Þjóðviljinn - 12.05.1985, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 12.05.1985, Blaðsíða 20
ÓSA Krafðist vaxtahækkunar Á dögunum héldu Framsókn- armenn í Reykjavík fund um vextina sem ætla flesta aö drepa. Þá brá svo við að vara- þingmaðurinn Björn Líndal setti á tölu um að hann væri þeirrar skoðunar að það sem þyrfti í íslensku efnahagslífi væri að hækka vextina. Hinn almenni Framsóknarmaður vissi ekki hvaðan sig stóð veðrið en þeir Björn Líndal og Þórður Ingvi Guðmundsson eru stundum nefndir frjáls- hyggjugaurarnir í Framsókn- arfélaginu í Reykjavík.a Elli mjöðm var indjáni Söngguðinn Elvis Presley sem stundum var á engilsax- nesku kallaður Elvis the pel- vis (Elías mjaðmagrind) sökum geysilegra hæfileika til mjaðmasveiflu er samkvæmt nýjum ættfræðirannsóknum vestra eins konar allra þjóða kvikindi. Telja fræðimenn lík- legt að þjóðernagrauturinn í genum Elvisar hafi lagt hon- um til þau lyndiseinkenni sem síðar gerðu hann að stjörnu. En í Elvis blandast enskt, franskt og írskt blóð við gyð- inglegt einsog var raunar vit- að. En elsti þekkti ái Ella mjaðmar, var þó af allt öðrum uppruna: langa-langamma hans var nefnilega hreinrækt- aður Cherokee indjáni og þaðan hefur hann vangasvip- inn, blessaður, og sveifl- una...*. Fátt um fínan Það er vandlifað, sagði Þjóð- viljaskáldið, þegar það sá fyrirsögnina Landlæknir var- ar við lauslæti vegna AIDS. Allt er hættulegt; góður matur veldur hjartveiki, brennivínið drepur heilasellurnar, tóbaks- reykingar valda krabbameini - og nú síðast segir að ástar- leikir valdi AIDS. Þjóðvilja- skáldið varð þungbúið um stund undir þessari þulu og kvað svo við raust: Enginn brátt mun hafa hátt, heldur grátt á kvöldum, orðið fátt um fínan drátt, fyrir máttarvöldum. ■ RENAULT11 AST VIÐ FYRSTU KYNNI Renault 11 hefur fengið margar viðurkenningar fyrir frábæra hönnun og fjöðrunin er engu lík. Rými og þægindi koma öilum í gott skap. Komdu og reyndu hann, pað verður ást vfð fyrstu kynni. Þú getur reftt pig á Renauit KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633 f í 1 í ■ DORINT- SUMARHUSA ÞORPIDI ÞÝSKAIJ^M Nýjasti áfangastaður Flugleiða og fjölskyldufólks á leið í sumarfrí er Dorint-sumarhúsaþorpið í nágrenni Winterberg I Þýskalandi. Þetta eru söguslóðir Grimmsævintýranna. Sumarfrí í skógivöxnu og hæðóttu umhverfi IV/níeróerigereinnig ævintýri líkast. f grenndinni er Rínardalurinn og fjölmargar spennandi borgir: Marburg, Kassel, Dusseldorf, Köln, Bonn, Koblenz, Mainz og Frankfurt. í Dorint-sumar- húsaþorpinu eru í boði 4 stærðir íbúða og sumarhúsa. Á svæðinu eru góð veitingahús, krá, verslun, barnaheimili, sundlaug, sauna, Ijósaböð, tennisvellir, minigolf og keiluspil. Far- þegar á leið í Dorint-sumarhúsaþorpið í Winterberg geta valið um að fljúga með Flugleið- um til Frankfurt eða Luxemborgar. Frankfurt: Rútuferðir til Winterberg. Aðeins 160 km akstursleið. Bílaleigubílar í boði, en þeir fást einnig afhentir í Winterberg. Luxemborg: Þar eru bílaleigubílar til reiðu. Leiðin til Winterberg er fjöl- breytt og skemmtileg. Dæmi um verö: Heildarverð fyrir 4 manna fjöl- skyldu í 2 vikur (flug, íbúð og rútuferðir frá og til Frankf) er kr. 72.608.- en þá á eftir að draga frá afslátt vegna 2 barna (2-11 ára) kr. 12.800.- Verðið samtals er kr. 59.808.- , eða kr. 14.952.- á mann. Flugvallar- Fjölskyldustemmning fnkSrnnr ekki dsöguslóðum Grimmscevintýra Frekari upplýslngar um Dorlnt- sumarhúsaþorpið 1 Winterberg velta söluskrifstofur Fluglelða, umboösmenn og ferðaskrifstofurnar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.