Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 7

Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 7
ÞJÓDMÁL Svavar Gestsson: Lögbirtingablaðið er málgagn ríkisstjómarínnar „Fiskverkunarfólk og verka- lýðsfélög þess verða að láta málið til sín taka,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson á al- mennum fundi Alþýðubanda- lagsins, sem haldinn var á Stokkseyri sl. föstudag. Það mál sem hann fjallaði um, og skorar á fólk að láta í sér heyra um er öryggisleysið sem fisk- verkunarfóik þarf að búa við. Eins og áður hefur verið skýrt frá í Þjóðviljanum hefur Guð- mundur ásamt þrem þing- mönnum öðrum lagt til að lögum um uppsagnarfrest verði breytt og starfsfólki í sjávarútvegi með því tryggt sambærilegt atvinnuöryggi við aðrar stéttir. „Það er hægt að koma frum- varpinu í gegn um þingið, ef fólk lætur í sér heyra“, sagði hann ennfremur og gat þess einnig að ýmsir kynnu beinlínis að treysta á afskiptaleysi fólks af málinu. A fundinum kom fram svofelld tillaga sem samþykkt var með at- kvæðum allra fundarmmanna. „Opinn stjórnmálafundur á vegum Alþýðubandalagsins í lágsveitum Arnessýslu, haldinn á Stokkseyri 7. febrúar 1985, fagn- ar því frumvarpi sem nú hefur verið flutt á Alþingi um aukin réttindi fiskvinnufólks. Lýsir fundurinn yfir samstöðu með því fólki sem stendur undir þýðingar- mestu atvinnugrein lands- manna“. Svavar Gestsson fjallaði m.a. um líkurnar á kosningum í vor og þau sérkennilegu vandamál sem stjórnarflokkarnir ættu nú við að stríða. Lengi hefðu menn glímt við þann vanda að fá formanni Sjálfstæðisflokksins ráðherrastól að sitja í. Og forsætisráðherrann léti sér detta í hug þá frumlegu lausn að þjóðin drykki sig út úr efnahagsvandanum, með því að hver maður drykki svo sem 40 lítra af sterku öli. Þá ræddi hann um innanríkismál og vaxtaokrið og sagði m.a: „Fjármagnsokrið sem nú við- gengst í landinu veldur því að hver fjölskylda verður að greiða andvirði margra íbúða, vilji það eignast eina. Ahrifin koma fram í Lögbirtingablaðinu sameiginlegu málgagni stjórnarflokkana, sem nú er gefið út fimm sinnum í viku, sagði Svavar einnig í ræðu sinni. Fjölmargar fyrirspurnir komu fram á fundinum, m.a. um það af hverju Alþýðubandalaginu hefði ekki tekist að stemma stigu við allt of háu innflutningsverði með- an Svavar var viðskiptaráðherra og hvers vegna verðbólgan hafi verið um 130% á valdatíma for- Guðmundur J. Guðmundsson: „Fiskverkunarfólk verður að láta í sér heyra" manns AB. Svavar minnti á að athugun á innflutningsversluninni hefði á sínum tíma leitt í ljós að innflutn- ingsverð hér á landi væri miklu hærra en í nágrannalöndunum. Þegarsá átti að herða hefði skort pólitíska samstöðu með stjórn- arflokkunum sem áttu aðild að ríkisstjórninni sem hann var við- skiptaráðherra í og minnti á að í þeirri ríkisstjórn sat annar kaffi- baunaflokkanna, sem nú stjórna landinu. Fundinn sóttu milli 40 og 50 manns, fundarstjóri var Margrét Frímannsdóttir oddviti. hágé Nær Larsen fram hefndum Sú skák, sem vakti mesta at- hygli í 2. umferð, var viðureign Larsen og Margeirs. Byrjunin var drottningarbragð og jafnaði Margeir taflið auðveldlega. Skákskýrendur voru þeirrar skoðunar að Margeir hafl náð betri stöðu en hún var geysilega vandtefld. I tímahrakinu tefldi Margeir ekki sem nákvæmast og Larsen sneri taflinu við. Skákin fór í bið og er það mál manna að Larsen vinni biðskákina og nái þar með fram hefndum en Marg- eir hefur lagt Danann tvisvar að velli eins og kunnugt er. Jóhann og Hort tefldu spænska leikinn og sömdu um jafntefli eftir aðeins 18 leiki. Þeir bera greinilega mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Sömuleiðis sættust Van der Wiel óg Jón L. á skiptan hlut. Upp kom Richter-Rauzer af- brigðið í Sikileyjarvörn. Jón, sem hafði svart, fékk þrönga stöðu eftir byrjunina en tókst að losa um sig og stóð alls ekki verr er kapparnir þráléku. Skák Karls og Helga var allan tímann líflaus. Byrjunin var drottningarindversk-vörn og skiptist snemma upp í endatafl. Helgi hafði örlítið betra tafl en þó ekki svo að hægt væri að nýta sér það. Hjá Jusupov og Guðmundi varð drottningarpeðsbyrjun uppi á teningnum. Sovétmaðurinn fékk betri stöðu eftir byrjunina en Guðmundur náði að rétta úr kútnum, þó svo að hann væri í miklu tímahraki. Skákin fór í bið og er jafnteflisleg. Spassky vann sannfærandi sigur á hinum unga Dana, Curt Hansen. Hansen beitti Caro- Kann vörn. Spassky virtist vera vel heima í fræðunum og náði Er með vœnlega biðstöðu gegn Margeiri strax frumkvæðinu. Eftir drott- ingaruppskipti var vörnin erfið hjá svörtum og er peðstap var fyrirsjáanlegt og staðan í molum gafst Hansen upp. Hvítt: Boris Spassky Svart: Curt Hansen. 1. e4 c6 7. RD Rd7 2. d4 d5 8. h5 Bh7 3. Rc3 dxe4 9. Bd3 Bxd3 4. Rxe4 Bf5 10. Dxd3 e6 5. Rg3 Bg6 11. Bd2 Rgf6 6. h4 h6 12. 0-0-0 Dc7 Nú er komin upp ein af grunnstöðu- num í Car-Kann vörn eða byrjun fá- tæka mannsins eins og hún er oft nefnd. Hún hefur verið mikið í tísku að undanförnu og hefur heimsmeistarinn sjálfur brugðið henni fyrir sig annað slagið. 13. R34 0-0-0 Annar möguleiki er 13. - Be7 og hróka síðan stutt. Þannig hefur Lars- en stundum teflt. 14. Rxf6 Rxf6 17. c4 c5 15. De2 Bd6 18- Bc3 16. Kbl Hhe8 Hvítur hefur rýmra tafl en mikill varnarmáttur býr í svörtu stöðunni. 18. - Dc6?! Þessi leikur er vafasamur. Hvítur nær nú uppskiptum á riddara fyrir biskup. Betra hefði verið að bíða átekta og leika. 18. - Kb8 19. Re5! Bxe5 20. dxe5 Re4 Eða 20. - Rd7 21. f4 og hvítur stendur betur. 21. Hxd8+ Hxd8 24- Dxd3 Hxd3 22. Bel! Dd7 25. f3 Rg5 23. Kcl Dd3 26. Bc3 b6 Þetta endatafl er mun hagstæðara hvítum. Hvíti biskupinn er sterkari en svarti riddarinn og svörtu peðin á kóngsvængnum eru veik. 27. Kc2 Hd7 29. Hg4 Hg8 28. Hh4 Hd8 30. Bd2 g6 Eða 30. - Rh7 31. Bxh6 og vinnur peð. Ef nú 31. Bxg5 gxh5! og svartur bjargar sér. 31. Hg3! Þessi skemmtilegi leikur gerir út um taflið því ef 31 - gxh5 þá 32. f4 og vinnur mann. 31. - Hh8 14 32. hxg6 fxg6 Hansen kaus að gefast upp í þessari stöðu. Vel tefld skák hjá heimsmeistaranum fyrrverandi. Spassky hefur án efa skellt sér í heita lækinn eftir þéssa skák! » i i JlB ik 11 h íiíah m '** ■ ur abcdefgh Þetta er biðstaðan í skák Lars- ens og Margeirs. Margeir, sem hefur svart, lék biðleik. Skák Helga og Larsens fyrstu umferð fór aftur í bið í gær- dag. Larsen varðist af mikilli fimi. Þrátt fyrir að hann er tveimur peðum undir á hann góða jafnteflismöguleika. Helgi lék biðleik og gæti framhaldið orðið: 1. Hbó Rxc6 2. Bxc6 (ekki 2. Hxcó Hxc6 3. Bxc6 og hvítur getur ekki unnið). 2. - Hxh3+ 3. Kg2. Þá er kornin upp staða sem er allt annað en skemmtilegt að tefla á svart. Hægt er að halda taflinu með bestu taflmennsku en það hefur þó reynst mörgum meistaranum erfitt. Biðskákin verður tefld í dag. Hansen og Jusupov, sem átti einnig biðskák úr 1. umferð sömdu um jafntefli án þess að setjast við taflborðið á ný. Úrslit í 2. umferð. Spassdky-Hansen: 1-0 Larsen-Margeir: Bið Van der Wiel-Jón L. V2-V2 Jóhann-Hort: V2-V2 Karl-Helgi: V2-V2 Jusupov-Guðmundur: Bið abcdefgh Nr. Nafn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 1 Karl Þorsteins 1/2 1/2 2 Helgi Ólafsson 1/2 B 3 Margeir Pétursson 1/2 B 4 Curt Hansen 1/2 0 5 Guðm Sigurjónss 0 B 6 Jón L. Ámason 1/2 7 V. Hort 1/2 B Van del Wiel 1 1/2 9 Jusupov 1/2 B 10 B. Spasský 1/2 1 11 Bent Larsen B B 12 Jóhann Hjartarson 1/2 1/2 Fimmtudagur 14. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.