef ekki, hvernig uppgjöri sé þá hátt- að. í fyrirspurninni til viðskipta- ráðherra er spurt hvaða reglur bankarnir hafi sett til að tryggja að samþykkt alþingis frá 1979 og bréf viðskiptaráðherra 1984 nái fram að ganga, hvort bankar eða útibú hafi reynt að sniðganga fyrirmælin og ef svo sé, hvaða viðurlögum ráðherra hyggist beita. Einnig spyr Eyjólfur hvaða veð bankar hafi fyrir rekstrar- og afurðalánum annars vegar og lán- um til afurðasölufyrirtækja hins vegar. Noregur Ríkiðborgar 60% aföllu fiskverði 1 Styrkir til sjávarútvegs hœrri en útflutningsverðmœti SH „Er okkurengin vörn í EFTA og komur norrænt samstarf ís- lendingum að engu gagni? Hvað hyggst ríkisstjórnin gera?“ spurði Karl Steinar Guðnason á alþingi á þriðju- dag, þegar hann upplýsti að ríkisstyrkir Norðmanna nema jafnvirði 6,2ja miljarða ís- lenskra króna og jafngilda því að norska ríkið greiði 60% af öllu fiskverði í landinu. Til samanburðar má geta þess að útflutningsverðmæti SH í Bandaríkjunum á síðasta ári var um 5 miljarðar íslenskra króna. Viðskiptaráðherra og sjávarút- vegsráðherra tóku undir gagn- rýni Karls Steinars á styrkjakerfi Norðmanna, sem þeir töldu allir jafngilda verndartollum, sem EFTA-samkomulagið bannar. Halldór Ásgrímsson kvað svo sterkt að orði að hér væri um lífss- pursmál fyrir íslendinga að ræða: ríkisstyrkir Norðmanna væru það sem héldi niðri lífskjörum á þessu landi. Þrátt fyrir stór orð um þetta varð ráðherrum svarafátt um það hvað gera skyldi, nema þá það sem gert hefur verið með engum árangri árum saman: að bera fram mótmæli á toppfund- um í norrænu samstarfi og innan EFTA. Slíkt yrði að sjálfsögðu gert á Norðurlandaráðsþinginu í lok febrúar. Hjörleifur Guttormsson sagð- ist sakna tillagna frá ráðherrum Norskur sjávarútvegur nýtur gífurlegra styrkja og má nefna sem dæmi að þeir eru hærri en útflutningsverðmæti Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna! um að aflétta þessu ástandi. Við- skiptaráðuneytið væri ótrúlega deigt að verja hagsmuni íslands innan EFTA. Hann minnti á að embættismenn í ráðuneytinu töldu það óvinnandi veg og nán- ast móðgun að láta sér detta í hug að fara fram á undanþágu til að setja aðlögunargjald á vegna inn- lendrar iðnaðarframleðslu á sín- um tíma. Þá var gengið fram með pólitískum hætti og sendir menn til allra EFTA-landanna og málið hefði verið til lykta leitt með sam- þykki þjóðanna allra. Þá þurfti pólitíska dirfsku og þyrfti aftur nú, sagði hann. Síendurteknar yf- irlýsingar bæru keim sýndar- mennsku, lágmarkskrafa væri að gera áætlun um að ná fram breytingu í þessu efni. Þá minnti Hjörleifur á að sam- keppnisstaða sjávarútvegsins ræðst ekki aðeins af undirboðum Norðmanna og annarra: sjávar- útvegurinn greiddi nú þriðjungi hærra olíuverð en keppinautur okkar. í því efni heyrðist líka harla lítið frá stjórnvöldum. Umræður urðu mjög fjörugar vegna fyrirspurnar Karls Steinars og stakk Jón Baldvin m.a. uppá að fiskverkunarfólk fjölmennti við fundarstað Norðurlandaráðs síðar í mánuðinum eða færi í mót- mælastöðu við norska sendi- ráðið. Kjartan Jóhannsson benti á að lítið gagn hefði verið að því að vinna landhelgisstríðið ef nú ætti með óheiðarlegum vinnu- brögðum að leggja okkur í við- skiptastríði. Hjá einum þing- manna kvað við nokku annan tón: Stefán Benediktsson sagði makalaust að þingmenn reyndu nú að finna þjóðarbölinu stað í byggðastefnu Norðmanna! Hér væru menn að hengja bakara fyrir smið og nær væri að taka til heima hjá sér en að leita uppi óvini í öðrum löndum! -ÁI Stjórnkœnska Verðbólga komin í 50% Svavar Gestsson: Ríkisstjórnin ráðlaus og hefur ekki vit til að stökkva inn á tillögur stjórnarandstöðunnar Á fundi með fulltrúum stjórnarandstöðunnar s.l. föstudag upplýsti Steingrímur Hermannsson, forsætisráð- herra, að verðbólgan væri nú komin í u.þ.b. 50% Svavar Gestsson vakti athygli á þessu á alþingi á mánudag og sagði ljóst að ríkisstjórninni hefði mistekist það meginmarkmið sitt að lækka verðbólguna, enda hefði hún ekki kunnað til þess nema eitt ráð: að lækka kaupið. Það hefði verið reynt áður og dygði ekki. Nauðsynlegt væri að taka á öllum þáttum efnahags- mála, ekki aðeins einum eins og stjórnin hefði gert. Og nú legði hún fram „tilkynningu um efna- hagsatriði“ í stað raunhæfra til- lagna, og hefði ekki einu sinni vit til að stökkva inn á tillögur stjórnarandstöðunnar í hinum ýmsu þáttum efnahagsmála. A mánudag var framhaldið í neðri deild fyrstu umræðu um frumvarp Alþýðubandalagsins um verndun kaupmáttar. Svavar Gestsson vakti athygli á að þetta er í fyrsta skipti sem flokkur í stjórnarandstöðu leggur fram frumvarp þar sem tekið er á öllum helstu þáttum efnahags- mála. Slíkt væri algert nýmæli. Hann benti á að í frumvarpinu er kafli um verðlagsmál, tillaga um algera breytingu á langlánanefnd og ákvæði um að banna útgáfu skuldabréfa nema á nafn. Þá minnti hann á tillögur til lausnar á vanda útgerðarinnar, sem ríkis- stjórnin væri ráðlaus í og minntist ekki einu orði á í fréttatilkynn- ingunni frægu. Hann vakti einnig athygli á að formaður og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins hefðu lýst stuðningi við 7. gr. frum- varpsins um að banna verðtrygg- ingu á lánum sem eru til skemmri tíma en 10 ára, en sagði jafnframt að reyndar réðu þeir litlu á stjórnarheimilinu. Hann spurði hvort ríkisstjórnin myndi beita sér fyrir afnámi vísitölutrygging- ar á skemmri tíma lán og benti á að til þess þarf ekki lagasetningu. Að lokum ítrekaði Svavar til- lögur Alþýðubandalagsins um af- nám sjúklingaskattsins, - það væri fyrsta skref í skattalækkun- artillögum flokksins! -Á1 Fimmtudagur 14. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Alþingi Spurtum... ...G-lánin Helgi Seljan hefur lagt fram fyrirspurn til félagsmálaráðherra um afgreiðslu lána frá Húsnæðis- stofnun ríkisins. Hann spyr hve- nær vænta megi afgreiðslu G-lána til þeirra sem keyptu eldri íbúðir í apríl-júní á síðasta ári. Þá spyr Helgi hvenær þriðji hluti nýbygg- ingarlána verði afgreiddur til þeirra sem fengu fyrsta hlutann í desember 1983. ...tannsmíðanám Árni Johnsen hefur lagt fram fyrirspurn til menntamálaráð- herra um hvað líði vinnu við skipulagningu tannsmíðanáms.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.