Þjóðviljinn - 21.06.1985, Síða 2
FRÉTTIR
_ Fisksölur
Islensk
skíp setja heimsmet
Prjú skip selja á 2 dögumfiskfyrir25 miljónir íEvrópu.
Heimsmet hjá Ögra. Siglt með aflann úr landi vegna
manneklu. Vantar 1500 manns ífiskvinnsluna vegna lélegra launa
Það var svo sem eftir þeim, -
að ætla að raska grafarró Hall-
gerðar.
essi vika hefur verið mikil
aflasöluvika fyrir íslensk skip
í erlendum höfnum. Að sögn Jó-
hönnu Hauksdóttur hjá LÍU hef-
ur markaðurinn verið mjög góð-
ur í Englandi og í næstu viku eru
ein sjö skip bókuð þar.Hins vegar
er vafamál hvort verðið helst jafn
hátt og það hefur verið í þessari
viku.
íslensku skipin hafa sett heims-
met. Vigri seldi í Grimsby á
þriðjudag 249,7 tonn fyrir 9 milj-
ónir og 575 þúsund ísl. kr., sem er
hæsta verð sem greitt hefur verið
fyrir fisk upp úr einu skipi í Eng-
landi. í fyrradag seldi Ögri í Cux-
haven 257, 3 tonn fyrir 11 miljón-
ir og 106 þúsund ísl. kr., sem er
næst mesta upphæð sem greidd
hefur verið fyrir fisk úr einu skipi
í Þýskalandi. Þá seldi Börkur frá
Neskaupstað í Grimsby í fyrra-
dag 108,5 tonn fyrir ríflega 5 milj-
ónir króna eða 46,10 á kg. Það er
mjög gott verð per kíló og stafar
af því að Börkur var með valinn
fisk að austan.
En af hverju sigla skipin með
aflann úr Jandi? Jú, þar kemur til
manneklan í frystihúsum íslands.
Þar vantar mannskap til þess að
vinna aflann þannig að verðmæti
hans aukist. Eins og fram kom í
Þjóðviljanum á miðvikudaginn
vantar um 15-1600 manns til fisk-
vinnslu nú þegar vegna lélegra
launa.
-pv
Bók um
Sigurjón
Styrktarsjóður Listasafns Sig-
urjóns Ólafssonar hefur gefið út
myndarlega bók um ævi og verk
myndhöggvarans og kemur hún
út á miðri Sigurjónsvöku sem
haldin er í ASÍ-safninu með ýms-
um hendingum.
í bókinni er meðal annars ævi-
ágrip Sigurjóns í myndum og
texta, greinar um listamanninn
eftir Kristján Eldjárn og Thor
Vilhjálmsson, viðtal við Sigurjón
eftir Kristínu Halldórsdóttur og
síðast en ekki síst myndskreytt
skrá yfir verk í safni Sigurjóns og
verk eftir hann í opinberri eigu.
Þetta er fyrsta rit um Sigurjón Ol-
afsson og er útgefið til styrktar
nýstofnuðu listasafni í vinnustofu
hans í Laugarnesi. Veg og vanda
af ritinu á öðrum fremur ekkja
myndhöggvarans, Birgitta Spur.
Sigurjónsvaka stendur út júní-
mánuð í listasafni ASÍ að Grens-
ásvegi 16. Á laugardag les þar úr-
valslið leikara úr ýmsum verkum,
en á sunnudagskvöld er efnt til
skoðunarferðar um Laugarnes
undir leiðsögn valinkunnra
menningar- og fræðimanna og
lýkur henni með Jónsmessu-
brennu í Norðurkotsvör. -m
Ein mynda í Sigurjónsbók: listamaðurinn vinnur frumdrög að Friðriksstyttunni sem nú stendur á Bernhöftstorfu.
„Lottó“
Sænskt happdrætti á Islandi
Bannað í íslenskum lögum. Dómsmálaráðuneytið hefur ekkert aðhafst
Sænskt fyrirtæki hefur í vetur kynningarbréf á íslensku um leika og „Lottóprógram“ boðið til
og vor reynt að höfða til happ- talnagetraun, „lottó“, þarsem tal- sölu á 200 krónur íslenskar.
fikinna íslendinga og sent út að er um gífurlega vinningsmögu- í kynningarbréfi „Allround
íslendingar
Okkur fjölgar smátt og smátt
Fleiri karlar en konur í landinu.
í Múlahreppi búa hins vegar 11 konur en 4 karlar
Hægt og bítandi fjölgar íslensku
þjóðinni. Við vorum orðin
240.443 þúsund þann 1. desemb-
er 1984, samkvæmt endanlegum
tölum Hagstofunnar. Okkur hef-
ur fjölgað um 2268 frá 1. desemb-
er 1983 eða um 0,9%.
íslendingar eru þéttbýlisþjóð
samkvæmt Hagstofunni. Það eru
nálega 4/s þjóðarinnar eða
183.498 sem búa í kaupstöðum og
í borginni, en fimmtungur,
56.945 býr utan kaupstaða. Þá
vekur athygli að íslenskir karl-
menn eru nokkru fleiri en kven-
fólk: 120.936 af mannkyni á móti
119.507 af kvenkyni. Mannfæsti
hreppur landsins er Selvogsh-
reppur í Árnessýslu: 11 karlar og
3 konur, en skammt undan er
Múlahreppur í
Barðastrandasýslu með öfugt
hlutfall: 4 karlmenn en 11 konur.
Af fleira skemmtilegu í skýrslu
Hagstofunnar má nefna hið
fullkomna jafnvægi kynjanna
sem rikir á Borðeyri. Þar búa 13
karlar og 13 konur.
-pv
Produkter" í Gautaborg segir frá
því að þegar fyrirtækið hafði
fengið „Islenska stútenta" í Sví-
þjóð til þýðinga voru valin 500
íslendingar úr símaskránni og
þeim boðin þátttaka í fjárhætt-
unni, „en sá árangur sem kom út
úr því var svo langt fyrir ofan það
sem við áttum von á að við vorum
orðlausir". Hefur fyrirtækið nú
hafið umfangsmeiri áróður um
þjónustu sína.
í lögum um happdrætti og
hlutaveltur frá 1926 er „bannað
mönnum á íslandi að versla þar
með eða selja hluti fyrir erlend
happdrætti eða önnur þvflík
happspil", og í lögum frá 1933 um
happdrætti háskólans er enn-
fremur bannað að „hafa á boð-
stólum miða erlendra happ-
drætta, auglýsa þá í innlendum
blöðum eða hvetja menn til að
kaupa þá“.
„Lottó“-tilboð Svíanna fer í
bága við íslensk lög, sagði Ólafur
Walter Stefánsson skrifstofu-
stjóri dómsmálaráðuneytis í gær
við Þjóðviljann, en sagði vont við
að fást. Ekki væri út af fyrir sig
bannað að kaupa miða í er-
lendum happdrættum, og erfitt
að stöðva Svíana nema þá með
einhvers konar tilmælum.
Ráðuneytinu barst vitneskja
um þetta sænska happspil frá Ör-
yrkjabandalaginu. Nú er verið að
ræða á þingi frumvarp um að
veita bandalaginu leyfi til að reka
hliðstætt happdrætti eða getraun
hérlendis, og sagði Vilhjálmur
Vilhjálmsson formaður þess við
Þjóðviljann að framtak svíanna
hérlendis hefði með öðru ýtt
undir að bandalagið fór frammá
slíkt leyfi.
Stjórnvöld hafa einnig haft
veður af vestur-þýskum gylliboð-
um til íslendinga um happdrættis-
þátttöku.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. júní 1985