Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 6

Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 6
ALÞÝDUBANDAIAGIÐ ÞJÓDMÁL Alþýðubandalagið Hveragerði Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 18. febrúar kl. 20.30 að Dynskógum 5. Á dagskrá er fjárhagsáætlun hreppsins og fieiri mál. - Stjórnin. Egilsstaðir - Hérað Opinn fundur í Valaskjálf á vegum Alþýðubandalagsins verður haldinn laugardaginn 16. febrúar kl. 16.00. Framsögu hafa: Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins og Guðmundur J. Guðmundsson formaður VMSÍ. Á dagskrá eru málefni alþýðuheimilanna - tillögur Alþýðubandalagsins. Helgi Seljan mætir einnig á fundinn. Allir velkomnir! Alþýðubandalagið. Guðmundur Svavar Seyðfirðingar Opinn fundur í Herðubreið á vegum Alþýðubandalagsins verður haldinn föstudaginn 15. febrúar kl. 20.30. Framsögu hafa: Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins og Guðmundur J. Guðmundsson formaður VMSÍ. Á dagskrá eru málefni alþýðuheimilanna - tillögur Alþýðubandalagsins. Helgi Seljan mætir einnig á fundinn. Allir velkomnir! Alþýðubandalagið. Alþýðubandalagið í Kópavogi Félagsfundur verður haldinn í Þinghól n.k. laugardag kl. 13.00. Á dagskrá: 1) Útgáfa Kópavogs. 2) Starf bæjarmálaráðs. 3) Fjárhagsáætlun- in. Brýnt er að allir í bæjarmálaráði mæti. Athugið breyttan fundar- tíma! Stjórn ABK og bæjarmálaráð. FLÓAMARKAÐURINN Barnaleikgrind • Vill konan í Kópavoginum sem lánaöi mér barnaleikgrind gjöra svo vel aö hafa samband viö mig. Sími 94-7164. Þvottavél Hoover þvottavél til sölu. Sími 18348. Til sölu Ónotuö, glæný Blizzard Termo Fire- bird skíði - 185 cm. Uppl. í síma 27798 e.kl. 18. Mótorhjól Ódýrt 125 kúbic mótorhjól óskast. Sími 81333 (innanhússími: 47). íbúð 35 ára einhleypur menntaskólakenn- ari óskar eftir 2ja-3ja herb. íbúö, þó ekki i Breiðholts- eöa Árbæjarhverfi. Uppl. í síma 32385. Þvottavél með bilaöa klukku, fæst gefins. Uppl. í síma 39266. Geymsluherbergi Hef ca. 8 m2 herbergi til leigu, sem geymsluherbergi. Uppl. í síma 41639 e.kl. 13. Innihurðir 11 beykispónlagöar 80 cm innihurðir til sölu án karma. Get útvegaö karma. Tækifærisverð. Uppl. í síma 99-1231 á kvöldin og um helgina. Glaðir músíksveinar óska eftir æfingahúsnæði strax. Uppl. í síma 74304. Viltu læra tauþrykk? Komdu þá á námskeið á fimmtudags- kvöldum. Námskeiðið byrjar 21. feb. kl. 20-23.30 og stendur í 6 vikur. Uppl. i síma 81699 á daginn og 77393 á kvöldin og um helgar. Hlíðar Þrílit læða (hvít-brún og svört) týndist 10. febrúar síðastliöinn i Hlíðunum. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 31299. 17 ára menntaskólanemi óskar eftir vel launaðri vinnu í sumar. Er dugleg og samviskusöm. Með- mæli ef óskað er. Upplýsingar í síma 31299. Til sölu Myndarammar og málverkaprentanir á góðu verði. Myndabúðin, Njálsgötu 44. Ópið frá 16 - 18. Saumanámskeið hefst laugardaginn 23. febrúar ef næg þátttaka fæst. Nánari uppl. og innritun í síma 46050 og 83069 eftir kl. 17. Smóking til sölu Ónotaður. Stærð 50. Símar 46050 og 83069 eftir kl. 17. Til sölu Tveir sturtuþotnar og blöndunartæki. Uppl. í síma 621737 eftir kl. 18. Dagmamma óskast í Seljahverfi til að gæta 4ra mánaða barns frá næstu mánaðamótum. Uppl. í síma 79136. Hljómborð til sölu, Technics SX-K 100, hljóm- borð-skemmtari á kr. 13 þús. Uppl. í síma 99-1010. Á ári æskunnar ætla norræn ungmenni að taka höndum saman og sýna samstöðu með jafnöldrum sínum sem búa við kynþáttakúgun. Ætla þau að þeina athygli sinni aö S-Afríku en þar bitnar aðskilnaðarstefna stjórnvalda hart á fólki. Barátta gegn kynþattakúgun Sameiginlegt átakframhaldsskólanema og Hjálparstofnunar kirkjunnar. Fjársöfnun ímars Undanfarin ár hafa nem- endasamtök á Norðurlöndum, í samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar í viðkomandi löndum, staðið fyrir ýmsum verkefnum til styrktar æsku þriðja heimsins. Á hverju ári er valið eitt sérstakt verkefni. Nú, á alþjóðaári æskunnar, er í fyrsta sinn unnið að þessum málum á samnorrænum grundvelli og hefur aðskilnað- arstefna stjórnvalda í S-Afríku verið valin sem viðfangsefni. sfnar til að vinna bug á Apart- heid, með friðsamlegum baráttu- aðferðum. Til viðbótar þeim fjár- munum, sem safnast fyrir unnin dagsverk, er í ráði að hafa al- menna söfnun 21. mars, fyrir sama verkefni. í ávarpi, sem gefið hefur verið út til kynningar á þessu verkefni og undirskrifað er af þeim Auði Auðuns, Auði Eir Vilhjálmsdótt- ur, Árna Bergmann, Erling Aspelund, Guðlaugi Þorvalds- syni og Hjördísi Hákonardóttur segir: „Við álítum að án tillits til stjórnmálaskoðana, þá sé APARTHEID-stefnan ómennsk og óréttlát. Það gleður okkur að geta stutt námsfólk og Hjálpar- stofnun kirkjunnar við fyrrgreind verkefni á ári æskunnar 1985. Við heitum á landsmenn að taka höndum saman við unga fólkið, sem leitast við að hjálpa þeim, sem eru lítillækkaðir og órétti beittir í S-Afríku.“ - mhg. Almennt séð er tilgangurinn með þessu starfi sá að sýna sam- stöðu og vekja athygli á aðstæð- um æskufólks í þriðja heiminum. Reyna, með öflugum stuðningi og sameiginlegu átaki að gefa æsku þriðja heimsins möguleika til menntunar og betra mannlífs. Islenskir og færeyskir fram- haldsskólanemar, ásamt Hjálparstarfi kirknanna í báðum löndunum, eru nú í fyrsta sinn þátttakendur í slíku starfi. Ætl- unin er að almenningur og þá einkum ungt fólk, verði frætt um ástandið í S-Afríku, um kjör þeirra 87% svartra og litaðra, sem kúgaðir eru og heftir af af- skilnaðarstefnu stjórnvaida og skort þessa fólks á flestu því, sem við njótum og teljum til sjálf- sagðra mannréttinda. Hápunktur þessa verkefnis verður 21. mars nk.. Þá mun fyrirtækjum, vinnuveitendum og almenningi boðinn vinnukraftur námsfólks í framhaldsskólum í einn dag, gegn lágmarkslaunum. í sarnráði við Samkirkjuráð S- Afríku hefur verið ákveðið að því fé, sem safnast kann, verði veitt til Æskulýðsráðs Santkirkjuráðs- ins, er verji því til uppbyggingar í menntamálum. Samkirkjuráðið hefur verið mjög til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu vegna þess, að framkvæmdastjóri þess, Desmond Tutu, hlaut friðarverð- laun Nóbels 1984 fyrir tilraunir SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Eyjafjörður Attfalt orkuverð Límtrésverksmiðja í Eyjafirði greiðir átta sinnum hærra verðfyrir rafmagnið en ísal Byggingavöruverslun Tóm- asar Björnssonar, BTB, sem starfað hefur í marga áratugi á Akureyri, hefur nýiega flutt alla starfsemi sína út fyrir bæjar- mörkin. Hefur fyrirtækið reist tvö myndarleg hús við Lóns- brú í Glæsibæjarhreppi. Auk verslunar með bygginga- vörur hefur framleiðsla á lím- trjám verið tekin upp. Árni Árnason framkvæmdastjóri BTB sagði í samtali við Þjóðviljann að nú væri í athugun að stórauka umfangið á þessu sviði. Sett hefur verið upp kyndistöð sem nýtir spæni og kurl frá fram- leiðslu fyrirtæækisins, sem er auk límtrjánna, panell af ýmsum gerðum. I samtalinu við Árna kom jafn- framt fram að orkuverðið tii þessa iðnaðar væri óheyrilega hátt. Eins og væri þyrfti hann að greiða 5,24 aura fyrir kílóvatts- tundina. Þjóðviljinn leitaði til Raf- magnsveitna ríkisins sem selur rafmagn á umræddu svæði og spurðist fyrir um hvert orkuverð- ið yæri til starfsemi af þessu tagi. Verðið reyndist samsett úr afl- gjaldi sem er kr. 99,000,- á ári fyrir 15 kílóvött og kr. 6,630,- fyrir hvert kílóvatt þar umfram og orkugjaldi sem er kr. 1,45 á kílóvattstund. Miðað við bestu nýtingu (10 tíma full afköst), 150 kílóvattstundir á dag alla vinnu- daga ársins er orkuverðið kr. 4,02 á kílóvattstund, eða átta sinnum hærra en fsal greiðir. Þó að lím- trésveksmiðjan yrði keyrð allan sólarhringinn hvern einasta dag ársins verður orkuverðið samt fjórum sinnum hærra. hágé.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.