Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 10
SKÁK
SPENNA OG FJÖR
Larsen er hreint óstöðvandi á afmælisskákmótinu.
Mikill fjöldi manna var mættur
á Afmælismót Skáksambandsins
á Loftleiðahótelinu í gærkvöldi.
Fullyrða má að áhorfendur hafi
fengið heilmikið fyrir snúð sinn
því að mikil spenna og fjör var
ríkjandi. Það voru einkum tvær
skákir sem héldu þessu fjöri uppi,
annars vegar viðureign Karls
Þorsteins og Van der Wiel og hins
vegar skák Margeirs og Jóns L.
Van der Wiel beitti kóngs-
indverskri vörn gegn Karli. í 12.
leik fórnaði hann manni fyrir tvö
peð og fékk mikið spil í staðinn.
Staðan var mjög vandtefld og
Karl eyddi miklum tíma. Eftir
gífurlegt tímahrak Karls kom upp
staða þar sem andstæðingur hans
hafði aðeins eitt peð upp í mann-
inn. Hins vegar hafði honum tek-
ist að koma frípeðum sínum upp
á 2. og 3. línu. Skákin fór í bið og
er biðstaðan erfið hjá Karli.
Skák Margeirs og Jóns L. var
stórskemmtileg á að horfa. Jón
L. beitti drottningar-indverskri
vörn. Margeir, sem hafði hvítt,
tefldi byrjunina ónákvæmt og
varð á eftir í liðsskipan. Hann tók
þá á það ráð að fórna manni fyrir
peð og fékk einhver færi í stað-
inn. En í framhaldinu gerðust
undarlegir hlutir. Jón fórnaði
hrók fyrir kóngssókn og virtist
það líta vel út í fyrstu. En eftir
tímahrak og miklar flækjur var
komin upp staða þar sem Margeir
hafði tvö peð yfir í hróksenda-
tafli! Skákin fór í bið. Ef Margeir
vinnur biðskákina eru mögu-
leikar hans á áfanga að stór-
meistaratitli ennþá fyrir hendi.
Larsen vann snemma peð eftir
Semi-Tarrasch-vörn Jusupovs og
virtist staðráðinn í því að auka
enn forskot sitt í mótinu. Upp
kom biskupaendatafl þar sem
Larsen hafði frípeð á a-línunni og
gerði það út um skákina. Fátt
virtist geta stöðvað Larsen en
ekki er hægt að segja að Jusupov
hafi teflt þessa skák vel.
Byrjunin hjá Jóhanni og Spas-
sky var Katalan. Sá síðarnefndi
meðhöndlaði svörtu stöðuna á
fremur óvenjulegan máta og náði
frumkvæðinu eftir byrjunina.
Spassky ætlaði sér greinilega
sigur og æddi með peðin áfram á
kóngsvængnum. Honum tókst
þannig að sprengja upp kóngs-
stöðu hvíts og varð Jóhann að
gefast upp þegar mátið blasti við.
Áreynslulaus sigur hjá Spassky.
Jóhann hefur ekki fundið sjálf-
an sig í þessu móti en þó er ekki
ástæða til að örvænta; allir eiga jú
sín slæmu mót.
Katalan-byrjun varð einnig
uppi á teningnum hjá Helga og
Hort. Helgi hafði hvítt og tókst
að skapa sér frípeð á d-línunni.
Hort heppnaðist hins vegar að
skorða frípeðið og eftir að hann
þvingaði fram mislita biskupa
með peðsfórn var jafntefli samið.
Hansen og Guðmundur tefldu
drottningar-indverska vörn.
Hansen fékk rýmri stöðu út úr
byrjuninni en náði þó aldrei
hættulegu frumkvæði. Skákin fór
í bið og hefur Hansen ennþá ör-
lítið betra tafl.
Hvítt: Karl Þorsteins
Svart: Van der Wiel
Kóngs-indversk vörn.
1. d4 Rf6
2. c4 g6
Van der Wiel velur kóngs-indverska
vörn enda hentar hún áhættuskákstfl
hans vel.
3. Rf3 Bg7
4. g3 0-0
5. Bg2 d6
6. 0-0 Rc6
Panno-afbrigðið. Það hefur mikið
verið teflt á síðustu árum. „Gamla“
leiðin er 6. - Rbd7 ásamt e5.
7. Rc3 a6
8. h3 Hb8
Svartur undirbýr framrásina b7 - b5.
9. e4 b5
10. eS
Þetta er hvassast. Annað framhald er
10. cxb5 axb5 11. Hel o.s.frv.
10. - Rfd7
11. cxb5 axb5
12. Rg5 Rxd4!?
Algengara er 12. - dxe5 13. Bxc6 exd4
14. Rxb5 Hb6! með flóknu tafli.
13. Dxd4 Rxe5
14. Dh4 h6
15. Rf3 Rxf3+
16. Bxf3 64
17. Re4 g5
18. Dh5 Bf5
Hótar 19. - Bg6 ásamt 20. - f5 og
drottningin lokast inni.
19. Bg2 d5
20. Hdl e6
21. f4 Bg6
22. De2 De8
23. RÍ2 Db5
24. Dxb5 Hxb5
Þótt hvítur hafi komist út í endatafl er
staðan enn tvísýn vegna þess. hve
svörtu miðborðspeðin eru sterk.
25. Bfl Ha5
26. Bd3 Bxd3
27. Rxd3 c5
28. fxg5?
Þetta hefði Karl betur látið ógert. Nú
verður hvíta staðan erfið. Betra er28.
Re5 með óljósu tafli.
28. - b3!
29. Bd2 Hxa2
30. Hxa2 bxa2
31. gxh6 Bd4+
32. Kfl
Karl er í miklu tímahraki og næstu
leikir eru tefldir með leifturhraða.
Svörtu miðborðspeðin rúlla nú
áfram.
32. - c4
33. Rb4 Bxb2
34. Rxa2 Ha8
35. Rc3 d4
36. Re4 c3
37. Bf4 c2
38. Hel d3
39. Rc5 Ha3
40. Bd2 Bc3
41. Re4 Bxd2
42. Rxd2 Ha5!
Hér fór skákin í bið og er hvíta staðan
erfið. Svartur hótar 43. - He5! ásamt
44. - He2.
Úrslit í 8. umferð:
Larsen - Jusupov: 1-0
Karl - Van der Wiel: bið
Helgi - Hort: Vz-Vi
Margeir - Jón L.: bið
Hansen - Guðmundur: bið
Jóhann - Spassky: 0—1
Úrslit biðskáka úr 7. umferð:
Jusupov - Spassky: V2-V2
Hort - Kari: V2-V2
Hansen - Jóhann: Vi-Vl2
Margrét
Geir
Rísum gegn ránskjörum
- Lyftum lífekjöninum á ný
Opnir fundir þingmanna Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördœmi
Hafnarfjörður fimmtudaginn 28. febrúar
Þingflokkur Alþýðubandalagsins heldur opinn
fund í Hafnarfjarðarbíói kl. 20.30, fimmtu-
daginn 28. febrúar.
Fundarstjórar: Hilmar Ingólfsson formaður kjör-
dæmisráðs og Magnús Jón Árnason bæjarfull-
trúi.
Þingmennirnir Garðar Sigurðsson, Geir Gunn-
arsson, Guðrún Helgadóttir, Guðmundur J. Guð-
mundsson, Helgi Seljan, HjörleifurGuttormsson,
Ragnar Arnalds, Skúli Alexandersson, Stein-
grímur J.. Sigfússon, Svavar Gestsson og Elsa
Kristjánsdóttir varaþingmaður sitja fyrir svörum.
Tvö stutt framsöguávörp. - Fyrirspurnir.
- Lokaorð.
Guðrún
Helgi
Þingmenn Alþýðubandalagsins og varaþingmenn
halda opna fundi í:
Garðabæ mánudaginn 4. mars.
Keflavík þriðjudaginn 5. mars.
Kópavogi miðvikudaginn 6. mars.
Mosfellssveit fimmtudaginni7. mars.
Grindavík fimmtudaginn 7. mars.
Magnús Jón
Hilmar
Ragnar
Garðar
Guðmundur J.
Svavar
Guðrún
Elsa
Skúli
Hjörleifur
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. febrúar 1985