Þjóðviljinn - 13.03.1985, Blaðsíða 9
MENNING
Tónlist
Glœsilegur flutningur meistaraverks
Frá f lutningi Sinfóníuhljómsveitar fslands, Söngsveitarinnar Fílharmóníu og Karlakórs Reykjavíkur á óperu Wagners,
Hollendingnum fljúgandi. (Mynd: E.ÓI.)
Sinfóníuhljómsveit íslands
Hollendingurinn fljúgandi,
Ópera eftir Richard Wagner í þrem
þáttum, konsertflutningur.
Loksins kom að því að íslenskir
tónlistarunnendur fengju að
heyra eina af óperum Wagners
þó ekki væri nema í konsertupp-
færslu, en óperur Wagners hafa
aldrei verið fluttar hérlendis fyrr.
En stjórn S.í. reið á vaðið og úr
því varð stórkostlegur flutningur
á Hollendingnum fljúgandi með
útlendum stórstjörnum í söng-
hlutverkunum, Fílharmoníuk-
órnum og Karlakór Reykjavíkur,
undir stjórn Klauspeter Seibel.
En áður en ég fer fleiri orðum um
flutninginn, er ekki úr vegi að
minnast nokkuð á tildrög verks-
ins.
Hollendingurinn fljúgandi var
fjórða óperan sem Wagner
samdi. Fyrstu tvær voru
æskuverk sem nú eru gleymdar,
en þú þriðja, Rienzi, er uppfærð
stöku sinnum og forleikurinn að
þeirri óperu er vel þekktur og oft
leikinn á sinfóníutónleikum.
Hugmyndina að Hollendingnum
fljúgandi fékk Wagner er hann
lenti í miklu illviðri á skipi, en
hann var þá á flótta frá Riga
vegna skulda og lá leiðin til Eng-
lands. Þessi sjóferð og ekki síður
saga eftir Heine sem fjallar um
líkt efni, varð til þess að óperan
Hollendingurinn fljúgandi varð
til. Óperan hefir notið mikilla
vinsælda og verið sýnd
heimshornanna á milli, en eins og
áður segir, er hún nú flutt hér í
fyrsta sinni.
Efnið er í stuttu máli: skipstjóri
á hollensku skipi er dæmdur til
þess af yfirnáttúrulegum öflum,
að sigla að eilífu á skipi sínu,
nema að hann hitti konu sem
elskar hann. í óperunni kemur
fram skipshöfn á norsku skipi
ásamt skipstjóranum (Daland)
og stýrimanni, en atburðurinn
skeður í Noregi. Pangað kemur
draugaskipið en því er leyft að
koma að landi á sjö ára fresti.
Skipstjórinn, Hollendingurinn,
er boðinn heim til Dalands, en
þar er fyrir Senta dóttir Dalands,
Mary fóstra hennar og vinkonur
sem eru að spinna og syngja þær
hinn fræga spunasöng (sópran og
alt fjórraddað). Það verður Senta
sem leysir Hollendinginn og
skipshöfn hans frá þessum hræði-
legu álögum með því að henda
sér fyrir björg og sanna þannig ást
sína til Hollendingsins og sekkur
þá skipið í miklum iðusvelg. Hol-
lendingurinn og Senta sjást síðast
stíga til himins í örmum hvors
annars. Þannig eru í fáum orðum
útlínur textans.
Með hlutverk Sentu fór danska
söngkonan Lisbeth Balslev. Það
kom fljótlega í ljós að Lisbeth
Balslev er stórsöngkona og gerði
óhægt væri um vik. Eins má segja
um þýska söngvarann Manfred
Schenk sem söng hlutverk Da-
iands. Hin fallega og kraftmikla
bassarödd hans fyllti út í hvern
krók og kima í salnum og gerði
hann hlutverki sínu afbragðs skil.
okkar Björnssyni sé ekki fisjað
saman, því hann hljóp í skarðið
fýrir annan söngvara með mjög
litlum fyrirvara. Hann söng hlut-
verk stýrimannsins og gerði það
af miklu öryggi og listrænum til-
þrifum. Röddin er enn ótrúlega
fnsk og óslitin, en að grípa svona
inní á síðustu stundu er ekki á
allra færi. En Sigurður stendur á
gömlum merg sem óperusöngvari
eins og allir íslendingar vita.
Skyldu margir framkvæmda-
stjórar sinfóníuhljómsveitar í
heimi geta leikið þetta eftir?
Eini ljóðurinn á þessari annars
frábæru uppfærslu var söngur
Sylviu Stone í hlutverki fóstrunn-
ar. Það var of mikill skjálfti í
röddinni sem orsakaði að hún var
ekki nógu hrein og auk þess frek-
ar hljómlítil og barst ekki nógu
vel út í salinn. Fílharmoníukór-
inn söng alveg prýðilega, t.d.
spunasönginn sem var verulega
áhrifamikill og karlaraddirnar úr
Fflharmoníukórnum og Karlakór
Reykjavíkur hljómuðu ágætlega.
Það voru þeir Guðmundur Em-
ilsson (Filh.k.) og Páll P. Pálsson
(K.R) sem áttu veg og vanda af
að æfa þessa kóra. Kór draugask-
ipsins var látinn heyrast í hátalara
sem verkaði dálítið kynduglega.
En síðast og ekki síst var það
sjálf Sinfóníuhljómsveit íslands
sem átti hið mesta hrós skilið fyrir
magnaðan Wagnerleik undir af-
bragðsstjórn Klauspeter Seibel
sem var rétti maðurinn á réttum
stað. Hann hélt öllum flutningn-
um saman af miklu öryggi sem er
hún hlutverki Sentu frábær skil
með glæsilegri og dramatískri
rödd og sviðsframkomu. Það
meir að segja örlaði á leik þó
Og þá er komið að sjálfum Holl-
endingnum sem var í höndum
Hartmut Welker baryton. Hann
hefir frábæra baryton rödd sem
hann beitti af mikilli kunnáttu og
var túlkun hans á þessu hlutverki
hins ógæfusama manns stór-
mögnuð og hrífandi. Hlutverk
Eriks söng Ronald Hamilton og
söng hann með sinni glæsilegu
tenorrödd af mikilli reisn og inn-
lifun. Það má segja að Sigurði
ekki á færi nema þeirra sem eru
aldir upp við gamlar evrópskar
hefðir í túlkun á slíkum meistara-
verkum eins og Hollendingnum
fljúgandi. Að lokum skal þess
getið að Sinfónían minntist með
þessum glæsilegu tónleikum 35
ára afmælis síns, en fyrstu tón-
leikar hennar voru þann 9. mars
1950 undir stjórn hins merka
stjórnanda Róberts A. Ottós-
sonar. r.s.
Ný landssýn
Georg Guðni sýnir í Nýlistasafninu
Georg Guðni, ungur Reykvík-
ingur sýnir um þessar mundir í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Hann hefur stundað nám við
Myndlista- og handíðaskóla
íslands síðan 1980 og tekið
þátt í nokkrum samsýningum.
Þetta er einkasýning Georgs
Guðna.
Á sýningunni eru 11 lands-
lagsmálverk, máluð á árunum
1984-1985. Öll eru þau af þekkt-
um fjöllum á Suð-Vesturlandi,
s.s. Akrafjalli, Esju, Snæfells-
jökli, Hestfjalli, Botnssúlum og
Skjaldbreið. Hvert málverk er af
einu ákveðnu fjalli og eru fjöllin
dregin upp á skýran og ákveðinn
hátt, þannig að þau mynda eina
formræna heild móti himninum.
Litir eru gráir og afmarkast
formin af mismunandi tónum og
birtu, þannig að skil fjalla og him-
ins eru aðgreind með blæbrigðum
öðru fremur. Áferðin er jöfn en
malerísk og hálfglansandi. Þetta
er rómantísk sýn, tilvísun til
klassískrar og mónumentalskrar
málaralistar. Allt byggir á
stemmningunni sem geislar frá
hverri mynd, hverju fjalli og hin-
um óumbreytanlega svip þess
móti óumbreytanlegum himni.
Við erum komin langt frá hinu
cézanníska landslagsmálverki
sem íslenskir listamenn hafa iðk-
að gegnum áratugina. Hér er
ekki teflt á síð-impressioníska
skala, heldur akademískan skala
dansk-þýska 19. aldar skólans
þar sem skýr teikning og mettað-
ur, eða dempaður litaskali var
notaður.
Merkir þetta afturhvarf til for-
impressionískra vinnubragða?
Eitt er víst að frá þessum mynd-
um stafar undarleg ró og yfir
þeim hvflir sérkennilegur blær
angurværðar og drunga, eitthvað
sem minnir á Caspar Fredrich og
þá Hölderlin, Novalis og Kleist.
E.t.v. eru ísienskir listamenn að
upptötva í sér streng þýskrar dul-
hyggju eða getur það verið að
hann hafi alltaf verið þar til stað-
ar, undirokaður af franskri raun-
hyggju hins formalíska landslags-
skóla?
Eitt er víst að þessar myndir
fylgja manni út úr salnum, prent-
aðar í hugann og er það merki
j þess að hér sé á ferð sérstæð túlk-
un á íslensku landslagi, gerð af
alúð og einlægni, óvenju þroskuð
sé þess gætt að listamaðurinn er
aðeins hálfþrítugur.
| Sýningu Georgs Guðna lýkur
um næstu helgi, eða 17. mars.
Sinfónían
Kammertónleikar í MH
Annað kvöld, fimmtudag,
heldur Sinfóníuhljómsveit
íslands þriðju
kammertónleika sína á þessu
starfsári. Verða þeir í sal
Menntaskólans við
Hamrahlíð og hefjast kl.
20.30.
Á efnisskrá tónleikanna eru að
þessu sinni Brandenborgarkons-
ert nr. 3 eftir J.S.Bach, Sinfónía
nr. 29 eftir Mozart og konsert
fyrir fiðlu, píanó og 13 blásara
eftir Alban Berg.
Einleikarar á tónleikunum eru
þau Edda Erlendsdóttir píanó-
leikari, sem starfar í Frakklandi,
og Einar Grétar Sveinbjörnsson
Tónleikar
Einleikurá
flautu
Tónlistarskólinn í Reykjavík
heldur tónleika að Kjarvalsstöð-
um miðvikudaginn 13. mars 1985
kl. 21:00. Þórunn Guðmunds-
dóttir leikur einleik á flautu og er
það fyrri hluti einleikaraprófs
hennar frá skólanum. Dagný
Björgvinsdóttir leikur með á pí-
anó og Elín Guðmundsdóttir á
sembal.
Á efnisskrá eru verk eftir
J.S.Bach, John Speight, Georges
Enesco og Prokofieff.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
fiðluleikari sem er kons-
ertmeistari borgarhljómsveitar-
innar í Málmey í Svíþjóð. Stjórn-
andi á tónleikunum er vestur-
þjóðverjinn Klauspeter Siebel
sem hefur þann starfa að stjórna
sinfóníuhljómsveitum í Num-
berg og Hamborg auk þess sem
hann er prófessor við tónlistarhá-
skóla í síðartöldu borginni. Hann
hefur stjórnað Sinfóníunni
nokkrum sinnum í vetur og er
skemmst að minnast flutningsins
á Hollendingnum fljúgandi í síð-
ustu viku.
-ÞH
Vestrœnir og norrœnir
ellihúsavinir
Fimmtudaginn 14. mars kl.21.00
verða sýndar þrjár kvikmyndir
urn endurbætur á gömlum húsum
og varðveisla eldri borgarhluta í
bæjum og borgum í Bandaríkjun-
um. Kvikmyndasýningin er
ókeypis, en hún er á vegum sam-
starfsverkefnisins sem Arkitekt-
afélagið og Menningarstofnun
Bandaríkjanna hafa komið á fót.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9