Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 6

Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 6
Frá útifundi nazista viö Miðbæjarbarnaskólann. Þórshamarinn alltaf nálægur. alltaf búið í þjóðinni. Erfiðara reyndist að afsaka hakakrossinn. Samt var það reynt á barnslegan hátt: En hvernig svo sem starfsemi ís- lenskra þjóðernissinna verður háttað í framtíðinni, og hvort sem þeir bera það sem einskonar auglýsingu fyrir Eimskipafélag íslands eða til þess að benda á stjórnmálaskyldleika sinn við er- lendan flokk manna, þá er eitt víst, að Þjóðernishreyfing Islend- inga, sú hreyfing sem að því mið- ar, að verjast kommúnistískum sjúkdómum og erlendum niður- drepsáhrifum er sprottin úr alís- lenskum jarðvegi - af innlendri nauðsyn. Efnahagskreppan á fjórða ár- atugnum skerpti allsstaðar flokk- alínur í stjórnmálum. Heima á Fróni kom þetta einnig vel í ljós. Fylgi íslenskra kommúnista á þessum árum var allmikið, en þeir voru samt örverpið í íslensk- um stjórnmálum uns Þjóðernis- hreyfingin var stofnuð. Fylgi hennar var alltaf óverulegt. En athyglisvert er að Morgunblaðið skyldi leggja blessun sína yfir hana. Hafa ritstjórarnir tvímæla- laust séð í henni harðsnúið bar- áttutæki gegn kommúnistum. Hafi Sjálfstæðisflokkurinn ígrundað að stofna einhverskon- ar baráttusveitir, þá var það ekki lengur nauðsynlegt. Ástæðan var fyrst og fremst sú að sjálfstæðis- stefnan og þjóðernisstefnan áttu sér sömu markmið, að koma kommúnistum á kné eða amk. að halda þeim í skefjum. Ári síðar var enn óbreytt við- horf hjá Morgunblaðinu gagnvart þjóðernissinnum. Eftir frídag verkalýðsins, 1. maí 1934 var mjög lofsamleg frétt um fán- alið þeirra: Fánalið Þjóðernissinna fór göngu um bæinn í gær. Voru fjelagar í einkennisbúningum og um 120 talsins. Var þetta langglæsileg- asta fylkingin. - Gekk hún undir íslenskum fána og tveimur Þórs- hamarsfánum. Staðnæmdist fylkingin hjá barnaskóla Miðbæj- ar og voru þar haldnar nokkrar ræður. Safnaðist þangað múgur og margmenni - langt um fleira heldur en að kommúnistum og jafnaðarmönnum. Þetta átti eftir að breytast. Hvenær það var er ekki hægt að greina nákvæmlega í blaðinu. Full vinslit blaðsins við þjóðern- issinna voru amk. ljós árið 1936. Þá voru skrif blaðsins orðin mjög andvíg flokki þjóðernissinna. I einni forystugreininni sem bar yfirskriftina „Nasablástur nazist- anna“ var farið álíka fjandsam- legum orðum um hreyfinguna og notuð voru um kommúnista: Fult útlit er á að flokkurinn, sem kennir sig við íslenskt þjóðerni, fari veg allrar veraldar hvað úr hverju. Má um það segja að farið hafí fjc betra. Þeir fáu vitibornu menn, sem upphaflega Ijetu glæp- ast á þessu flokksskrípi, eru flest- ir eða allir skildir við hann fyrir fult og alt. Eftir er fátt nema þess háttar fólk, sem enginn sæmi- legur stjórnmálaflokkur vill vita af innan sinna vjebanda, sams- konar dreggjar eins og þær sem annars lenda í kommúnistahópn- um. Fyrri samstaða gegn sameigin- legum andstæðingi var liðin. Þeg- ar best lét höfðu þjóðernissinnar og sjálfstæðismenn boðið fram sameiginlegan lista í bæjarstjórn- arkosningunum 1934. Stefnu- breyting gagnvart Þýskalandi var hins vegar engin. Morgunblaðið var aðeins að gera upp sakirnar við íslensku hreyfinguna. Þriggja ára reynsla af félagsskap þeirra sýndi að íslendingar voru ekki ginnkeyptir fyrir þessari stefnu. Hreyfingin var alltaf fámenn og starfsemi hennar fjaraði smám- saman út. Snemma árs 1938 skerptust línurnar enn. Komið var að endanlegu uppgjöri við þjóðernissinna: Þegar Þjóðernissinnar eða nazist- ar komu hjer við sögu, fyrir nokkrum árum átti Sjálfstæðis- flokkurinn vitanlega á hættu, að þessir menn klyfu eitthvað út úr hans fylkingu, ef hann ekki stæði öruggur á svellinu. En Sjálfstæð- isflokkurinn sá það strax, að ef hann færi að daðra við einræðis- stefnu nazistanna á sama hátt og stjórnarflokkarnir gerðu við ein- ræðisstefnu kommúnista, myndi það í raun og veru þýða, að loka- þátturinn í sögu lýðræðis og þing- ræðis væri að hefjast á Islandi. Framtíðin hefði svo skorið úr því, hvor einræðisstefnan hefði orðið ofan á. En Sjálfstæðisflokkurinn var trúr sinni stefnu. Hann bjarg- aði lýðræðinu og þingræðinu. Og fyrir hans verk er nú svo komið að einræðisstefna nazistanna hef- ir kafnað í fæðingunni. Hún er þurkuð út. Afstöðu blaðsins urðu vart gerð betri skil: vinsamlegu skrifin voru alveg gleymd. Þegar hér var komið mun flokkur þjóðernis- sinna hafa verið í andarslitrun- um. Hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi þurrkað hann út verður látið liggja milli hluta. Morgunblaðið hafði á þessum árum löngum kvartað undan miklu fylgi Kommúnistaflokksins, sem var hér hlutfallslega miklu fjölmenn- ari en á hinum Norðurlöndunum. Þess vegna hefði mótvægið sem fékkst með þjóðernissinnum ver- ið nauðsynlegt. Núna voru kommúnistarnir skyndilega ekki fjölmennari en svo að sjálfstæðis- menn gátu fyllilega gegnt varð- gæsluhlutverki þjóðernissinna. En hefði kommúnisminn sigr- að um þetta leyti suður á Spáni, hefði málið etv. horft öðruvísi við. Þar hafði „hægri villan“ sigr- að en vegna fylgisleysis „fasista“ hér var sigur hennar á Spáni síður alvarlegt mál hér á landi. Af tveimur slæmum kostum virðist Morgunblaðinu hafa verið það nokkur huggun að kommúnism- (slenskir nazistar í fullum skrúða undir fána þriðja ríkisins. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. júní 1985 inn sigraði ekki á Spáni. Síðustu orð forystugreinarinnar skýra þetta best: Lýðræðissinnaðir Islendingar, andstæðingar öfgastefnanna beggja, þurfa engan kinnroða að bera fyrir því, þó þeir telji minni hættu af því stafa, að sú stefnan, sú villan sigri út um lönd, sem hjer nær engri fótfestu, heldur en hitt brjálæðið brjótist þar til valda, sem svo að segja stendur yfir frelsi Islendinga með brugðnu sverði. Gyðingaofsóknimar í Þýskalandi og „íslensku gyðingarnir" Strax eftir valdatöku Hitlers bar talsvert á fréttum í Morgun- blaðinu um að gyðingaofsóknir væru hafnar í Þýskalandi. Annars viku þessar fréttir fljótlega fyrir öðrum nýrri. Einna mest áberandi þátturinn í áróðri þýsku nasistanna var að kenna gyðingum um allt sem af- vega hafði farið í landinu. Rann síðan oftast út í eitt andúðin á þeim og kommúnistum. Þessi áróðurstækni reyndist nasistum tekjudrjúg. Vegna skrifa íslensku blað- anna um gyðingaofsóknirnar barst bréf til Morgunblaðsins frá Berlín um þetta mál. Hefur það líkast til verið frá fslendingi þar í borg. Var það leiðrétting á skrif- um blaðanna um þetta mál. Sagði þar m.a.: Þjóðernisjafnaðarmenn hafa hvað eftir annað lýst því yfir, að barátta þeirra gegn Gyðingum sje eingöngu sprottin af því, að þeir hafi verið búnir að sölsa undir sig alt of mikil völd í Þýskalandi og hafi beinlínis unnið að því að kæfa niður þýska menningu. Samkvæmt upplýsingum bréf- ritara átti uppgangur gyðinga sér stað á þriðja áratugnum. Aðal- sökudólgarnir voru jafnaðar- menn. Og það sem var enn verra: „Þeir opnuðu landið fyrir hinu versta hyski Gyðinga, austrænu Gyðingunum.“ Nokkru seinna birtist forystu- grein um gyðingavandamálið. Bar hún keim af bréfinu fyrr- nefnda. Fyrirsögnin var „ís- lensku Gyðingarnir".: Nú er það vitað að þýska þjóðin stendur í fremstu röð um menntun alla og menningu. Þess vegna verður Gyðingahatur þeirra mönnum algerlega óskiljanlegt, ef því er trúað að hinir ofsóttu hafi ekkert til saka unnið. Hjer er ekki ætlunin að bera blak af þýskum stjórnvöldum hvorki fyrir meðferðina á Gyðingum nje á pólitískum andstæðingum sín- um. en hafa þá Gyðingarnir í Þýskalandi ekkert unnið til saka? Er það bara „kvalalosti nazist- anna“ sem kemur þeim til að svala sjer á alsaklausum mönnum? Síðan kom Morgunblaðið með sína skýringu á málinu, hún var þessi: ... að Gyðingarnir í Þýskaiandi hjeldu saman og mynduðu öfluga hagsmunaklíku... Og aðferðir þessara aðkomnu manna þóttu oft á tíðum ekki allskostar drengi- legar. Almenningi sveið yfir- gangur þeirra. Fleiri og fleiri stofnanir lentu í höndum þeirra, bankar, samgöngutæki, skólar o.s.frv... Það er í rauninni hatrið á klíkuskapnum sem hjer er orðið að þjóðahatri. Hver var að tala um að bera ekki blak af þýskum stjórn- völdum? Þetta jaðraði við stuðn- ingsyfirlýsingu. Síðan heimfærði blaðið þetta mál á frekar ó- smekklegan hátt upp á íslenskar aðstæður; taldi að hér væru menn sem notuðu „gyðinglegar aðferð- ir“: Hefir ekki Tímaklíkan að ýmsu leyti leikið líkt hlutverk og Gyð- ingarnir í Þýskalandi? Klíkan hefir fyrst af öllu hugsað um það, að koma sínum eigin trúbræðrum í sem flestar stöður. Hún var ekki alltaf smekkleg umræðan í pólitíkinni á þessum árum. Jákvætt viðhorf til nas- ismans, jafnvel í svo ógeðfelldu máli sem gyðingaofsóknunum sýndi hversu vel nasistaáróðurinn gekk í fólk. Reyndar var enn ekki langt um liðið frá valdatöku þeirra, rétt tæplega tvö ár. En þegar hinar raunverulegu gyðing- aofsóknir hófust með seinni heimsstyrjöldinni kom best í ljós að það var kvalalosti nasistanna sem rak þá áfram í útrýmingu gyðinganna. Ekki urðu frekari leiðaraskrif í Morgunblaðinu með þessu sniði. Verður styrjöld út af Tékkóslóvakíu? Sívaxandi spennu gætti í milli- ríkjapólitík Evrópu árið 1938. Þýskaland var orðið hernaðarlegt stórveldi sem Iét engan lengur segjasér fyrir verkum. Sovétríkin voru vinasnautt stórveldi sem reyndi eftir megni að bæta sam- búðina við Bretland og Frakk- land og gengu ma. í Þjóðabanda- lagið til þess. Viðleitni þeirra bar takmarkaðan árangur. Bandarík- in fylgdu enn einangrunarstefnu sinni. Bretland og Frakkland virtust enn ætla að halda áfram undanlátsstefnu sinni gagnvart æ herskárri utanríkisstefnu Hitlers. Vegna ótryggs ástands í Evr- ópu fór Morgunblaðið að huga að hugsanlegri stöðu Norðurland- anna í væntanlegum átökum. Urðu nokkur skrif um þetta í blaðinu. Sagði þar m.a.: Menningarlíf Norðurlanda er úti- lokað úr löndunum í suðri og austri, vegna þeirra róttæku bylt- inga sem þar hafa orðið. í norðr- inu mætum við óbyggðum Is- hafsins. Leiðirnar eru aðeins opnar í vesturátt, leiðirnar til Hollands, Belgíu, Frakklands, Englands og Ameríku. Skömmu fyrir miðjan marsmánuð 1938 var Austurríki innlimað í Þýskaland. Helstu mótaðiljar Hitlers í þeim leik voru ítalir. Sátu þeir hjá þegar þýski herinn fór yfir austurrísku landamærin. Skammur tími leið uns Hitler fór að setja fram kröfur um inn- limun Súdetahéraðanna í Tékk- óslóvakíu. Magnaðist deilan þeg- ar kom fram á haustið. Evrópa riðaði á barmi styrjaldar. Hvatti Morgunblaðið landsmenn að bú- ast við hinu versta. Breiðir álar Atlantshafsins mundu ekki girða fyrir ýmis óþægindi styrjaldar. Samt værum við nokkuð vel sett. Hér við landið væru auðugustu fiskimið heims. Öflugur kaup- skipafloti gæti síðan annað að- flutningum á lífsnauðsynjum. Eftir nokkura daga samning- aumleitanir Nevilles Chamber- lains, forsætisráðherra Breta tókst á síðustu stundu samkomu- lag um kröfur Hitlers. Kunni Morgunblaðið honum bestu þakkir fyrir. Hann hefði reyndar bjargað heimsfriðnum. Um Hitl- er var fjallað af virðingu, en án allrar samúðar. Hana fengu Bret- ar óskipta. Um leið hvarf allur kvíðbogi vegna styrjaldarhætt- unnar. Næstu daga hrósaði Morgunblaðið Chamberlain hvað eftir annað fyrir afrekið og sagði m.a.: „... verður það fyrst og fremst forsætisráðherra Breta Mr. Chamberlain, sem lárviðar- sveiginn fær. Hann hefur þá getið sjer ódauðlegt nafn í veraldar- sögunni.“ Enn höfðu menn ekki réttilega áttað sig á Hitler. Hátíðlegar yfir- lýsingar hans um að ekki yrði um frekari landakröfur að ræða blekktu enn. í þessum efnum fylgdi Morgunblaðið beint í fót- spor Chamberlains, trúnni á frið- arvilja Hitlers. Ekki voru öll ís- lensku blöðin jafn hrifin af

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.