Þjóðviljinn - 14.02.1985, Page 9
Reykjavík
Helmingur barna í dagvist
Rætt við Berg Felixson framkvæmdastjóra
Dagvistarheimila Reykjavíkur
Það er um 54,3% barna á
aldrinum 0-6 ára í Reykjavík í
skipulagðri dagvist, sagði
Bergur Felixson fram-
kvæmdastjóri Dagvistarheim-
ila Reykjavíkur þegar hann
var inntur eftir ástandi dagvi-
stunarmála í borginni.
Reykjavíkurborg er með 2088
leikskólapláss og 1113 dagheimi-
lispláss. Þetta gerir samtals um
3401 pláss og deilt með fjölda
barna í Reykjavík sem var um
síðustu áramót 8351 barn verða
þetta um 39,3% barna í gæslu á
stofnunum sem við rekum. Ríkis-
spítalarnir eru með um 250 plás
eða 3% og á dagheimilum sem
aðrir reka eru um 80 börn eða
1%. Hjá dagmömmum eru svo
1000 börn og þar eru komin þau
12% sem á vantar.
Um áramót voru 535 börn á
biðlista dagheimila en 1121 á bið-
lista leikskóla. Biðlistinn þ.e.a.s.
fjöldi barna á biðlista, hefur stað-
ið í stað þrátt fyrir aukningu
plássa. Þetta á sér meðal annars
þá skýringu að í spá sem gerð var
fyrir nokkrum árum var gert ráð
fyrir að fjöldi barna myndi standa
í stað eða lækka. Þróunin varð
hinsvegar önnur en hagspekingar
gerðu ráð fyrir og 1983 fjölgaði.
börnum verulega eða um 260
bæði vegna fæðinga og flutninga
til Reykjavíkur. Á síðasta ári
urðu þó litlar breytingar en þrátt
fyrir það hefur plássaukning ekki
haldið í við fjölgunina.
f ár verða tekin í notkun 2
blönduð heimili þ.e.a.s. þau eru
bæði leikskólar og dagheimili.
Það hefur verið stefnan undan-
farin ár og verður áfram að hafa
heimilin blönduð. Þá er líka
auðveldara að nýta plássið eftir
þörfum. Á þessum dagvistar-
heimilum er yfirleitt 1 deild dag-
heimili og 2 deildir leikskólar.
Auk þessara 2 heimila sem eru á
Boðagranda og í Árbæ verður
tekið í notkun heimili að Hálsa-
seli en það er að því leyti frá-
brugðið að hér er um að ræða
skóladagheimili og leikskóla.
Þessi þrjú dagvistarheimili
grynnka vissulega á þörfinni en
það nægir ekki. Síðustu árin höf-
um við merkt öra þróun í þá átt að
útivinna beggja foreldra hefur
aukist. Ef þjóðfélagið væri
óbreytt f .10 ár værum við búnir að
uppfylla dagvistunarþörfina með
þeirn heimilum sem starfandi eru
og þeim sem eru í byggingu.
Sjálf uppbygging dagvistunar
er pólitísk ákvörðun og ekki á
mínu valdi að svara því hvernig úr
þörfinni verður bætt. Sem emb-
ættismaður hef ég það starf að
upplýsa hvaða þjónustu vantar í
borginni. Mér sýnist uppbyg-
gingin hafa verið svipuð frá ári til
árs. Ef fjárhagsstaða borgarinnar
er góð er meira gert en svo er
dregið saman þegar fjárhagurinn
versnar. En það lítur út fyrir að
ráðamenn hafi ekki áttað sig á
þeirri grundvallarbreytingu að æ
fleira fólk sækir vinnu eða nám
utan heimilis og þeirri þýðingu
sem þessi þróun hefur fyrir börn-
in, sagði Bergur Felixsson.
- aró
Fimmtudagur 14. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9