Þjóðviljinn - 22.02.1985, Side 6
FLÓANIARKAÐURINN
LANDID
Húsgögn og fl.
Ég á íbúð en lítið af peningum, og mig
vantar húsgögn: Bókahillur, sófasett,
Ijósakrónur og margt fleira. Átt þú ef
til vill einhver húsgögn sem þú vilt
gjarnan losna við en kæmu mér að
gagni? Uþpl. í síma 10432.
Kúbuvinir
Munið árshátíðina á laugardaginn að
Hverfisgötu 105. Borðhald hefst kl.
21.
Stjórn V.Í.K.
Sjónvarp
Óskum eftir svart-hvítu sjónvarps-
tæki. Sími 18583.
Bókaskápur
Vil kaupa á góðu verði bókaskáp, ca.
170 cm. háan og álíka breiðan, eða
mjórri. Uppl. í síma 39442.
Traust og áreiðanleg
19 ára stúlka óskar eftir vinnu með
skólanum. Er ýmsu vön, t.d. af-
greiðslu. Uppl. í síma 78244 e. kl. 3.
Dúlla
Tekið á móti fötum á skiptimarkaðn-
um milli 13 og 15 út þessa viku og
næstu. Eingöngu hrein og vel með
farin föt.
Dúlla, Snorrabraut 22, Opið frá 1 -6.
Ryksuga óskast
mjög ódýrt eða gefins. Má vera léleg.
Sími 610316.
Til sölu
S/h stækkari, Operws Standard sem
má breyta í litmyndastækkanir, 6x6
og 24x36 linsur, klukka og ýmislegt
fylgir. Verðið 7000 krónur (6500 við
staðgreiðslu). Upplýsingar í síma
26482 eftir kl. 18.00. Guðrún.
Barnavagn óskast
helst Silvercross, vel með farinn.
Sími 99-6611.
Björgunarhundasveit
íslands auglýsir
Hin vinsælu „Teoríu" og hlýðninám-
skeið fara að hefjast. Allir hunda-
eigendur velkomnir. Kennt verður
eftir kerfi FNL. Skráning í símum
52134, 40815 og 72313.
Fataskápur til sölu
á 2 þús. kr. og tekkskenkur á sama
verði. Upplýsingar í síma 666653 eftir
kl. 16.
ísskápur
til sölu, notaður Atlas. Upplýsingar í
síma 621247 e. kl. 19.
Rafmagnsritvél
Óska eftir að kaupa notaða raf-
magnsritvél, vel með farna á 4-6 þús.
kr. greitt í tvennu lagi. Upplýsingar í
síma 75270 milli kl. 5 og 7 í dag.
Lopapeysurá börn
Hef til sölu fallegar þarnalopapeysur í
mörgum litum á 2ja-5 ára. Sanngjarnt
verð. Upplýsingar í síma 28293.
Saumanámskeið
hefst laugard. 23. feb. ef næg þátt-
taka fæst. Nánari upplýsingar og
innritun í síma 46050 og 83069 e. kl.
17.
Vagn
Ég er tveggja mánaða strákur og þarf
að komast út í góða veðrið. Þess
vegna vantar mig góðan, stóran
barnavagn. Hringið í síma 29172 ef
þið eruð vaxin upp úr ykkar vagni.
Gamall myndvarpi
óskast til kaups. Allar stærðir koma til
greina. Máverabilaður. Upplýsingarí
síma 12455 á kvöldin.
Ódýr fermingarföt
Grá jakkaföt með vesti, skyrtu og
bindi á smávaxinn dreng til sölu. Mjög
ódýrt. Fötin hafa aðeins verið notuð í
nokkra klukkutíma og eru sem ný.
Sími 33202.
Björgunarhundasveit
íslands
auglýsir:
Hin vinsælu „Teoríu" og hlýðnisnámskeiö fara að hefj-
ast. Allir hundaeigendur og verðandi hundaeigendur
velkomnir. Kennt verður eftir kerfi FNL. Skráning í
símum 52134, 40815 og 72313.
MÍR tilkynnir:
Opið hús
- ferða-
kynning
4)
Opið hús verður í félagsheimili MÍR að Vatnsstíg 10,
laugardaginn 23. febrúar nk. kl. 14-16. Þar verður
skýrt frá Sovéskum dögum í lok apríl, byrjun maí í vor
og efnt til ferðakynningar. Kynnt verður sérstaklega
hópferð MÍR til Sovétríkjanna næsta sumar, en fyrir-
huguð er 26 daga ferða MÍR-félaga þangað í júlí og
ágúst. Verður m.a. farið til Austur-Síberíu að Baikal-
vatni og allt austur til borgarinnar Khabarovsk, heim-
sóttar verða fornar borgir í Mið-Asíu (m.a. Samark-
and) og dvalist á sólarströnd við Svartahaf, auk nokk-
urra daga dvalar í Moskvu.
Aðgangur að opnu húsi og ferðakynningu MÍR er
öllum heimill.
MÍR
Ekki sofið . . .
Heildarútflutningur á búvörum
og iðnaðarvörum frá landbúnaði
nam kr. 1 miljarði sex hundruð
þrjátíu og þremur miljónum árið
1984 og jókst um rúm 50% frá
fyrra ári. Útfluttar iðnaðarvörur
frá landbúnaði eru álíka verð-
mætar í útflutningi og kísiljárn og
kísilgúr til samans sl. ár.
Styrkasta stoðin
Þótt ýmislegt blási á móti og
okkur þyki stundum landbúnað-
urinn verða fyrir óvæginni og
öfgafullri gagnrýni, finnst mér
ekki ástæða til annars en vera
bjartsýnn á framtíð hans vegna
þess að alltaf þegar á reynir er
hann styrkasta stoð hverrar þjóð-
ar. Við höfum að mörgu leyti við
sömu vandamál að etja og aðrar
þjóðir. Það kom fram í sumar er
hér var haldin ráðstefna Evrópu-
deildar FAO, þ.e. Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna. Þarna mættu full-
trúar frá 27 þjóðum og 10 land-
búnaðarráðherrar. Kjarninn í
ræðu sem aðalframkvæmdastjóri
samtakanna flutti var sá, hversu
viðfangsefnin í veröldinni væru
ólík. Annars vegar væri matvæl-
askorturinn t.d. í Afríku og hins-
vegar of mikil. matvælafram-
leiðsla eins og í Evrópu og víðar.
Framkvæmdastjórinn taldi mark-
miði í landbúnaði Evrópu vera að
framleiða fyrirfram ákveðið
magn búvara með sem minnstum
tilkostnaði og jafnframt að halda
við gamalgróinni búsetu til að
nýta gögn og gæði landsins, og að
efla tilraunastarfsemi sem kæmi
einnig vanþróuðum þjóðum til
góða. Þetta er sú landbúnaðar-
stefna sem við vinnum að hér á
landi. Að halda við byggðum býl-
um og að laga búvöruframleiðsl-
una markaðsaðstæðum og efla
allt það, sem verða má til hags-
bóta fyrir land og þjóð.
Loðdýrarækt er stunduð í
auknum mæli og gefur bjartar
vonir um arðsama atvinnu. Sama
máli gegnir um fiskirækt í ám og
vötnum. Kornrækt gefst sums-
staðarvel. Jarðhitier víða. Gróð-
urhúsarækt fleygir fram, skóg-
rækt gefur góðar vonir. Ýmis
hlunnindi gefa drjúgar tekjur svo
sem dúnn og rekaviðar. Ferða-
mannaþjónusta eykst og horfur
eru á að hún skapi bæði mikla
vinnu og tekjur í framtíðinni.
Sagt er að ferðamannaþónusta
skili næst mestum þjóðartekjum í
heiminum. Það er aðeins olíuiðn-
aðurinn, sem skilar meiri tekjum.
Við höfum hér á landi ýmislegt
sem aðrar þjóðir hafa ekki. Hér
er t.d. bæði hreint land og fagurt
og mörgu hægt að kynnast, sem
aðrar þjóðir hafa ekki áður
þekkt.
Búvörusýningin
Þá vil ég að lokum minnast á
eitt, sem sýnir kannski best hvað
við höfum fjölþættan landbúnað
og margþætt störf í sveitum. Það
er fyrsta búvörusýningin, sem
haldin var hér á landi í
sept.mánuði sl. og tókst afburða
vel. Fjölmörg fyrirtæki sýndu þar
vörur og kynntu framleiðslu sína.
Sýningin bar þess vott, að ís-
lenskur landbúnaður hefur vand-
aðar vörur á boðstólum - úrvals
góðar og hollar matvörur, hlýjan
og fallegan fatnað, margþættan
iðnað bæði til gagns og gleði
ásamt ýmsu fleiru. Sýningin var
fjölsótt og þótti takast ágætlega.
Hún sýndi að það er ekki sofið á
verðinum í íslenskum landbún-
aði.
-mhg
Samvinnuskólinn
Sextán fyrirtæki
sett á laggimar
Störfin að „samþætta" verk-
efninu, sem við skýrðum fyrir
nokkru frá að nemendur Sam-
vinnuskólans hefðu í hyggju
að fást við, tókust með mikilli
prýði.
Nemendur gengu sjálfir frá
öllum formsatriðum við stofnun
16 fyrirtækja í ýmsum greinum,
sömdu samþykktir fyrir þau,
gerðu áætlanir um rekstur og
fjármögnun, ákváðu allt skipulag
þeirra og útbjuggu tilkynningar
til yfirvalda. I lokin var svo sett
upp sýning í íþróttasal skólans og
komu á hana 130 gestir. Þar voru
einnig sýndar á myndbandi sjón-
varpsauglýsingar um fyrirtækin,
sem nemendur höfðu sjálfir gert.
Nemendur voru ákaflega
áhugasamir um þessa róttæku
nýjung í skólahaldinu. Er í ráði
að þetta verði fastur liður í skóla-
starfinu eftirleiðis.
- mhg
Heilsufar
Eitt mjólkurglas
fyrir svefninn
Vísindamenn við heilsu-
verndarstöðina í Baltimore
hafa komist að því að aukin
neysla kalks lækkar blóðþrýst-
ing meðal ungs fólks. Þá hefur
David McGarren, prófessor við
háskólann í Portland fullyrt að
kalk hafi jákvæð áhrif til lækk-
unar blóðþrýstings.
Neysla kalks og amínósýrunn-
ar tryptophan sem er að finna í
ríkum mæli í mjólkurafurðum
hefur virst, samkvæmt þessum
rannsóknum, draga úr spennu og
háum blóðþrýstingi.
í breska læknatímaritinu er
birt rannsókn sem segir, að þar
að auki vinni slík neysla gegn ótta
og þunglyndi. Því sé jafnvel
gamla húsráðið: eitt mjólkurglas
fyrir svefninn, eitt besta ráð sem
völ er á í sambandi við næringu og
heilsu.
Mjólk er tvímælalaust nauð-
synleg heilsunnar vegna, því hún
er ein helsta uppspretta kalks og
gefur einnig úrvals eggjahvítu.
Mjólk er einnig auðug af rifbofla-
vin, B-12 vítamíni, forsór, A og
D vítamínum auk annarra mikil-
vægra næringarefna.
- mhg
Minning
Hafdís Halldórsdóttir
Ég sá Hafdísi fyrst sem litla
stúlku í sömu götu og við. Eldri
systur hennar gættu hennar eins
og títt er, en þær voru svo ábúðar-
fullar og ástúðlegar í þessu vand-
asama trúnaðarstarfi að eftir var
tekið.
Mikill samgangur og félags-
skapur var með krökkunum og
jafnöldrunum á Hólabrautinni
þá. Þetta voru þeim áhyggjulaus
og yndisleg ár undir verndarvæng
fjölskyldna sem gerðu allt til að
skapa þeim sem þroskavænlegust
skilyrði. Þar var fjölskylda Elísa-
betar Ólafsdóttur og Halldórs
Brynjólfssonar skipstjóra ekki
síst.
Þegar fjölskyldan flutti í aðra
götu var Hafdís enn lítil svo að ég
sá hana ekki í nokkur ár. Hins
vegar bar svo við á síðastliðnu
hausti að við hittumst á ný. Hún
var að hefja nám við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja og var í hópi
sem ég átti að kenna.
Hafdís var fönguleg stúlka,
mjög fínleg, róleg í fasi, virkaði
jafnvel hlédræg. Hún minnti mig
mjög á eldri systur sínar, sem ég
þekkti svo vel er þær voru á sama
aldri og hún nú. - Ég hlakkaði til
að kynnast henni, það var eins og
að hitta aftur gamlan vin.
Náms- og kennsluáætlun í á-
fanganum sem Hafdís var að fást
við var þannig að gerðar eru
miklar kröfur til heimanáms,
samviskusemi og námkvæmni í
öllu, annars gekk dæmið ekki
upp. Þetta reyndist mörgum erf-
itt að uppfylla en Hafdís varð ein-
beittari eftir því sem harðnaði
fyrir og náði ágætum árangri.
Þannig var skapgerð hennar.
Hún var viðmótsþýð og alúðleg í
framkomu, en kröfuhörð við
sjálfa sig og framúrskaranöi
samviskusöm. í einu og öllu gaf
hún þau fyrirheit að mikils mætti
af henni vænta með auknum
þroska.
Síðastliðinn laugardag barst
helfregnin. Lífi þessarar yndis-
legu stúlku var lokið hér í heimi,
miklar vonir brostnar.
Skólasystkini og starfsfólk
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
kveðja hana harmi slegin og færa
fjölskyldu hennar og vinum
dýpstu samúðarkveðjur.
Ingólfur Halldórsson
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. febrúar 1985