Þjóðviljinn - 09.05.1985, Blaðsíða 16
r
GARÐAR OG GRÓÐUR
GARÐYRKJUYERKFÆRIN
FÆRÐU HJÁ OKKUR
Garðhrífan er áhrifarík gegn mosanum. Ljósm. Valdís.
VONDUÐ
VARA
ÁGÓÐU
VERÐI
VEGGFOÐRARIHN - MALNIHG & JARNVORUR
Síðumúla 4, símar 687171 og 687272
BURT MEÐ
MOSANN!
Eftir tvö undanfarin rigning-
arsumur hér suðvestanlands
eru grasfiatirnar víða orðnar
ein mosaþemba. Og þá eru
Garðyrkjuáhöld
Trjáklippur
Garöhrífur
Skóflur
og ýmis smátæki
Girðingarefni:
Lóöanet
Túngiröingarnet
Skrautnet
Gaddavír
Girðingarstaurar
AGRYL - P 17 verndardúkur
gulrætur undir dúk - gulrætur án dúks
góð ráð dýr. Ef vatn stendur í
lóðinni er nauðsynlegt að
ræsa hana fram með til-
heyrandi skurðgreftri og dren-
lögn en áður en farið er í slíkar
stórframkvæmdir er best að
athuga hvort hin þjóðráðin
duga ekki:
Mosinn nær sér á strik af því
umgengni um flötina er lítil, af
því rakinn er mikill og af því
jarðvegurinn er í súrara lagi.
Samkvæmt þessu eru ráðin ein-
föld: Átroðningur, þurrkur og
kalk! Sumir mæla með því að fá
eins og eitt fótboltalið í heimsókn
eina kvöldstund, en þá getur nú
reyndar ýmislegt annað látið
undan en mosinn. Og þar sem
ekki er á þurrkinn að treysta hér
sunnanlands er aðeins eitt ráð
eftir: Árás á mosann!
Hún er framkvæmd með hjálp
garðhrífunnar sem tætir hann og
rífur alveg niður í mold. Þar á
ofan kemur góð áburðarblanda
eða kalk og loks nokkurra senti-
metra þykkt sandlag yfir blettinn.
Aðalatriðið er svo að slá ekki of
snöggt, heldur leyfa grasinu að
spretta aðeins og kæfa mosann.
Sumir blanda járnsúlfati saman
við sandinn og drepa mosann
þannig en afraksturinn verður
gjarnan eitt moldarflag og þá er
sumarið hálfnað! Sem sagt:
Garðhrífa, áburður og sandur! Ef
það dugir ekki er ástæðunnar trú-
lega að leita í lélegri framræslu
eða of miklum skugga frá trjám
eða húsum og best að snúa sér að
ræktun vatnaplantna eða burkna!
s/s
...OG ARFANN
Vinna sem borgar sig: Svart plast
og krossskurður fyrir plöntunum.
Svart garðaplast er ágætt til að
spara garðeigandanum vinnu við
að reyta arfa í löngum og mörg-
um kartöflubeðum.
Plastið er strekkt vel yfir beðin
og þegar kartöflugrasið eða aðrar
þær plöntur sem til er sáð, fara að
þrýsta á það er skorinn kross fyrir
þeim. Undir svörtu plasti verður
hitinn allt að 5 gráðum meiri en
undir glæru plasti og vöxtur græn-
metisins því góður. Helsti kostur
þess í margra augum er þó sá að
arfakálið fær enga birtu og deyr
því drottni sínum. Plastið er tekið
um leið og tekið er upp úr garðin-
um.
HERAZ
Göngu- og innkeyrsluhlið
'f' »..
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVfKUR
LAUGAVEGI 164, 105 REYKJAVÍK
SÍMI 11125 * 24355- 24339
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. maí 1985