Þjóðviljinn - 08.05.1985, Síða 14
MINNING
Vinnuskóli Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa um mánaöa-
mótin maí - júní n.k.
í skólann verða teknir unglingar fæddir 1970 og 1971
og voru nemendur í 7. og 8. bekk grunnskóla Reykja-
víkur skólaáriö 1984 - 1985.
Umsóknareyðublöð fást á Ráðningarstofu Reykjavík-
urborgar, Borgartúni 1, sími 18000, og skal umsókn-
um skilað þangað eigi síðar en 20. maí n.k.
Nemendum, sem síðar sækja um, er ekki hægt að
tryggja skólavist.
Vinsamlegast hafið með nafnskírteini eða önnur skil-
ríki.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
Vinnuskóli Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir leiðbeinendum til
starfa við Vinnuskólann í sumar. Starfstími er frá 1.
júní til 1. ágúst n.k.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í verkstjórn
og þekkingu á gróðursetningu, jarðrækt o.fl. störfum
t.d. hellulögn og kanthleðslu. Til greina koma 1/2 dags
störf.
Umsóknareyðublöð eru afhent í Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar, Borgartúni 1, sími 18000. Þar eru
einnig gefnar upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 18. maí n.k.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
Erindi á vegum
Norræna heilunarskólans
(Skandinavisk Healerskole)
Jeanne de Murashkin, stofnandi Norræna heilunar-
skólans heldur tvö erindi í Fríkirkjunni 13. og 14. maí
nk. kl. 20.00.
Fyrra erindið fjallar um Hærri og lægri skyggnigáfu, en
það síðara um Vitundarbyltingu á Vatnsberaöld.
Erindin verða túlkuð. Miðar við innganginn.
Ási í Bæ
Þó síðbúin sé og af vanefnum
fram borin, hlýt ég að senda vini
mínum Ása í Bæ hinstu kveðju að
leiðarlokum, úrþví ég birti um
hann ljóð í lifanda lífi. Sennilega
kunni hann lítt að meta ljóðið og
mundi efalaust hrista úfinn koll-
inn yfir svo fátæklegum kveðju-
orðum, ef hann mætti lesa þau,
sem hann kannski gerir eftirá að
hyggja.
Eg kynntist Ása ekki fyrr en
hann var kominn hátt á sextugs-
aldur og ég á miðjum aldri. Tók-
ust strax með okkur náin kynni
sem urðu mér í mörgum greinum
mikils virði. Hafði hann stundum
í flimtingum að fátítt væri að svo
rosknir menn yrðu hvor öðrum
jafnnákomnir. Kynnin hófust
með því að við vorum kosnir í
stjórn Rithöfundafélags íslands
vorið 1971 og áttum þar bæði far-
sælt samstarf og ótaldar gleði-
stundir í hópi góðra vina. Ási var
jafnan hrókur fagnaðar þarsem
hann kom við sögu og smitaði út-
frá sér, þannig að deyfð og drungi
hörfuðu umsvifalaust fyrir lífs-
orku hans, orðheppni og söng-
gleði. Gítarinn var oftar en ekki
tiltækur og vinsælir söngvar
trúbadúrsins settu mjög svip á
slík samkvæmi.
Þegar Rithöfundasamband ís-
lands hið nýja var stofnað vorið
1974, varð Ási í Bæ fyrsti starfs-
maður þess og vann brautryðj-
andastarf við að útvega því sama-
stað og skipuleggja framtíðar-
verkefni sem nú eru löngu komin
í fastar skorður. Stéttarsamtök
rithöfunda eiga honum þannig
skuld að gjalda fyrir ötulan
stuðning fyrstu erfiðu árin og
margháttaða liðveislu við sam-
einingu sundurleitra afla. Ási var
formaður nefndarinnar sem
undirbjó kynningardagskrána
„Kyssti mig sól“ á verkum Guð-
mundar Böðvarssonar og efndi til
FERÐAVASABOK
FJÖLVÍS 1985
Við höfum meira en 30 ára reynslu í
útgáfu vasabóka, og sú reynsla kemur
viðskiptavinum okkar að sjálfsögðu til
góða. Og okkur hefur tekist einkar vel
með nýju Ferðavasabókina okkar og
erum stoltir af henni. Þar er að finna
ótrúlega fjölbreyttar upplýsingar, sem
koma ferðafólki að ómetanlegu gagni
jafnt heima sem erlendis.
Meðal efnis t.d.: 40 íslandskort - Kort
af öllum hringveginum - Heimshluta-
kort - Sendiráð og ræðismannaskrif-
stofur um allan heim - Ferðadagbók -
Ferðabókhald - Öryggiskort - Gjald-
eyristöflur - Kaupstaðakort - Evrópu-
vegirnir - Neyðar- og viðgerðaþjón-
usta - Vegalengdatöflur - Bandaríska
hraðbrautakerfið - o.m.fl. sem of langt
er upp að telja.
OMISSANDI I
FERÐALAGIÐ!
uppboðs á verkum sem mynd-
listarmenn höfðu fært Rithöf-
undasambandinu að gjöf, en and-
virði þess rann til lagfæringar á
húsi Guðmundar Böðvarssonar í
Borgarfirði, sem verið hefur at-
hvarf fjölda rithöfunda um lengri
eða skemmri tíma undanfarinn
áratug.
Þó heilnæmt væri og hressandi
að hafa Ása sér við hlið í misjafn-
lega frjóum stjórnarstörfum, þá
voru það persónulegu samskiptin
sem mörkuðu dýpst spor. Ási var
hreinn og beinn í öllu sínu dag-
fari, hégómalaus og óbanginn við
að halda fram skoðunum sínum
og hugðarmálum. Fróðlegast var
að rabba við hann um bók-
menntir, því hann var víðlesinn
og gagnrýninn á það sem hann
las, þráttfyrir tiltölulega litla
formlega menntun. Hann var
sjálfmenntaður í besta skilningi
þess orðs, hafði mótaðar skoðan-
ir á efnum sem honum voru hug-
leikin og kom gjarna að hlutun-
um úr óvæntri átt, þannig að
maður sá þá í alnýju ljósi. Hann
var óvenjulega næmur á ritað
mál, hvort heldur var bundið eða
óbundið, gæddur einkennilegu
innsæi sem stundum minnti á
galdur, enda kominn af frægum
galdramönnum. Þótti mér ein-
lægt sem honum væri flestum
fremur gefið að nema hinn hreina
tón, greina kjarnann frá hisminu,
enda var hverskyns tilgerð og
sýndarmennska eitur í hans
beinum.
Sögumaður var Ási meiri og
betri en almennt gerist og unun
að hlusta á hann segja frá, ekki
síst þegar talið barst að heima-
slóð hans í Vestmannaeyjum, ör-
lögum forfeðranna þar og upp-
vexti hans sjálfs. Er mikill skaði
að honum skyldi ekki endast
aldur til að semja þá hina miklu
sögu um Vestmannaeyjar, sem
hann hafði árum saman dreymt
um að færa í letur. Af sundur-
lausum brotum, sem vinir hans
fengu að heyra þegar vel lá á hon-
um, mátti ráða að það hefði orðið
hetjusaga einsog þær gerast ris-
mestar.
Ási í Bæ var ungur í anda
framá efstu ár, gæddur hrifnæmi
æskumannsins og hæfileikanum
til að njóta líðandi stundar án
umhugsunar um kvaðir morgun-
dagsins. Sagði þar til sín
keltneskur uppruni hans, og hef
ég fáa íslendinga fyrirhitt írskari
að eðli og upplagi. Ási var sérlega
barnelskur maður og hændi
ósjálfrátt að sér börn og ung-
linga. Er mér ekki grunlaust um
að sviplegt fráfall ástkærs sonar
hans, Eyjólfs, hafi gengið nær
honum en virðast mátti við fyrstu
sýn og kannski átt þátt í áfallinu
sem leiddi til ótímabærs aldurtila.
Synir mínir tveir fengu ungir
mikið dálæti á Ása í Bæ og voru
ævinlega upptendraðir þegar
hann bar að garði á Felli eða þeir
hittu hann á förnum vegi í
Reykjavík. Sakna þeir nú vinar í
stað einsog allir sem áttu því láni
að fagna að eiga með honum
samleið, þó um stuttan veg væri.
Ég kveð kæran vin með trega í
sárri vitund þess að hafa látið
annir og amstur dægranna hin
seinni ár hamla því að vináttan
væri rækt af sömu alúð og fyrstu
árin eftirað við kynntumst. Sú
kennd er að vísu ekki tengd Ása
einum og verður því áleitnari sem
árin færast yfir og fleiri góðir vinir
kveðja jarðvistina.
Ég votta eftirlifandi konu Ása í
Bæ, Friðmey, börnum hans
þremur, tengdadóttur og barna-
börnum dýpstu samúð við fráfall
ógleymanlegs manns. Það er fá-
tækleg huggun að hann lifi sterku
og frjóu lífi í minningu allra sem
þekktu hann, en með þeim orð-
um leyfi ég mér samt að ljúka
þessari kveðju.
Sigurður A. Magnússon.
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og aö undan-
gengnum úrskuröi veröa lögtök látin fram fara án frek-
ari fyrirvara á kostnaö gjaldenda, en ábyrgö ríkissjóðs,
að átta dögum liönum frá birtingu auglýsingar þessar-
ar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Söluskatti fyrir jan., febr. og mars 1985, svo og sölu-
skattshækkunum, álögðum 7. jan 1985-2. maí 1985;
vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir jan., febr. og
mars 1985 og mælagjaldi af dísilbifreiðum, gjaldföllnu
11. febr. 1985.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
2. maí 1985.
Menntamálaráðuneytið auglýsir hér með lausar til
umsóknar námsstjórastöður á grunnskólastigi í:
Stærðfræði, heil staða, laus strax,
íslensku, heil staða, laus 1 sept.
samfélagsgreinum, heil staða, laus 1. sept.
Áskilin eru kennsluréttindi og kennslureynsla svo og
fagleg og kennslufræðileg þekking á viðkomandi
sviði.
Umsóknarfrestur er til 27. maí 1985. Umsóknum sé
skilað til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 4,
101 Reykjavík. Nánari upplýsingar eru veittar í síma
26866 og 25000.
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar
stöðu fulltrúa í skólaþróunardeild.
Vélritunarkunnátta eða reynsla af ritvinnslu áskilin.
Reynsla af bókhaldi, afgreiðslu reikninga og almennri
skrifstofuvinnu æskileg.
Umsóknarfrestur er til 27. maí 1985.
Umsóknum sé skilað til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 4, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 26866 eða 25000.