Þjóðviljinn - 13.03.1985, Side 7

Þjóðviljinn - 13.03.1985, Side 7
Leíklist Piaf lifir Lcikféiag Akureyrar sýnir EDITH PIAF eftir Pam Gems Leikstjórn: Sigurður PálsSon Hljómsveitarstjórn: Roar Kvam Leikmynd: Guðný Björk Richards Þýðing: Þórarinn Eldjárn Það var einhvern tímann á menntaskólaárunum að við upp- götvuðum Milord með Piaf í djúpboxinu í kaffihúsi sem í þann tíð var í Uppsalakjallaranum; skömmu seinna komumst við í kynni við Je ne regrette rien, og æ síðan hefur söngur þessarar pínu- litlu, veikbyggðu og ógnarsterku konu staðið nær hjarta mínu en flest annað. Hún var engum öðr- um lík, bæði í lífi sínu og list var hún einstök. Hún bókstaflega fæddist í göturæsinu, og má segja að hún hafi á vissan hátt haldið tryggð við þann stað alla ævi. Hún ólst upp innanum hórur og glæpamenn, elskaði fjölmarga karlmenn, varð stórkostleg söng- kona, fræg og rík, drakk brenni- vín, sprautaði sig með morfíni, lenti í hroðalegum bflslysum, barðist við sjúkdóma, en alltaf stóð hún aftur upp til að syngja. Um ævi þessarar konu hefur enski rithöfundurinn Pam Gems skrifað leikrit sem fer gegnum líf hennar í mörgum stuttum at- riðum og hefur söngva hennar í þungamiðju. Söngvarnir eru reyndar órofa tengdir lífi hennar, hún var ævinlega að tjá sjálfa sig beint í söng sínum, og er því hæg- ur vandi að tengja þetta tvennt saman á leiksviði þannig að hvort styðji annað. En auðvitað veltur allt á fram- kvæmdinni og þá fyrst og fremst á þeirri leik- og söngkonu sem fer með hlutverk Piaf, en það gerir alveg óvenjulegar kröfur. Ég held að hárrétt hafi verið valið í þetta hlutverk og get ekki hugsað mér hver hefði getað gert þetta betur hérlendis en Edda Þórar- insdóttir, sem bæði er mjög góð söngkona og afar vaxandi leik- kona. Edda reynir auðvitað ekki að stæla söng Piaf, það væri óhugsandi, en hún reynir að koma til skila samskonar beinum tilfinningum, opna í söng sínum samskonar kviku og Piaf gerði. Og það tekst henni, og það þeim mun meira sem líður á sýning- una. Það er ákveðin og hárrétt stígandi í túlkun hennar, söngur- inn verður sífellt opnari og sárari eftir því sem Piaf verður líkam- lega verr á sig komin, og nær stór- fenglegu hámarki í söngnum dá- samlega um að hún iðrist ekki neins, en þar hrifust áhorfendur svo sterkt með að þeir voru allt í einu orðnir beinir jsátttakendur í sýningunni. Eddu tókst líka frá- bærlega að sýna þróun Piaf frá lífsglaðri og sterkri ungri stúlku þar til hún er algert flak undir lokin, og hún kom vel til skila þeirri blöndu af ruddaskap og blíðu sem Piaf er samsett af. Hún bar þessa sýningu uppi af sannkölluðum glæsibrag, vann ótvíræðan sigur. Fjölmargar aðrar persónur koma fram í sýningunni, en falla mjög í skuggann af Piaf og gefa fæst tilefni til mikilla átaka. Helst er það hlutverk aldavinkonunn- ar, hórunnar Toine, sem er nokk- ur mergur í, og Sunna Borg skilaði því ágætlega með hæfilega grófgerðu skopi og mikilli lífs- gleði. Hlutverk annarrar vin- konu, Marlene Dietrich, er dá- lítið vandræðalegt. ■ Guðlaug María Bjarnadóttir hefur sannar- lega fótleggi til að leika það, en var að öðru leyti dálítið stíf og of mikil eftirherma. Emilía Bald- ursdóttir fór afar hógværlega og innilega með hlutverk ritarans, Madeleine. Karlmennirnir í sýningunni þurfa að dreifa sér á ansi mörg hlutverk og gerir það þeim óneitanlega erfitt fyrir að skila þeim með eftirminnilegum hætti. Pétur Eggerz var töluvert skop- legur sem hinn misheppnaði söngvari Angelo og hann fór líka fallega með hlutverk Theos, unga mannsins sem var ástmaður Piaf undir lokin. Theodór Júlíusson var kraftmikill í hlutverki annars ástmanns, Jacko söngvara. Þrá- inn Karlsson, Gestur E. Jónasson og Marínó Þorsteinsson voru dá- lítið litlausir í sínum fjölmörgu hlutverkum. Leikstjórinn, Sigurður Páls- son, og liðsmenn hans hafa unnið mikið og gott verk með þessari sýningu. Hér ræðst lítið leikfélag í viðamikið og erfitt verkefni af stórhug og djörfung og vinnur fullan sigur. Sigurður hefur stýrt leiknum af næmum skilningi og meðal annars tekist að ná fram þeim nánu tengslum milli söngv- anna og framvindu leiksins sem áður var getið um. Leikmynd og búningar Guðnýjar Bjarkar sýna smekkvísi og hugkvæmni. Sviðið ber með sér kulda stórborgarinn- ar og stfl þess tíma sem lýst er, en er um leið mjög haganlega gert þannig að það býður upp á fjöl- mörg leiksvæði, sem Sigurður notar mjög hugkvæmnislega í sviðsetningu sinni. Miðpunktur sviðsins er söngpallurinn þar sem Piaf treður upp, og þá er áhorf- endasalurinn um leið orðinn sal- urinn þar sem þetta gerist. Áreiðanlega er þáttur Roars Kvam ekki sá minnsti. Honum tekst að láta tónlisti.na hljóma undursamlega og samstillingin milli hljómsveitar og söngkonuer óaðfinnanleg. Þá á þýðing Þórar- ins Eldjárns drjúgan þátt í að söngvarnir skiluðu sér eins vel og raun ber vitni. Textar hans eru liprir og skýrir, falla mjög vel að lögunum, og í flutningnum tap- aðist ekki eitt einasta orð, en það er mjög mikilvægt í þessu tilviki, vegna þess að list Piaf byggðist ekki síst á inntaki textanna sem hún söng. Um franskan vísna- söng gildir það sama og um klass- ískan ljóðasöng, að það er sam- runi texta, tónlistar og túlkunar sem allt veltur á. Þessi samruni náðist í sýningunni á Akureyri. Það sem geymist í huganum eftir þessa sýningu er stórbrotin mynd af mikilli manneskju og listakonu, sem lætur allt í sölurn- ar fyrir ástina og listina og svíkur aldrei. Hún deyr fyrir list sína, en fyrir tilverknað hennar lifir hún líka áfram - líka á Akureyri. Sverrir Hólmarsson Myndlist Teiknarinn Jóhanna Jóhanna Bogadóttir sýnir í Norrœna húsinu Jóhanna Bogadóttir heldur um þessar mundir einkasýn- ingu í kjallara Norræna húss- ins. Þar sýnir hún 32 verk, olí- umálverk, teikningarog grafík. Sýning Jóhönnu stendureinungistil næstkomandi sunnudags. Engar skarpar breytingar eru á list Jóhönnu frá síðustu sýningu hennar. Hún heldur áfram að draga fram sína persónulegu ævintýraveröld, turninn, fiskinn, svanina og vafningsviðinn. Táknmálið er á sínum stað; draumaheimarnir sem birtast áhorfendum líkt og eitthvað séð milli svefns og vöku. Heimur Jó- hönnu er að vissu leyti súrrealísk- ur, sprottinn hálft í hvoru úr martröð og sæludraumi. Jafnvel þar sem hún tekur fyrir landslag eða stemmningar úr náttúrunni, verður útkoman að einhverju leyti yfirskilvitleg og fjarræn. E.t.v. er það vegna þess að ekkert snertir jörðina. Verkin vaxa einhvern veginn út frá miðju og komast aldrei út að jöðrum, þ.e. endimörkum flatarins og því verður allt svo ójarðneskt og óá- þreifanlegt eins og gömul minn- ing. Þó hefur ýmislegt skýrst í að- ferðarfræði Jóhönnu og er það vissulega breyting og sú breyting er til góðs. Jóhanna hefur fundið ákveðinn miðil til að túlka sig með, miðil sem hentar mjög vel viðfangsefnum hennar. Hér á ég við hinar stóru teikningar, sem gerðar eru með blandaðri tækni á pappír. Pastell, akrýlmálning og krít eru kjörin efniviður og virðist henta listamanninum mun betur en olían eða grafíkin. Jóhanna er nefnilega fyrst og fremst teiknari og er því ekki undarlegt að hún skyldi leggja fyrir sig grafík á sínum tíma. En grafíkin er ekki nægjanleg teiknaranum til lengdar, því efniskennd grafíkverka er engin þótt áferðin komi í ljós sem nokk- urs konar effekt efniskenndar. Því hefur Jóhanna sótt í sig veðrið með krít, pastel og akrýlmáln- ingu að vopni og útkoman er óvenjulega þróttmikil í bestu myndunum. Olían hentar henni síður og er það e.t.v. vegna þess að hún er of efnismikil fyrir svo loftkenndar myndir. Olíulitir eru jarðbundn- ir, þykkir og áþreifanlegir, en eins og Jóhanna brúkar þá, njóta þeir sín frekar illa. Akríllitir sem hægt er að þynna og meðhöndla sem vatnsliti, henta mun betur tjáningarmáta Jóhönnu og raun- ar mundu vatnslitir og þekjulitir einnig gera sama gagn. Þar sem liturinn er ekki hin sterka hlið Jóhönnu, er milt litróf teikninganna heppilegra og harmónískara en sterk litameð- ferðin í olíuverkunum. Það er því fyrst og fremst í stórum og dauf- litum teikningum sem styrkur Jó- hönnu er fólginn og þar liggja möguleikar hennar til frekari þróunar. Því miður er það svo að íslend- ingar hafa lítinn áhuga á teikning- um og skilja raunar illa þessa grundvallarlist allra sjónrænna lista. Þeim sést meira að segja yfir snillinginn Kjarval, nema ef vera skyldi Tolli í Sfld og fisk, sem fatt- aði að með teikningum hans mátti prýða skuggsælar vínstofur. Gegn þessu vanmati á teikning- unni þarf að berjast eins og öðru þekkingarleysi landsmanna á sviði myndlistar. Þegar slík bar- átta hefur verið til lykta ieidd, munu þeir listamenn sem kjósa sér einhvem annan miðil en olíuliti, loks fá verðskuldaða at- hyg1'- HBR Miðvikudagur 13. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.