Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 8
GLÆTAN Af hverju er Ungfrúin í rusli? Lífið er lygi og blekking... Ljósm. Gísli hirðljósmyndari MS. að vera í stjórnmálaflokki að vera í leiklist, við tölum ekki um ann- að. Skólafélagarnir segja að við séum á einkaflippi, það er ekkert skrýtið. Við leggjum í uppsetn- inguna brjálæðislega vinnu, okk- ur dreymir um leikritið og það er komið á sálina í okkur. En allt þetta er þess virði og vel það. Við kvíðum hálfpartinn fyrir þegar þetta er búið. Pá kemur yfir mann tómleikatilfinning, það vantar eitthvað. Allt verður til- gangslaust, þetta góða samband sem hefur myndast leysist upp, við tvístrumst. - En nóg um það, hvað sýning- una varðar vantar ennþá herslu- muninn. Við erum búin að gera plaggat, Hermína Dóra Ólafs- dóttir og Björn Jónsson teiknuðu það, og prógrammið er í prentun. Við þurfum að setja upp ljósin en eftir nokkur rennsli eða æfingar verður þetta komið, við erum á miljón núna við að fá þetta til að falla hvað að öðru“. Sýningin er öllum opin og nem- endur framhaldsskóla fá afslátt. Við reiknum með um 14 sýning- um. Undanfarin ár hefur þetta gengið mjög vel og við þurft að bæta við sýningum. Það komast um 7o manns á hverja sýninngu, við viljum ekki troða inn fólki þannig að þeir sem fjærst sitja heyra ekki neitt og njóta ekki sýningarinnar. Þetta er svo magnað verk, ætli við verðum bara ekki með sýningar fram á vor?„ —aró Gamall maður og ungur stúdent. Framhald af bls. 7 inu í geymslu. Við höfum alltaf verið í húsnæðishraki. Það er eiginlega hvergi pláss fyrir okkur. Sem betur fer koma sumir kenn- arar á móts við okkur í náminu því þetta er tómstundastarf og al- veg utnvið námið. Þó er þetta inná leiklistarsviði en öll vinnan við uppsetningu er ekki metin sem einingar í námi. Það er synd því þetta kemur óneitanlega nið- ur á náminu. Við erum að æfa öll kvöld og allar helgar. Þetta krefst ótakmarkaðrar vinnu og leikstjórinn hún Hlín er ströng, enda gengi þetta ekki öðruvísi. Leikstjórinn leggur líf sitt og sál í þetta og gengur á undan með góðu fordæmi". Þroskandi og tímafrekt Af hverju við erum að þessu? Við bara fáum svo mikla ánægju útúr þessu, þetta er þroskandi, við kynnumst fullt að fólki, kynn- umst leiklistinni almennt og fáum innsýn í svo margt. Bæði aðra hluti og aðra nemendur. Við kynnumst stússinu í kringum leiksýningar, lærum að bjarga okkur sjálf og það er meinholt. í hópnum lærum við að aðlagast hvert öðru, taka tillit til annarra. Það sem er skemmtilegt núna er að það er nóg af karlmönnum í leiklistinni. Við höfum alltaf átt í erfiðleikum með þá hingaðtil og reynt að króa þá af og múta þeim. En nú hefur átt sér stað hugarf- arsbreyting og þeir streyma að af sjálfsdáðum. Leiklistarfélagið Talía er gam- alt og datt niður í nokkur ár en hefur verið á stöðugri uppleið síðustu árin. Við þökkum það meðal annars ieikstjóranum okk- ar, hún kom með kraftinn. Undir hennar stjórn setti leiklistarhóp- urinn upp Galdra-Loft ’83 og Að- laðandi er veröldin ánœgð í fyrra en það leikrit skrifaði Anton Helgi sérstaklega fyrir okkur. Leiklistarfélagið er líka með upp- ákomur í lok námskeiðsins á hau- stönn, bæði ljóðakvöld og draugakvöld. Þó stöndum við að vissu leyti utan við skólalífið. Það.er eins og Erum við dáin eða lifandi? Vinsældalistar Þjóðviljans Fellahellir ( 1) 1. Forever Young - Alphaville ( -) 2. 1 know Him so well - Elain Page og Barbara Dickson ( -) 3. One Nigh in Bangkok - Murray Head ( -) 4. Method ofModern Love-Hall & Oates ( —) 5. Sounds like a Melody - Alphaville ( -) 6. Invlsible - Alison Moyet ( -) 7. Suger Don’t Bite - Sam Harris ( 5) 8. Power of Love -Frankie Goes To Hollywood ( -) 9. Don’t Look Any Further - Dennis Edwards ( -) 10. Neutron Dance - Pointer Sisters. Rás 2 ( 1) 1. Moment of truth - Survivor ( 3) 2. Safe a Prayer - Duran Duran ( -) 3. Love and Pride - King ( 2) 4.1 want to know what love is—Foreigner (4) 5. Everything she wants — Wham! ( 9) 6. Shode -Tears and fears ( 5) 7. Forever young - Alphaville ( 7) 8. We belong - Pat Benatar ( 6) 9. Búkalu - Stuðmenn (10) 10. Easy lover- Philip Bailey/Phil Collins Grammió ( 1) 1. Hateful of Hollow - Smiths ( 2) 2. Treasure -Coucteau Twins ( 4) 3. Pop- Tones On Tail ( -) 4. Dreamtime - Cult ( -) 5. Aura- King Sunny Adé and African Beats. ( 3) 6. The Walking Hours - Dali’s Car ( -) 7. It’s My Life - Talk Talk ( 8) 8. The Wonderful and Frightening World of the Fall - Fall (10) 9. Lili Marlene - Das Kapital ( 7) 10. Zoolook - Jean Michel Jarre

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.