Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 11

Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 11
UNG BORN Eftirfarandi pistill um börn og leikföng fyrstu 6 árin er úr bæklingi Barnavinafélagsins Sumargjafar og Völuskríns sem heitir „Börn, leikirog leikföng" Fyrsta árið Á fyrsta árinu er barninu allt nýtt og framandi en jafnframt spennandi. Með því að horfa, hlusta, smakka og þreifa kynnist það umhverfi sínu. Barnið þarfnast hluta til að horfa á og fylgja eftir með augun- um. Áður en barnið getur haldið á hlutum ætti að hengja yfir rúm þess litskrúðuga hluti t.d. óróa, blöðrur, bjöllur o.fl. Ungbarnið þarf að heyra mikið af venjulegu talmáli en það þarf einnig að fá hluti sem gefa frá sér hljóð. Hringlur, mismunandi að gerð og lit, spiladósir og bjöllur, veita því mikla ánægju. En það er ekki nóg að horfa, barnið verður líka að fá að snerta. Það uppgötvar líkama sinn, leikur sér að höndum sínum og tám, og er það fer að grípa eftir hlutum skoðar það þá í krók og kring, kreistir, bítur og sleikir. Leikföng til að handfjatla, mis- munandi að stærð, gerð, lögun og lit t.d. naghringir, hringlur, tuskubrúður og dýr koma að góðu gagni. I leiknum lærir barnið að þekkja líkama sinn og uppgötvar að það getur stjórnað hreyfingum sínum. Um leið og barnið fer að skríða hefur það gaman af leik- föngum sem velta í burtu frá því. Bolti, veltileikföng, trébflar og trédýr á hjólum eru góð leikföng fyrir barn á þessu aldursskeiði. Þegar barnið fer að geta setið finnst því gaman að rugga sér eða róla. í lok fyrsta ársins er barnið mjög athafnasamt og rannsakar nú umhverfi sitt. Það skoðar í skápa og skúffur og einfaldir hlutir, sem taka má sundur og setja saman aftur, hafa sérstakt aðdráttarafl. Leikföng þurfa að vera sterk, litrík, skaðlaus og gott að halda þeim hreinum, því að eins og áður segir kannar barnið leik- Þriggja til sex ára börn Á þessu skeiði lífsins á forvitni barnsins sér engin takmörk. Leikirnir verða fjölbreyttari en áður og í vitund barnsins eru þeir alvarlegar athafnir og hafa til- gang. Barnið sökkvir sér niður í leikinn sem er í senn vina þess og nám. Það er óþreytandi við að setja á svið atburði og atvik og hver leikut veitir því nýja reynslu og er því ávinningur. í leik lærir barnið að þekkja sjálft sig, umhverfið og aðstæður úr daglegu lífi. Það fær útrás fyrir athafnaþrá sína og öðlast leikni á sviðum. í leikjum við önnur börn vex hæfni þess til samskipta við aðra. Leikurinn veitir mikla mögu- leika til málnotkunar, ný orð og hugtök lærast, og barnið sjálft tjáir tilfinningar sínar og hug- myndir. En leikurinn er ávallt fyrst og fremst leikur og einmitt þess vegna nauðsynlegur. Á þessum aldri er þörfin fyrir leikföng hvað brýnust og ætti barnið að eiga aðgang að mörg- um gerðum leikfanga. Hvaða leikföng þurfa börnin? Ábendingar um leikföng sem hæfa þroska bams og getu milupa 16 tegundir af hollum og góðum barnamat 16 TEGUNDIR: o Bl. ávextir 7 korna Gulrætur Bananar morgunm. Blómkál Perur Hafrar meö Haustbl. Epli eplum Sumar- Appel- Súkkulaöi salad sínur Ananas Bl.ber Blandaö Hrís dessert grænmeti fangið með munninum engu síður en með augum og höndum. Eins til tveggja ára börn Þegar barnið fer að ganga opn- ast því nýr heimur. Hinir marg- víslegu hlutir úr nánasta um- hverfi barnsins verða því skyndi- lega aðgengilegir og það tekur til við að rannsaka þá af mikilli elju. Eldhúsáhöld, svo sem pottar, sleifar og skeiðar, eru ágæt leikföng á þessu skeiði, þau brotna ekki, auðvelt er að ná á þeim taki, og með þeim má búa til skrýtin og skemmtileg hljóð. Barnið fer nú að herma eftir algengustu athöfnum úr um- hverfi sínu, og gegna brúðan og bangsinn þar mikilvægu hlut- verki. f fyrstu gerir barnið þó lítið annað en halda á brúðunni, þrýsta henni að sér eða draga hana á eftir sér. En smám saman kemur að því að það tekur til að klæða „barnið“ úr eða í, mata það hugga og svæfa. Hér kemur brúðuvagn að góðum notum, en nauðsynlegt er að hann sé stöðu- gur og einfaldur að allri gerð. Aukinn hreyfiþroski gerir barninu kleift að takast á við ný og spennandi verkefni. Strax og barnið fer að ganga hefur það unun af því að ýta leik- föngum eða draga þau í bandi, t.d. vagnaogdýr. Bílar oggöngu- hjól, sem hægt er að sitja á og spyrna áfram, veita mikla ánægju og styrkja fætur barnsins. En barnið þarf á fleiru að halda. Leikföng sem stuðla að því að samhæfa huga og hönd og greina sundur mismunandi lögun, stærð, áferð og þyngd eru nauðsynleg. Allt eru þetta mikilsverð atriði sem fullorðnir taka oft sem sjálf- sagðan hlut og gleyma að eitt sinn þarf að læra. Hér henta vel ein- föld leikföng eins og slagtré, ífell- uspil og kassar eða vagnar með kubbum í. Foreldrar geta leiðbeint barn- inu og hjálpað því en mikilvægt er að hvetja barnið til að leika sér sjálft, örva það til að reyna þang- að til því tekst að leysa verkefnið. Öryggiskenndin er mikilsverð- ur þáttur í leik lítils barns. Þegar það fer út tekur það oft með sér leikfang sem það þekkir vegna þess að það veitir öryggistilfinn- ingu. Börnum verður ævinlega mikið um ef eftirlætisleikfang skemmist. Óhætt er að fullyrða að það er aldrei sök ungs barns ef leikfang eyðileggst. Sökin er framleiðandanna eða vanþekk- ing þeirra sem gáfu barninu leikfang sem hæfði því ekki. SIGTUNI 1 REYKJAVÍK SÍMAR 14444-16645 milupa ^ ] n!upa C3 Milch-Fertigbrei Milch-Fertigbrei MILUPA vítamínbættur barnamatur er ekki aöeins hollur og næringarríkur heldur einnig bragðgóður — og umfram allt handhægur og drjúgur. Þér getið treyst MILUPA — yfir hálfrar aldar sérhæfing í barnamat. Dagstimpill og leiðarvísir á hverjum pakka tryggir yður góða vöru. — Og ekki spillir veröiö — Fæst í næstu lyfjabúð og í matvöruverslunum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.