Þjóðviljinn - 09.05.1985, Qupperneq 24
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
MÖDVIUINN
Fimmtudagur 9. maí 1985 103. tölublað 50. árgangur
Útvarpslögin
Fellur tillaga Friðriks?
Kratar buðu stuðning gegn ákveðnum skilyrðum. íhaldið: nei takk.
Framsókn hótar að stöðva afgreiðslu málsins í efri deild verði tillaga Friðriks samþykkt í dag
Menning
Sendiherra
þýðir Ijóð
Út er komin hjá Iceland Review
bókin Three Modern Icelandic Po-
ets og hefur að geyma enskar þýð-
ingar Marshalls Brement á Ijóð-
um eftir Stein Steinarr, Jón úr
Vör og Mattías Johanncscn. Þýð-
andi ritar einnig inngang.
Brement hefur í þrjú ár gegnt
störfum sendiherra Bandaríkj-
anna í Reykjavík, lagt stund á
íslensku þann tíma og lestur
góðra bóka. _ m
Ef þingmenn krata standa við
yfírlýsingar formanns síns á
alþingi þegar útvarpslagafrum-
varpið kemur þar til afgreiðslu í
dag, þá er tillaga Friðriks Sófus-
sonar um auglýsingarnar failin.
Ef kratar ganga hins vegar á bak
orða formannsins verður tillagan
samþykkt með þeirra atkvæðum í
neðri deild. Þá hótar Framsókn
að stöðva málið í heild í þeirri
efri!
Línur skýrðust mjög í umræð-
um í neðri deild síðdegis í gær um
útvarpslagafrumvarpið. Grunnt
var á því góða milli talsmanna
stjórnarflokkanna og gengu
brigslyrðin um svik á milli. Jón
Baldvin Hannibalsson lýsti því
yfir að Alþýðuflokkurinn væri nú
reiðubúinn til að styðja tillöguna
um auglýsingaútvarpið að
tveimur skilyrðum uppfylltum.
Þau eru að gjaldskrá fyrir auglýs-
ingarnar verði undir verðlagseft-
irliti og að boðveitur kapalker-
fanna verði í eigu sveitarfélag-
anna. Lagði Jón fram breyting-
artillögur um þessi atriði, og
sagðist reiða sig á stuðning
margra Sjálfstæðismanna.
Sjálfstæðismenn fjölluðu um
tilboð hans á þingflokksfundi í
gær og samkvæmt heimildum
Þjóðviljans munu þeir ekki ganga
að því, og styður Jón þá ekki til-
lögu þeirra um auglýsingarnar.
Atkvæði krata eru hins vegar
nauðsynleg til að hún nái fram að
ganga og fari svo að þeir gangi
bak orða formannsins frá í gær,
mun Framsókn grípa til sinna
ráða. Bæði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra og
helsti talsmaður flokksins í mál-
inu og Ólafur Þ. Þórðarson lýstu
því óbeint yfir í gær að verði
auglýsingaákvæðið samþykkt í
neðri deild, þá verði málið stöðv-
að í þeirri efri. Ólafur Þ. Þórðar-
son kallaði tilboð Jóns „hrossa-
kaup” og sagði að málinu öllu
yrði teflt í tvísýnu ef auglýsing-
arnar yrðu samþykktar. Efri
deild þyrfti þá eðlilega að athuga
það gaumgæfilega og taka til þess
góðan tíma! Framsókn myndi þar
reyna að breyta því aftur.
Það var Svavar Gestsson sem
píndi fram þessar yfirlýsingai
Jóns Baldvins og Ólafs Þ. um
kvöldmatarleytið í gær. Hann
sagði Sjálfstæðismönnum jafn-
framt að þeir skyldu ekki láta séi
detta í hug annað en Framsókn
myndi stoppa málið. Þá reynslu
hefði hann af setu með þeim i
ríkisstjórn að hann vissi að þeii
myndu ekki una öðru! _ÁI.
HJL
N
N
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður með „Boðskap um herlög" frá yfirmanni breska herliðsins á Islandi. Mvnd: E.ÓI.
Friður í Evrópu
Fertug innrásarskjöl í dagsljósið
Dreifibréfvegna þýskrar innrásar laus úr skylduleynd á Þjóðskjalasafni.
Tilkynningar um herlög, - og hvatning ríkisstjórnarinnar um hlýðni og aðstoð
ér með er svo fyrir mælt, að
allir á íslandi, menn og kon-
ur, íslenzkir sem erlendir ríkis-
borgarar, skuli háðir hcrlögum,
og er samkvæmt þeim hægt að
rannsaka mál þeirra fyrir her-
rétti, án áfrýjunarheimildar til
borgaralegra dómstóla. Jafn-
framt getur yfirherforinginn á Is-
landi ráðstafað öllum mönnum og
eignum þeirra.
Þannig hefst „Boðskapur um
herlög“ frá H.O. Curtis, yfir-
manni breska herliðsins á íslandi.
Þessi boðskapur kom aldrei fyrir
almenningssjónir, enda gafst
ekki tilefnið: þýsk innrás á styrj-
aldarárunum.
Á fjörutíu ára afmæli friðar í
Evrópu í gær opnaði Ólafur Ás-
geirsson þjóðskjalavörður bögg-
ul sem hingaðtil hefur verið ó-
heimilt að hreyfa við. í honum
voru nokkur dreifibréf sem senda
átti út ef til þýskrar innrásar
kæmi, ofannefnt dreifibréf
breska herforingjans, svipað
dreifibréf frá „Wm. Key, yfir-
herforingja Bandaríkjaliðsins á
íslandi", reglugerð um þau
„hernaðarlög" og bréf „Til ís-
lenzku þjóðarinnar" frá Birni
Þórðarsyni forsætisráðherra
(des. 1942 - okt. 1944).
í dreifibréfum Bandaríkjahers
og forsætisráðherra, sem greini-
lega eru prentuð á svipuðum
tíma, segir að „alvarleg árás með
vopnavaldi" sé yfirvofandi. í
bréfi Björns „leggur ríkisstjórnin
fyrir íslenzku þjóðina og alla
embættismenn íslenzka ríkisins
að veita yfirherforingja Banda-
ríkjaliðsins alla aðstoð, og að
hlýða boðskap þeim, fyrirskipun-
um og reglum, er hann kann að
setja“.
Þegar Þjóðviljinn bar efni
skjalanna undir Gunnar Karlsson
sagnfræðiprófessor sagði Gunnar
að sér kæmi þetta kannski ekki á
óvart, en að lítt athuguðu máli
þætti sér þó sæta tíðindum að
ríkisstjórnin skuli á sínum tíma
hafa undirbúið að afsala sér lög-
regluvöldum til Bandaríkjahers.
Dreifibréfaböggullin var fyrst
varðveittur í utanríkisráðuneyt-
inu en barst þaðan til Þjóð-
skjalasafns árið 1965 með fyrir-
mælum um tuttugu ára leynd.
í gær voru einnig opnaðir skjala-
bögglar úr einkaeign Jónasar frá
Hriflu sem ekki skyldu opinberir
fyrr en á 100 ára afmæli hans. í
bögglunum voru einkabréf og
skeyti, þar á meðal stuðningsyfir-
lýsingar við Jónas í deilum hans
við Kleppslækni og starfsbræður
hans (málin kringum
Stóru-bombuna).
i
Skip
Rákust
saman
Togarinn Ýmir og vélbáturinn
Þuríður Halldórsdóttir rákust
saman í gær, 40 mílur vestur af
Vestmannaeyjum. Alllöng rifa
kom á bakborða Þuríðar en þó
ekki stærri en svo að dælur höfðu
vel undan. Kom báturinn til Eyja
um kl. 17 í gær og er ætlunin að
taka hann í skipalyftuna til frek-
ari skoðunar og viðgerða. Togar-
inn Ýmir var í söluferð og hélt
hann áfram ferð sinni enda kom
aðeins dæld í byrðing hans.
Tóbaksinnflutningur
Neysla mun stóraukast
Þorsteinn Blöndal lœknir: Telþað fullkomið andvaraleysi að afnema hömlur á innflutningi
Frumvarp tjármálaráðherra
um að afnema einkasölu ríkisins á
tóbaki mætir nú vaxandi and-
stöðu, ekki síst hjá læknum og
öðru starfsfólki í heilbrigðisþjón-
ustunni. Þorsteinn Blöndal lækn-
ir á lyflækningadeild Landspítal-
ans sagði í samtali við Þjóðviljann
í gær að hann teldi það fullkomið
andvaraleysi að ætla að gefa innf-
lutning á tóbaki frjálsan. Með því
móti væri verið aðstuðla að
verðsamkeppni bæði hjá
heildsölum og smásölum sem
myndi leiða til þess að verð á tób-
aki lækkaði og neysia, einkum hjá
unglingum, myndi margfaldast.
Þorsteinn benti á að það hefði
verið skref aftur á bak í barátt-
unni gegn tóbaksreykingum þeg-
ar upp var tekið breytilegt verð á
sígarettum hér á landi 1983. ís-
land er eina landið á Norður-
löndum þar sem þetta er gert.
Hér kosta sígarettur, sem eru 5/6
hlutar alls tóbaks sem selt er, 53-
78 krónur pakkinn. í Finnlandi
kostar pakkinn 60-63 kr., í Sví-
þjóð 68 krónur, í Danmörku 88-
90 krónur og í Noregi 101 krónu.
Þorsteinn sagðist telja mikilvægt
að hafa sama verð á öllum síga-
rettutegundum til að stýra
neyslunni.
Þá benti hann á að héraðslækn-
ar landsins hefðu þingað fyrir
nokkru og samþykkt einróma að
mótmæla því að tóbaksinnflutn-
ingur yrði gefinn frjáls og það
sama hefði læknaráð Landspítal-
ans gert nýlega og sagðist hann
vita til þess að á leiðinni væru
hörð mótmæli 'gegn þessu víðar
úr heilbrigðiskerfinu. Sagðist
hann vona að ráðamenn sæju að
sér í málinu.
- S.dór.