Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Sjómenn
Hvikumekki
frá kröfunum
Ahöfnin á Jósef Geir AR einhuga
um að útilokað sé að hvikafrá
kröfunni um hœkkun á
kauptryggingu uppí35 þúsund
Tíðindamenn Þjóðviljans hittu
fyrir áhöfnina á Jósef Geir ÁR
vestur á Grandagarði í gær og var
fyrst spurt hvort þeir væru ekki
komnir í verkfall. Nei, við á
Stokkseyri boðuðum verkfall
viku síðar en aðrir og byrjum því
ekki fyrr en á sunnudaginn kem-
ur, var svarið.
Baldur Birgisson skipstjóri
sagði að vélin hefði bilað í bátn-
um og væri hann kominn í slipp.
Frystihús Stokkseyrar sem gerir
bátinn út hefur því tekið bát á
leigu, Halldóru Jónsdóttur RE
og væru þeir að 'gera klárt til að
fara með bátinn til Stokkseyrar.
Þeir voru spurðir álits á gangi
mála í samningunum og sögðu að
ljóst væri að mikil harka væri
hlaupin í viðræðurnar og ekki
myndi það bæta úr skák að olíu-
verðshækkuninni væri skellt á í
miðjum samningaviðræðum. Að-
spurðir hvort lækkun á kostnað-
arhlutdeild sjómanna í olíunni
myndi geta leyst málið sögðu þeir
að sjálfsagt myndi það eitthvað
liðka til, en höfuðkrafan, hækk-
un á kauptryggingunni væri alger
nauðsyn. Stór hluti bátasjó-
manna væri mestan part ársins á
kauptryggingu, næði ekki hlut.
Og að hækka kauptrygginguna
uppí 35 þúsund krónur á mánuði
fyrir ómælda vinnu væri lágmark-
ið.
Þeir sögðust standa allir saman
heilshugar með sjómönnum sem
nú eru komnir í verkfall, við vor-
um seinni til en þeir og byrjum í
verkfalli á sunnudaginn, sögðu
Stokkseyringarnir.
Að sögn þeirra eru samningar
sjómanna á Stokkseyri aðeins
öðruvísi en annarra, þeir fá
áhættuþóknun, sem sumir kalla
hræðslupeninga vegna þess hve
innsiglingin á Stokkseyri er
hættuleg, eins og svo oft hefur
sýnt sig. -S.dór
Baldur Birgisson skipstjóri: Það hefur
gengið illa sem af er vertíðinni (Ljósm
—eik.).
Iðnnemar
Borgin
Styðja
kemara
Iðnnemar í Reykjavík lýstu í
gær yfir fullum stuðningi við
kjarakröfur kennara sinna og
segir í ályktun fundar sem þeir
efndu til að ef til stöðvunar fram-
haldsskólanna kæmi 1. mars nk.
væri ábyrgðin alfarið stjórn-
valda.
Það var Málfundafélag iðn-
nema sem efndi í gær til fundar í
Iðnskólanum í gær í samráði við
skólafélagið. Stefán Ólafur Jóns-
son kom á fundinn fyrir hönd
menntamálaráðuneytis en auk
hans héldu framsögu þeir Kol-
beinn Gíslason kennari og Krist-
inn Einarsson formaður INSÍ.
í ályktun fundarins segir að
nemendur krefjist þess að ríkis-
valdið gangi strax til samninga
við kennara áður en 10.000 ne-
mendur í landinu verði sendir út á
guð og gaddinn. -v.
Mótorskip
Rannsókn
að Ijúka
Rannsókn er langt komin
kringum meinta fjárglæfrastarf-
semi í fyrirtækinu Mótorskip.
Enn er málið í höndum
Rannsóknarlögreglu ríkisins en
„það fer að styttast í“ að ríkis-
saksóknari fái send málskjöl að
sögn Hallvarðar Einvarðssonar
lögreglustjóra. -m
Leiðrétting
í frétt sem birtist í Þjóðv. 20.
febrúar um firmakeppni í hjóla-
stólaakstri slæddist inn sú prent-
villa að keppnin yrði haldin 2.
mars. Rétt dagsetning er sunnu-
daginn 3. mars nk. Biðst blaðið
velvirðingar á yfirgangi prentvill-
upúkans.
Groöinnaö leiöarijósi
Stórhýsin við Stangarholt og Suðurgötu samþykkt í borgarstjórn
Aborgarstjórnarfundi í gær var
samþykkt að leyfa byggingu
stórhýsa við Stangarholt og á
hornlóðinni við Suðurgötu og
Vonarstræti, - að Suðurgötu 7.
Fulltrúar allra minnihlutaflokk-
anna mótmæltu þessum fram-
kvæmdum og var frestunartillaga
frá þeim felld. Kristján Bene-
diktsson framsóknarmaður sagði
um Suðurgötuáætlanir að hér
færi fyrir borgarstjórnarmeiri-
hlutanum einsog áður .að gróða-
sjónarmið réði ríkjum og því væri
byggt alltof mikið á lóðunum í
gamla bænum.
Að auki mæltu Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, Sigurður E.
Guðmundsson og Sigurjón Pét-
ursson gegn Suðurgötuáætlun-
um. Húsið væri alltof stórt, nýt-
ingarhlutfall miklu hærra en áður
hefur verið gert ráð fyrir og að-
staða til slökkvistarfs afleit. Fram
hafa komið mótmæli frá íbúum
næstu húsa enda þarf að aka slök-
kvibílum um einkalóðir til að
komast að eldi ef upp kemur í
framtíðinni.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði að áætlanir um byggingarn-
ar við Stangarholt og Suðurgötu
hefðu verið lengi á ferðinni. Væri
hér ekki flanað að neinu. íbúar
við Stangarholt sættu sig tiltölu-
lega vel við breyttar teikningar að
húsunum þar. Ellefu meirihluta-
hendur reyndust samþykkar Dá-
víð. -m
Kærumál
Útvarps-
rað fær
listaí dag
Aðstoð
Sex fara til Eþíópíu
Fjöldi íslendinga við hjálparstörfá vegum
Hjálparstofnunar kirkjunnar og Rauða krossins
Hjálparstarf íslendinga á
þurrkasvæðunum í Eþíópíu
heldur áfram af fullum krafti og í
dag fer sex manna hópur á vegum
Hjálparstofnunar kirkjunnar til
starfa i fæðugjafarstöðvum í
norðurhluta landsins. í hópnum
er Þórhallur B. Ólafsson læknir,
hjúkrunarkonurnar Bóthildur
Sveinsdóttir, Jóhanna Guð-
laugsdóttir, Hildur Nílsen og
Ragnhildur R Indriðadóttir auk
Hreins Skagfjörðs Pálssonar
hjálparsveitarmanns. Með hópn-
Sigríður Guðmundsdóttir hefur verið
við hjálparstörf í Eþíópíu á vegum
Rauða krossins og mun hún dvelja
ytra til loka marsmánaðar. Myndin er
tekin í Bati í N-Eþíópíu.
um fer Arni Gunnarsson sem
mun halda áfram að skipuleggja
hjálparstarfið og þau samvinnu-
verkefni sem eru í undirbúningi.
fslendingar eru víða starfandi í
Eþíópíu. Fjórir hjúkrunarfræð-
ingar og tveir hjálparsveitarmenn
hafa verið í Vorgesa í norður-
hluta landsins, tveir í Massawa og
Rauðahafsströnd Eþíópíu við
fiskveiðiverkefni, tveir kristni-
boðar eru þar starfandi auk þess
sem hjúkrunarkona og verkfræð-
ingur er starfandi á vegum Rauða
krossins. Nú er Hjálparstofnun
kirkjunnar að kanna möguleika á
aðstoð við boranir eftir vatni og
eru væntanlegir tveir fulltrúar frá
Eþíópíu til að ræða þau mál við
íslenska sérfræðinga. Þess má
geta að í Jarðhitaskóla SÞ verða
þrír Eþíópar á næsta skólaári.
-v.
Ég ræddi þetta mál við starfs-
menn Sjónvarpsins í dag og það
er verið að taka saman lista yfir
þingfrétúr Sjónvarpsins þann
tíma sem Ingibjörg Hafstað tiltók
í bókun sinni, sagði Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri í gær
þegar Þjóðviljinn innti hann eftir
hvað liði þeirri úttekt á þingfrétt-
um Sjónvarpsins sem Ingibjörg
fór fram á að gerð yrði og sagt var
frá í blaðinu í gær.
- Ég vonast til að hægt verði
að leggja fyrir útvarpsráð á fundi
þess í morgun yfirlit yfir þing-
fréttir Sjónvarpsins frá því í apríl
og maí og frá þingsetningu í haust
fram til 9. nóvember. Þetta var
tíminn sem Ingibjörg tiltók í
bókun sinni. Hún talar um úttekt
og það er á valdi útvarpsráðs að
ákveða hvers kyns úttekt verður
gerð á þessum fréttum, bætti
Markús við.
Hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins fékk blaðið það staðfest að
Ingibjörg hefði mætt til yfir-
heyrslu 28. janúar sl. og fengið
frest til að skila greinargerð um
málið. Sá frestur stendur enn.
Gísli Pálsson lögreglumaður
sagði að rannsókn málsins stæði
enn yfir og vildi ekki tiltaka hve-
nær málið yrði sent aftur til ríkis-
saksóknara. -ÞH
Föstudagur 22. febrúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3