Þjóðviljinn - 12.05.1985, Síða 4

Þjóðviljinn - 12.05.1985, Síða 4
Á BEININU Mér hefur verið hótað... Ólafur Þ. Þórðarson tekinn á beinið um mútur og mútuþægni Ummæli Olafs Þ. Þórðar- sonar alþingismanns í bjórum- ræðunni þess efnis hvort hugsanlegt væri að frétta- menn, einkum ríkisfjölmiðla, þiggi mútur og að flytjendur bjórfrumvarpsins hafi náð sér í bjórumboð erlendis. Vissu- lega stór orð og alvarlegar á- sakanir. Vegna þessara um- mæla var Olafur spurður að því hvað hann hefði fyrirsér í þessu máli. - Ég sagði vissulega eitt og annað í ræðu minni á Alþingi í gær, sem mér er fært að segja úr ræðustól vegna þess að það sem ég segi þarf ég fyrst og fremst að hafa sannfæringu fyrir. Aftur á móti þarf ég ekki að standa frammi fyrir því að þurfa að hafa tvö vitni, sem staðfesta hvert orð sem ég er að segja. í okkar þjóðfélagi búum við við mjög stranga löggjöf gagnvart meiðyrðum og öðru slíku. Stund- um er sú löggjöf skerðing á tján- ingarfrelsi en aftur á móti er fullt tjáningarfrelsi í þingsölum. Þar geta menn sagt það sem þeir sjálf- ir telia að sé rétt. - Ég sagði í minni ræðu að áfengisauðvaldið á íslandi kynni að vinna sér lönd og þegna, ef þannig mætti komast að orði. Vinnubrögð þess væru að nálgast það sem maður vissi um að tíðk- aðist í útlöndum. Ég vil í þessu sambandi minna á að þegar myndaflokkurinn „Rætur“ var sýndur hér í sjónvarpinu, þá kom það fram í viðtali við höfund „Róta“ að honum hefði verið boðið meira fé fyrir að koma fram í einni áfengisauglýsingu en hann fékk í ritlaun og annan af- rakstur er hann hafði af þættinum „Rætur“. Það er alveg ljóst að miklu fjármagni er eytt til að vinna að aukinni áfengisneyslu. Hér á landi eru auglýsingar á áfengi bannaðar. Því vaknar sú spurning hvort reynt er eftir öðr- um leiðum að vinna því brautar- gengi. Hefurðu eitthvað fyrir þér í þessu? - Þú biður um sannanir. Ég mun ekki setja svo mikið sem flugufót fyrir þessu inní blaðavið- tal, vegna þess sem ég sagði í upp- hafi viðtalsins. Ég vakti athygli á því í minni ræðu að mér þótti undarlega staðið að fréttaflutn- ingi sjónvarpsins í Bjórsam- lagsmálinu. Þú settir fram spurningar um það hvort hugsanlegt væri að flutningsmenn bjórfrumvarpsins hefðu bjórumboð hér á landi, hef- urðu eitthvað fyrir þér í því? - Af sömu ástæðu og ég gat um hér áðan varðandi málfrelsi í landinu tel ég rétt af mér að ræða þessi mál úr ræðustól á Alþingi, en ekki í blaðaviðtali. Ég vil þó bæta því við til að fyrirbyggja misskilning, að það er fullkom- lega löglegt að hafa umboð fyrir áfengi, sömuleiðis væri það fullkomlega löglegt að þiggja um- boðslaun fyrir bjór. Þú getur sest niður og reiknað út hver ágóða- hlutur ríkisins er af áfengissölu og hugsanlega bjórsölu. Sömuleiðis geturðu þá reiknað út hver hlutur umboðsmanna er og þú munt komast að því að þar er svo sann- arlega um fjármuni að tefla. Ólafur, hefur verið reynt að bera fé á þig sem alþingismann, hefur verið reynt að múta þér? (Hér varð mjög löng þögn, en síðan sagði Ólafur): - Það hefur aldrei verið borið fé á mig sem alþingismann, en það hefur gerst að mér hefur ver- ið hótað. Mér var hótað illu ef ég tæki það sem viðkomandi kallaði rangar ákvarðanir. Telur þú að mútur viðgangist í hinum svokallaða opinbera geira hjá okkur? Heldurðu að opinber- um embættismönnum, sem taka ákvarðanir um eitt og annað þar sem miklir fjármunir eru í húfi, sé mútað? - Við notumst við nákvæmlega sama kerfi og er erlendis á sviði viðskipta. Við erum með opið fjármálakerfi og það er ekki þörf á því fyrir menn að taka fé inní landið, það er hægt að nota það erlendis. Og þegar við skoðum viðskiptalífið í kringum okkur, hljótum við stundum að spyrja okkur þeirrar spurningar: Fæst það staðist að sömu menn, sem eru að selja vöru og bera fé á erlenda aðila, geri það aldrei gagnvart fslendingum? Við hljót- um að spyrja okkur þeirrar spurningar. Gerist það aldrei hér?, eins og sagt var forðum. Svo er það önnur spurning hvort íslendingar standist slíkt, eða standast þeir það ekki? Ég hef mikla trú á íslensku embættis- mannakerfi og ég hef þá trú að á Norðurlöndum búi þjóðir sem hafi sterkari bein gagnvart mútum en annars staðar í heimin- um. Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra sagði í útvarpsviðtali á dögunum að hann hafl farið til Sviss í boði Alusuisse og að það hafi fleiri iðnaðarráðherrar og jafnvel alþingismenn gert. Eru þessi boð mútur, býr eitthvað á bak við þessi boð? - Menn muna eflaust eftir sjónvarpsþættinum finnska á dögunum, þar sem fjallað var um mútur. Það er stundum ákaflega erfitt að draga línu á milli þess sem er mútur og ekki mútur. Það liggur við að hægt sé að segja að ef sá, sem hefur mikil fjárráð og þiggur eitthvað, það séu ekki mútur, vegna þess að allir vita að hann hefur næg fjárráð til að leika sér að þessu sjálfur. Ég tel að það sé alls staðar í heiminum eins, að þegar menn hafa tekið við mútum, þá er reynt að fela það. Því flokka ég það trauðla undir mútur þótt iðnaðarráð- herra þiggi svona boð. Honum væri í lófa lagið að skrifa ferð sem þessa á reikning iðnaðarráðun- eytisins, svo frjálsa útskrift hefur hann í þessum efnum. Það blasir við í þessu dæmi. Margir halda því fram að Alu- suisse noti mútur óspart. Á svip- uðum tíma og Guðmundur G. Þórarinsson þáverandi alþingis- maður snerist öndverður gegn Hjörleifi Guttormssyni iðnaðar- ráðherra og öðrum nefndar- mönnum í samnínganefnd íslands við Svisslendingana, þá fékk fyr- irtæki, sem hann á hlut í og mun vera stjórnarformaður fyrir, um- boð fyrir heimsfrægt svissneskt sælgæti. Telur þú hugsanlegt að þarna séu tengsl á milli? - Ég held að þeir hafi ekki beitt mútum, þeir höfðu svo sterka vígstöðu þá vegna þess að gamli samningurinn sem við þá var gerður og er þeim mjög hag- stæður var ekki og er ekki runn- inn út. Það hefur oft verið vitnað til Grikklands í þessu sambandi. En sá er munur þar á að samning- urinn í Grikklandi var útrunninn og því varð að semja uppá nýtt. Þess vegna var staða Grikkja svo sterk. Og sem betur fer dregur að því að við komumst í þá stöðu. Ég var sammála Hjörleifi á sinni tíð þegar hann var að afla allra gagna í álmálinu, svo sem um verðið í Ástralíu og fleira. En ég tel að hann hafi ekki haft lagni til að ná fram samningum. Vegna þess hvernig upprunalegi samningur- inn við Alusuisse er, áttum við ekki sterkari leik í stöðunni en leikinn var, þó öll mín réttlætis- kennd segði, ég vil fá meira. Og einmitt vegna þessarar sterku stöðu Svisslendinganna held ég að þeir hafi ekki beitt mútum í þessu máli. Nú er umræðunni um bjór- frumvarpið ekki lokið í Neðri deild, og þú munt eflaust taka til máls í þeirri umræðu aftur, megum við eiga von á annarri bombu? - Ég veit það ekki, það fer eftir ýmsu, en ég mun taka til máls aftur. S.dór 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN' Sunnudagur 12. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.