Þjóðviljinn - 15.02.1985, Síða 10
FRÉTTIR
Kaaber
Rannsókn
að Ijúka
Verðlagsstofnun skilar niðurstöðu sinni
um innkaupsverð Kaabers á
kaffibaunum eftir helgina.
Rannsókn Verðlagsstofnunar á
kaffibaunakaupum Kaffi-
brennslu O. Johnsons og Kaaber
er nú á lokastigi.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að niðurstöður athugunar-
innar hefðu verið ræddar á fundi
Verðlagsráðs í vikunni og yrðu
líklega teknar til frekari umræðu
á fundi ráðsins í dag. Sagðist
hann reikna með að stofnunin
sendi frá sér tilkynningu um mál-
ið í byrjun næstu viku.
Það var skattrannsóknarstjóri
sem óskaði eftir því á sínum tíma
að Verðlagsstofnun kannaði
innflutning og innkaupsverð Ka-
abers fyrir kaffibaunir en verð-
lagning á kaffi síðustu árin hefur
alfarið verið farið eftir
innkaupsskýrslum Kaabers. For-
stjóri fyrirtækisins hefur upplýst í
samtali við Þjóðviljann að Kaa-
ber hafi notið svipaðra afsláttar-
kjara og SÍS, en verðlagsstjóri
vildi ekki tjá sig um niðurstöður
rannsóknarinnar fyrr en hún
verður kynnt eftir helgina.
-*g-
A Iþýðuflokkurinn
Ámundi stýn'r
Flytur ótrauður áfram inn nektardanspíur.
Amundi ogJón Baldvin nota sömu tœkni og
fatafellurnar áfundum. Vill verasendillfyrir
Jón Baldvin
Amundi Amundason umboðs-
maður hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins í stað Kristínar Guð-
mundsdóttur sem hrökklaðist úr
starfinu fyrir atbeina formanns-
ins Jóns Baldvins Hannibals-
sonar. I viðtali vð Heigarpóstinn í
gær segist Amundi munu halda
áfram ótrauður að flytja inn
nektardanspíur. Amundi er ann-
ar maður í röðum stuðnings-
manna Jóns Baldvins sem fær
stöðu, áður féll Jóna Ósk Guðj-
ónsdóttir í atkvæðagreiðslu um
þinglóðs fyrir Birgi Dýrfjörð iðn-
rekanda sem er einnig stuðnings-
maður Jóns Baldvins.
Hinn nýráðni framkvæmda-
stjóri Alþýðuflokksins segir m.a.
í viðtalinu við Helgarpóstinn:
„Það er í sjálfu sér enginn mis-
munur á því hvort þú skapir vin-
sældir Hljóma, Dúmbó og Steina
eða Jóns Baldvins“. Amundi
segir að þeir Jón Baldvin noji
sömu tækni á fundum og fatafell-
urnar. -óg.
Dag er sífellt að lengja. Sólin þó enn lágt á lofti og leikur skugganna skemmtilegur. Krakkarnir voru hrifnir af skuggum
sínum I gær og mældu lengd sína í gangstéttarhellum. mynd-E.ÓI.
Spennandi skák ruglar skákskýrendur!
Flestra augu beindust að skák
Margeirs Péturssonar og Karls
Þorsteins í 3. umferð afmælis-
móts Skáksambands íslands í
gærkvöldi. Margeir, sem hafði
hvítt, tefldi mjög hvasst afbrigði í
byrjuninni og varð skákin strax
mjög spennandi og tvísýn. Hún
var svo flókin að skákskýrendur
sögðust ekki vita hvernig tafl-
borðið sneri! Sóknarmöguleikar
hvíts voru miklir og vörnin erfið
hjá svörtum. í 27. leik lék Karl
herfilega af sér og varð að gefast
upp eftir að hrókatap var fyrirsjá-
anlegt.
Skák Dananna tveggja, Hans-
ens og Larsens var einnig mjög
spennandi. Hansen hafði hvítt,
fékk góða stöðu og náði sókn á
hendur kóngi Larsens. Sá síðar-
nefndi varðist hins vegar vel og í
tímahrakinu vann hann riddara
af Hansen. Þegar Larsen hafði
síðan komið í veg fyrir allt mót-
spil Hansens með nokkrum hnit-
miðuðum leikjum, gafst hinn
ungi skákmaður upp. Geysilega
seigur í vörn, hann Larsen!
Skák þeirra Helga og Jóhanns
lauk eftir aðeins 15 leiki. Byrjun-
in var kóngsindvesk vörn og
skiptist upp á drottningum strax í
upphafi skákarinnar. Eftir það
var ekki eftir neinu að slægjast.
Helgi og Jóhann eiga báðir
möguleika á síðasta áfanga að
stórmeistaratitli og með því að
semja jafntefli eyðileggja þeir
ekki þann möguleika hvor fyrir
öðrum.
Jón L. hafði hvítt gegn Jusup-
ov. Þeir tefldu opna afbrigðið í
spænska leiknu. Skákin var í
jafnvægi allan tímann og skiptu
þeir með sér vinningnum eftir 25
leiki.
Skák þeirra Guðmundar og
Spassky lauk einnig snemma.
Spassky beitti slavneskri vörn og
Guðmundur tefldi rólegt af-
brigði. Stórmeistararnir sömdu
síðan um jafntefli eftir aðeins 12
leiki. Þar með er Guðmundur
kominn á blað.
Eftir uppskipti á öllum léttu
mönnunum í skák Horts og Van
der Wiel bauð staðan ekki upp á
annað en að stórmeistararnir
slíðruðu sverðin og semdu um
jafntefli.
Hvítt: Margeir Pétursson.
Svart: Karl Þorsteins.
1. d4 d5
2. Rf3 Rf6
3. c4 dxc4
Karl teflir móttekið drottningar-
bragð. Það sést ekki oft á skákmótum
um þessar mundir, einfaldlega vegna
þess að það er ekki í tísku.
4. Rc3
Þessi leikur gefur svörtum tækifæri til
að valda peðið á c4. Staðan verður nú
mjög hvöss. Algengari og jafnframt
rólegri leið er 4. e3.
4. - a6
5. e4 b5
6. e5 Rd5
7. a4 Rb4
Eftir 7. - b4 8. Re4 c3 9. bxc3 10. Bc4
er hvítur á undan í liðsskipan.
8. Be2
Ekki 8. axb5? vegna 8. - Bf5.
8. - Bf5
9. 0-0 Rc2
10. Ha2 Rb4
11. Ha3 Rc2
12. Ha2 Rb4
13. Ha3 Rc2
14. Rh4
Margeir, sem þarf nauðsynlega að
vinna þessa skák til að vera með í
toppbaráttunni, hellir sér nú út í mikl-
ar flækjur. Hann gat að sjálfsögðu
tekið jafntefli með 14. Ha2
14. - Bd3
15. Bxd3 cxd3
16. e6!
Hvítur veröur aö tefla af mikilli hörku
ef hann á ekki að veröa undir í barátt-
unni.
16. - fxe6
17. Dh5+ g6!?
Ef 17. - Kd7 18. axb5 Rxa3 19. bxa3
og hvítur hefur góða sóknarmögu-
leika.
18. Rxg6 hxg6
19. Dxh8 b4
20. Bh6! Kd7
Eini leikurinn. Ekki 20. - Kd7? 21.
Re4! og vinnur.
21. Bxl8 bxa3?!
Hér töldu margir að 21. - Rc6 væri
sterkari leikur. Þá hótar svartur bi-
skupnum á f8 og gaffallinn á b4 stend-
ur enn. Hvítur getur þó leikið 22. d5!
og hvíta sóknin heldur áfram.
22. d5! Kc8
Ef 22. - exd5 23. Dh3+ ke8 23. Bg7!
með áframhaldandi sókn.
23. Dg7 exd5
24. Bxe7 De8
25. bxa3
Hvítur stendur nú mun betur vegna
slæmrar kóngsstöðu svarts.
25. - d4
26. Rd5 Rd7
27. Bg5 De6?
Þessi afleikur veldur því að skákin
tapast strax en erfitt er að benda á
viðunandi framhald fvrir svartan.
abcdefgh
28. Dh8+ Kb7
29. Dxa8+!
Eftir 29. - Kxa8 30. Rxc7 + ásamt
31. Rxe6 er hvítur heilum hróki
yfir. Karl gafst því upp.
Biðskák þeirra Helga og Larsens
úr 1. umferð fór aftur í bið í gær-
dag. í gærkvöldi bauð Helgi hins
vegar Larsen jafntefli sem og
hinn síðarnefndi þáði að sjálf-
sögðu. Eins og undirritaður benti
á í blaðinu í gær kom upp teóret-
ísk jafnteflisstaða, þ.e Helgi
hafði hrók, biskup og kóng á móti
hróki og kóngi Larsens. Helgi
virtist hafa treyst Larsen til að
halda taflinu.
Biðskák þeirra Larsens og
Margeirs úr 2. umferð varð að
bíða sökum biðskákar Larsens og
Helga. Verður hún tefld í dag.
Jusupov og Guðmundur tefldu
einnig biðskák sína í gærdag.
Hún fór sömuleiðis í bið aftur.
Guðmundur hefur svart, stendur
höllum fæti en vera má að hann
hafi einhverja jafnteflismögu-
leika.
1 dag verða einungis biðskákir
tefldar og einnig skák þeirra Jóns
L. og Horts sem frestað var úr 1.
umferð.
Úrslit í 3. umferð
Helgi-Jóhann: V2-V2
Jón L.-Jusupov: V2-V2
Guðmundur-Spassky: V2-V2
Margeir-Karl: 1-0
Hort-Van der Wiel: V2-V2
Hansen-Larsen: 0-1
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. febrúar 1984