Þjóðviljinn - 19.04.1985, Síða 1
apríl
1985
föstu-
dagur
■
88. tölublað 50. örgangur
ÞJÓÐMÁL
GLÆTAN
UM HELGINA
Sigurfari
Sleginn á 187 miljónir
Uppboð fór fram hjá sýslu-
mannsskrifstofunni í Stykkis-
hólmi í gær á togaranum Sigur-
fara frá Grundarfirði. Að sögn
Jóhannesar Arnasonar sýslu-
manns barst eitt tilboð í skipið frá
Fiskveiðasjóði, og hljóðaði það
upp á 187 miljónir króna. Upp-
hæð þessi mun vera jafngildi
Annað uppboð fer fram 27. jum
framt síðasta uppboðið á togar-
tryggingarupphæðarinnar fyrir
skipið. Krafa Fiskveiðisjóðs á
hendur útgerðinni nemur hins
vegar 280 miljónum króna, en
þar af munu um 100 miljónir vera
í vanskilum.
Jóhannes sagði að upphaflega
hafi verið tekið lán til kaupa á
skipinu að upphæð 5,1 miljón
bandaríkjadala. Það var í ágúst
1981, þegar gengi dollarans var
rúmar 7 ísl. krónur.
Útgerðarfélagið fór fram á að
annað uppboð yrði haldið, og
mun það fara fram þann 27. júní
næstkomandi. Það verður jafn-
anum.
Hjálmar Gunnarsson útgerð-
armaður sagði að þetta hefði far-
ið eins og við var að búast. Sigur-
fari væri dýrt skip og vandað og
það væri ljóst að Fiskveiðisjóður
ætlaði ekki að láta það í hendur
hvers sem væri. Hjálmar sagði að
kröfurnar á skipið væru frá
Byggðasjóði og Fiskveiðisjóði og
samanlagt gætu þær numið um
280 miljónum.
Hjálmar sagði að ekki væri far-
ið að ræða hvaða möguleika
heimamenn hefðu á því að halda
skipinu.
ólg.
gerir Framsóknarflokkurinn?
Hvað
Fulltrúi Framsóknarflokksins í
utanríkismálanefnd alþingis Har-
aldur Ólafsson, fylgir Sjálfstæðis-
flokki og krötum í byggingu rat-
sjárstöðva fyrir norðan og vest-
an. Haraldur mun skila séráliti
um málið í dag.
í gær kom fram það meirihluta-
álit utanríkismálanefndar að fella
beri tillögu Steingríms J. Sigfús-
sonar og Kolbrúnar Jónsdóttur
um að hætt verði við að reisa rat-
sjárstöðvarnar. Það vakti mikla
athygli að nafn Haraldar var ekki
á því blaði, aðeins nöfn þeirra
Kjartans Jóhannssonar, Alþýðu-
flokki og þriggja Sjálfstæðis-
manna. Iálitinu kemur fram að
þeir telja ratsjárstöðvarnar „til
góða bæði fyrir íslensku þjóðina
og varnarbandalagið sem við
erum og viljum áfram vera aðilar
að“.
í minnihlutaáliti þeirra Hjör-
leifs Guttormssonar og Sigríðar
Dúnu Kristmundsdóttur kveður
við annan tón. Þau benda á að
bygging stöðvanna tákni óum-
deilanlega aukin hernaðarumsvif
hér á landi og að mikill meirihluti
aðspurðra séu henni mótfallnir.
Telji þau að virða ben óskir
heimamanna um að slík
mannvirki verði ekki reist við
bæjardyr þeirra. Þá átelja þau þá
málsmeðferð að tengja þessi
hernaðarmannvirki nauðsyn-
legum úrbótum vegna farþega-
flugs. Flugöryggi sé og eigi að
vera hlutverk lslendinga sjálfra.
-Á1
Sjá bls. 3.
Geir Hallgrímsson
Yfirlýsing-
in vekur
heims-
athygli
Steingrímur J. Sig-
fússon: Geirgetur
ekki borið hana til
baka
Yfirlýsing Geirs Hallgríms-
sonar utanríkisráðherra hér á
Alþingi um bann við skipaumferð
með kjarnorkuvopn í íslenskri
lögsögu og íslenskum höfnum var
ótvíræð, og hann getur ekki borið
hana til baka eða túlkað hana
með öðrum hætti nema Alþingi sé
gerð grein fyrir túlkun ráðherr-
ans. sagði Steingrímur J. Sigfús-
son alþingismaður í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Ráðherrann lýsti því yfir að
þau skip sem bera kjarnorku-
vopn megi ekki vera í íslenskri
lögsögu eða höfnum. Ef Banda-
ríkjamenn hafa þá stefnu, eins og
komið hefur fram, að segja
hvorki af né á um vopnafarm her-
skipa sinna hlýtur þetta að þýða
að þær tegundir bandarískra her-
skipa, sem vitað er að hafa búnað
til að bera og skjóta kjarnorku-
vopnum eiga ekki aðgang að ís-
lenskri lögsögu eða íslenskum
höfnum.
Geir Hallgrímsson lýsti því yfir
í fyrrakvöld að yfirlýsing hans á
Alþingi væri staðfesting á stefnu
íslenskra stjórnvalda áratugum
saman og „væri ekkert í tengslum
við yfirlýsingu Nýja Sjálands“.
Steingrímur Sigfússon sagði í
samtali við Þjóðviljann að ekki
væri hægt að túlka yfirlýsingu
ráðherrans á Alþingi öðruvísi en
svo að hún markaði sömu stefnu
og Nýsjálendingar hafa tekið
upp: að setja hafnbann á öll her-
skip sem hafa kjarnorkuvopn
innanborðs. xi„
Höfundur íslandsklukkunnar mættur á æfingu og sést hér á tali við Snæfríði Islandssól sem Tinna Guðlaugsdóttir leikur. Að baki hennar er Þorsteinn
Gunnarsson sem leikur Arnas Arneus en til hægri er snærisþjóðfurinn af Skaga, sá armi Jón Hreggviðsson frá Rein, en meö hlutverk hans fer Helgi
Skúlason.
Þjóðleikhusið 35 ara
íslandsklukkan í þriðja sinn
I haust verða liðin 30 ár síðan Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin
H
ganginn á leið inn í sviðsljós-
ið. Ekki með því að lesa Passíu-
sálmana heldur fyrir það að Þjóð-
leikhúsið ætlar að halda upp á 35
ára afmæli sitt í næstu viku með
frumsýningu á einni helstu perlu
Laxness, Islandsklukkunni.
Þetta verður í þriðja sinn sem
Þjóðleikhúsið færir upp íslands-
klukkuna en leikgerð hennar var
einmitt fyrsta verkefni hússins og
sýnt við vígslu þess í apríl 1950. I
þeirri lotu var það sýnt af og til í
heil sjö ár en árið 1968 var það
aftur tekið til sýninga. Alls munu
tæplega 70 þúsund manns hafa
séð þessar tvær uppfærslur og er
því ekki að örvænta að áhorfend-
afjöldinn fari yfir 100 þúsund.
Það skemmir svo ekki fyrir
hátíðarhöldunum að í haust
verða liðin 30 ár síðan Halldór
Laxness var sæmdur æðstu viður-
kenningu sem rithöfundi getur
hlotnast í henni veröld, bók-
menntaverðlaunum Nóbels. Þess
verður væntanlega minnst við
hæfi þegar þar að kemur. En
Þjóðleikhúsið ætlar sumsé að
. þjófstarta á sumardaginn fyrsta.
-ÞH