Þjóðviljinn - 19.04.1985, Page 7
Nú í vikunni var opnuð ný
félagsmiðstöð á 2. hæð
íþróttahúss Hagaskóla. Ekki
gat Glætan látið sig vanta á
staðinn til að óska vesturbæ-
ingum til hamingju með
þeirra fyrstu félagsmiðstöð.
Hún er enn sem komið er star-
frækt í tilraunaskyni meðan
beðið er eftir félagsmiðstöð
sem á að opna í KR-
heimilinu. En það er ennþá
langt í það. Hingað til hefur
tilfinnanlega vantað svona
starfsemi í vesturbæinn sem
hefur yngst upp og breytt um
svip með tilkomu nýja hverfis-
ins. Þeir sem voru mættir á
staðinn þetta kvöld voru allir
sammála um að það væri tími
til kominn að eitthvað væri
gert fyrir krakkana í vestur-
bænum - en er ekki best að
leyfa þeim sjálfum að komast
að?...
Kristín og Guðrún: Ætlarðu ekki að
taka við okkur viðtal? Okkur finnst fé- '
lagsmiðstöðin vera bara ágæt og allt í
lagi. Ljósm.: Valdís.
Sigurður og Arnar: Okkur líst æðislega
vel á þetta og ætlum að sækja staðinn
á hverju kvöldi.
/ Guðmundur: Mér líst mög vel á þetta.
/ Það vantaði svona í Vesturbæinn. En
/ það vantar betri spilakassa og betri
/ skemmtiatriði í nýju félagsmiðstöðina.
/ Af hverju geri ég það ekki sjálfur? Nú,
ég er að æfa 3 atriði fyrir karnivalið í
Laugardalshöll. Ég er með í leikriti,
„grís“atriði og Duran Duran atriði. Upp-
áhaldshljómveitin er auðvitað Duran
Duran.
Föstudagur 19. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7