Þjóðviljinn - 22.02.1985, Síða 13
FRÁ LESENDUM
Fyrirspurn til borgarstjóra
Hvenær kemur
alda
á Álfabakka?
Þar hafa orðið 4 slys á 5 árum.
Er verið að bíða eftir banaslysi?
í júlí sl. sendi nefnd umferðar- um í íbúðarhverfum borgarinnar
fróðra manna tillögur sínar um þar sem börn eiga einkum Ieið
fyrstu úrbætur á umferðarað- um. Þar á meðal var lagt til að
stæðum við skóla í Reykjavík til tvær öldur kæmu á Álfabakka.
Umferðarnefndar Reykjavíkur. Þann 30. ágúst sl. samþykkti
Þessi nefnd var sett á fót af Gutt-' Umferðarnefnd Reykjavíkur
ormi Þormar framkvæmdastjóra öldu á Álfabakka og var nú sam-
Umferðarnefndar Reykjavíkur. þykkt lögð fyrir borgarráð daginn
Hluti af tillögum þessarar nefnd- eftir. Þar var henni hins vegar
ar gekk út á það að koma fyrir frestað!
hraðahindrandi upphækkunum, Nú skal það upplýst að á korti
öðru nafni öldum, á ýmsum göt- sem fylgir lokaskýrslu nefndar-
Áhyggjufullur faðir í Breiðholti spyr Davíð Oddsson
Álfabakka í Breiðholti. Ljósm. Gel.
borgarstjóra hvort hann sé að bíða eftir því að 5ta barnið slasist á
innar, sem dagsett er í desember
1984, kemur í ljós að á ca 300
metra kafla á Álfabakka hafa
slasast 4 börn á 5 árum og reynist
þetta því vera hættulegasti götu-
kafli í allri Reykjavík!
Nú langar mig að spyrja Davíð
Oddsson borgarstjóra: Hvað ætl-
ar þú og meirihluti þinn í borgar-
ráði að „fresta" lengi að afgreiða
þessa sjálfsögðu öldu á Álfa-
bakka? Er verið að bíða eftir því
að fleiri börn slasist á þessum
hættulega stað?
Svar óskast á þessum vett-
vangi.
Áhyggjufullur faðir
í Breiðholti.
íslenskt launafólk
Á það að fá að lifa
Að undanförnu hefur verið
mikið rætt um vanda íslensks
launafólks og þá sérstaklega þess
sem er að byggja eða kaupa sér
húsnæði. Það eru til fjölmargar
hryggðarsögur af fólki sem orðið
hefur að gefast upp í miðju kafi.
Á sama tíma neita ráðamenn að
horfast í augu við afleiðingar
efnahagsaðgerðanna frá því í maí
’83. Þeir neita að horfast í augu
við að allt er fyrir löngu komið í
óefni.
Húsbyggjendur og húskaup-
endur hafa reynt til þrautar ár-
angurslaus ráð, tillögur og
lausnir. Það er sama hvað gert er.
Á meðan kaupgjaldsvísitalan er
óvirk en lánskjaravísitalan er of-
virk, koma engar úrbætur að
gagni. Framlenging skuldaklaf-
ans, sem hefur verið reynd aftur
og aftur síðastliðin ár, er það sem
boðið er upp á enn einu sinni.
Eða: „Seljið" ráðleggur Stein-
grímur Hermannsson þeim sem
„reist hafa sér hurðarás um öxl“.
Vandamálið hjá langflestum er
ekki það að hafa ætlað sér of
mikið heldur að aðgerðir ríkis-
stjórnar Steingríms Hermanns-
sonar hafa gert allar áætlanir að
engu. Það má kannski líka benda
forsætisráðherra á það að fjöldi
fólks hefur þegar reynt að selja til
þess að losna, en ekki fengið
kaupanda. Hollráð hans verða
víst að verða raunsærri.
Það sem mér hefur þó sviðið
sárast er sú vanvirða sem þeim er
sýnd sem lent hafa í mestum
kröggum vegna kjaraskerðingar
ríkisstjórnarinnar. Hvað er þeim
boðið upp á?
í nýlega kynntum efnahagsað-
gerðum ríkisstjórnarinnar er get-
ið um neyðaraðstoð fyrir hús-
byggjendur. í starfsreglum ráð-
gjafa, sem eiga að sinna
neyðinni, kemur fram, að þeir
sem til greina koma við úthlutun
þessara nýju sérlána verða að
vera með a.m.k. 150.000.00 kr. í
með reisn?
vanskilum. Forsætisráðherra
nefndi 200-400.000.00 kr. vanskil
í sjónvarpinu á þriðjudaginn var.
í síðustu kjarasamningum
A.S.Í. og B.S.R.B. var ein aðal-
tillaga ríkisstjórnarinnar að
lækka skatta. En hvað með þá
sem hafa litla sem enga skatta?
Hverjar áttu þeirra kjarabætur
að vera? Svarið var, að þeir
skyldu fá sínar bætur í gegnum
tryggingarkerfið.
Þessar og ámóta tillögur eru
lýsandi dæmi um stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Lífsþróttur fólks
er brotinn á bak aftur, sjálfsvirð-
ing þess fótum troðin. Aðstoð
(mjög takmörkuð) stendur til
boða þegar mikil vanskil er orðin
staðreynd.
Lágtekjufólk fékk sína send-
ingu. Því er ekki gert kleift að
vera „matvinnungar" þó í fullu
starfi sé, heldur skulu laun þess
vera það lág,' að það þurfi fram-
færi frá hinu opinbera að hluta til
svo að endar nái saman.
Ég get ekki annað en mótmælt
þessu. Það lítur svo út að (óopin-
ber) stefna ríkisstjórnarinnar sé
að launafólk eigi að vera þurfa-
lingar. Getur það verið að núver-
andi ríkisstjórn óttist reisn og
sjálfsvirðingu íslensk launafólks?
Hugo Þórisson
VIÐSKIPTI
Ekki þarf lengur að taka rúðuna úr þegar gert er við..Bílaborg hf. hefur tekið að
sér einkaumboð fyrir efni sem þrýst er í sprungurnar og er þá rúðan sem ný.
Bílar
Ný tækni í bílrúðuviðgerðum
Þúsundir bíleigenda verða fyrir
því að framrúða bflsins brotnar
eða skemmist af völdum
steinkasts. Hingað til hefur ekki
verið hægt að gera við þessar
skemmdir, eina lausnin hefur
verið sú að skipta um rúðu.
Nýlega var staddur hérlendis
fulltrúi frá hollenska fyrirtækinu
Novo Bond, og kynnti hann nýja,
fljótlega og ódýra lausn á þessum
vanda.
Með Novo Bond þarf ekki að
taka rúðuna úr bflnum, heldur er
glæru kemisku efni þrýst inn í
sprungurnar með sérstökum
tækjum. Þegar efnið harðnar
verður það hart sem gler og
rúðan verður sem ný. Sama efni
er líka notað til að fylla upp í
skemmdir þar sem kvarnast hefur
upp úr rúðunni. Einkaumboð
fyrir Novo Bond á íslandi hefur
Bílaborg h/f.
Laglegur bíll Toyota Corolla og loftmótstaðan lítil enda bensíneyðslan í sam-
ræmi við það.
Bílar
Ný Toyota Corolla
Greiðslukort
Diners Club
, til
íslands
Ferðaskrifstofan Atlantic hef-
ur gerst umboðsaðili fyrir Diners
Club á íslandi en það greiðslu-
kort er þekkt víða um heim. Iðn-
aðarbankinn hf. býður Diners
Club korthöfum að senda
greiðslu á reikninga þeirra á
auðveldan hátt til Diners Club í
Danmörku. Það þýðir að þeir
sem nota kortið erlendis, en fyrst
um sinn nýtist það ekki hér inn-
anlands, geta greitt útttektir sínar
í íslenskum peningum á hvaða af-
greiðslustað bankans sem er.
í frétt frá Atlantic segir að Din-
ers Club njóti viðurkenningar
hvarvetna erlendis. Yfir 750.000
hótel, vínveitingahús, diskótek,
bflaleigur, verslanir og vöruhús í
yfir 160 löndum bjóði viðskipti
gegn kortinu, sem kallað hefur
verið vinsælasta alþjóðakort
kaupsýslumanna. Nú eru kort-
hafar yfir 6 miljónir, þar á yfir
100.000 á Norðurlöndunum, en
þar er kortið gilt hjá yfir 15.000
aðilum.
Toyota Corolla 1300 fer nú
sigurför um heiminn, segir í frétt
frá Toyota umboðinu á íslandi.
Mikill áhugi hefur verið á þessum
bflum hér á landi einnig og til
marks um það má nefna bflasýn-
ingu um síðustu helgi þar sem yfir
1500 manns komu til að skoða
gripinn. Margir bflar seldust en
verð þeirra er frá 307.000 krón-
um.
í fréttatilkynningu frá Toyota
Corolla 1300 er knúin 12 ventla
1300 rúmsentimetra vél sem
skilar meiri krafti og notar minna
bensín en nokkur af samkeppnis-
bflunum. Einnig er vindstuðull
Toyota Corolla 1300 einn sá
lægsti í bflum af þessum stærðar-
flokki (Cd 0,34). Toyota Corolla
1300 er hönnuð sem rúmgóður,
þægilegur, sparneytinn og kraft-
mikill bfll. Hann er búinn ýmsum
þægindum sem ekki eru algeng í
bflum af þessari stærð.
Toyota Corolla hefur einnig
upp á að bjóða 1600 rúmsenti-
metra 16 ventla GT vél í bíl sem
byggður er frá grunni til að vera
sportbfll og á sér enga keppinauta
í verði.
Föstudagur 22. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13