Þjóðviljinn - 15.02.1985, Page 19
ÍÞRÓTTIR
Kristján Arason rífur sig upp og skorar eitt marka íslands í gærkvöldi, þrátt fyrir aö Júgóslavar beiti öllum brögöum til aö stöðva hann. Mynd: E.ÓI.
VÍGIN FALLA!
Kórónan á frábœrum vetri - sjö marka sigur á Ólympíumeisturunum. Fyrsti sigur íslands gegn
Júgóslavíu. Notuðum sama meðal ogþeir íEyjum, sagði Þorbjörn. Júgóslavarþoldu ekki mótlœtið.
Páll óstöðvandi íseinni hálfleik
Vígin falla eitt af öðru á þessum
stórkostlega handboltavetri. Sví-
ar sigraðir í fyrsta skipti í 20 ár,
Júgóslavar og Ungverjar slegnir
útúr Evrópukeppni félagsliða,
Ungverjar lagðir að velli í Frakk-
landi - og í gærkvöldi kom feiti
punkturinn yfir stóra i-ið: Sjö
marka sigur á sjálfum Ólympí-
umeisturunum frá Júgóslavíu í
Laugardalshöllinni, 20-13!
Þeir sem lögðu leið sína í Höll-
ina vonuðust að sjálfsögðu eftir
fslenskum sigri en voru viðbúnir
öllu. Nema sjö marka sigri ís-
lands! Og alls ekki átti Bogdan
landsliðsþjálfari von á þessu.
, J>að gengur ekkert lið í heimi sig-
urvisst til leiks gegn Júgóslavíu,
hvað þá að reiknað sé með svona
stórsigri. Við lékum vel en þeir
illa, leikurinn þróaðist okkur í
hag og þrátt fyrir úrslitin verður
að viðurkennast að Júgóslavar
Guðríður Guðjónsdóttir er nú
lang markahæst í 1. deild kvenna
í handknattleik og er óhætt að
segja að enginn komi tánum þar
sem hún hefur hælana. Hún hefur
skorað 113 mörk í 12 leikjum en
missir þó úr næsta leik, þar sem
hún hlaut rauða spjaldið fyrir
kjaftagang á varamannabekkn-
um í fyrrakvöld er hún sat af sér
tveggja mínútna brottvikningu.
Harður dómur það.
Þessar tíu stúlkur hafa skorað
flest mörk í 1. deildinni í vetur:
eru svona 3-4 mörkum betri en
við“, sagði Bogdan við undirrit-
aðan eftir leikinn.
Byrjunin var frábær - fyrstu 12
mínúturnar ótrúlegar. Islenska
sóknin gekk vel upp, vörnin og
Einar Þorvarðarson afgreiddu til-
raunir Júgóslavanna og á 12. mín-
útu stóð 6-1 fyrir ísland. Ljúfur
kafli - en það var fljótt að
breytast. Þegar fjórar mínútur
voru til leikhlés höfðu Júkkar
gert sex gegn einu og jafnað
leikinn, 7-7. Það var í fyrsta skipti
og reyndist líka vera í það síðasta.
Þegar leiktíminn var úti fékk ís-
land aukakast. Mrkonja kastaði
sér á Kristján Arason áður en
hann skaut og var umsvifalaust
rekinn útaf. Kristján miðaði aftur
- og þrumaði framhjá varnar-
veggnum í bláhornið! Stórglæsi-
legt mark, staðan 8-7 í hálfleik.
Á fyrstu 7 mínútum seinni hálf-
Guöriður Guöjónsdóttir, Fram...........113
Erla Rafnsdóttir, Fram................. 86
Margrét Theodórsdóttir, FFI............ 59
KristjanaAradóttir, FFI................ 50
Erna Lúðviksdóttir, Val................ 50
Eyrún Sigjrórsdóttir, IBV.............. 43
Kristín Arnþórsdóttir, Val............. 41
Kristín Pétursdóttir, FH............... 41
SiryHanneHagen.FFI..................... 40
Sigrún Blomsterberg, Fram.............. 36
í kvöld kl. 21.15 fer fram í
Seljaskóla einn úrslitaleikjanna í
1. deild kvenna. Valur og FH
mætast þar en þessi lið berjast við
Fram um meistaratitilinn. FH
verður að vinna til að eiga mögu-
leiksins keyrði íslenska liðið and-
stæðinga sína í kaf með þremur
hraðaupphlaupum og marki til
viðbótar. Staðan 12-8 en, menn
minntust svipaðrar stöðu í Eyja-
leiknum. Skyldi nú allt fara sömu
leið? „Þarna flaug í gegnum huga
minn: Verður þetta eins og í gær-
kvöldi? En við héldum haus þegar
á reyndi, við töluðum um það
fyrir leikinn að ef við næðum
svona forystu skyldum við ekki
brenna okkur á því aftur að flýta
okkur í sókninni. Nú lengdum við
sóknirnar og svekktum þá með
því og það tókst mjög vel,“ sagði
Þorbjörn Jensson fyrirliði eftir
leikinn.
Og forskotið hélst 3-4 mörk og
um miðjan seinni hálfleik réðust
úrslitin. Fjögur íslensk mörk í röð
- Páll Ólafsson í aðalhlutverki og
óstöðvandi: 18-11. Lokamínút-
urnar ekki einu sinni spennandi,
leika á sigri í deildinni og nánast
það sama gildir um Valsstúlkurn-
ar. Á Akranesi er fallbaráttu-
leikuríkvöld. ÍA og ÍBVleikakl.
20. Loks mætast KR og ÍBV í
Seljaskólanum kl. 14 á morgun,
laugardag.
Staðan í 1. deild kvenna er þessi:
Fram........... 12 11 0 1 368-182 22
Valur.......... 11 10 0 1 248-176 20
FH............. 11 9 0 2 325-152 18
Víkingur....... 10 4 0 6 157-209 8
KR............. 9 2 1 6 158-189 5
Þór A.......... 9 1 1 7 140-247 3
(A............. 8 1 0 7 106-299 2
IBV........... 10 0 2 8 144-252 2
en fjörugar samt! Mótlætið fór
illa í Júgóslavana, þeir beittu alls
kyns fantabrögðum, skömmuðu
allt og alla og urðu sér til hábor-
innar skammar með framkomu
sinni. Léleg landkynning! Há-
markið var þegar skyttan örv-
henta númer 10, Cvetkovic,
barði Þorbjörn og aldrei þessu
vant tóku dönsku dómararnir
eftir því sem gerðist og sýndu
honum rauða spjaldið. Ekki allt
búið enn. Júgóslavía fékk víta-
kast þegar 1,30 mín. voru eftir.
Brynjar Kvaran kom í markið í
fyrsta sinn, og varði frá Isakovic.
Hálfri mínútu seinna hirti hann
líka hraðaupphlaup! „Heppnin
var með mér en þetta var hrika-
lega ánægjulegt. Maður verður
að standa fyrir sínu þegar tæki-
færið kemur“, sagði Brynjar við
undirritaðan eftir leikinn. Enn
var þó eftir að núa einu saltkorni í
júgóslavnesku sárin: 15 sek. fyrir
leikslok galopnaði Sigurður
Gunnarsson vörnina og gaf línu-
sendingu á Þorbjörn fyrirliða sem
fullkomnaði niðurlægingu Ólym-
píumeistaranna með 20. mark-
inu. 20-13 - hvenær skyldu Júg-
óslavar hafa fengið aðra eins út-
reið síðast?
Hvernig stóð á þessum um-
skiptum frá fimm marka tapinu í
Eyjum kvöldið áður? „Það var
baráttan - við notuðum sama
meðal á þá og.þeir notuðu á okkur
i Eyjum. Við vorum barðir í gær,
þeir voru barðir í kvöld og þeir
þoldu mótlætið verr en við. Við
ætluðum okkur að vinna en mað-
ur bjóst alls ekki við svona miklu.
Þetta var góður handbolti, harð-
ur leikur, en samt góður hand-
bolti“, sagði Þorbjörn.
Að fá á sig aðeins 13 mörk gegn
þessu stórgóða júgóslavneska liði
segir mest alla söguna. Frábær
varnarleikur islenska liðsins, þar
sem allir hlekkir voru jafn
traustir, lagði grunninn að sigrin-
um. Einar hrökk heldur betur í
gang í markinu, hann varði 10
skot í fyrri hálfleik og 7 í þeim
seinni og Brynjar kórónaði mark-
vörsluna í lokin. Páll Ólafs var
ekki notaður að marki í sóknar-
leiknum fyrr en í seinni hálf-
leiknum og hann reyndist vera
trompið sem Bogdan hafði á
hendi. Júgóslavar þekktu minnst
til hans af íslensku útileikmönn-
unum, enda réðu þeir ekkert við
hann. Að öðru leyti var það liðs-
heildin sem skipti öllu máli - allir
fórnuðu sér fyrir heildina, í vörn
og sókn, og útkoman var eftir
því. Fyrsti sigur íslands á Júgósla-
víu í 15 landsleikjum þjóðanna er
staðreynd.
Mörk Islands: Páll Ólafsson 7, Kristján
Arason 6 (3v), Þorbergur Aðalsteinsson 3,
Þorgils Óttar Mathiesen 1, Sigurður Gunn-
arsson 1, Þorbjörn Jensson 1 og Bjarni
Guðmundsson 1. Einnig léku með Guð-
mundur Guðmundsson, Jakob Sigurðs-
son, Geir Sveinsson og Hans Guðmunds-
son, sem reyndar kom ekkert inná. Tólf
menn notaðir.
Mörk Júgóslavíu: Isakovic 4, Mrkonja
2, Vujovic 2, Holpert 2, Vukocvic 1, Cvetko-
vic 1 og Kuzmanovski 1. Júgóslvar notuðu
13 leikmenn og höfðu skipt öllum inná eftir
18 minútna leik!
Palle Thomasen og Leif
Eliason frá Danmörku hafa
kannski verið frambærilegir
dómarar fyrir 10 árum, en þeir
eru það ekki í dag. Þeir dæmdu
leikinn hroðalega, höfðu engin
tök á honum og virðast ekki hafa
fylgst með þróun í dómgæslu síð-
ustu árin. Vonandi er þetta síð-
asta ferðin þeirra hingað, til að
dæma allavega.
Bogdan og landsliðsmenn ís-
lands: Þökk fyrir stórkostlegan
leik. -VS.
Handbolti
Guðríður er lang markahæst
113 í 12 leikjum. Stórleikur í kvöld
Föstudagur 15. febrúar 1984 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 19