Þjóðviljinn - 09.05.1985, Side 17

Þjóðviljinn - 09.05.1985, Side 17
GARÐAR OG GRÓÐUR Gömul og góð tré eiga fullan rétt á sér Þó íslenska sumarið sé stutt og kalt, þrífst og sprettur ýmislegt í görðum landsins. Sumir garð- eigendur eiga við það vandamál að glíma að í görðum þeirra eru risastór tré sem skyggja á sólina og valda hálfrökkri í húsum inni allt árið um kring. En það er ekki bara að taka sér öxi í hönd og höggva ófétið. Samkvæmt upp- lýsingum garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar eru í bygg- ingarsamþykkt ákvæði um það að tré sem eru 40 ára gömul og yfír 4 metra á hæð má ekki fella nema með sérstöku leyfi. Þeir sem endilega vilja losna viö trén verða aö tala við bygg- ingarfulltrúa síns bæjarfélags. Hús og lóð eru einn eignarhluti og falla bæði undir byggingar- samþykkt. Garðyrkjustjóri eða garðyrkjumenn eru síðan fengnir til að líta á ástandið, vega það og meta. Þeir gefa úrskurð sem byggingarfulltrúar fara oftast eftir. Síðan er það hvers og eins að ákveða hvernig að verður staðið ef leyfi fæst fyrir niðurfell- ingu. Falleg tré Með þessu ákvæði í bygging- arsamþykkt er verið að hindra að fólk felli tré sem setja svip á borg eða bæjarhluta, gera umhverfið gróskulegra. Einkum þegar um er að ræða falleg tré sem eiga fyrir sér langa ævi. Þá er og verið að hamla gegn því að gengið sé á trjástofna. Þeim trjám sem eru farin að syngja sitt síðasta vegna aldurs er sjaldan hlíft - það vill enginn hafa morkna lurka í garð- inum hjá sér. Eins eru til dæmi um það að tré standi svo þétt að þau sem eru talin lítils virði hamli eðlilegum vexti fallegra trjáa svo sem eins og hlyns. Þá taldi garð- yrkjustjóri það vera útí hött að á litlum lóðum yxi stór skógur t.d. grenitrjáa. Sumsé aðstæður á hverjum stað skera úr um hvort samþykki fæst eða neitun. Menn ættu að geta verið sammála um að falleg tré eins og hlynur, álmur eða reynitré, sem enn eiga mörg ár eftir ólifuð, lífga upp á umhverfi sitt og gera það búsældarlegra eiga sinn tilverurétt. - aró. SigríðurHjartarvaraformaðurGarðyrkjufélagsíslands:Þaðersitthvaðsemvið störfum að. Ljósm.-E.ÓI. Garðyrkjufélag íslands 100 ára Félagsskapur áhugamanna um garðrækt, leikra sem lærðra Áhugasvið okkar félags spann- ar yfir bæði matjurta- og skrúð- garðarækt, sagði Sigríður Hjart- ar, varaformaður Garðyrkjufé- lags íslands. Félagið verður 100 ára 26. maí næstkomandi og í til- efni afmælisársins verður starf- semin efld til muna. Það eru ckki mörg félög sem ná svona háum aldri. Garðyrkjufélagið er félags- skapur allra áhugamanna um garðrækt bæði lærðra og leikra. Félagsmenn eru um 6 þúsund svo þetta eru ekki bara ófáir sér- vitringar sem í félaginu eru. Við erum með 16 deildir út um allt land og starfsemin víðast hvar mjög blómleg núna enda er það meiningin að afmælið sé haldið hátíðlegt ekki bara í Reykjavík heldur líka út um allt land. Sjálfboðavinna Við gefum út ársrit sem hefur komið út nokkurn veginn sam- fleytt frá 1920. í ár verður ritið um 300 síður og prýtt fjölda ljós- mynda bæði í lit og svart/hvítu. Það eru margir sem skrifa í ritið bæði fræðilegar og léttar greinar. Þá eru í ritinu ýmsar gamansögur úr garðyrkjunni, við fáum og les- endabréf sem við svörum. Rit- stjóri er Ólafur Björn Guð- mundsson en auk hans sitja 2 menn aðrir í ritnefnd. Allt starf í sambandi við útgáfuna er unnið í sjálfboðavinnu og þeir sem senda okkur greinar eru allt áhuga- menn og þiggja ekki laun fyrir. Félagið heldur fræðslufundi um það bil 4 sinnum á ári. Efni fundanna er mjög breytilegt, yfir- leitt allt það sem viðvíkur garð- yrkju svo sem eins og klippingar á trjám, varnir gegn skordýrum, al- mennt skipulag, tilraunastarf- semi með nýjar plöntur og svo ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 mætti lengi telja. í Reykjavík hafa verið haldnir 3 fræðslufundir nú þegar, fundir verða í haust og á hvítasunnudag 26. maí verður afmælisfundur á Hótel Sögu. Þá fara félagsmenn í árvissa blómaskoðun. Einhverja helgi um miðjan júlí verður farið í sumargarðaskoðun. Þá opna nokkrir félagsmenn garða sína og sýna öðrum hvað þeir hafa verið að fást við. Einnig verður farið í vorgarðaskoðun í fyrsta skipti. Okkur dreymir um að Reykja- víkurdeildin fari í skoðunarferð í nágrannabyggðirnar og það er líka draumur að halda blómasýn- ingu þar sem félagsmenn sýna það sem hver og einn er að dunda við í sínu horni. Garðurinn Við gefum út fréttablaðið „Garðurinn" 4 til 8 sinnum á ári eftir efnum og ástæðum. Þar í eru tilkynningar um fundi og ýmiss konar fréttir sem félagið vill koma til félagsmanna. í blaðinu eru líka listar yfir vor- og haust- lauka. Listinn er einkum ætlaður til þess að gefa fólki úti á landi tækifæri til að panta lauka sem erfitt er að nálgast á annan hátt. Við erum líka með fræskipti. Fólk safnar fræjum í görðum sín- um eða úti í haga og senda til félagsins. Listi yfir fræin er birtur í „Garðinum" og við sendum fræ til þeirra sem panta. Við fáum líka alltaf smáfræ úr erlendum görðum. { Reykjavík erum við með skrifstofu á Amtmannsstíg 6 sem er opin mánudaga og fimmtudaga frá kl. 2 - 6 og 8 -10 á fimmtudagskvöldum. Þar höfum við komið upp bókasafni og vísi að myndasafni. Myndasafnið er sérstaklega hugsað fyrir deildirn- ar úti á landi. Við erum að vinna að því núna að auka fjölbreytnina í myndasafninu. Svo það er sitt- hvað sem við störfum að. - aró Fimm tegundir út- sæðis á markaðnum Má byrja að setja niður strax og frost er farið úr jörðu Það má byrja að setja niður kartöflur strax og frost er farið úr jörðu, sagði Gunnlaugur Björns- son, forstjóri Grænmetisverslun- ar landbúnaðarins. Við byrjuðum að selja útsæði um og fyrir páska. Á markaðnum eru 5 tegundir útsæðis. Við selj- um eingöngu útsæði frá stofnút- sæðisræktendum, þe. valið út- sæði ræktað undir eftirliti. Við höfum gert samning við 17 til 19 ræktendur í Eyjafirði og kaupum allt útsæði af þeim. Það skemm- dist útsæði í flutningum en up- skeran á síðasta ári var svo mikil að það hefur ekki komið að sök. Tegundirnar 5 eru rauðar, ís- lenskar, gullauga, helga, bintje og premiere sem er eina erlenda útsæðið. Það er sama verð á öllum tegundum og kílóið kostar 30 krónur í heildsölu. í ár höfum við tekið upp það nýmæli að selja 3>/2 kíló í kössum sem hægt er að nota líka til að láta spíra í. Þessir kassar kosta 130 krónur. Það er því fyrst og fremst smekksatriði hvaða tegund fólk kaupir. íslensku tegundirnar eru seinsprottnar en í góðu ári og við svipuð skilyrði spretta þær allar jafnvel. Premiere er ívið fljót- þroskaðri en hinar tegundirnar, það tekur hana 70 til 75 daga á móti þeim ca. 90 sem eru sprettu- tími hinna. Að jafnaði er mest keypt af gullauga. Premiere er enn óþekkt meðal almennings enda ný á markaðnum. Við höfum enga hugmynd um hvað er keypt mikið af útsæði en uppskeran úr heimilis- og bak- görðum er talin samsvara árs- fjórðungsneyslu eða 20 til 30% af kartöfluneyslunni. - aró.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.