Þjóðviljinn - 12.05.1985, Page 13
Þœgilegasta kynlífið?
Hugrenninga-
syndir mið-
aldra kvenna
Hófsemi og varúð í kyn-
lífsmálum er aftur í tísku og
ber margt til - m.a. ótti við
skelfilegan sjúkdóm. Og
það er kannski tímanna
tákn að í Bandaríkjunum
verður bók sem geymir frá-
sagnir kvenna af ímynduðu
ástarfari að metsölubók -
eftir að markaðurinn hafði
lengi verið á þönum eftir
„sönnun lífsreynslu-
sögum“ bæði af sviði kyn-
lífs og af öðrum sviðum.
í ríkmannlegu hverfi í Berkel-
ey í Kaliforníu starfar sérstæður
klúbbur tíu kvenna á aldrinum
43-57 ára. Þessar konur koma
saman einu sinni í mánjjði, fá sér
vín og sætindi og skiptast á hug-
arflugssögum um ástarfar. Ein
þeirra segir sem vo um þessa sér-
stæðu iðju:
„ímyndað ástarævintýri er
betra en raunverulegt. Maður
getur látið allt vera að eigin vild,
meira að segja skipt um mublur
og látið karlmanninn passa við
þær. Það eru engin takmörk fyrir
því hvað manni dettur í hug og
samt hefur maður tök á öllu“.
Önnur klúbbkvennanna segir:
„Svona kvöld með karlafars-
draumum er eins og hátíð. Hvfld
frá hvunndagsleikanum. Og mér
finnst ég svo kát og kynfús. Og
þegar maður skrifar niður ímynd-
anir sínar og les þær fyrir aðra, þá
er eins og þær eignist sjálfstætt
líf.“
Konurnar ákváðu, eftir all-
langar innbyrðis deildur, að safna
úrvali kynlífssagna sinna saman í
bök og gefa út. Erfitt reyndist að
fá útgefanda í fyrstu, en eftir að
bókin, sem heitir „Heimakynlíf
kvenna“ (Ladies Home Erotica),
kom út fór hún að seljast eins og
heitar lummur.
Sögurnar í bókinni greina frá
samförum við páfann og garð-
yrkjumann og vörubílstjóra og
fangavörð, frá allskonar undar-
legum aðstæðum til kynlífs og
enn furðulegri forleikjum - eins
og til dæmis að tyggja súrkál eða
háma í sig spergil og tómata.
Konurnar tíu hafa ekki frið fyrir
blaðamönnum og sjónvarps-
mönnum sem vilja eiga við þær
viðtöl - og koma þær þá fram
með grímur til að þekkjast ekki.
Tattóveraður
í bak
og fyrir
Englendingur nokkur er tattó-
veraðasti maður í heimi. Þar sem
hann var fremur óánægður með
að 4% af húðinni (ytra byrðinu)
var óskreytt lét hann tattóvera sig
á kinnunum innanverðum, tung-
unni og augnbrúnunum.
Það varíþá tíð
Fyrst var sótt um einkaleyfi
fyrir fallhlíf árið 1802 (í októ-
bermánuði nánar tiltekið). Upp-
finningamaðurinn var franskur
Jac Garnenin að nafni.
Og þær taka það skýrt fram að
þeim detti ekki í hug að hrinda
hugrenningasyndum sínum í
framkvæmd.
Konurnar tíu með sköpunarverk sitt - safn kynlífssynda sem aðeins hafa gerst í samtölum þeirra í milli.
GULLVÆGT
TÆKIFÆRI
FYRIRUNGA
USTAMENN
Samkeppni um gerð veggspjalda
Makmiðið er: Hreint loft og heilbrigði
árið 2000.
í tilefni af „Ári æskunnar“ efnir Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunin (WHO) til Evrópu-samkeppni um gerð
veggpjalda gegn reykingum.
Veggspjöldin eiga að fjalla um hversu eðlilegt og sjálfsagt
sé að reykja ekki. Með öðrum orðum: Ekki er ætlast
til að lögð sé áhersla á skaðleg áhrif reykinga á heilsu
þeirra sem reykja, heldur hið jákvæða við það að
reykja ekki svo sem:
• að stefna nútímamannsins sé að reykja ekki
• tillitssemina gagnvart þeim sem ekki reykja þ.e. vinum,
fjölskyldu, börnum og vinnufélögum
• ábyrga og sjálfsagða hegðun gagnvart ófæddum
börnum í móðurkviði
• hreinlætis- og fegurðarsjónarmið
• betri möguleika til að njóta lífsins
Þátttökuskilyrði
1. ' Þátttakendur skulu vera á aldrinum 16-35 ára.
2. Tillögur skulu vera í stærðinni 40,6 cm x 57,4 cm og
tilbúnar til eftirtöku
3. Tillögur skal senda til Tóbaksvarnanefndar,
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík, merktar dulnefni, en
rétt nafn og heimilsfang skal fylgja í lokuðu umslagi
merktu sama dulnefni.
4. Skilafrestur er til 5. júní, 1985.
Dómnefnd skipa fulltrúar frá:
Félagi íslenskra teiknara, F.I.T. (tveir).
Félagi íslenskra myndlistarmanna, F.I.M.
Landlæknisembættinu.
Tóbaksvarnanefnd.
Þrenn verðlaun verða veitt:
1. verðlaun kr. 50.000.-
2. verðlaun kr. 30.000.-
3. verðlaun kr. 10.000.-
Birting verðlaunatillagna
Verðlaunatillögur hvers lands verða síðan sendar
Evrópudeild WHO til umfjöllunar og sýndar í Dyflini á
12. alþjóðlegu ráðstefnunni um heilbrigðismál, í
september 1985.
WHO mun einnig sjá til þess að sem flestar verðlauna-
tillagnanna verði birtar í fjölmiðlum, m.a. í tímaritinu
„World Health“.
Þrenn verðlaun verða veitt af alþjóðlegri
dómnefnd:
1. verðlaun 500 Bandaríkjadalir
2. verðlaun 250 Bandaríkjadalir
3. verðlaun 125 Bandaríkjadalir
Þeir sem hlutskarpastir verða í alþjóðlegu
keppninni munu auk þess vinna til
einnar viku dvalar í Dyflini, Osló
eða Dresden
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 621414.
T óbaks vamanefnd