Þjóðviljinn - 22.02.1985, Page 1
IANDIÐ
GLÆTAN
VIÐHORF
UM HELGINA
Sjómannasamningarnir
Taugastríð hafið
LÍÚ œtlar ekki að semja heldur stöðvaflotann
til að þrýsta á ríkisstjórnina til aðgerða segja sjómenn. Útgerðarmenn lýsa
ábyrgð á hendur sjómannasamtökunum vegnaþess aðflotinn var kallaður inn.
Olíuhœkkun boðuð ímiðjum samningum ekki til að liðkafyrir
Eftir það setn gerst hefur hér í
dag er ljóst að útgerðarmenn
ætla ekki að semja við okkur.
Þeir vilja að flotinn stöðvist og
ætla að nota þá stöðu til að þrýsta
á stjórnvöld um aðgerðir fyrir út-
gerðina. Það er hafíð taugastríð
milli LÍÚ og ríkisstjórnarinnar,
sagði einn af samninganefndar-
mönnum sjómanna í Karphúsinu
í gær. Þar stóð þá yfir samninga-
fundur en hann var mjög stuttur
og annar hefur verið boðaður í
dag.
Annar samningamaður benti á
að það kæmi ríkisstjórninni í raun
vel að flotinn stöðvaðist einhvern
tíma, vegna þess að þá kæmu síð-
ar í ljós hinir rniklu veikleikar
fiskveiðistjórnunarinnar. Með
því að stoppa nú á hávertíðinni,
væri von til þess að kvóti bátanna
entist vel fram á haustið.
Á samningafundinum í gær
gerðist ekkert annað en það að
útgerðarmenn afhentu sjó-
mönnum bréf, þar sem þeir lýsa
ábyrgð á hendur sjómannasam-
tökunum fyrir að kalla allan flot-
ann inn, nú eftir að verkfall er
hafið. Telja útgerðarmenn það
brot. á samningum en sjómenn
telja það einnig brot á samning-
um að útgerðarmenn létu sum
skipin breyta úr dagróðrum yfir í
útilegu.
Óskar Vigfússon sagðist fagna
því mjög að flotinn allur er kom-
inn inn, það styrkti stöðu sjó-
manna í samningunum mjög. Og
það sagðist hann fullyrða að eftir
að flotinn hefur stöðvast, munu
sjómenn ekki samþykkja neina
smánarsamninga.
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði aðspurður að það væri
í raun sama hvenær olíuverðs-
hækkunin kæmi, ef hún ætti að
koma, en vitaskuld myndi það
ekki liðka fyrir að setja hana fram
í miðjum samningaviðræðum.
S.dór
ÁhöfnináJósefGeirÁR, skipstjórinnBaldurBirgissonerfyrirmiðjuenhinireru Ingibjörn Magnússon, Björgvin Steinsson, Halldór Asgeirsson og Vilhelm
Henningsson. Spjall við þá félaga er inni í blaðinu. Ljósm. eik.
Innheimtubréf
Sjá bls. 3
Miljonir í ofreiknaða vexti
Landsbankinn ekki enn tekið afstöðu til álits
Seðlabankans um ofreiknaða vexti á innheimtubréfum á sl. ári
Hvaðvarðum
bókmenntaverðlaun
Jóns Sigurðssonar?
Ekkertfé áfjárlögum í ár
Hefur verið úthlutað bókmenntaverðlaunum af lið 02-982-0235 á
fjárlögum ársins 1984, sem forseti íslands stofnaði til og kennd eru
við Jón Sigurðsson? Þessa fyrirspurn hefur Kristín Halldórsdóttir lagt
fyrir menntamálaráðherra á alþingi.
Kristín spyr einnig hvort skipuð hafi verið stjórn til að fjalla um
verðlaunin, hvað fyrirhugað sé um þau í framtíðinni og hvers vegna
ekki hafi verið veitt fé til þeirra á fjárlögum í ár.
-ÁI
Bankastjórn
r"
Landsbankans
hefur ekki enn tekið afstöðu
til áiitsgerðar lögfræðinga Seðla-
bankans, um að bankinn hafí á sl.
hausti tekið mun hærri vexti af
innheimtubréfum en heimilt var.
„Þetta er ekki einfalt mál og
við erum með þetta ennþá til
skoðunar. Ég á von á því að við
komumst að niðurstöðu alveg á
næstunni," sagði Jónas Haralz
bankastjóri Landsbankans í gær.
Ekki er ljóst hversu mörg
skuldabréf er hér um að ræða en
fleiri bankar en Landsbankinn
munu hafa tekið of háa vexti að
mati Seðlabankans. Ljóst er þó
að ofgreiddir vextir nema miljón-
um króna.
Jónas sagði að ef fallist yrði á
sjónarmið Seðlabankans þá ættu
bankarnir endurheimtukröfu á
eigendur innheimtubréfanna.
„Það er eðlilegt að menn sem
hafa uppi kröfur í þessu máli
komi með þær á bankana, sem
munu þá áfram leita til eigenda
bréfanna.“
En er víst að eigendur bréf-
anna sætti sig við að endurgreiða
vextina?
„Ég sé ekki að úr þessu verði
skorið öðruvísi en fyrir dómstól-
um. Það er hægt að vefengja það
sem Seðlabankinn álítur, en við
myndum ekki gera það. Það yrðu
þá að vera eigendur bréfanna
sem leituðu til dómstólanna, og
ef við fylgjum Seðlabankanum þá
eigum við auðvitað á hættu að fá
á okkur kröfu frá eigendum bréf-
anna. Þetta er ekki einfalt mál,“
sagði Jónas Haralz.
-Jg-
Staðan eftir
8 umferðir
Eftir 8 umferðir er staðan í Af-
mælisskákmóti Skáksambands-
ins þannig:
1. Larsen 6 1/2
2. Spassky 5 1/2
3. Margeir 4 1/2 + biðskák
4. Guðmundur 4 + biðskák
5. Jusupov 4
6. Helgi 3 1/2
7. Hort 3 1/2
8. Van der Wiel 3 + biðskák
9. Karl 3 + biðskák
10. Jóhann 3
11. Jón L. 2 1/2 + biðskák
12. Hansen 1 1/2 + biðskák.
-HL