Þjóðviljinn - 15.02.1985, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 15.02.1985, Qupperneq 8
GLÆTAN Það má strika þetta skólaár út Viðbrögð nokkurra nemenda við uppsögnum kennara Það hefur varla farið framhjá neinum framhaldsskólanemanda að kennarar hafa sagt upp störf- um frá og með 1. mars vegna lágra launa. Hafa forráðamenn lengt frest til að leysa þetta mál en ekkert gert nema það að menntamálaráðherra hefur skipað kennurum að starfa áfram til 1. júní og talað um að lögsækja þá ella. Glætan hættir sér ekki út í neinar lögfræðilegar pælingar um það mál en hvað segja nemendur um möguleikann á því að öll kennsla leggist niður 1. mars? Á kannski að kæra menntamála- ráðuneytið fyrir að útvega ekki forfallakennslu eins og einn að- spurður nemandi lagði til? -aró Kristveig Halldórs- dóttir, nemandi: Þetta er ljóta helv... Það veit enginn hvað gerist, sérstaklega með þá krakka sem útskrifast í vor og ætla í framhaldsnám. Það verður allt í veseni fyrir þá ef þeir geta ekki klárað og auðvitað er þetta slæmt fyrir alla aðra nem- endur. Það má strika þetta skólaár út, það er allt í klessu síð- an í verkfallinu í haust. Þorgerður Guðmundsdóttir og Þorkell Egilsson, nemendur: Við vitum ekkert hvað gerist, kennarar hafa ekki viljað ræða þetta mál og segja að þetta skýrist eftir 22. febrúar. Þetta kemur sér mjög illa. Það voru margir sem komu illa út úr haustönninni. Ef kennararnir hætta verður maður að byrja að læra heima en hingað til hafa uppsagnirnar ekki haft nein áhrif á skólastarfið. Linda Björg Halldórsdóttir nemandi í öldungadeild: Við verðum laglega illa stödd ef til uppsagna kemur. Þetta kemur sér mjög illa og bætir ekki ástandið sem er nógu slæmt fyrir síðan í verkfallinu í október. Ég veit um fólk sem hætti þá í námi og alveg eins víst að það gerist núna ef þetta varir lengi. Tíminn leiðir í ljós hvað gerist og ég veit ekki til að það séu neinar aðgerð- ir í gangi af hálfu nemenda hér í skólanum. Nanna Sigurdórs- dóttir, nemandi: Sú hugmynd hefur komið fram hvort ekki væri hægt að kæra menntamálaráðuneytið því það er skylda þeirra að sjá okkur fyrir forfallakennslu ef kennarar eru veikir og af hverju ekki alveg eins núna. Það hefur ekkert verið gert nema nemendur framhaldsskóla sendu skjal til blaðanna um það að við krefjumst kennslu. Við getum ekkert gert fyrr en við vit- um hvernig þetta fer og bíðum eftir úrskurði Kjaradóms. Einar Friðriksson, nemandi: Ég hef ekki hugmynd um hvað ég geri, kannski reyni ég að fá mér vinnu en sennilega er það ómögulegt. Ef kennararnir hætta, lengir þetta auðvitað tíma manns í skóla en ég ætla samt ekki að hætta. Eftir því sem ég best veit hefur ekkert verið gert nema tala um málið á fundum sem málfundafélagið hefur hald- ið. Vinsældalistar Þjóðviljans Fellahellir (2) 1. Forever Young- Alphaville (3) 2. Búkalú- Stuðmenn (1) 3. Sex Crime- Eurythmics (9) 4. Fresh - Cool and the Gang (6) 5. Power of Love - Frankie goes to Hollywood (4) 6. Everything she wants - Wham (8) 7. Love is Love- Culture Club (-) 8. Loverboy- Billi Ocean (10) 9. The Chauffeur- Duran Duran (-) 10. Save a Prayer- Duran Duran Rás 2 (5) 1. Moments of Truth - Survivor (1) 2.1 Want To know what love is- Foreigner (-) 3. Save a Prayer- Duran Duran (2) 4. Everything she wants - Wham (10) 5. Forever young - Alphaville (3) 6. Búkalú- Stuðmenn (8) 7. We belong- Philip Bailey/Phil Collins (6) 8. Easy lover- Pat Benatar (-) 9. Shout- Tears for Fears (4) 10. Sex Crime - Eurythmics Grammið (-) 1. Hateful of Hollow- Smiths (—) 2. Treasure- Cocteau Twins (3) 3. The Walking Hours - Dali’s Car (-) 4. Pop- Tones On Tail (-) 5. High Land, Hard Rain - Aztec Camera (4) 6. Stop Making Sense- Talking Heads (-) 7. Zoolook- Jean-Michel Jarre (-) 8. The Wonderfull and Frightening World (1) 9. Gold Diggers- Lindsay Cooper (2) 10. Lili Marlené- Das Kapital

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.