Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 9
GLÆTAN Fer Frankie til Hollywood? f heilt ár réði hljómsveitin Fra- nkie Goes to Hollywood lögum og lofum í poppheimi Bretlands með lögunum „Relax" og „Two Tribes“. Þá höfðu þeir ekki gefið út stóra plötu en þegar hún loks- ins kom var hún tvöföld og hét „Welcome To The Pleasure Dome“. Umslag plötunnar vakti mikið umtal, þótti sérstætt og allt að því ósiðlegt. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þeir félagar í Frankie voru umdeildir. Þeir höfðu þá getið sér orð fyrir opin- skáan texta í „Relax“ og ein- dregna pólitíska afstöðu í „Two Tribes“. Aðalsöngvari hljóm- sveitarinnar Holly Johnson, sem er ljúfur í viðmóti og fyndinn, svarar því til að það hafí aldrei verið meining þeirra að móðga neinn. Framabraut félaganna í Fra- nkie Goes To Hollywood hefur verið eins og gerist og gengur. Hljómsveitin stökk ekki al- sköpuð út úr höfði forráðamanna ZTT plötuútgáfunnar. Dúettinn Johnson og Paul Rutherford hef- ur þekkst í tíu ár og spilað saman í fjölda hljómsveita á þeim tíma. 1982 léku þeir Johnson, Ruther- ford, Brian Nash, Mark O’Toole og Peter Gill á hinum og þessum næturklúbbum. „Við spiluðum ekta norðlenska næturklúb'ba- músík“, segir Johnson, „í Liverp- ool, Coventry og Leeds. Við komum fram í sjónvarpsþætti (sem heitir „The Tube“) og spil- uðum lagið „Relax“. Á þessum tíma vorum við að leita að samn- ingi við plötuútgefendur en hafði ekkert orðið ágengt. Þegar Tre- vor Horn, framkvæmdastjóri ZTT plötuútgáfunnar, sá okkur sagði hann við aðstoðarmann sinn Paul Morely: „Náðu í þessa hljómsveit fyrir mig“. Síðan eru liðin rúm tvö ár“. Trevor Horn hefur verið þakkaður skjótur frami hljómsveitarinnar en John- son neitar því alfarið. „Ef fólk þekkti Trevor eða Paul kæmist það fljótt að raun um að þeir eru ekki færir um að gera fólk að leikbrúðum. Þeir eru góðir í sínu starfi en það felst ekki í að kippa í spotta". Að sigra heiminn Johnson þvertekur líka fyrir það að frægðin sé að þakka um- tali í fjölmiðlum. Hann segist ekki hafa mikið álit á skríbentum rokkblaða. „Ef þú ert að byrja geta rokkblöðin hreinlega drepið þig niður með óheiðarlegum Skagaströnd? Guðmundur og Ágúst frá Skagaströnd. Við erum hér tveir strákar frá Skagaströnd og erum í starfs- kynningu á Þjóðviljanum. Við vorum beðnir um að skrifa eitthvað um Skagaströnd. Hér kemur það: Eins og flestir vita (eða allir), er maður einn á Skagaströnd sem skemmtir alþjóð með svokölluð- um Kántrísöngvum. Heitir hann Hallbjörn Hjartarson og er stundum nefndur Hallbjörn kántrý. Eftir að hann gaf út fyrstu plötuna setti hann á stofn veit- ingahús sem heitir Kántríbær. Þar geta þreyttir og óþreyttir ferðamenn komið og bragðað á ýmsum vestrænum réttum eins og slappa kúrekanum og rétti gresj- unnar. Hefur þetta hleypt miklu lífi í áður tilbreytingarlaust líf Skagastrandarbúa. Ber þar hæst að nefna Kántrýhátíðina sem haldin var síðastliðið sumar, og þangað komu margir ferðalangar til að skemmta sér. Komu á stað- inn kvikmyndamenn og mynd- uðu þeir það sem gerðist á staðn- um. Var þessi mynd sýnd núna síðastliðið haust. En fyrir utan þetta er lítið um að vera á Skagaströnd nema fá- eina daga á ári, þegar það er bíó og svoleiðis. Það mætti bæta þetta mikið, að okkar áliti. Nú segjum við þessu lokið. P.S. Sjáumst á næstu Kántrý- hátíð. Guðmundur Oddson og Ágúst Ómarsson. Hér er f jörið Föstudagur 22. febrúar Ársel: Diskótek kl. 8-11.30 Bústaðir: Diskótek kl. 8-12 Fellahellir: Diskótek kl. 8-12 Tónabær: Diskótek kl. 8-11 Þróttheimar: Diskótek kl. 8-12 Laugardagur 23. febrúar Agnarögn: Diskótek kl. 9-1 Traffic: Diskótek föstudags- og laugardagskvöld kl. 10-3 Skátafélagið Hraunbúar í Hafnarfirði heldur upp á 60 ára af- mæli sitt með blysför oa kvöldvöku í Víðistaðaskóla í dag, föstudaginn 22. febrúar. Á laugardagskvöld verður ball í Æsku- lýðsheimili Hafnarfjarðar kl. 9-1. Veislunni lýkur á sunnudag 24. febrúar með kaffidrykkju í íþróttahúsi Hafnarfjarðar. umskrifum. Ég er ekki viss um að þeir geri sér grein fyrir ábyrgð- inni sem á þeim hvílir". En er það ekki rétt að hljómsveitin Frankie Goes To Hollywood hafi að ein- hverju leyti notið góðs af þeim skrifum sem Johnson fordæmir? „Ég man ekki til þess að hafa nokkurn tíma lesið greinar um okkur, ég þori það ekki, er of viðkvæmur til þess“, er svar Jo- hnsons. Næsti áfangi á frambraut þess- arar óvenjulegu hljómsveitar (hverjir aðrir gætu leikið lög eftir Bruce Springsteen og Burt Bac- harach á sömu plötu) er að sigra Nýja heiminn. Sú sigurför byrj- aði ágætlega því miðar á fyrstu tónleika þeirra í Bandaríkjunum og Kanada seldust upp á svip- stundu. Þeir gerðu líka nafn hljómsveitarinnar að spádómi sem rættist með því að koma fram í kvikmynd eftir Brian De Palma. Myndin heitir „Body Doble“ og þeir félagar léku hljómsveit sem spilar lagið „Relax“. Og hvernig var svo þessi fræga Hollywood? Er Hollywood eitthvað í líkingu við þá mynd sem birtist á forsíðu tímarits af Frank Sinatra að stíga út úr flugvél? Sú forsíðumynd er einmitt kveikjan að nafni hljóm- sveitarinnar. „f mínum augum er Hollywood aðeins hugmynd. Það er staðurinn þar sem Marilyn Monroe og Montgomery Clift búa. Hollywood er Helheimar“, er svar Johnson. Mun hljóm- sveitin Frankie Goes To Holly- wood leggja Bandaríkin að fótum sér, eru tónlistarunnendur þar til- búnir til að taka á móti Frankie? Þeirri spumingu svarar Johnson með uppgerðar- eða alvöru skeytingarleysi: „Ég veit það ekki og mér er líka alveg sama. Ef þeir hafa engan smekk er það þeirra vandamál og ekki mitt“. Þýtt og endursagt, aró. ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.