Þjóðviljinn - 16.02.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 16.02.1985, Síða 3
FRETT1R Sjóefnavinnslan Orkurétturinn til 2007 Fiskeldisfyrirtœki sœkjafast eftir lágorkunni. „Getum lítið um þetta sagt“ segir stjórnarformaður vinnslunnar. Ríkisstjórnar ogAlþingis að framleigja hitaréttinn Eg hef rætt þessi mál við ráð- herra og þetta hefur einnig verið tekið fyrir í stjórn Sjóefna- vinnslunnar, en engin ákvörðun verið tekin ennþá, sagði Guð- mundur Malmquist stjórnarfor- maður Sjóefnavinnslunnar og að- stoðarmaður iðnaðarráðherra um yfirlýsingar ráðherrans þess efnis að nýta ætti gufuaflsholu vinnslunnar til fískeldisstöðva sem eru að rísa á Reykjanesi. Sjóefnavinnslan gerði árið 1979 samning við ríkið og sveitarfélögin á Suðurnesjum um Loðna Undirboð í Japan? SH óskar eftir að vipskiptaráðuneytið kanni samning íslensku umboðssölunnar um sölu áfrystri loðnu til Japan. Samningsaðilum ber ekki saman um verðið Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hefur óskað eftir því við viðskiptaráðuneytið að það taki til athugunar samning sem Is- lenska umboðssalan hefur gert við japanskt fyrirtæki um sölu á 1000 lestum af frystri loðnu. „Það er hugsanlegt að við mun- um ekki selja neina loðnu héðan til Japans vegna þessa samnings“, sagði Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson forstjóri SH í samtali við Þjóð- viljann í gær. Eyjólfur er nýlega kominn heim frá Japan vegna fyrirhugaðrar sölu á frystri loðnu. Islenska umboðssalan hafði áður gengið frá sölu á 1000 lestum á verði sem SH telur ekki viðun- andi en Japanir segja það verð sem umboðssalan samdi um vera viðmiðunarverð. Við athugun á málinu hefur síðan komið í ljós að forráðamönnum umboðssöl- unnar og hinum japönsku kaupendum ber ekki saman um söluverð loðnunnar. „Þetta mál er með ólíkindum og svona lagað gæti hvergi gerst nema á íslandi. En þetta er víst það sem allir vilja að hver sem er geti selt smáskammta og bundið verð á stórum mörkuðum“, sagði Eyjólfur. Hann sagði að SH hefði gert sér vonir um að selja um 2500 lestiraf frystri loðnu til Japans nú á vertíðinni en vegna hins samn- ingsins stæði allt fast. Ekki náðist í Bjarna V. Magnússon forstjóra íslensku umboðssölunnar í gær en hann dvelst erlendis. -|g. hitaréttindi á jörðinni Stað á Reykjanesi þar sem Saltverk- smiðjan stendur. Þar voru borað- ar tvær holur og gefur aðalholan af sér um 25 MW. Þar af eru um 10% orkunnar nú nýtt til salt- vinnslunnar og fiskimjölsverk- smiðjunnar á Reykjanesi. Forráðamenn þeirra fiskeldis- stöðva sem nú eru að rísa á Reykjanesi og eru annars vegar í eigu SÍS og dótturféiaga og SH og fleiri aðila hafa sóst eftir að fá keypta lágorku frá borholunum til að hita upp sjó í eldisbúrum. „Stjórn Sjóefnavinnslunnar getur lítið sagt um þessi mál ein- faldlega vegna þess að þetta er ekki venjulegt hlutafélag. Ríkið á 87% af hlutafé og ber ábyrgð á öllum skuldum fyrirtækisins. Iðn- aðarráðherra getur hins vegar framleigt hitaréttinn með samn- ingum og þá í samráði við ríkis- stjórn og alþingi“, sagði Guð- mundur Malmquist. -*g- Blaðamenn Hvernig er málfarið? Umræðufundur kl. 16.30 ídag Eiga blaðamenn að ryðja ný- yrðum braut? Hve mikla áherslu geta blaðamenn lagt á málfar í daglegum störfum með hliðsjón af tímaskorti og afkastakröfum? í hvaða mæli tíðkast umræður um málfar á einstökum ritstjórnum dagblaða og útvarps og hvaða háttur er hafður á varðandi yfir- lestur handrita. Hvaða stefnu ætti að taka í menntamálum blaðamanna? Þessum og fleiri spurningum er ætlunin að svara á umræðufundi Blaðamannafélags íslands í dag um málfar í fjölmiðlum, hlutverk og ábyrgð blaðamanna. Verður fundurinn haldinn að Litlu- Brekku Bankastræti 2 á milli kl. 16.30 og 18.30. Málshefjendur verða þau Árni Böðvarsson málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, Guðmundur Kristmundsson námsstjóri, Jó- hanna Kristjónsdóttir blaðamað- ur, Sigurður G. Tómasson um- sjónarmaður Daglegs máls og Þórarinn Eldjárn rithöfundur. -g.ó. Islandslax SlSogdætur á fullri ferð Framkvœmdum miðar vel við seiðisstöðina á Reykjanesi. Stefnt að rekstri í vor. Samningar standa yfir við Hitaveitu Suðurnesja um kaup á heitu vatni Islandslax, fiskeldisfyrirtæki Sambands íslenskra samvinn- ufélaga, dótturfyrirtækjanna Regins, Olíustöðvarinnar í Hafn- arfirði, Salmon Inc. í Bandaríkj- unum og norsku eldisstöðvarinn- ar Noraqua A/S, er komið langt áleiðis með byggingu fiskeldis- stöðvar sinnar í Staðarhverfi á Reykjanesi. Framkvæmdir hófust uppúr áramótum og er stefnt að því að reksturinn hefjist þegar í vor. Stöðin mun eingöngu vera í seiðaeldi til að byrja með. Nú standa yfir samningavið- ræður fyrirtækisins við Hitaveitu Suðurnesja um kaup á heitu vatni til að hita upp ferskvatn. Að sögn Júlíusar Jónssonar skrifstofu- stjóra Hitaveitunnar er talað um mest 10-11 sekl. af heitu vatni og þarf að leggja um 6V2 km langa leiðslu frá Svartsengi að fiskeldis- stöðinni. Yrði hér um miklar framkvæmdir að ræða og óvíst hvort tekst að ljúka þeim fyrir vorið. -Ig. Vopnafjörður 100mannsá AB fundi Metaðsókn á Austfjörðum Alþýðubandalagið gekkst fyrir fundi á Vopnafirði í fyrra- kvöld og að sögn fréttaritara blaðsins þar eystra komu 90-100 manns á fundinn sem er einn sá fjölmennasti sem haldinn hefur verið þar. Alþingismennirnir Svavar Gestsson, Steingrímur J. Sigfús- son og Hjörleifur Guttormsson reifuðu ástand þjóðmála og fengu fjölda fyrirspurna frá fund- argestum. Aldarafmæli Jónasar Jónssonar írá Hriflu Þann 1. maí n.k. verða liðin 100 ár firá fæðingu Jónasar Jónssonar frá Hriflu. í félagsheimili samvinnumanna Hamragörðum verður þessa afmælis meðal annars minnst með erindum sem haldin verða vikulega, á miðvikudögum, ffá 20. febrúar til 27. mars, og hefjast kl. 20.00 Fyrirlesarar verða tveir hverju sinni: Skólastjórarnir séra Guðmundur Sveinsson og Jónas Fálsson, Helgi Skúli Kjartans- son sagnfræðingur og Aðalgeir Kristjánsson skjalavörður, Erlendur Einarsson for- stjóri og Halldór E. Sigurðsson fyrrv. ráðherra, Þórarinn Þórarinsson fyrrv. ritstjóri og Haraldur Matthíasson kennari, Andrés Kristjánsson rithöfundur og Þór Whitehead sagnfræðingur, Finnur Kristjánsson fyrrv. kaupfélagsstjóri og Auður Jónasdóttir kennari. Allir velkomnir. HAM RAGARÐAR Félagsheimili samvinnumanna Hávallagötu 24 Reykjavík Laugardagur 16. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.