Þjóðviljinn - 05.05.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 05.05.1985, Blaðsíða 2
FLOSI Miku skammtur af Mósebók Það kvað vera bjargföst skoðun margra að leiðin til lífshamingju sé að losna við lífsbaráttuna. Mér er nær að halda að mannskepnan hafi í aldaþúsundir verið að berjast uppá líf og dauða fyrir því að losna við að berjast fyrir lífi sínu og tilveru í von um að hafna að lokum í því góssenlandi Eldóradó, sem nútildags er stundum kallað velferðarríki. Þó mikið hafi verið barist og lengi, hefur víst engum tekist þetta nema svíum og það fyrir nokkru. Nú mætti ætla að við þetta hefðu svíar orðið fjárhagslega og þá ekki síður félagslega fullnægðir, sælir og síglaðir. En það er nú eitthvað annað. í Ijós hefur komið að við það að missa lífsbarátt- una skapast tómarúm í tilveru svía, tómarúm sem mannsandinn verður að fylla eða brúa bara svona einsog gert er í vegavinnu til að auðvelda þjóðinni að komast leiðar sinnar. Uppfyllingin sem svíar hafa notað eru „problem”, stundum hérlendis kölluð vandamál. Um hábjargræðistímann sitja sviar í miljónavís með sveittan skallann við að upphugsa próblem fyrir hinar miljónirnartil að reifa, rannsaka og kryfja - eins og stundum er sagt - til mergjar. Nútíma félagsfræði virðist vera óþrjótandi gnægtabrunnur próblema, sem endalaust er hægt aö ausa af og verður það sennilega með síðari próblemum svía að bjarga sér frá drukknun í prób- lemum. Kirkjan hefur til skamms tíma staðið utanvið sænska próblem-stóriðju enda bæði eldri og byggð á traustari grunni en félagsfræðin, en nú fáum vér ekki betur séð en að þetta höfuðvígi guðsríkis á jörðinni sé líka fallið. Próblemin hafa semsagt hald- ið innreið sína inní sænsku kirkjuna í bæði eigin- legum og óeiginlegum skilningi. Próblemið er semsagt það að Mósebók er orðin próblem í sænsku kirkjunni. Vantar að því er manni skilst mikið á að hún fullnægi þeim félagsfræðilegu kröfum sem gera verður í dag í sænsku samfélgi. Meginmálið er það hvort hommar og lespíur séu fólk, guði þóknanlegt eða ekki. Það var semsagt á dögunum að sjálfur Stokk- hólmsbiskupinn sté í stólinn í Dómkirkjunni og kvað atferli kynhverfra guði þóknanlegt í einu og öllu, enda væri það skárri andskotinn ef himnafaðirinn færi að afneita eigin sköpunarverki, því ekki er það neinn annar en hann, sem hefur gert þetta fólk svona úr garði, hefur að því er manni skilst hönd í bagga með þessu öllu. Undir ræðu biskupsins varð Stokkhólmsdóm- kirkjan einsog drykkjubúlla í vilta vestrinu, slagsmál og hasar. Hommarnir sungu hástöfum „We shall overcome”, en fylgjendur Mósebókar voru snúnir niður og varpað á dyr. Raunar virðast allir biskupar svía á einu máli um það að hommar megi, án þess að það fari tiltakan- lega í taugarnar á himnafeðgunum, vera hommar og lespíur lespíur, bara ef lespíur geri ekki hitt við lespíur og hommar geri ekki hitt við homma. Bisk- upinn á Skáni benti á það að í raun og veru væri eðlilegt að vera hommi, ef það væri kona sem væri það og sömuleiðis væri það guði afar þóknanlegt að karlmenn væru lespískir. Þetta væri eðlilegt og heterósexúelt ástand. Hvað Biblíuna áhrærir, þá virðast sænskir kenni- menn helst á því að hana beri að taka með fyrir- vara, einsog önnur mannanna verk, hvort sem er Mósebók eða bréf Páls postulatil rómverja. í Róm- verjabréfinu 1. kap. 23.-28. versi segir beinlínis að guð hafi gert fólk kynhverft í hefndarskyni fyrir hé- gómaskap, heimsku og skepnuskap, en í Mósebók segir orðrétt: „Leggist maður með karlmanni sem kona væri, þá fremja báðir viðurstyggð; þeir skulu líflátnir” (Mós. III. 20. kap. 13.). En þá er bent á það að ef farið væri að Móse- lögum um hegningu fyrir ýmsar syndir, væru allir svíar í fyrsta lagi dauðir níu sinnum og í öðru lagi löngu útdauðir, því einsog segir í Mósebók III. 20. kap. 9-17: „Því að hver sá sem bölvar föður sínum eða móður skal líflátinn verða og hver sá sem drýg- ir hór með konu náunga síns skal líflátinn verða, bæði hórkarlinn og hórkonan og leggist maður með konu föður síns þá skulu þau bæði líflátin verða og leggist maður með tengdadótt- ur sinni þá skulu þau bæði líflátin verða og taki maður bæði konu og móður hennar skal brenna hann í eldi ásamt þeim og eigi maður samlag með skepnu, þá skal hann líflátinn verða og skepnuna skuluð þér drepa og ef kona kemur nálægt einhverri skepnu til samræðis við hana, þá skaltu deyða konuna og skepnuna o.s.frv. o.s.frv.” Ja ég segi nú bara að það væri lítið eftir af íslendingum ef þessi lög væru hér við lýði, hvað sem segja má um svía. Svo ef það á að fara að krefjast þess að Móselög séu tekin góð og gild gagnvart hommum og lespí- um, er þá ekki rétt að láta þau gilda yfir alla línuna? Samkvæmt þeim virðist mér varla nokkur uppáferð hugsanleg nema maður gjaldi hana með lífinu, brenndur á báli, grýttur, útskúfaður eða það væg- asta; gerður barnlaus. Varðandi kynhverfa, þá gleymi ég aldrei svarinu sem hún amma mín gaf mér þegar ég spurði hana hvort það væri ekki alveg voðalegt að vera „sódó”, eihs og það var þá kallað. Þá sagði hún: Æ, ég held þeir megi toga í typpið hver á öðrum, ef þeir hafa gaman af því. Þeir eru þá ekki að drepa kellingarnar sínar á meðan. Og ef einhvern langar til að vita hvernig messan í Stokkhólmi endaði, þá er því best lýst með þessari litlu og vinalegu vísu, sem birtist í sænsku press- unni: Bisköpinn í stólinn sté snöri sér veð og prömpaðe Allt fólkið orgaðe einn hommi kafnaðe Lætin á NT Stjórn NT á förum Blaðstjóm NT þykir hafa með- höndlað uppsagnir á starfs- fólki NT af óhemju lítilli takt- vísi, svo mjög að meira að segja áhrifamenn í Fram- sóknarflokknum eru gáttaðir. Nú mun afráðið að á næstu mánuðum verði skipt um blaöstjórn, og segja menn að þeir Einar Birnir stórkaup- maður, Hákon stjórnarfor- maður og Haukur Ingibergs- son, óvinsælasti maðurinn í gervöllum Síðumúlanum eftir NT ævintýrið og verkfallið í haust, verði látnir fjúka fyrst. Þess má geta að eftir allt havaríið á NT hefur SÍS loks- ins ákveðið að rétta „hjálp- andi hönd" og nú mun í bígerð að gera dágóðan auglýsing- asamning við SÍS, sem hefur haft mikinn ímugust á blaðinu. Þannig munu auglýsingar þess hjá NT hafa verið mun minni en hjá gamla Tímanum áður fyrri.■ Halldór í hættu Halldór. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi eystra á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Meðal yngri manna í flokknum ríkir mikil reiði í hans garð fyrir það sem þeir kalla óþolandi blaður í húsnæð- ismálum og heima í héraði er nú verið að undirbúa brottfall hans af þingheimi. Halldór hefur aldrei verið tiltakanlega vinsæll af flokksmönnum fyrir norðan, einsog Jón G. Sólnes greindi ýtarlega frá í ævisögu sinni sem kom út um síðustu jól. Nú munu stuðningsmenn Björns Dagbjartssonar íhuga að festa Björn endanlega á þingi með því að ýta Halldóri út í kuldann. Útslagið gerði sumsé klén frammistaða Hall- dórs í húsnæðismálunum, þar sem hann er talinn vera ábyrgður að verulegu leyti fyrir þeim loðmullulega ó- skapnaði sem tillögur stjórn- arinnar í húsnæðismálum eru.« Húsvísk ■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ kaldhæðni Það er orðin hefð hér á Þjóð- vilja að stela sem allra mestu efni út hinu ágæta Víkurblaði sem gefiöer út á Patreksf.... fyrirgefið Húsavík. Nú er það Vísnaþáttur Brynhildar sem verður fyrir barðinu: „Einsog flestir vita er verið að byggja smáhýsi upp við Hvamm (elliheimilið). Gert er ráð fyrir að á þeim verði torf- þök. Ekki eru allir jafn hrifnir af því. Þorgrímur Björnsson kveður: Arkitektinn af því mið eflaust tók í könnun sinni að gamla fólkið vendist við að vera undir gras- torfunni.a Eitt ríkasta bæjarfélag á landinu greiðir vel fyrir vinnu- afl toppanna hjá bænum eins- og kom fram í blaðafregnum á sl. ári. Hins vegar er bæjarfé- lagið ekki alveg jafn höfðing- legt við hinn almenna launa- mann. Þá er það taxtinn ber- strípaður sem látinn er duga. Þó kastar tólfunum í sam- iskiptum við sumarafleysinga- Ifólk. Þess eru meiraðsegja dæmi að bæjarfélagið hafi ekki greitt í lífeyrissjóð fyrir starfsfólk fyrr en eftir þrjú ár- og þá með eftirgangsmun- um.« Gárungamir á NT segja létta sögu af einum starfsmanni blaðsins sem var búinn að vinna blaðinu svo vel að hann var að niðurlotum kominn fyrir síðustu helgi. Yfirmenn blaðs- ins aumkuðu sig þá yfir hann og gáfu honum launað frí og sendu hann í veiðitúr upp á heiði. Þar var vesalings blað- amaðurinn í góðu yfirlæti, veiddi vel og kom til byggðá í endurheimtu jafnvægi. Það stóð ekki lengi. Á ganginum hjá honum beið hans bréf frá blaðstjórn NT. Blaðamannin- um vöknaði um augu og hélt að hinir umhyggjusömu yfir- stjórnendur á NT heföu sent honum „Velkominn-heim- -kort.“ Því var ekki að heilsa. í bréfinu stóö: „Þér er hér með sagt upp störfum með venjulegum 3 mánaða uppsagnarfresti. Blaðstjórn NT“.» inu þar sem þeir tóku saman höndum við íhaldið í meirihlut- anum um að leggja BÚH nið- ur. Verkalýðshreyfingin í bænum og Alþýðubandalagið hafa lagst harðlega gegn vinnubrögðum meirihlutans. Á 1. maí efndi Alþýðubanda- lagið til opins fundar um BUH- málið þar sem m.a. nokkrir forystumenn úr verkalýðs- hreyfingunni mættu og var fundurinn vel sóttur. Meðal fundarmanna var sérlegur sendimaður frá Alþýðuflok- knum, Eyjólfur Sæmundsson forstöðumaður Vinnueftirlits- ins. Hann hélt ágætis ræðu og skýrði sjónarmið sinna flokks- manna. Meðal annars lýsti hann því yfir að nú væri svo komið að Alþýðuflokksmenn væru hræddir um að íhaldið ætlaði að svíkja í málinu þannig að hið nýstofnaða fyr- irtæki sem taka á við af BÚH jfæri aldrei af stað. Þetta væri m.a. vegna mikillartogstreitu í bænum um þessi mál og hætta væri á því að illa færi ef Alþýðubandalagið og Verka- lýðshreyfingin létu ekki af mótmælum sínum. Skilaboð krata til Alþýðubandalagsins voru sumsé að tæki það ekki upp haltu-kjafti línuna hlyti bæjarfélagið verra af...» 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. maí 1985 Haltu-kjafti línan Alþýðuflokksmenn í Hafnar- firði eru nú í mikilli klípu vegna afstöðu flokksins í BÚH mál- ______Gleymdu lífeyrissjóðnum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.