Þjóðviljinn - 09.05.1985, Qupperneq 18
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími: 11?00
Dafnis og Klói
í kvöld kl. 20,
sunnud. kl. 20.
Síðasta slnn.
Gæjar og píur
föstud. kl. 20.
2 sýnlngar eftlr
Kardemommubærinn
laugard. kl. 14,
sunnud. kl. 14.
3 syningar eftir.
íslandsklukkan
7. sýning laugard. kl. 20.
Litla sviðið:
Valborg og bekkurinn
ikvöld kl. 20.
sunnud. kl. 16.
Miöasala kl. 13.15-20.
Vekjum athygli á kvöldverði í
tengslum við sýningu á Valborgu
og bekknum.
Kvöldverður kl. 19-20.
Miöasalakl. 13.15-20.
Simar: 11475'
Leðurblakan
föstudag kl. 20,
laugardag kl. 20,
sunnudag kl. 20,
fimmtudag 16. maí kl. 20.
..Óhætt er aö segja aö íslenska
óperan hafi bætt einni skrautfjöður I
hatt sinn...”
Rögnvaldur Sigurjónsson,
Þjóðviljanum 1. maí.
Upplýsingar um hópafslátt í sima
27033 kl. 9-17.
Ath.: Miðar seldir meö 25% afslætti
2 timum fyrir sýningu.
Ath.: Aðelns 4 sýningarhelgar.
Miðasalaeropinfrákl. 14-19, nema
sýningardaga til kl. 20, simar 11475/
621077.
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Þriðjud. 14. mai kl. 12.15.
Söngvari:
Þorgeir J. Andrésson tenór
Pianóleikari:
Guðrún E. Kristinsdóttir
flytja lög eftir Arna Thorsteinsson,
Emil Thoroddsen, Jón Þórarinsson,
Þorstein Jónsson, Schubert,
Schumann og Mahler.
Miðasala við innganginn.
LEIKFÉLAG
REYKIAVlKUR
Simi: 16620
<*j<Þ
Draumur á
Jónsmessunótt
föstud. kl. 20.30,
sunnud. kl. 20.30.
Næst siðasta sinn.
Ástin sigrar
Höfundur:
Ólafur Haukur Simonarson,
leikmynd: Jón Þórisson,
lýsing: Daníel Williamsson,
leikstjóri:
Þórhallur Sigurðsson,
leikendur:
Ása Svavarsdóttir, Bríet
Héðinsdóttir, Gísli Halldórsson,
Helgi Björnsson, Jón Hjartarson,
Kjartan Bjargmundsson, Margrét
Ólafsdóttir, Steindór Hjörleifsson og
ValgerðurDan.
Frumsýning miðvikud. kl. 20.30,
2. sýning fimmtud. kl. 20.30.
Grá kort gilda.
Miðasala í Iðnó kl. 14-19.
NEMENDA
LEIKHÚSIÐ
If IKilSIAWSKOll iStANDS
LINDARBÆ sim. ?i<».-
Fugl sem flaug
á snúru
Eftir Nínu Björk Árnadóttur.
Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson.
Leikmynd: Grétar Reynisson.
Lýsing: Ólafur Thoroddsen.
I kvöld kl. 20.30.
3. sýn. laugard. 11. maí kl. 20.30.
4. sýn. þriðjud. kl. 20.30.
Miðasalan í Lindarbæ er opin frá
kl. 18-19, nema sýningardaga
kl. 18-20.30.
Miðapantanir allan sólarhringinn
f síma 21971.
5. SÝNINGARVIKA:
Skammdegi
Vönduð og spennandi ný íslensk
kvikmynd um hörð átök og dularfulla
atburði.
Aðalhlutverk: Ragnheiður Arnar-
dóttir, Eggert Þorleifsson, María
Sigurðardóttir, Hallmar Sigurðs-
son.
Leikstjóri: Þráinn Bertelsson.
„Rammi myndarinnar er stórkost-
legur, bæði umhverfið, árstíminn,
birtan. Maður hefur á tilfinningunni
að á slíkum afkima veraldar geti í
rauninni ýmislegt gerst á myrkum
skammdegisnóttum þegar tunglið
veður í skýjum. Hér skiptir kvik-
myndatakan og tónlistin ekki svo
litlu máli við að magna spennuna og
báðir þessir þættir eru ákaflega góð-
ir. Hljóöupptakan er einnig vönduð,
ein sú besta í íslenskri kvikmynd til
þessa, Dolbýið drynur... En það er
Eggert Þorleifsson sem er sfjarna
þessarar myndar... Hann fer á kost-
um í hlutverki bróðurins, svo unun er
að fylgjast með hverri hanshreyf-
ingu".
Snæbjörn Valdimarss.,
Mbl. 10. april.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Vígvellir
Stórkostleg og áhrifamikil stórmynd.
Myndin hiaut 3 óskarsverðlaun.
Aðalhlutverk: Sam Waterson, Ha-
Ing S. Ngor.
Leikstjóri: Roland Joffe.
Tónlist: Mike Oidfield.
Sýnd kl. 3, 6 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Hækkað verð.
Umsagnir blaða:
„Vígvellir er mynd um vináttu, að-
skilnað og endurfundi manna," „er
án vafa með sterkari stríðs- og
ádeilumyndum sem gerðar hafa
verið á seinni árum." „Ein besta
myndin i bænum."
Til móts
við gullskipið
Hin spennumagnaða ævintýra-
mynd, byggð á samnefndri sögu Ali-
stair MacLean, með Richard Harr-
is, Ann Turkel.
Islenskur texti.
Bönnuð innan 12 ára.
Endursýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05.
Leiðin til Indlands
Stórbrotin, spennandi og frábær að
efni, leik og stjórn, um ævintýralegt
ferðalag til Indlands, lands kyngi-
magnaðrar dulúðar. Byggð á mets-
ölubók eftir E.M. Forster, og gerð af.
David Lean, snillingnum sem gerði
„Doctor Zhivago", „Brúna yfir Kwai-'
fljótið", „Lawrence of Arabia" o.fl.
Aðalhlutverk: Peggy Ashcroft (úr
„Dýrasta djásnið"), Judy Davis,
Alec Guinness, James Fox, Victor
Benerjee. Leikstjóri: David Lean.
Islenskur texti.
Myndin er gerð í DOLBY STEREO.
Sýnd kl. 9.15.
CAL
„Áleitin, frábærlega vel gerð mynd
sem býður þessu endalausa ofbeldi
á Norður-lrlandi byrginn. Myndin
heldur athygli áhorfandans
óskiptri."
R.S. Time Magazine.
Leikstjóri: Pat O’Connor. Tónlist:
Mark Knopfler.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
48 stundir
Endursýnum þessa frábæru mynd í
nokkra daga.
Aðalhlutverk: Nick Nolte, Eddie
Murphy.
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og
11.10.
Hvítir mávar
Flunkuný íslensk skemmtimynd
með tónlistarivafi. Skemmtun fyrir
alla fjölskylduna, með Agli Ól-
afssyni, Ragnhildi Gísladóttur -
Tinnu Gunnlaugsdóttur.
Leikstjóri: Jakob F. Magnússon.
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 oq
11.15. y
KVIKMYNDAHUS
AIISTurbæjarríÍI
Simi: 11384
Salur 1
Frumsýning:
NJÓSNARAR
í BANASTUÐI
(Go for it)
Sprenghlægileg, og spennandi, ný,
bandarísk gamanmynd í litum.
Aðalhlutverk: Terence Hill, Bud
Spencer.
Ein skemmtilegasta mynd „Trin-
ity-bræðra”.
Isl. texti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Salur 2
Lögregluskólinn
(Police Academy)
Tvímælalaust skemmtilegasta og
frægasta gamanmynd, sem gerö
hefur verið. Mynd sem slegið hefur
öll gamanmyndaaðsóknarmet, þar
sem hún hefur verið sýnd. Aðalhlut-
verk: Steve Guttenberg, Kim Catt-
ral.
Mynd fyrir alla fjölskylduna.
Islenskur texti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hækkaö verð.
Salur 3
Leikur við dauðann
(Deliverance)
Höfum fengið aftur sýningarrétt á
þessari æsispennandi og frægu
stórmynd. Sagan hefur komið út í ísl.
þýðingu.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds, John
Voight.
Leikstjóri: John Boorman.
Isl. texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
WHBTÍHE RAVEN FLIES
- Hrafninn flýgur -
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 7.
TÓNABÍÓ
Simi: 31182
FRUMSÝNIR:
Auður og frægð
(Rich and Famous)
Víðfræg og snilldar vel gerð og leikin
ný, amerísk stórmynd í litum. Alveg
frá uþphafi vega, vissu þær að þær
yrðu vinkonur, uns yfir lyki. Það sem
þeim láðist að reikna með var allt
sem gerðist þar á milli. Aðalhlutverk:
Jacqpeline Bisset, Candice Berg-
en. Leikstjóri: George Cukor.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20.
Islenskur texti.
LAUGARÁS
B I O
Simsvari
32075
SALUR A
Klerkar í klípu
(Mass appeal)
Sumir gera allt til að vera elskaðir,
en það sæmir ekki presti að haga
sér eins og skemmtikraftur eða bar-
þjónn i stólnum. Er það rétt að segja
fólki það sem það vill heyra eða
hvíta lygi í staðinn fyrir nakinn sann-
leikann?
Ný þandarísk mynd með úrvalsleik-
urunum Jack Lemmon, Zeljko
Ivanek, Charles Durning og Lou-
ise Latham.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
SALUR B
16 ára
Stórskemmtileg mynd um stelpu
sem er að verða sextán ára en ekki
gengur henni samt allt í haginn.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
SALUR C
Conan
„The destroyer“
Hörkuspennandi ævintýramynd um
kraftajötuninn Conan.
Aðalhlutverk: Arnold Schwarzen-
egger og Grace Jones.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Simi: ^ V 18936
Saga hermanns
(Soldiers Story)
Stórbrotin og spennandi ný banda-
risk stórmynd, sem hlotið hefur
verðskuldaða athygli, var útnefnd til
3ja Óskarsverðlauna þar af sem
besta mynd ársins 1984.
Aðalhlutverk: Howard E. Rollins jr.,
Adolph Caesar.
Leikstjóri: Norman Jewison.
Tónlist: Herbie Hancock.
Handrit: Charles Fuller.
Sýnd i A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.
PÁSKAMYND 1985
í fylgsnum hjartans
Ný bandarlsk stórmynd, útnefnd til 7
Óskarsverðlauna. Sally Field sem
leikur aðalhlutverkið hlaut Óskars-
verðlaun fyrir leik sinn i þessari
mynd.
Aðalhlutverk: Sally Field, Lindsay
Crouse og Robert Benton (Kramer
vs. Kramer).
Sýnd kl. 7 og 9.
Hækkað verð.
Hið iila er menn gjöra
Hrikaleg, hörkusþennandi og vel
gerð kvikmynd meö harðjaxlinum
Charles Bronson í aðalhlutverki.
Myndin er gerð eftir sögu R. Lance
Hill, en höfundur byggir hana á
sannsögulegum atburöum.
Leikstjóri: J.Lee Thompson.
Sýnd i B-sal kl. 5 og 11.
Hækkað verð.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
TJALDIÐ
Nýja bió
Skammdegi
★★
Aðskiljanlegar náttúrur í Arnarlirði.
Eldfimur efniviður, en tundrið hefur
farið á tjá, spennumynd á að vera
spennandi. Leikarar moða vel úr
sínu og tekst stundum í samvinnu
við vestfirskt skammdegi að leggja
drög að vænni kvikmynd.
Austurbæjarbió
Lögregluskólinn
★★
Ágæt klisjugamanmynd. Aðallega
fimmaurar en finni húmor inná milli.
Tónabíó
Regnboginn
Cal
★★★
Irskur vandi dreginn skýrum drátt-
um. Aðeins i hægara lagi, en góður
leikur og merkileg frásögn bæta það
upp.
Ferðin til Indlands
★★★
Mikið i þetta lagt en heildin soldið
gruggug. Góður leikur og flottar
myndir.
Vígvellir
★★★
Stríð á að banna. Kvikmyndatöku-
maðurinn, klipparinn og mannkyns-
sagan eru hetju'r þessarar myndar.
Persónur og leikendur eru hinsveg-
ar full litlaust fólk til að komast í úr-
valsdeildina og þessvegna dofnar
yfir þegar hægir á atburðarás.
48 stundir
★★★
Prýðileg gamanmynd: Eddie fer á
kostum og Nick Nolte er engu síðri.
Hvítir mávar
★★
Sumir éta magurt, aðrir éta feitt;
sumir drekka of mikið, aðrir ekki
neitt. Allt er best i hófi...
Auður og frægð
★
Hér á að reyna að segja eitthvað um
samskipti og hlutskipti kvenna. Það
fer ósköp lítið fyrir þvi í undarlegri
síbylju sem maður skilur að lokum
ekkert til hvers þær Jacqueline og
Candice eru að berjast áfram í. Eða
þannig.
Stjörnubíó
Saga hermanns
★★★
Dágóð mynd að leik og allri gerð.
Klassískmorðgáta i óvenjulegu um-
hverfi. Ýmislegt sagt um svart og
hvltt.
í fylgsnum hjartans
★★
Sally leikur vel, viða fallegt um að
litast, óaðfinnanleg tækni. En við
höfum séð þetta nokkrum sinnum
áður.
Hið illa
★
Vondir menn fá fyrir ferðina. Ein-
staka o/beldissena sæmó, annars
ósköp slappt, sem bestsésta/þvfað
Charles Bronson erskársti leikarinn
/ myndinni.
Háskólabió
Löggan...
★★
Þessi mynd stendur og fellur með
aðalleikaranum. Húnstendur. Eddie
Murphy er stjarna af guðs náð.
Bíóhöllin
Næturklúbburinn
★★
Guðföðureftirlíking. Ekki alveg nógu
skemmtileg miðað við alla aðstand-
endur. Fínt handbragð.
2010
★★★
Þetta er ekki 2001 eftir Kubrick og
þeir sem halda það verða fyrir von-
brigðum. Til þess er þó engin
ástæða, 2010 er fín SF-mynd,
tæknibrellur smella saman utanum
handrit í ágætu meðallagi og leik
ofanvið rauða strikið.
Þrælfyndið fólk
★★
Hulduvélin suðar á dagleg viðbrögð:
barasta gaman.
Sagan endalausa
★★
Ævintýramynd fyrir tiu ára á öllum
aldri.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. maí 1985
Löggan
í Beverlv Hill
Ú/
I3EVERLYJHIU.S
Myndin sem beðið hefur verið eftir er
komin. Hver man ekki eftir Eddy
Murphy I 48 stundum og Trading
Places (Vistaskipt) þar sem hann sló
svo eftirminnilega í gegn? En í þess-
ari mynd bætir hann um betur.
Löggan (Eddy Murphy) í millihverf-
inu á í höggi við ótýnda glæpamenn.
Leikstjóri: Martin Brest. Aðalhlut-
verk: Eddy Murphy, Judge
Reinhold, John Ashton.
Myndin er í Dolby stereo.
Sýnd kl. 5 og 11.
Bönnuö innan 12 ára.
Tónleikar kl. 20.30.
'böpBT
holuw
Simi: 78900
Salur 1
Dásamlegir kroppar
(Heavenly Bodies)
Splunkuný og þrælfjörug dans- og
skemmtimynd um ungar stúlkur
sem setja á staö heilsuræktar-
stöðina Heavenly Bodies og sér-
hæfa sig í Aerobics þrekdansi. Þær
berjast hatrammri baráttu í mikilli
samkeppni sem endar með mara-
þon einvigi.
Ttillag myndarinnar er hið vinsæla
The Beast In Me.
Tónlist flutt af: Bonnie Pointer,
Sparks, The Dazz Band.
Aerobics fer nú sem eldur f sinu
um allan heim.
Aðalhlutverk: Cynthia Dale, Ric-
hard Rebiere, Laura Henry, Walt-
er G. Alton.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hækkað verð.
Myndin er í Dolby Stereo og sýnd í
Starscope.
Salur 2
Næturklúbburinn
(The Cotton Club)
Splunkuný og frábærlega vel gerð
og leikin stórmynd sem skeður á
bannárunum í Bandaríkjunum. The
Cotton Club er ein dýrasta mynd
sem gerð hefur verið enda var ekk-
ert til sparaö við gerð hennar. Þeim
félögum Coppola og Evans hefur
svo sannarlega tekist vel upp aftur,
en þeir gerðu myndina The Godfat-
her. Myndin verður frumsýnd í
London 2. maí n.k.
Aðalhlutverk: Richard Gere, Greg-
ory Hines, Diane Lane, Bob Hosk-
ins.
Leikstjóri: Francis Ford Coppola.
Framleiðandi: Robert Evans.
Handrit eftir: Mario Puzo, William
Kennedy, Francis Coppola.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Myndin er í Dolby Sterio og sýnd í
Starscope.
Salur 3
2010
Splunkuný og stórkostleg ævintýra-
mynd full af tæknibrellum og
spennu.
Aðalhlutverk: Roy Schneider,
John Lithgow, Helen Mireen, Keir
Duella.
Tæknibrellur: Richard Edlund
(Ghostbusters, Star Wars).
Byggð á sögu eftir: Arthur C.
Clarke.
Leikstjóri: Peter Hyams.
Dolby stereo og sýnd f 4ra rása
starscope.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hækkað verð.
Salur 4
Sagan endalausa
Sýnd kl. 5.
Þrælfyndið fólk
Sýnd kl. 7.
Einu sinni var
í Ameríku
(Once upon a time
in America)
Sýnd kl. 9.