Þjóðviljinn - 22.02.1985, Blaðsíða 19
ÍÞRÓTHR
Handbolti
Engin hætta - FH!
Eitt Víkingsmark Í22 mínútur. Valur missti niður
yfirburðastöðu, úrslit 17-17
FH-ingar þurfa ekki að óttast
mikla keppni um íslandsbikarinn
ef svo heldur fram sem horfir.
Þau tvö lið sem ættu að standa
þeim næst að styrkleika, Valur og
Víkingur, gera þeim ekki mikla
skráveifu héðan af, ef miða má
við 17-17 jafntefliskeik liðanna í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Valsmenn eru skæðustu keppi-
nautar FH en lið sem er komið í
11-4 þegar komið er framí seinni
hálfleik og má síðan þakka fyrir
j afntefli í lokin; vinnur hvorki eitt
né neitt. Valur hafði leikinn í
hendi sér, Einar Þorvarðarson
lokaði markinu og fékk aðeins
eitt mark á sig fyrstu 22 mínútur
leiksins, frá Einari Jóhannessyni
á 14. mínútu. Valur kominn í 7-1
og leiddi 9-4 í hálfleik og þegar
Hlíðrendapiltarnir gerðu tvö
fyrstu mörk seinni hálfleiks héldu
menn að nú væri aðeins eftir að
jarðsetja steindauða Víkingana.
Öðru nær. Víkingar, aðeins með
9 menn í leiknum og Viggó Sig-
urðsson ekki með vegna meiðsla,
tóku sig til og skoruðu fimm
Helgar-
sportid
Handbolti
Þór og KR mætast í 1. deild
karla í Vestmannaeyjum kl. 20 í
kvöld. A sunnudagskvöldið verða
síðan tveir leikir í Digranesi,
Breiðablik-Víkingur kl. 20 og
Stjarnan-Þróttur kl. 21.15.
Heil umferð verður leikin í 1.
deild kvenna í kvöld. Þór A. og
Valur leika á Akureyri kl. 20,
ÍBV-Víkingur í Byjum kl. 21.15,
FH-ÍA í Hafnarfirði kl. 21.15 og
Fram-KR í Laugardalshöll kl.
21.30.
í 2. deild karla leika Fram og
KA, efstu liðin, í Höllinni kl.
20.15 í kvöld og kl. 20 leika
Haukar og Þór A. á Akureyri. Á
morgun leika HK og KA í Digra-
nesi kl. 14.45 og á sama tíma mæt-
ast Fylkir og Þór Ak. í Seljaskóla.
Körfubolti
Haukar og KR leika í úrvals-
deildinni í Hafnarfirði kl. 14 á
morgun. Á sama tíma á sunnudag
mætast síðan lR og Njarðvík í
Seljaskólanum. Keflvíkingar fara
til Akureyrar og mæta Þór tvíveg-
is í 1. deild karla, kl. 21.30 í kvöld
og kl. 14 á morgun. f 1. deild
kvenna leika KR og ÍS í Haga-
skóla kl. 15.30 á morgun og
Haukar-fR í Hafnarfirði kl. 15 á
sunnudag.
Skíði
Bikarmót í göngu og stökki
fullorðinna fer fram í Hlíðarfjalli
við Akureyri um helgina, laugar-
dag og sunnudag.
Blak
Önnur umferð bikarkeppninn-
ar verður leikin um helgina og þá
leika KA og HSK í 2. deild karla í
Glerárskóla á Akureyri á morg-
un, laugardag, kl. 16.30.
Fimleikar
Unglingamót FSÍ fer fram á
morgun, laugardag, íLaugardals-
höllinni. Keppt verður í tveimur
hópuni, sá fyrri hefur keppni kl.
13.30 en sá síðari kl. 16. Keppt
verður eftir íslenskum fimleika-
stiga í fyrsta sinn á móti á vegum
FSI.
Badminton
Badmintondeild Víkings held-
ur unglingamót í badminton í húsi
TBR við Gnoðarvog, laugardag
ogsunnudag. Keppni hefst kl. 15
á laugardag. Keppt verður í öllum
greinum og flokkum. Gestur á
mótinu verður enski unglinga-
landsliðsmaðurinn Paul Holden,
eins og sagt er frá annars staðar á
síðunni.
mörk á skömmum tíma. Staðan
11-9 og leikurinn allt í einu orð-
inn spennandi. Valur virtist þó
ætla að hanga á stigunum, leiddi
15- 12 þegar átta mínútur voru
eftir, en tveimur mínútum fyrir
leikslok höfðu Víkingar jafnað,
16- 16; Þegar 1.45 var á klukkunni
skoraði svo Guðmundur Guð-
mundsson fyrir Víking, 17-16 en
Þorbjörn Guðmundsson jafnaði,
17- 17, á 1.03. Þorbirni Jenssyni
var vikið af leikvelli þegar 20 sek.
voru eftir en Víkingum tókst ekki
að nýta það. Einar varði frá Karli
Þráinssyni þegar 7 sek. voru eftir,
Jón Pétur Jónsson brunaði upp,
brotið á honum - aukakast. Tvær
sek. á klukkunni og Jón Pétur
náði að skjóta - Kristján Sig-
mundsson varði auðveldlega.
Furðulegum leik lokið.
Markverðirnir, Einar og Krist-
ján, voru bestu menn liða sinna í
þessum slaka leik. Þeir einu sem
virkilega stóðu uppúr meðal-
mennskunni. Einar Jóhannesson
kom jú á óvart hjá Víkingi og
Karl Þráinsson einnig í nýju hlut-
verki, hann lék fyrir utan. Að
öðru leyti var leikurinn hin mesta
ládeyða, hreinasta vitleysa á
köflum. Sennilega réttlátt að
enginn stæði uppi sem sigurveg-
ari í lokin.
Mörk Víkings: Einar 6 (2v), Karl 4,
Steinar Birgisson 3, Guömundur 2, Þor-
bergur Aðalsteinsson 1 og Hilmar
Sigurgislasonl
Mörk Vals:Geir Sveinsson 6 (2v), Jakob
Sigurösson 3, Þorbjörn G. 3, Þorbjörn J. 2,
Valdimar Grímsson 2 og Theodór Guö-
finnsson 1.
Ólafur Haraldsson og Stefán
Arnaldsson dæmdu þokkalega.
-VS
Staðan
í 1. deild karla í handknattleik eftir
leik Vals og Vikings í gær:
FH 12 11 1 0 332-271 23
Valur 12 7 4 1 276-244 18
KR 10 4 3 3 212-201 11
Víkingur.... 11 4 3 4 262-245 11
Þróttur 11 3 3 5 260-273 9
Stjarnan... 11 3 2 6 238-248 8
Þór Ve 10 3 0 7 202-243 6
Breiöablik 11 1 0 10 224-281 2
Glíma
Bikarglíman
á sunnudag
Bikarglíma Glímusam-
bands Islands fer fram í
íþróttasal Melaskóla á sunnu-
daginn kemur, 24. febrúar, og
hefst kl. 14. Þátttakendur
verða þrettán talsins.
B-keppnin
Slæm staða Norð-
manna og Frakka
Norðmenn og Frakkar urðu
fyrir áfalli í B-keppninni í hand-
knattleik, sem nú stendur yfir í
Noregi, í fyrrakvöld. Norðmenn
töpuðu 23-16 fyrir Tékkum og
Frakkar fengu geysióvæntan skell
gegn Finnum, 33-24. Samt ættu
bæði lið að komast í milliriðil,
þrjú af fjórum komast þangað úr
hverjum riðli, en þau taka stigin
með sér þannig að möguleikarnir
á 6. sætinu og farseðli í A-
kcppnina í Sviss eru hverfandi.
Úrslit í fyrradag og staðan í
riðlinum:
A-rlðlll:
Spánn-ltalía.....................18-18
Tékkóslóvakía-Noregur............23-16
Tékkósl.................2 2 0 0 49-31 4
Spánn...................2 1 1 0 35-34 3
Ítalía.................2 0 1 1 33-44 1
Noregur.................2 0 0 2 32-40 0
B-rlðlll:
Sovétríkin-Kongó.................34-12
Finnland-Frakkland...............33-24
Sovétríkin............2 2 0 0 64-31 4
Frakkland.............2 1 0 1 58-49 2
Finnland..............2 1 0 1 52-54 2
Kongó.................2 0 0 2 28-68 0
C-riðlll:
A.-Þýskaland-Kuwait..i..............28-10
Búlgaría-Holland....................19-19
A.-Þýskaland............2 2 0 0 53-21 4
Búlgaría................2 1 1 0 40-30 3
Holland.................2 0 1 1 30-44 1
Kuwait..................2 0 0 2 21-49 0
D-riðill:
Pólland-Bandaríkin..................25-17
Ungverjaland-lsrael.................33-20
Pólland................2 2 0 0 55-33 4
Ungverjaland...........2 2 0 0 52-33 4
Bandaríkin.............2 0 0 2 30-44 0
Israel.................2 0 0 2 36-63 0
Sex lið komast í A-keppnina og
í þeim hópi ættu örugglega að
vera Tékkar, A.-Þjóðverjar, Pól-
verjar og Ungverjar. Spánverjar
eru Ifldegastir til að hreppa sjötta
sætið. Þó er ekki hægt að afskrifa
Frakkana þrátt fyrir skellinn
gegn Finnum. Sex efstu liðin í
keppninni fara áfram, fjögur
verða kyrr í B-keppninni en sex
neðstu falla og þurfa að leika í
næstu C-keppni.
-VS
Nýtt blað
Knattspymuþjálfarinn
Knattspyrnuþjálfarafélag ís-
lands hefur gefið út blað er nefn-
ist Knattspyrnuþjálfarinn. Fyrir-
hugað er að út komi fimm tölu-
blöð á þessu ári og markmiðið er
að koma á framfæri fræðslu um
knattspyrnuþjálfun, svo og að
skapa vettvang fyrir þjálfara að
koma skoðunum sínum á fram-
færi og auka skoðanaskipti um
ýmis málefni tengd þjálfun. Rit-
nefnd blaðsins skipa þeir Aðal-
steinn Örnólfsson, sími 79985, Al-
bert Eymundsson, sími 54598, og
Sigurður Þorsteinsson, sími
27946.
í þessu fyrsta tölublaði er
skoðað unglingastarfið hjá
Breiðabliki í Kópavogi, Sigurjón
Sigurðsson íþróttalæknir skrifar
um meiðsli og meðferð þeirra,
Einar Sveinn Árnason fjallai um
sálrænar hliðar knattspyrnuþjálf-
unar, Sigurður Þorsteinsson segir
frá dvöl sinni hjá vestur-þyska
stórliðinu Köln, Þorgrímur Þrá-
insson landsliðsmaður segir frá
undirbúningi landsliðsins sl. sum-
ar undir stjórn Tonys Knapps og
sýnt er æfingaprógramm sem Yo-
uri Ilitchev setti upp.
Byrjunin lofar góðu og blað
sem þetta á erindi til allra sem
láta sig þjálfun og aðra uppbygg-
ingu knattspyrnuíþróttarinnar
einhverju skipta.
Föstudagur 22. febrúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 19
Einar Þorvarðarson fékk á sig eitt mark fyrstu 22 mínúturnar gegn Víkingum í
gærkvöldi.
Körfubolti
100 í 4. sinn
Valsmenn rufu 100 stiga múr-
inn í fjórða skiptið í jafnmörgum
leikjum gegn ÍS í úrvalsdeiidinni í
vetur þegar liðinléku í íþróttahúsi
Kennaraháskólans í gærkvöldi.
Það var það eina sem spurning
var um - Valur hafði yfirburði
allan tímann, leiddi 57-39 í hléi og
lokatölur urðu 105-86.
Valur notaði alla sína menn
mikið og skipti engu hvaða fimm
voru inná hverju sinni. Jóhannes
Magnússon og Björn Zoega léku
stór hlutverk í þetta skiptið.
Helgi Gústafsson var langbestur
stúdenta.
Stig Vals: Jóhannes 17, Todi Magnússon
17, Björn 16, Kristján Ágústsson 12, Sig-
uröur Bjarnason 10, Einar Ólafsson 8,
Leifur Gústafsson 8, Tómas Holton 7, Páll
Arnar 7 og Svali Biörgvinsson 3.
Stíg IS: Helgi 24, Árni Guðmundsson 22,
Guömundur Jóhannsson 15, Valdimar
Guölaugsson 10, Eiríkur Jóhannesson,
Jón Indriðason 3 og Björn Leósson 2.
- vs
Badminton
Enskur gestur
Paul Holden, enskur unglinga-
landsliðsmaður, verður meðal
þátttakenda í Gestamóti Víkings
í badminton sem fram fer í húsi
TBR um helgina. Holden keppir
í sérstökum gestaflokki sem er
samansettur úr pilta- og stúlkna-
flokki ásamt fjórum sterkustu
leikmönnunum úr drengjaflokki.
Hann vann sinn fyrsta titil aðeins
10 ára gamall og hefur leikið með
unglingalandsliði Englands frá
1983 en hefur einmitt þessa dag-
ana verið fluttur uppí landslið
Englands 23 ára og yngri og æfir
nú með því. Mótið hefst kl. 15 á
laugardaginn og verður keppt í
öllum greinum og flokkum.
Skíði
Enginn bikar!
Flokkasvigsbikarnum varstolið
Þjóðviljinn tekur við ábendingum
Verknámsdeild Menntaskólans
á Akureyri vann glæsilegan sigur
í flokkasvigi Framhaldsskóla-
mótsins sem fram fór í Bláfjöllum
í fyrradag. Sigurvegararnir flugu
þó tómhentir norður- farandbik-
arinn fyrir flokkasvigið, sem Há-
skólinn hefur unnið tvö síðustu
ár, er týndur og tröllum gefinn.
Ekki alls fyrir löngu var nefnilega
brotist inní íþróttahús Háskólans
og öllum verðlaunagripum sem
þar voru geymdir var stolið. Ak-
ureyringar bíða þess nú með
óþreyju að bikarinn komi fram og
þeir sem vita hvar hann er niður-
kominn geta komið ábendingum
um það til íþróttadeildar Þjóð-
viljans. Þetta er sögulegur gripur
og lítils virði fyrir aðra en þá sem
réttilega hafa til hans unnið.
Verknámsdeild MA sigraði í
flokkasyiginu á 86,2 mín.,
Menntaskólinn á ísafirði varð í
öðru sæti á 90,3 og Mennta-
skólinn við Sund í þriðja sæti á
91,0. í boðgöngu, 3x3 km, sigraði
Fjölbrautaskólinn á Sauðár-
króki, Verknámsdeild MA varð í
öðru sæti og Fjölbrautarskóli Ól-
afsfjarðar í þriðja sæti. Mótið
gekk vel fyrir sig þrátt fyrir vont
veður og nýtilkomið aðstöðuleysi
Skíðafélags Reykjavíkur sem sá
um mótið að vanda.
-VS