Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 12

Þjóðviljinn - 09.06.1985, Page 12
Texti: Árni Óskarsson Hvert ◦ugnablik er leyndardómsfullt „Konur eru í nútíðinni - karlar i þátíðinni". Mynd: Valdís. Vigdís Grímsdóttir sendi frá sér fyrstu bók sína, Tíu myndir úr lífi þínu, í hitteð- fyrra. Hún er starfandi sem íslenskukennari, en frá síð- ustu áramótum hefur hún verið í fríi frá kennslunni á fjögurra mánaða starfs- launum við að skrifa bók sem kemur út síðar á þessu ári. Vigdís hefur ævinlega séð vel en henni finnst hún vera neflöng (51/2 cm). Til þess að þóknast hinu mag- íska raunsæi var þriðji maður látinn vera viðstaddur viðtalið. Hann svífur yfir viðtalsvötnunum og strýkur þeim sem tala saman og bendir þeim á nýjar leiðir og betri svör án þess nokkurn tíma að hann sjáist. Eins og allir þriðju menn er hann nafnlaus, rödd hans lágvær og hlátur hans holur, enda er hann í eilífri leit að sjálf- um sér í öðrum. „Ég fór þessa venjulegu leið þegar ég var sex ára. Fyrst skrif- aði ég í forskriftarbækur en fór svo að reyna að nota þetta sjálf og fór ekki alltaf eftir forskrift. Ég fór að skrifa í einhverju bríeríi, alls ekki til þess að gefa neitt út. Ég byrjaði snemma á því að skrifa mig útúr vandræðum, þetta veitti mér nokkurs konar félags- skap. Það hefur oft verið sagt að það séu bestu bækurnar sem aldrei eru gefnar út. f>að er ríkjandi einhver leiðindamórall gagnvart fólki sem fæst við að skrifa, eins og það sé bara að þessu til að reyna að verða heimsfrægt á íslandi. Flest- ir skrifa þó af innri þörf og in- spírasjón. En á það er ekki hlust- að heldur afgreitt sem eitthvert kjaftæði. Hús og vegir Svo er maður kannski að þessu til þess að sætta sig við lífið. Mað- ur byggir ekki hús eða vegi eins og sumir aðrir gera, heldur býr bara í húsunum og keyrir á veg- unum. Þetta er spurning um að leggja samt eitthvað af mörkum. Mér hefur alltaf þótt það skemmtilegt hvað fólk hefur átt auðvelt með að flokka niður bók- menntir, kvennabókmenntir, karlabókmenntir, barnabók- menntir osfrv. Einhver kona skrifaði ritgerð um Lifandi vatnið eftir Jakobínu Sigurðardóttur. Hún komst að því að Pétur Pét- ursson í sögunni hefði kvenvit- und. Hún hafði lesið sér til um hvað kvenvitund væri og fann hana þarna hjá Pétri sjálfsagt af- því að Jakobína er kona. Hugtak eins og „kvennabók- menntir“ er ákveðið merki á ákveðnu tímabili sem sett er á bækur, sjálfsagt í hagnaðarskyni. En það er bara ákveðinn hreinsunareldur sem allar bók- menntir verða að ganga í gegn- um. Ef þær standast hann ekki eru þær einskis virði. Svo virðist komin einhver hræðsla við þenn- an stimpil núna. Það er orðið hallærislegt að skrifa um vanda, þetta þarf að vera svo speisað. Mystlk og raunsœi Það er komin upp hræðsla við hugtök eins og raunsæi. Ég las viðtal við íslenskan myndlistar- mann um daginn sem sagðist hata alla mystík og elska raunsæi. Hann gerir sér ekki grein fyrir því að raunveruleikinn er mystískur, hvert augnablik er leyndar- dómsfullt. Sami listamaður sagð- ist vera á móti allegoríunni, myndir hans væru bara litafletir án þess að nokkuð byggi þar að baki. En þegar maður skynjar eitthvað meira en akkúrat það sem stendur eru það ekki bara fletir án þess að það sé þó allegor- ískt. Flytjandi tónverks gæðir flutn- ing sinn sínum tilfinningum og túlkun hans verður þá einstæð. Sá sem fæst við orðið, hvort sem hann skrifar sögur eða yrkir ljóð, túlkar á sama hátt lífið í kringum sig, lífið er þá hans tónverk. Þetta er náttúrlega raunsæi, þetta er spurning um leiðir til að nálgast þetta stóra viðfangsefni sem er lífið sjálft. Hvort sem þetta er þá kallað undanrennuraunsæi eða rjómaraunsæi skiptir ekki máli. Það er ekkert í heiminum sem er eins raunsætt nema þá það sem er absúrd. Allar slíkar stefnur ganga sér til húðar. Bókmenntastofnunin hefur eyðilagt heilmikið fyrir bókmenntunum síðastliðinn ára- tug. Hún fyrirskipar rithöfund- um hvernig þeir eigi að skiifa. Rithöfundarnir eru ósjálfstæðir, þeir sveiflast með í þessum darr- aðardansi. Bókmenntastofnunin hefur gert ákveðnar kröfur. Vit- andi eða óafvitandi hafa rithöf- undar farið eftir þeim og gleymt sjálfum sér - því að einhverjar hugsjónir hafa þeir og auðvitað eru þessar bækur fullar af boð- skap. En stundum verða vísur of oft kveðnar. Þá þarf að finna nýj- ar leiðir til að segja sama hlutinn til þess að hann sé trúverðugur og sannur. Það er alveg óþarfa ótti að vilja ekki kannast við að bók- menntir fjalli um vanda. Það er sama hvernig menn flokka bækur, þær fjalla alltaf um lífið og tilveruna, manninn og sam- skipti hans við manninn á móti. Formúlur Það fer leynt en það svífur yfir vötnum að á ákveðnu tímabili sé ein formúlan betri en önnur. Manni finnst eins og nýliðin for- múla hafi verið heldur illa byggð, yfir henni hafi verið einhver flatneskjublæja, því að hún Dóra í bókinni hans Jóns var allt í einu komin í bókina hennar Gunnu. Og þorpinu í bókinni hans Geira var allt í einu svo vel lýst í bókinni hans Baldurs. Þannig verða til klisjur en þær eru kannski hættu - legastar bókmenntunum. Fólk sá réttilega í gegnum formúlur afþreyingarbók- menntanna, en bjó sér svo bara til nýjar formúlur á nákvæmlega sama hátt um önnur efni. Það vantar alla frumsköpun, þarna er ekkert hugarflug, þetta eru hermisögur. Þessar svokölluðu kvennabók- menntir eru mjög misjafnar bækur eins og allar aðrar bók- menntir. Margar þeirra hafa tölu- vert gildi og margar ekki, eins og alltaf hefur verið. Það var mikil upprisa fyrir konur í þessum bókum, bæði þær sem skrifuðu þær og líka þær sem lásu. Margar konur breyttust hreinlega við það. Þessar bækur voru afhjúp- andi fyrir marga á mjög jákvæðan hátt, eins og gerðist með raunsæ- ið. En svo urðu þær að klisjum. Endurborin til undra Sérhver stefna rennur sitt skeið á enda, en þar er alltaf að finna einhverja neista inn á milli. Enn er ekki komin sú tíð þegar við „rísum upp í regni og sól endur- borin til undra“, eins og Þor- steinn frá Hamri kvað. Það er ekki komið þetta framtíðarland þar sem ekkert erindi þarf til að fara í heimsókn. En þangað til reka rithöfundar þetta erindi. Ef við lítum á íslenska skáld- sagnagerð síðustu 20 ára þá felst greinilegasti munurinn á bókum karla og kvenna í því að konurnar eru í nútíðinni en karlmenn í þá- tíðinni. Karlmenn lýsa bernsku sinni en konur veruleikanum hér og nú. Hitt er annað mál að mað- ur sér að það er allt annað og meira á ferðinni í þessum bókum karlmanna en bara saga um ein- hverja stráka sem eru að leika sér. Það hefur lengi verið miklu meiri vaxtarbroddur í íslenskri ljóðagerð. Ljóðskáldunum virð- ist hafa tekist betur að sameina þetta tvennt. Beygla í dósinni Ég var nú ekkert að reyna að gefa söguþræðinum á kjaftinn í fyrstu bókinni minni. Kannski það hafi verið stundum svolítil skeifa á honum, halli á línunni, beygla í dósinni. Annars held ég að hver maður sjái að þarna fóru frekar hefðbundnar línur. Þegar þetta er tengt saman eru þetta hefðbundnar sögur með kynn- ingu aðstæðna, flækju og lausn, upphafi og endi. Það er ekki hægt að segja neitt um viðkvæmnismál eins og innri eintöl. Þar er að baki alltof þrosk- uð hefð til þess að maður geti sagt nokkuð um hana. Það eru svo margir búnir að segja svo margt. En ef til vill er ekki hægt að segja neitt um eintal sálarinnar. Það er kannski hægt að skrifa um það nokkrar línur, nokkrar blað- síður. Þetta er svo fínt og óhreyfanlegt. Það er ekki hægt að henda reiður á hugsunum sínum eða hugsunum annarra. Það er bara hægt að hnýsast. Ég kallaði sögurnar í fyrstu bókinni myndir, kannski afþví að þær eru svo þegjandalegar að maður verður að segja eitthvað sjálfur. Það er ákveðin kyrrð í myndum. Áhorfandinn verður sjálfur að kveikja í þeim líf. Menn ganga inn í kletta Nýja bókin mín verður öðru- vísi en sú fyrri en ég vona samt að það sjáist að það er sama mann- eskjan sem skrifar hana. Ef rit- höfundar eru að reyna að nálgast lífið á einhvern hátt með orðinu þá reyni ég að nálgast það á ann- an hátt í þessari nýju bók en ég gerði með þeirri fyrstu. Kannski eru þetta þjóðsögur, kannski í þeim eiginlegasta skilningi að menn gangi inn í kletta og komist ekki þaðan út; nema að þjóð- sagan sé í raun og veru dulbúin vitund manneskjunnar. Ég fer ekkert yfir þjóðsögum- ar á skítugum skónum. Ég nota eitt og eitt minni, ekki hreint endilega heldur breyti þeim og færi yfir í nútímann. Þau eru samt furðu sterk, þessi gömlu minni, og erfitt að breyta þeim. Ef þjóð- sagan á að varðveita menning- una, ætli veiti þá nokkuð af því að maður hjálpi tii við það. Svo eru þjóðsögur skemmtilegar, skemmtilegir minnisvarðar. Ég nota líka róttækar sögur sem faldar eru hér og þar í bib- líunni. Það er fullt af þjóðsögum í biblíunni sem minna mjög á þjóð- sögur okkar. Það hefur oft verið sagt um biblíuna að hún væri mik- ill brunnur og það hefur ekki ver- ið sagt of oft. Éf það eru einhvers staðar góðar sögur um leit mannsins að sjálfum sér þá eru það þjóðsögurnar. - Hvað held- urðu að við séum komin með marga dálksentimetra, Árni? Grimmd Mér finnst grimmdin í gamla testamentinu, ógnin, merkileg, hvað manneskja.t á alltaf að vera ofboðslega vesöl gagnvart því sem hún á að trúa á. Manneskjan er alltaf lítilsigld gagnvart því sem hún á að dýrka. Þetta er einsog hvað rithöfundar eru máttlausir í hnjánum gagnvart orðinu og við- fangsefnum sínum sem aðrir eru búnir að sinna miklu betur. Eitt sinn ræddust þeir við, Ezra Pound og William Carlos Wil- liams. Ezra hvatti Williams til að flytja úr smáþorpinu sem hann bjó í og kynnast einhverju nýju, það væri búið að yrkja um vorið. Þá sagði Williams: „Én það hefur enginn gert það eins og ég.“ Ef menn hafa þetta ekki geta þeir alveg eins lagt frá sér pennann. Þetta er lágmarks tiltrú á sjálfan sig án þess að í því felist nokkur hrokýað gera sér grein fyrir því að það er búið að gera þetta allt áður og betur, en það er hægt að gera það öðruvísi. Þetta er eins og lífið, það endurtekur sig alltaf en það verður víst að lifa því þó að einhverjir aðrir hafi lifað því miklu betur áður. Það verður hinn almenni maður að sætta sig við. Þetta er Ijómandi gott kaffi hjá þér, Árni minn. Lesandinn Ég er fljót að sjá hvort mér líkar bók eða ekki. Á ég að segja þér hvernig ég varð þegar ég las Jólaóratoríuna? Ég varð veik í heila viku. Ég er kannski svona hundgamaldags að þegar bækur hafa áhrif á mig verð ég bara veik. Þetta minnti mig á kikkið sem ég fékk í gam'a daga þegar maður las þessar bækur sem mað- ur átti ekki að lesa, Lady Chatt- erley’s Lover td., sem maður las með sængina yfir sér. Éig les alltaf til að finna eitthvað sem ég leita að. Og í hvert sinn sem ég nálgast það að finna eitthvað sem ég leita að er ég mjög þakklát þeim sem skrif- ar. Maður krefst einhvers af bókum, að það sé ekki tóma- hljóð, að það sé einlægni, að það sé tilfinning án þess að vera eitthvað sem kallast væmni. Ef maður finnur að höfundur skrifar af tilfinningu og einlægni nær hann frekar til manns með þess- um tóni en ef hann hefði verið að sperra sig eitthvað fyrir ofan sínar tilfinningar, einsog svo margir gera. Mér finnst að þeir höfundar sem yrkja ljóð hafi frekar losað sig við þá fordóma að það sé vont að hafa tilfinningar. Það er þess vegna sem mér finnst meira gam- an að lesa ljóð. Þess vegna þarf ljóðið að komast meira að í sög- unum.“ 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. júní 1985 Sunnudagur 9. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.