Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 17

Þjóðviljinn - 14.02.1985, Side 17
ÞJÓÐMÁL Síhækkandi orkuverð Landsmenn hafa stunið undan síhækkandi orkuverði undanfar- in ár og búa nú við hvað hœst orkuverð allra Evrópuþjóða. Hvað veldur? Þetta háa raforkuverð hefur eðlilega verið gagnrýnt í vaxandi mæli. Almennt er vatnsafl talið vera rjómi til orkuvinnslu í sam- anburði við kol, olíu eða kjarn- orku, sem talin eru til undan- rennunnar í kostnaðarlegu tilliti. Ég tel að fjórar meginástæður séu hér fyrir hendi: í fyrsta lagi eru raforkusamningarnir við stóriðj- ufyrirfækin, þar sem fram hefur farið útsala á raforku frá hag- kvæmustu virkjunum okkar og hún jafnframt orðið íþyngjandi í sívaxandi mæli fyrir almennings- veitur. f öðru lagi má nefna mun hærri kostnað við byggingu ein- stakra virkjana en áætlað hafði verið, og á ég þá ekki síst við Sigölduvirkjun, sem fór 100% fram úr kostnaðaráætlun reiknað á föstu verðlagi. í þriðja lagi hef- ur svo verið um umframfjárfest- ingu að ræða vegna óseldrar orku með tilheyrandi fjármagns- kostnaði. Leiddar hafa verið lík- ur að því að hún valdi um 40% hærra orkuverði hjá almennings- veitum en verið hefði ef fram- leiðsla og markaður héldust nokkurn veginn í hendur. f fjórða lagi kemur svo til strjálbýli í stóru landi, sem óhjá- kvæmilega leiðir af sér umtals- verðan kostnað vegna raforku- flutninga og öryggissjónarmiða. Byggðalínur Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra hefur gagnrýnt að ráðist skyldi í lagningu byggðalína. Ert þú samþykkur þeirri gagnrýni? Nei, ég tel að sú gagnrýni sé ekki réttmæt. Byggðalínunum má líkja við slagæðar raforku- kerfisins og án þeirra hefði orðið mun örðugra að jafna raforku- kostnaðinn, tryggja afhendingar- öryggi í einstökum landshlutum og ná samstöðu um virkjana- framkvæmdir út frá þjóðhagslegu mati. Auðvitað gat verið álitamál um tímasetningu einstakra þátta í byggðalínu eins og öðrum fram- kvæmdum, en það skiptir engum sköpum í verðmyndun rafork- unnar. Orkusölustefnan Hvaða meginsjónarmið eru það sem tekist er á um í orkumál- um okkar íslendinga? Ég tel að sú staða sem nú blasir við eigi rætur sínar í orkusölu- stefnunni, sem ráðið hefur ferð- inni hjá Sjálfstæðisflokknum um áratugi og haft mótandi áhrif á starfsemi þýðingarmestu stofn- ana og fyrirtækja í raforkuiðnað- inum. Henni fylgir það viðhorf að . með orkusölu til erlendra auðfé- laga sé hægt að lækka raforku- verð til almennrar notkunar, auk hagnaðar af orkusölunni sjálfri. Viðskiptin við Alusuisse eru skýrasta dæmið um skipbrot þessarar stefnu sem og það háa orkuverð sem heimili og atvinnu- fyrirtæki þurfa nú að greiða hér á landi. Biðröð hinna erlendu orku- kaupenda, sem iðnaðarráðherra gerði sér vonir um að myndaðist í kjölfar auglýsingaherferðar og starfa stóriðjunefndanna hefur ekki látið sjá sig, og nú hefur ráðherrann lýst því opinberlega yfir að orkuveislunni miklu, sem Sjálfstæðisflokkurinn bauð kjós- endum til fyrir síðustu kosningar sé lokið. Orkustefna Alþyöubanda- lagsins Hvað er þá framundan í orku- málum okkar íslendinga? Orkustefnan, sem Alþýðu- bandalagið mótaði fyrir 9 árum er enn í fullu gildi og margt af því sem tókst að framkvæma í anda hennar á árunum 1978-’83 skapar nú viðspyrnu til réttra ákvarð- ana. Sjálfgert ætti að vera að hægja á raforkuframkvæmdum og laga framleiðsluna sem fyrst að arðbærum markaði. Hugmyndir þær sem uppi eru innan ríkisstjórnarinnar um stækkun álversins ganga hins veg- ar engan vegin uþp að mínu mati, engin rök hafa verið færð fyrir því að slík framkvæmd sé þjóðhags- lega réttlætanleg. Öðru máli gegnir um byggingu kísilmálm- verksmiðju á grundvelli þeirra áætlana sem um hana voru gerðar fyrir nokkrum árum. Það er ein- kennileg hagspeki að láta það í hendur útlendinga hvort og hve- nær slíkt fyrirtæki verður reist. Þá ætti að leggja meiri áherslu á en verið hefur að koma innlendri orku í gagnið sem víðast, þar sem innflutt orka er nú notuð. í því sambandi bendi ég á olíukynd- ingu húsnæðis, sem enn eru taL sverð brögð að en slíkt ætti að heyra fortíðinni til. Ákvarðanir um frekari orkun- ýtingu umfram raunsætt mat á þróun almenns markaðar ætti að taka út frá íslenskum forsendum einvörðungu, þar er að um slíkan atvinnurekstur gildi sömu við- horf og um aðra atvinnustarfsemi í landinu og að við höfum þar fullt forræði. Trúin á stóriðju er sem betur fer á undanhaldi í ljósi dýr- keyptrar reynslu og vekur það vonir um að stefna Alþýðu- bandalagsins í orkumálum eigi framtíðina fyrir sér. -ólg. ABR Stórmörkuðum fagnað Nauðsyn að komið verði á fót markaðs- og verslunardómstóli Alþýðubandalagið í Reykjavík efndi sl. fimmtudag til almenns félagsfundar þar sem neytenda- mál voru á dagskrá. A fundinum var samþykkt ályktun þar sem til- koma stórmarkaða eins og Mikl- agarðs hafi stuðlað að eðlilegri samkeppni og lægra vöruverði á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Síðan segir: „Einnig vekur fundurinn at- hygli á því að nauðsynlegt er að efla þekkingu neytenda á gæðum og verði vöru og þjónustu og lýsir yfir fullum stuðningi við starf- semi Neytendasamtakanna í þessum efnum. Jafnframt vítir fundurinn seinagang lögreglu og dómsyfirvalda við afgreiðslu á kærum vegna brota á lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Nauðsynlegt virðist vera að kom- ið verði á fót sérstökum markaðs- og verslunardómstóli". - v. Hversu oft hefurðu ekki óskað þér að bankarnir væru opnir aðeins lengur þegar þú ert á hlaupum síðdegis á föstudögum? Sparisjóður vélstjóra hefur afgreiðslu sína opna fyrir öll almenn sparisjóðsviðskipti til kl. sex á föstudögum, í stað hins venjulega fimmtudagstíma bankanna. Með hinum nýja samfellda opnunartíma, kl. 9.15-18.00 alla föstudaga, veitist þér upplagt tækifæri til þess að gera klárt fyrir helgina og njóta frídaganna áhyggjulaust. Með „föstudagsframlengingunni" komum við til móts við fjölmarga einstaklinga sem fá laun sín greidd vikulega og alla þá aðra sem nota föstudagana í alls konar bankaútréttingar - og finnst dagurinn alltof fljótur að líða! Sparisjóður vélstjóra býður þér alla almenna sparisjóðsþjónustu, lipra afgreiðslu og síðast en ekki síst-greiða aðkeyrslu og bílastæði! Þegar allt þetta fer saman er óhætt að tala um fyrsta flokks þjónustu á allan hátt. SPARISJÓDUR VÉLSIJÓRA Borgartuni 18 Sími 28577 SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA hefur opið til kl.6 á föstudögum

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.