Þjóðviljinn - 21.06.1985, Síða 3
FRETTIR
Náttþing
Skólaskyldan í óvissu
Stjórnarliðar snerust gegn Ragnhildi — Ellert ímálþófi gegn Öryrkjabandalaginu
Þingslit klukkan 11 árdegis, hvernig sem mál standa!
Stjórnarliðar brugðust Ragn-
hildi Helgadóttur aftur í gær-
kvöldi við þriðju umræðu í neðri
deild um styttingu skólaskyld-
unnar. 8 ára skólaskylda var sam-
þykkt með 17 atkvæðum gegn 15,
8 voru fjarverandi.
Eini Framsóknarmaðurinn
sem studdi Ragnhildi Helgadótt-
ur í fyrrinótt í baráttu hennar
gegn styttingu skólaskyldunnar
snerist gegn henni við þriðju um-
ræðu í gærkvöldi. Pað var Alex-
anderStefánsson, félagsmálaráð-
herra.
í fyrrinótt greiddu 6 Sjálfstæð-
ismenn atkvæði gegn ráðherran-
um, en í gærkvöldi voru þeir ekki
nema 2: Páll Dagbjartsson og
Friðjón Þórðarson; hinir fjórir
voru fjarstaddir og það voru
reyndar tveir Sjálfstæðisráðherr-
ar líka, þeir Matthíasarnir
Bjarnason og Mathiesen, og
Friðrik Sófusson, sem allir voru
taldir styðja ráðherrann.
Þannig var málinu vísað til efri
deildar, þar sem talið var mjög
tvísýnt um framgang þess.
Helgi Seljan sem á sæti í efri
deild sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann um miðnættið að eins og mál-
um væri nú komið væri best að
láta skólaskyldufrumvarpið
liggja: efri deild hefði ekkert
fjallað um þetta mál í vetur og
þyrfti sannarlega lengri tíma bæði
til umræðna og nefndarstarfa en
nóttin leyfði. Þá sagði Helgi það
sína skoðun að stytting skóla-
skyldu væri fráleitt afturhvarf frá
nútíma menntastefnu. Þau fáu
prósent sem nú hættu námi eftir
8. bekk væru oft þeir nemendur
sem þyrftu virkilega á frekara
námi að halda og ef menn ætluðu
að stíga þetta skref yrðu þeir að
tryggja að 8. bekkur skilaði
mönnum réttindum til náms síðar
einsog9. bekkjarprófiðgerirnú.
„Leiktöf“
Þegar Þjóðviljinn fór í prentun
í nótt hafði Ellert B. Schram,
forseti KSÍ, ritstjóri og „óháður“
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
talað samfleytt í tvo klukkutíma í
neðri deild og var hálfnaður í
fyrstu umferð að eigin sögn.
Orðgnótt hans var beint gegn
stjórnarfrumvarpi um að Ör-
yrkjabandalag íslands fái heimild
til að fjármagna íbúðarbyggingar
sínar með svonefndu Lottó-spili,
sem tíðkast víða erlendis en er
óþekkt hér.
Tillaga um að vísa málinu frá
var felld í upphafi þingfundar í
gærkvöldi með 19 atkvæðum
gegn 4 og við aðra umræðu var
frumvarpið svo samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum gegn
2: Ellert og Stefán Guðmundsson
voru einir á móti. Þegar þriðja
umræða hófst kvaddi Ellert sér
svo hljóðs og Iagði áherslu á að
með samþykkt frumvarpsins yrði
þrengt að íþróttahreyfingunni
sem byggði mjög á sambærilegri
tekjuöflun, þ.e. Getraununum.
Töldu menn trúlegast að hon-
um myndi vart duga nóttin til
ræðuhaldanna og því væri nánast
útséð um að Lottó-boltinn yrði
gefinn upp í efri deild í tæka tíð,
þrátt fyrir vísan stuðning meiri-
hluta leikmanna.
Næturvakt
Eins og af þessu má sjá, voru
alþingismenn á miðnætti rétt að
hefja næturstörfin á þessum síð-
asta og lengsta starfsdegi þing-
sins, sem reyndar er orðið hið
lengsta í sögunni, og verður slitið
kl. 11 ídag, ef allt fer eftir áætlun.
Á kvöldfundinum í neðri deild
höfðu þegar tvö frumvörp orðið
að lögum; lög um Almannavarnir
og lög um ríkisábyrgð á láni til
Stálfélagsins voru samþykkt
átakalítið. Búist var við að áður
en dagur rynni yrðu samnings-
málin stóru orðin að lögum: um
Viðskiptabanka, um Sparisjóði,
uin Framkvæmdasjóð og um
Framleiðsluráð landbúnaðarins
en þau voru öll til umræðu í efri
deild og skiptu breytingatillögur
stjórnarandstöðunnar tugum.
Þá var búist við að frumvarp
þingmanna úr öllum flokkum um
að tryggja 60 ára lífeyrisaldur sjó-
manna yrði að lögum fyrir dag-
mál.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um Ríkisendurskoðun var hins
vegar úti í kuldanum enda mikið
deilumál og taldi Ragnar Arnalds
sem á sæti í efri deild m.a. að í því
fælist stjórnarskrárbrot með
meiru. Þá var eins og fyrr segir
ekki búist við því að nóttin dygði í
hin deilumálin tvö; um styttingu á
skólaskyldu og um Lottó-spil Ör-
yrkj abandalagsins. Þá var heldur
ekki komið að Húsnæðisfrum-
vörpunum tveimur um Búseta,
þegar Þjóðviljinn fór í prentun,
en af þeim er saga sem verður
ekki sögð hér og nú.
Við komuna til Reykjavíkur í gær. Forseti borgarstjórnar heilsar upp á Puetter-hjónin. E. Ólason.
Flugrallí
Spennandi og ögrandi
Juergen ogJulie-Ann Puetterfrá Montreal í Kanada eru ífyrsta sœti í
alþjóðlegu flugrallíi. Vélaflugfélag íslands skipuleggur millilendingu
55 flugvéla með 11 Oflugmenn
Sprettan
Góðar horfur
um allt land
Of mikill þurrkur
á Suðurlandi?
„Gras hefur komið vel undan
vetri og um allt land eru góðar
horfur með uppskeru sumars-
ins“, sagði Jónas Jónsson búnað-
armálastjóri í spjalli við Þjóðvilj-
ann í gær.
Byrjað er að slá bæði í Austur-
og Vestur-Skaftafellssýslum og
einhverjir bændur í Eyjafirði eru
líka byrjaðir að slá. En almennt
mun heyskapur hefjast með fyrra
móti í sumar, að sögn Jónasar.
Hretið í kringum hvítasunnuna
hamlaði sprettu í ákveðinn tíma,
en hún tók svo við sér aftur fyrr í
mánuðinum. Jónas sagði enn-
fremur að nú heyrði hann það frá
bændum á Suðurlandi að þar
hefði jafnvel verið of mikill
þurrkur, sem er óneitanlega
óvenjulegt þar um slóðir. -pv
Mosfellssveit
Vandræði vegna
vatnsleysis
Efekki rignir þarfbrátt
að taka upp skömmtun
, Jú, það er rétt, við höfum ver-
ið í vandræðum síðustu daga og
höfum skorað á fólk að spara
vatnið“, sagði Páll Guðjónsson
sveitarstjóri Mosfellshrepps þeg-
ar Þjóðviljinn spurði hann hverju
vatnsskortur þar í sveit sætti. En
samkvæmt traustum heimildum
Þjóðviljans hafa sumir Mosfell-
ingar meirað segja átt í erfið-
leikum með að baða sig sökum
vatnsskorts.
Páll sagði að vatnsskortinn
mætti rekja til þurrka að undan-
förnu og hinn mildi vetur væri
vafalítið ein helsta orsök þess að
vatnsbólin væru að ganga til
þurrðar. Ofan á þetta bætist að í
þurrkatíðum sem þessum notar
fólk mikið vatn til garðavökvunar
og gróðurs, og er það fljótt að
segja til sín. Ef ekki rætist úr og
vætutíð gengur í garð, sagðist Páll
búast við að á næstu dögum þyrfti
að taka upp skömmtun á vatni í
Mosfellssveit. - pv
Frá þvi um miðjan dag í gær og
fram á kvöld lentu 55 litlar
flugvélar á Reykjavíkurflugvelli.
Þær tóku þátt í flugralli yfir Atl-
antshaf. Komu vélarnar hingað
frá Nuuk á Grænlandi og héðan
fara þær á morgun, laugardag,
áleiðis til Aberdeen í Skotlandi en
keppninni lýkur í París.
Sigurjón Ásbjörnsson hjá Vél-
flugfélagi íslands sem sér um
móttökurnar hér skýrði blaða-
manni frá því að þetta væri fyrsta
rallið sinnar tegundar en það er
skipulagt af samtökum vélflug-
manna í Bandaríkjunum, Kan-
ada og Frakklandi. Flugið hófst í
Morristown í New Jersey sem er
skammt frá New York. Þaðan var
flogið umhverfis Frelsis styttuna
og áfram til Montreal, síðan til
Frobisher Bay í Kananda og
Nuuk.
Auk venjulegrar rallíkeppni
eru veitt verðlaun í hverjum á-
fangastað fyrir bestu flugleiðsögn
og lendingu á nákvæmni í áætlun
á bensíneyðslu. Verðlaunin hér á
landi verða afhent í hófi sem flug-
mönnunum 110 verður haldið á
Broadway í kvöld.
Þegar blaðamaður kom út á
flugvöll í gærdag hitti hann að
máli ung hjón frá Montreal í Kan-
ada, Juergen og Julie-Ann Puett-
er. Þau voru harla ánægð með
ferðina því þau voru í fyrsta sæti í
keppninni.
„Við höfum komið hingað
tvisvar áður og í bæði skiptin
rigndi en nú er ágætis veður. Það
er gaman að koma hingað því
móttökumar og skipulagið hér er
það besta sem við höfum kynnst
hingað til“.
Þau sögðust hafa stundað flug í
6 ár og við gátum ekki stillt okkur
um að spyrja hvað fengi fólk til að
taka þátt í svona keppni.
„Það er ýmislegt, þetta er
spennandi og ögrandi og svo er
gaman að vera fyrstur. Við kynn-
umst líka mörgum í svona
keppni. Nú, og svo áttum við er-
indi til Evrópu svo það var kjörið
að ferðast á þennan hátt“.
- Er þetta ekkert hœttulegt?
„Ekki fyrir okkur, við erum á
svo góðri vél. En það hlýtur að
krefjast talsverðs hugrekkis að
leggja út í þessa ferð á sumum
þeirra smávéla sem eru með“.
Þeim Juergen og Julie-Ann
leist vel á að dvelja hér í tvo daga
og vonuðust til að komast í veiði-
skap. „Er ekki ágætis veiði
hérna? Við tókum græjurnar
með upp á von og óvon“.
Hitt-leikhúsið
Spörfuglinn
suður
„Sýningin er óbreytt frá því
sem hún var hjá Leikfélagi Akur-
eyrar nema bætt hefur verið nýj-
um dönsurum, tónlistarmönnum
og tæknimönnum", sagði Páll
Baldvin Baldvinsson fram-
kvæmdastjóri Hins leikhússins en
í kvöld verður frumsýning í
Reykjavík á leikriti Pam Gems
um Piaf.
Þessi nýbreytni er til þess að
bjóða upp á tilbreytingu á
dauðum tíma í leikhúslífi
Reykvíkinga og gefa þeim kost á
að sjá þessa ágætu leiksýningu
Leikfélags Akureyrar.
Dansana sem við bættust hefur
Ástrós Gunnarsdóttir samið og
hún ásamt Steinari Ólafssyni
dansa í sýningunni. Þá var soðin
saman hljómsveit hér fyrir sunn-
an sem Roar Kvam stjórnar en í
sýningunni eru flutt öll helstu lög
Piaf.
Edda Þórarinsdóttir leikur að-
alhlutverkið og meðal annarra
leikara eru styrkustu stoðir LA,
Marinó Þorsteinsson, Theódór
Júlíusson, Þráinn Karlsson,
Sunna Borg, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Gestur E. Jónas-
son, Pétur Eggerts og Emilía
Baldursdóttir. Leikmyndina
gerði Guðný B. Ríkharðsdóttir.
- aró
Polýfónkórinn
Það er menntamála- og ferða-
málaráðuneyti Italíu sem stendur
fyrír boði Polýfónkórsins til Ítalíu
og sér jafnframt um alla fyrir-
greiðslu, sagði Ingólfur Guð-
brandsson stjórnandi Polýfón-
kórsins.
Við flytjum H-moll messu
Bachs í Róm, Flórens, Feneyjum
og Assisi þar sem við opnum jafn-
framt tónlistarhátíð.
í ferðina fara 80 manna kór, 33
manna kammerhljómsveit og
fjórir einsöngvarar.
Farið verður 3. júlí nema Pól-
ýfónkórinn þurfi að afturkalla
þátttöku sína vegna fjárskorts.
-aró
-ÞH
Föstudagur 21. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3