Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 20
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. HIÚÐVIUINN Föstudagur 22. febrúar 1985 44. tölublað 50. örgangur Byggung Tóku lóðimar sjálfir Forystumenn Byggungs úthlutuðu sjálfum sérfjórum einbýlishúsalóðum við Seilugranda á sínumtíma. Þorvaldur Mawby: Þessar lóðir voruhálfgerð olnbogabörn Einbýlishúsin sem Byggung er aö reisa við Seilugranda verða fullsmíðuð í sumar. „Olnbogabörn", segir framkvæmdastjórinn sem sjálfur á eitt þeirra. Mynd: eik. Fiskmat Leyfislaus saltfiskur SÍF skilaði ekki matsgögnum -fékk ekki vottorð hjá Ríkismatinu. Saltfiskreglugerð enn ósamin Við Seilugranda hafa í nokkur ár verið í byggingu 4 einbýlis- hús á vegum Byggung. Þessar lóð- ir voru aldrei auglýstar meðal fé- lagsmanna, heldur úthlutað af stjórn til tveggja stjórnarmanna og tveggja stofnfélaga. „Nei, það held ég ekki,“ svar- aði Þorvaldur Mawby fram- kvæmdastjóri Byggungs í gær, aðspurður hvort lóðirnar hafi verið auglýstar til úthlutunar á sínum tíma. Þorvaldur er einn þeirra sem er að byggja við Seilugranda ásamt þeim Arna Þ. Árnasyni stjórnarmanni og stofnfélögunum Hjörleifi Kvaran og Jóni G. Kristjánssyni. „Þessar framkvæmdir hafa dregist á langinn. Það var byrjað á þessu árið 1981 og stóð til að klára árið 1983 en við stefnum að því að klára húsin í sumar,“ sagði Þorvaldur. Upphaflega var gert ráð fyrir 6 einbýlishúsum á skikanum sem Byggung byggir á við Seilugranda en tvö hús féllu út þar sem þau voru teiknuð ofan á skólplögn. Þessi skiki var hluti af lóð sem Byggung keypti á sínum tíma af Hafskip fyrir fjölbýlishús. „Þetta urðu svona hálfgerð olnbogabörn þarna,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði að þetta mál hefði verið rætt á aðalfundi Byggung á sínum tíma og þá gagnrýnt að þessi húsasmíði myndi hugsanlega tefja aðrar framkvæmdir félags- ins en raunin hefði orðið önnur. Smíði einbýlishúsanna hefði dregist á langinn. -Ig- Kappræða um bjór? Stórstúka íslands hefur sent út- varpsráði bréf þar sem hún krefst þess að kappræður um áfengis- bölið fái að fara fram í sjónvarps- sal á milli stúkumanna og flutn- ingsmanna bjórfrumvarps á Al- þingi. Stjórnandi verði Ómar Ragnarsson fréttamaður en'frá Stórstúku íslands mæti Hilmar Jónsson og sr. Björn Jónsson en frá bjórfrumvarpsmönnum þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Magnússon. Útvarpsráð hefur málið til athugunar. Eftir hádegisfund samninga- nefndar ríkisins og fulltrúa úr Launamálaráði BHM í gær virðist Ijóst að samninganefndin ætlar sér ekki að semja við kennara fyrren öll BHM-félögin hafa mótað kröfur sínar og hafið samningaviðræður. Að sögn Birgis Björns Sigurjónssonar hjá BHM munu sérkjarasamningar annarra félaga en framhalds- skólakennara varla hefjast fyrren r Utflutningsvottorð til saltflsk- útflytjenda lágu óundirrituð hjá Ríkismati sjávarafurða yfir hclgina vegna misklíðar um hver gögn SIF-menn skyldu leggja fram; þeir munu hafa viljað undirritun án þess að lcggja fram matspappíra. Málið kom til kasta sjávarútvegsráðuneytisins og var málamiðlunin sú að vottorð feng- ust gegn loforði um tilskilin gögn síðar. „Samkomulagið sem við gerð- um við Ríkismatið var þannig,“ sagði Sigurður Haraldsson skrif- um miðja næstu viku. „Við teljum vinnubrögð samninganefndar- innar furðuleg" sagði varafor- maður HÍK, Gunnlaugur Ást- geirsson við Þjóðviljann í gær. Kennararnir lögðu kröfur sínar fram á fundi á þriðjudag og hafa ekki fengið önnur viðbrögð frá samninganefndinni en að kröf- urnar geti ekki orðið grundvöllur umræðu. Uppsagnir framhalds- skólakennara taka gildi 1. mars. stofustjóri SÍF, „að við leggjum fram öll þau gögn sem ráðuneytið ætlast til að við leggjum fram.“ Hjá ríkismatinu hafa menn áður gefið út vottorð án þess að matsgögn fylgdu umsókn, en nú vildu þeir „leggja áherslu á þessi mál“ að sögn Njáls Mýrdals og töfðust því vottorðin þangaðtil SÍF kom ráðuneytinu í málið. Samkvæmt nýlegum lögum hafa framleiðendur umsjón með ýmsu matsstarfi sem áður var í höndum Ríkismatsins. Hinsveg- ar er enn ósamin reglugerð um - Næsti samningafundur hefur ekki verið boðaður, sagði Gunn- laugur, og samninganefndin virð- ist ætla sér að semja við öll BHM- félögin í einu. Samninganefndin hefur ekki sett fram neinn nýjan umræðugrundvöll og sýnir þann- ig engan vilja til að hraða samn- ingaviðræðum við okkur. Þannig er öllu skólahaldi í marsmánuði stefnt í hættu. Þetta er furðulegt miðað við yf- saltfiskmat og málsmeðferð um það því „í lausu lofti“ einsog Ein- ar Jóhannesson forstöðumaður Ríkismatsins komst að orði. „Þetta er erfitt tímabil og kannski hætt við misskilningi meðan reglugerðin er ókomin,“ sagði Jón Arnalds ráðuneytisstjóri um saltfiskmálin. Heimildir Þjóðviljans herma að misklíð SÍF og ríkismatsins hafi verið borin undir lagapró- fessor og álit hans verið sam- hljóða skoðunum ríkismats- manna. - m irlýsingar ráðherranna, sagði Gunnlaugur. „Sé samninga- nefndin að vinna eftir fyrirmæl- um frá yfirmönnum sínum er ljóst að ábyrgðin er stjórnvalda. Kennarar hafa eindregið stefnt að því að ná samkomulagi fyrir fyrsta mars.“ Menntamálaráðherra og að- stoðarmaður hans voru á fundum í gær og tóku ekki síma. -m Amundamálið Gerði upp við HSÍ í gær Jón Baldvin gekk í málið og lét rótara sinn Amunda Ámundason gera upp reikninga við Hand- knattleikssambandið Gjaldkeri HSÍ, Þórður Sig- urðsson kom að máli við Þjóðvilj- ann í gær og sagði að á fundi í gærmorgun hefði Amundi Amundason, umboðsmaður gert upp skuld sína við HSÍ. Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í fyrradag sá Ámundi um fjáröflun fyrir HSÍ fyrir einu ári síðan. Hann gerði svo upp með inni- stæðulausum ávísunum og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, hafði HSÍ ekki tekist að fá hann til að gera málið upp fyrr en nú að frétt um það birtist í Þjóðviljanum. Þjóðviljinn hefur öruggar heimildir fyrir því að Jón Baldvin formaður Alþýðuflokksins hafi heldur betur hrokkið við er hann sá fréttina um rótara sinn og gengið í málið og látið Ámunda gera hreint fyrir sínum dyrum. -S.dór Sjá bls. 2 y Kennarar Abyrgöin er stjómvalda Aðeins vika íl. mars, samningafundur við kennara óboðaðurog varla á dagskráfyrren um miðja nœstu viku

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.