Þjóðviljinn - 15.02.1985, Blaðsíða 1
LANDK)
GLÆTAN
VjÐHORF
LANDIÐ
Húsbyggingar ^
Byggung ao rulla
Dráttur á húsnœðisstjórnarlánum höfuðorsökin. Félagið vantar 44 miljónir.
150 manns missir atvinnunaþegarfélagið stoppar ínœstu viku. Alþingismenn
kallaðir til hjálpar í dag. Fréttamannafundur um málið á mánudaginn
B'yggingarfélag ungra Sjálf-
stæðismanna, Byggung, er að
rúlla og búist er við að starfsemi
félagsins stöðvist í næstu viku.
Höfuðástæðan er sá mikli dráttur
sem orðið hefur á lánum frá
Húsnæðisstofnun ríkisins og
vantar Byggung nú 44 miljónir
króna til að geta haldið starfse-
minni áfram að því er heimildir
Þjóðviljans herma.
Þorvaldur Mawby fram-
kvæmdastjóri Byggung var
spurður hvort starfsemin væri að
stöðvast og vildi hann hvorki játa
því né neita, en sagði að Byggung
myndi halda fréttamannafund
um málið á mánudag. Þá yrði
fréttamönnum sýnd starfsemi
fyrirtækisins og ýmsar nýjungar
sem það hefur tekið upp varðandi
húsbyggingar.
í dag kl. 10 f.h. munu alþingis-
menn mæta til fundar við for-
ráðamenn Byggung vestur á
Rekagranda í Reykjavík, en þar
á að sýna þeim það sem Byggung
er með undir um þessar mundir
og biðja þá um aðstoð í vand-
ræðum fyrirtækisins.
Leggist starfsemi Byggung nið-
ur, sem allt bendir nú til, þá
munu 150 manns missa atvinn-
una. Þá er einnig ljóst að leggist
starfsemi Byggung niður munu
margir þeir sem Byggung er að
byggja fyrir nú fara illa útúr mál-
inu, nema fyrirtækið fái opinbera
aðstoð til að ljúka þeim verkefn-
um sem það er nú með. Það eru
því fleiri en einstaklingar sem
komnir eru á hnén vegna ráð-
leysis í húsnæðislánakerfinu.
-S.dór
Húsnœðismál
Ránskjaravísitala
Hœkkun á áfengi og tóbaki rœndi aflántakendum síðasta
árs sem svarar til andvirðis tólfíbúða á síðasta ári
Nýlega skýrði fjármálaráð-
herrann frá því í sjónvarpi að
heildarútlán Húsnæðisstofnunar
á sl. ári hefðu verið um tveir milj-
arðar króna. Hann gat þess hins
vegar ekki að áfengi og tóbak
hækkaði á síðustu ellefu mánuð-
um um 50%, enda myndu flestir
skynsamir menn telja ástæðu-
laust að velta fyrir sér nokkru
samhengi þarna á milli.
Því miður er hins vegar beint
samband á milli skulda húsbyggj-
enda og hækkunar á brennivíni
og tóbaki, því hækkun á þessum
vörum hækkar framfærsluvísi-
tölu, sem aftur hækkar lánskjara-
vísitölu. Þessi hækkun á áfengi og
tóbaki hækkar lánskjaravísitölu
um 1,2%, sem aftur hækkar
skuldirnar sem húsbyggjendur
stofnuðu til við Húsnæðisstofnun
í fyrra um litlar 24 miljónir.
Með fyrrnefndri brennivíns-
hækkun síðustu 11 mánuði hafa
því skuldir þessara lántakenda
verið hækkaðar sem svarar til
andvirðis fimmtán íbúða blokk-
ar, svipaðri þeirri sem er sýnd á
myndinni hér til hliðar.
Vísitala af þessu tagi getu tæp-
ast kallast annað en ránskjara-
vísitala. hágé.
Sjá bls. 2
Með brennivínshækkuninni einni
gn voru skuldir lántakenda árið 1984 hjá
§§} Byggingarsjóði ríkisins og Bygging-
arsjóði verkamanna hækkaðar um
iliSomiliffiimii- iii. andvirði húss af þessu tagi
Fóru á
kostum!
íslenska landsliðið í hand-
knattleik fór á kostum í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi er það
sigraði Ólympíumeistara Júgósl-
ava með yfirburðum, 20-13.
Þetta var sögulegur leikur, mót-
lætið fór mjög í skapið á Júgó-
slövum en íslenska liðið hélt haus
og vann glæsilegan sigur - sinn
fyrsta gegn Júgóslavíu frá upp-
hafi. -VS _________
Sjá bls. 19
Kaffimál SÍS
Sent til ríkissaksóknara
Eg hef ákveðið að senda alla
rannsóknarþætti málsins til
ríkissaksóknara og verður það
gert í dag. Rannsóknarþáttur
skattrannsóknarstjóra er um
bókhalds- og skattþáttinn,
rannsóknarþáttur Verðlagsstofn-
unar verðlagningarmálin og svo
var að berast skýrsla gjaldeyris-
deildar Seðlabankans. Allar
skýrslurnar verða sendar til ríkis-
saksóknara. Þetta sagði Garðar
Valdimarsson skattrannsóknar-
stjóri í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Garðar sagði að með skýrslu
gjaldeyrisdeildar Seðlabankans
hefði fylgt bréf til ríkissaksókn-
ara.
Aðspurður hvort þetta þýddi
að SIS væri grunað um misferli á
öllum þessum sviðum varðandi
kaffiinnflutninginn svaraði Garð-
ar: „Ég hef ákveðið að senda
málið til ríkissaksóknara. Síðan
verða menn þá bara að lesa á milli
línanna eins og nú tíðkast".
Þjóðviljinn hefur það eftir ár-
eiðanlegum heimildum að gjald-
eyrisdeild Seðlabankans hafi
ekki getað komið öllum endum
saman í sinni rannsókn. Til þess
að hægt sé að rannsaka málið í
botn þyrfti að senda menn utan,
m.a. til Brasilíu. Þess vegna sé
rannsóknin ófullkomin, en eigi
að síður telji Seðlabankinn að
málið sé þess eðlis að senda beri
það til ríkissaksóknara.
-S.dór