Þjóðviljinn - 09.05.1985, Síða 23
ÍÞRÓTT1R
England
Metjöfnun
hjá Everton
Mountfield með tvö gegn West Ham
Framarar áttu sigursveitioa í flokkasvigi á Mullersmótinu sem fram fór fyrir skömmu. Þeim voru afhent
sigurlaunin við hátíotega athöfn í bækistöðvum Skíðafélags Reykjavíkur að Amtmannsstíg 2 og tók E.ÓI. þá
þessa mynd af sigursveitinni. Hana skipuðu, frá vinstri, Eiríkur Haraldsson, Guðmundur Gunnlaugsson
þjálfari, Þorvaldur Sigurðsson og Guðjón Þ. Gunnarsson. Á myndina vantar Sigurð Jónsson og Hafþór
Júlíusson.
Everton fékk afhentan sigur-
skjöld ensku deildarkeppninn-
ar fyrir leik sinn gegn West
Ham í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar í gærkvöldi. Þrátt
fyrir að meistaratitillinn sé
þegar í höfn hjá þessu sterka
liði sýndi það fallbaráttuliði
West Ham enga miskunn og
sigraði 3-0. Þar með hefur Ev-
erton jafnað stigamet Liver-
pool í 1. deild, 87 stig, og á enn
fjóra leiki eftir.
Andy Gray og Derek Mount-
fieid skölluðu inn sínu markinu
hvor í fyrri hálfleik en leikurinn
var alls ekki ójafn - West Ham
fékk fimm mjög góð færi í hálf-
leiknum. Rétt fyrir leikslok
skoraði svo varnarmaðurinn
Frakkland
Bordeaux
öruggt
Bordeaux er öruggt með
meistaratitilinn í knattspyrnu
eftir 3-2 sigur á Strasbourg í fyrra-
kvöld. Á meðan gerði Nantes
jafntefli við Toulouse á heima-
velli, 2-2. Þegar þjár umferðir eru
eftir er Bordeaux með 56 stig en
Nantes 50 en markatala Borde-
aux gerir það að verkum að sigur-
inn er í höfn að öllu leyti nema
tölfræðilega.
-VS
Knattspyrna
Stóri bikar-
inn til ÍK
ÍK tryggði sér sigur í Stóru
bikarkeppninni í knattspyrnu í
fyrrakvöld með því að sigra Sel-
foss 3-1. Áður hafði Kópavog-
sliðið sigrað Víði Garði 3-1 og
gert markalaust jafntefli við
Aftureldingu og fékk því 5 stig.
Víðir vann Selfoss 6-2 og Aftur-
eldingu 4-2 og hlaut 4 stig, Selfoss
vann Aftureldingu 5-2 og fékk 2
stig en Afturelding rak lestina
með 1 stig.
Frjálsar
Karate
Ami tíundi á
Evrópumeistaramótinu
ísland með í fyrsta sinn. Tekið inní EKU
Árni Einarsson náði 10. sæti í
kata-seifa á Evrópumeistaramót-
inu í karate sem fram fór í Osló
um síðustu helgi. Keppendur í
greininni voru 27 og komst Árni
fyrst í 16 manna úrslit og var síð-
an aðeins 0,2 stigum frá því að
komast í 8 manna úrslit. Atli Er-
lendsson keppti í sömu grein og
varð í 18. sæti.
Árni og Atli kepptu einnig í
kumite, en féllu út í 1. umferð.
Árni tapaði 1:2 fyrir ítalanum Al-
bieri og Atli 1:6 fyrir Frakkanum
Valle sem síðan hlaut bronsverð-
launin.
Ævar Þorsteinsson keppti líka í
kumite. í opna flokknum mætti
hann sterkasta manni Norð-
manna, Arild Engh, og tapaði
4:3. Norskur dómari í þeirri
viðureign var Ævari mjög óhag-
stæður. í þyngdarflokki tapaði
Ævar fyrir Italanum Guazzaroni í
1. umferð en sá fékk síðan brons-
ið.
Jónína Olesen keppti í kata
kvenna og komst ekki í úrslit.
Landsliðsþjálfari íslands,
Olafur Wallevik, vakti talsverða
athygli í sérstöku sýningaratriði
þar sem hann var í aðalhlutverki.
Spánverjar náðu bestum ár-
angri á mótinu og áttu 4 af 11
Evrópumeisturunum en 18 þjóð-
ir tóku þátt. Norðmenn og Svíar
áttu einn Evrópumeistara hvorir
en Finnar og Danir náðu svipuð-
um árangri og íslendingar.
Þetta er í fyrsta sinn sem ísland
á keppendur á Evrópu-
meistaramóti. Þing Evrópusam-
bands karatemanna, EKU, var
haldið á meðan mótið stóð yfir og
þar hlaut ísland inngöngu í sam-
bandið. Ekki er hægt að segja
annað en þessi frumraun okkar
manna á Evrópumeistaramóti
hafi tekist bærilega og hún sýnir
að íslendingar ættu að geta náð
langt á alþjóðamótum í þessari
íþróttagrein í framtíðinni.
- VS
Mountfield aftur, hans 14. mark í
vetur, og rétt á eftir lét hann sig
ekki muna um að bjarga á eigin
marklínu frá Paul Goddard.
Chelsea á möguleika á sæti í
UEFA-bikarnum eftir 2-0 sigur á
Luton. Chelsea er í 7. sæti 1.
deildarinnar. Millwall vann Bor-
unemouth 2-1 á útivelli í 3. deild
og þarf aðeins eitt stig úr síðustu
tveimur lgikjunum til að tryggja
sér 2. deildarsæti. - VS
Danmörk
Simonsen
frábær
Danir unnu stórsigur á Austur-
Þjóðverjum, 4-1, í vináttulands-
leik í knattspyrnu á Idrætsparken
í Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Danska liðið undirbýr sig af
kappi fyrir HM-leikinn gegn So-
vétmönnum þann 5. júní. Beðið
var með eftirvæntingu eftir
frammistöðunni gegn A.Þjóð-
verjum þar sem þeir leika svipaða
knattspyrnu og Sovétmenn.
Danir tóku fljótlega öll völd og
léku á als oddi. Michael Laudrup
skoraði á 7. mínútu eftir glæsi-
legan undirbúning Allans Sim-
onsen og snemma í seinni hálfleik
skoraði hann aftur, glæsimark
með skalla eftir fyrirgjöf Jespers
Olsen. John Lauridsen, með fal-
legu langskoti, og Klaus Bergg-
ren bættu við mörkum - Danir
óðu í færum en A.Þjóðverjar áttu
lokaorðið í leiknum. Snillingur-
inn Simonsen lék þarna sinn 50.
landsleik og sýndi oft glæsileg til-
þrif.
Knattspyrna
Grasið er grænt í Eyjum
Vormót ÍR
eftir viku
Hið árlega vormót ÍR í frjáls-
um íþróttum fer fram á frjálsí-
þróttavellinum í Laugardal á
fímmtudaginn kemur, uppstign-
ingardag, 16. maí. Keppni hefst
kl. 14.
Keppt verður í 100 m hlaupi, 400 m
hlaupi, 3000 m hlaupi (Kaldalsh-
laupið), 110 m grind, 4x100 m boð-
hlaupi, hástökki, stangarstökki,
spjótkasti og kringlukasti í karla-
flokki og í 400 m hlaupi, 800 m hlaupi,
4x100 m hlaupi, langstökki og
kringlukasti í kvennaflokki og í 100 m
hlaupi í meyjaflokki.
Skráningar þurfa að berast í síðasta
lagi föstudaginn 10. maí til Jóhanns
Björgvinssonar, Unufelli 33, á þar til
gerðum spjöldum. Þátttökugjald er
kr. 100 á grein en kr. 200 fyrir boð-
hlaupssveit.
Aðstæður hjá knattspyrnu-
mönnum í Vestmannaeyjum eru
orðnar eins og best verður á kos-
ið. Grasvellirnir í Eyjum eru til-
búnir til notkunar og 2. deildarlið
ÍBV er þegar byrjað að æfa á
grasi og fyrsti æfingarleikurinn
við slíkar aðstæður verður vænt-
anlega um næstu helgi. Tryggt er
að fyrsti heimaleikur ÍBV í 2.
deild, gegn Breiðabliki 19. maí,
verði leikinn á grasi.
- JR/Eyjum
Samningur
Víðir og
Lýsi hf.
Knattspyrnufclagið Víðir úr
Garði sem leikur í fyrsta sinn í 1.
deildinni í knattspyrnu í sumar
hefur gert auglýsingasamning tii
eins árs við Lýsi hf.
Víðir mun heimila Lýsi hf. að
kynna fyrirtækið og framleiðslu-
vörur þess í starfsemi Víðis eins
og best verður við komið.
Nýir félagsbúningar Víðis hafa
þegar fengið merki Lýsis hf. en
samningurinn var kynntur og
undirritaður þann 25. apríl sl.
Knattspyrna
Real öruggt með
UEFA-bikarinn
3-0 í Ungverjalandi. Fyrstifrá 1966.
Real Madrid er öruggt með
sinn fyrsta sigur í Evrópukeppni í
19 ár eftir yfírburðasigur, 3-0,
gegn Videoton í Ungverjalandi i
gærkvöldi. Þetta var fyrri leikur
liðanna i úrslitum UEFA-
bikarsins í knattspyrnu og síðari
leikurinn, sem fer fram í Madrid,
er nú nánast formsatriði.
Það var Miguel sem skoraði
fyrsta mark leiksins og hinn gam-
alreyndi Santillana skallaði síðan
lagleg't í mark Ungverjanna.
Valdano hefur svo líklegt tryggt
Real UEFA-bikarinn með þriðja
markinu, tveimur mínútum fyrir
leikslok.
- VS
Knattspyrna
Fimmtán dæma í 1. deild
Magnús byrjar á KR-vellinum á mánudagskvöldið
Fimmtán dómarar munu dæma
leiki 1. deildarkeppninnar í
knattspyrnu í sumar. Alls eru
leiknir 90 leikir í deildinni og þeir
munu því dæma sex leiki hver.
Magnús Theódórsson mætir
fyrstur til starfa, hann dæmir leik
KR og Þróttar á mánudagskvöld-
ið en línudómarar (nýja heitið)
verða Friðjón Eðvarðsson og
Ragnar Örn Pétursson.
Fimmtánmenningarnir eru
eftirtaldir:
Baldur Scheving, Fram
Eyjólfur Ólafsson, Víkingi
Eysteinn Guðmundsson, Þrótti
Friðgeir Hallgrímsson, KR
Friðjón Eðvarðsson, lA
Gísli Guðmundsson, Val
Guðmundur Haraldsson, KR
Kjartan Ólafsson, KR
Kjartan Tómasson, Þór A.
Magnús Theódórsson, Víkingi
Óli P. Ólsen, Þrótti
Ragnar Órn Pétursson, Val
Sveinn Sveinsson, Fram
Þorvarður Björnsson, Þrótti
Þóroddur Hjaltalín, Þór A.
Þeir Sveinn og Eyjólfur eru
nýir í A-hópnum en þeir stóðu sig
best í B-hópnum í fyrra. Dómar-
ar úr B-hópi taka einnig þátt í
dómgæslunni, sem línudómarar.
- VS
Valur-Próttur
Færður fram
Leik Vals og Þróttar í 1. deildinni í
knattspyrnu sem fara átti fram
laugardaginn 18. maí hefur verið flýtt
framá föstudagskvöldið 17. maí kl.
20. Þetta er vegna beinu útsendingar-
innar frá leik Everton og Manchester
United. Ekki er Ijóst hvort leikið verð-
ur að Hliðarenda eða á Valbjarnar-
velli.
Fímmtudagur 9. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23