Þjóðviljinn - 09.05.1985, Síða 10

Þjóðviljinn - 09.05.1985, Síða 10
GARÐAR OG GRÓÐUR GARDENA gerir garðinn frœgan Nú er tími garðrœktar og voranna í GARÐHORNINU hjó okkur kennir margra grasa Allskonar slöngutengi, úðarar, slöngur, slöngustativ, slönguvagnar. Margvísleg garðyrkjuóhöld, þar sem m.a. að einu skafti fellur fjöldi áhalda.Kant- og limgerðisklippur, rafknúnar handsláttuvélar Skóflur - Gafflar - Hrífur. í garðs horninu hjá okkur kennir margra grasa. Lítið inn. Gunnar Ásgeirsson taf. StJÖurlandsbraut 16 Sími 91352ÖÖ Akurvík. Akurevri ÚRYAL AF GARÐHÚSGÖGNUM 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN1 Fimmtudagur 9. maí 1985 « i Ódýru, vinsælu furuhúsgögnin komin í miklu úrvali SEGLAGERÐIN ÆGIR hf. Eyjargötu 7, Reýkjavík - Pósthólf Ó59 Símar 14093 - 13320 - Heimasími 34511 Þannig lítur dúkurinn út frá sjónarhóli salatsins. Laufléttur og eins og gatasigti en einangrar samt vel! Nýtt undraefni Garðadúkur úr trefjum Það veitir svo sannarlega ekki af því að reyna að lengja íslenska sumarið í annan hvorn endann eða báða, þegar grænmetis- eða kartöflurækt- unin er annars vegar. Allir garðeigendur þekkja gamla góða garðaplastið sem enn stendur fyrir sínu. Trúlega verður það þó sjaldgæfari sjón á næstu árum, því komið er á markaðinn nýtt undraefni, „Akryl P-17“ dúkur sem hefur marga kosti umfram plastið þar sem hann „andar“, þe. hleypir í gegnum sig bæði lofti og raka. Akryl P-17 fæst hjá Sölufélagi garðyrkjumanna og er lítið dýr- ara en garðaplastið. Það fæst í þremur breiddum, 2,20,4 og 6,50 metrum. Dúkurinn er líkari tusku en pappír eða plasti. Hann er gerður úr ótal trefjaþráðum og er gegndreypur. Þar með tryggir hann jöfn loftskipti og rakaskipti sem er mjög mikilvægt fyrir ungplöntur. Dúkurinn var reyndur víða um land í fyrra og þótti alls staðar gefa góða raun við gulrótar- og kartöflurækt sem og kálrækt. Dúkurinn er hvítleitur og hleypir um 75% ljóssins í gegn. Hann er mjög léttur, aðeins 17 grömm hver fermetri, sem þýðir að plantan lyftir honum auðveld- lega um leið og hún vex. Hann slæst heldur ekki til í vindi en slátturinn í plastinu brýtur oft viðkvæma stilkana. Og síðast en ekki síst: hann má auðvitað nota aftur og aftur. Akryl-dúkurinn er lagður yfir beðin og þess gætt að hafa góðan slaka á honum, þannig að plantan nái að lyfta honum upp. Jaðrarnir eru festir niður með steinvölum. Dúkurinn er svo tekinn af nokkr- um vikum fyrir uppskeru, en það þarf að gerast að kvöldi til og í kyrru veðri, svo plönturnar þorni ekki af skyndilegri sól og vindi. Þegar haustar og hætta verður á næturfrosti er dúkurinn aftur tek- inn fram og honum einfaldlega hent lausum yfir beðin. Hann kemur í veg fyrir hitatap frá jörð- inni og hlífir plöntunum þannig fyrir 3-4ra gráða frosti. Það þýðir trúlega hálfsmánaðar vaxtartíma í viðbót fyrir kartöflurnar og veitir áreiðanlega ekki af. Frostnóttum hér syðra a.m.k. fylgir oftast logn og því er lítil hætta á að dúkurinn fjúki út í buskann þó hann sé lagður yfir grösin. Hann er síðan látinn þorna, brotinn saman og geymdur fram á næsta vor! - ÁI. Þessi danski bóndi plantar salatinu í apríl og ver það gegn næturfrosti með garðadúknum... ... f júní eru salatplönturnar orðnar bústnar og sællegar enda hefur þeim liðið vel undir dúknum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.