Þjóðviljinn - 21.06.1985, Blaðsíða 5
Alþingi
Nefndakjör
í gær
Þróunar-
samvinnustofnun
íslands
Sex manns voru í gær kjörnir í
stjórn Þróunarsamvinnustofnun-
ar íslands til fjögurra ára. Þeir
eru: Gunnar G. Schram, Erlend-
ur Magnússon, Ólafur Þ. Þórðar-
son, Ingvar Gíslason, Baldur
Óskarsson og Björn Friðfinns-
son.
Byggðastofnun
Sjö manns voru í gær kjörnir í
stjórn Byggðastofnunar sem ný-
lega var samþykkt að komi í stað
Byggðasjóðs. Þeir eru: Ólafur G.
Einarsson, Halldór Blöndal,
Eggert Haukdal, Stefán Guð-
mundsson, Ólafur Þ. Þórðarson,
Geir Gunnarsson og Sigfús Jón-
asson.
Áburðarverksmiðjan
Sjö manns voru kjörnir í stjóm
Áburðarverksmiðju ríkisins til
fjögurra ára. Þeir em: Egill Jóns-
son, Bjarni Helgason, Gunnar
Sigurðsson, Gunnar Guðbjarts-
son, Ríkharð Brynjólfsson og
Garðar Sveinn Árnason.
Lagahreinsunarnefnd
Níu manns voru í gær kjörnir til
ráðuneytis um framkvæmd þings-
ályktunar frá 22. maí 1984 um
lagahreinsun og samræmingu
gildandi laga. Þeir eru: Ármann
Snævarr, Sigurður Líndal, Har-
aldur Blöndal, Svala Thorlacius,
Már Pétursson, Gils Guðmunds-
son, Hreinn Pálsson, Margrét
Rún Gunnarsdóttir og Snædís
Gunnlaugsdóttir.
Láns-
fjár-
lögin
loks
í höfn
Lánsfjárlög voru loks afgreidd
frá alþingi sl. þriðjudag, 18. júní
og hefur aldrei fyrr verið gengið
svo seint frá lögunum. Þau voru
lögð fram fyrir síðustu áramót,
fóru fyrst í þrjár umræður í efri
deild og var breytt á milli þeirra
allra. Þá tóku við þrjár umræður í
neðri deild og enn var frumvarpi
ríkisstjórnarinnar breytt þannig
að eina umræðu til þurfti í efri
deild. Forsvarsmenn hinna ýmsu
fjárfestingalánasjóða og bygg-
ingasjóða varpa nú öndinni létt-
ar, því ekki hefur verið hægt að
ganga frá útlánaáætlunum þessa
árs vegna seinagangs í fjármála-
stjórn hjá ríkisstjóminni.
Það getur verið dýrt spaug fyrir launamann sem fær aðeins 198% hækkun á meðan tannlæknar fá 295%, að þurfa að
setjast í þennan stól. Ljósm. eik.
Launakjörin
Tannlæknamir
gera það gott
Hafa hœkkað um 295% í launum meðan ASÍ-félagar hafa
hœkkað um 198%. Verðlagið hefur á sama tíma
hœkkað um299%
Dýralæknir
í fisk-
sjúkdómum
í hópi þeirra frumvarpa sem
orðið hafa að lögum á hraðferð
Alþingis undanfarna daga er
þingmannafrumvarp um að sett
verði á stofn sérstakt embætti
dýralæknis með sérfræði-
menntun á sviði fisksjúkdóma og
skal hann hafa ábyrgð og skyldur
héraðslæknis og aðsetur á Keld-
um. Aðeins einn dýralæknir mun
hafa lokið framhaldsnámi í fisk-
sjúkdómum eins og krafa er gerð
til um í þessu nýja embætti.
-ÁI
Alþingi
Fimm
þings-
ályktanir
samþykkt-
ar
Átta þingsályktunartillögur
voru afgreiddar á lokafundi Sam-
einaðs þings í gær en þær tUlögur
sem á dagskrá voru og ekki var
samkomulag um í viðkomandi
nefndum náðu ekki afgreiðslu.
Þremur þingsályktunartillög-
um sem fjalla um fiskiræktarmál
og fiskeldi var öllum vísað til
ríkisstjórnarinnar að tillögu at-
vinnumálanefndar. í áliti nefnd-
arinnar segir að ríkisstjórnin sé
nú að athuga þessi mál og er hvatt
til þess að hún marki stefnu í
þeim og undirbúi lagasetningu
þar um.
Frá 1. desember 1981 til 1. maí
1985 hafa laun tannlækna hækk-
að um 295% meðan laun ASÍ-
manna hafa hækkað um 198%! Á
sama tímabili hefur verðlag í
landinu hækkað um 299% og
gjaldskrár tannlækna um 291%.
Þessar upplýsingar koma fram
í svari viðskiptaráðherra við fyr-
irspurn Jóhönnu Sigurðardóttur
sem lögð var fram á alþingi í gær.
Gjaldskrár tannlækna byggjast
á launalið og rekstrarkostnaði.
Heildargjaldskrárbreyting er
sem fyrr segir 291,5% og hefur
rekstrarkostnaður hækkað um
283% og launaliðurinn um
295%.
Bjórinn
Launabreytingar á tímabilinu,
198%, eru samkvæmt fréttabréfi
kjararannsóknanefndar og verð-
lagsbreytingarnar 299% eru mið-
aðar við framfærsluvísitölu. Upp-
lýsingar um kjör tannlækna eru
fengnar frá Tannlæknafélagi ís-
lands.
-ÁI
Samþykkt var þingsályktunar-
tillaga um að efla upplýsinga-
miðlun um húsnæðis- og bygging-
armál til almennings og aðila í
byggingariðnaði.
Þá var samþykkt þingsályktun
um að kanna nýja legu Vestur-
landsvegar með gerð brúa yfir
Eiði yfirí Geldinganes og yfir
Leiruvog og Kollafjörð, með til-
liti til hafbeitarmöguleika í Kol-
lafirði og Leiruvogi.
Deilt um dánarorsök
Frumvarp á síðasta degiþings um að banna innflutning bjórs ogsölu á bjórlíki
,J6n Baldvin og Guðmundur
Einarsson felldu bjórfrumvarp-
ið“, sagði Halldór Blöndal m.a.
eftir að tillaga hans og Ellerts B.
Schram um að neðri deild héldi
fast við fyrri afstöðu sína um að
leyfa bjórinn hafði verið felid í
fyrrinótt m.a. með fulltingi
þeirra Jóns og Guðmundar. Þeir
hölluðust á síðustu stigum bjórs-
ins að þjóðaratkvæðagreiðslu um
málið sem þeir voru andvígir fyrr
í vor.
En bjórinn var ekki búinn, þó
frumvarp þeirra Guðmundar,
Jóns Baldvins og fleiri um að
leyfa hann væri fallið á þinginu. í
gær, á síðata degi þingsins mælti
Stefán Benediktsson fyrir nýju
frumvarpi um að framleiðsla og
sala á bjórlíki yrði bönnuð og að
farmönnum, flugáhöfnum og
ferðamönnum væri bannað að
flytja bjór inn í landið. Sagði
Stefán nauðsynlegt að mörkuð
yrði skýr stefna í áfengismálum á
þinginu og ef þingmenn vildu
vera samkvæmir sjálfum sér hlytu
þeir að samþykkja tillögu sína.
Hún náði þó aldrei lengra en að
vera vísað til nefndar, enda þing-
tíminn útrunninn.
-ÁI
Sameinað þing samþykkti
einnig þingsályktunartillögu um
að leitað verði leiða til að koma á
ákveðinni og skipulagðri þjón-
ustu í tannréttingum í landinu og
aðra um að kannað verði hvort
Stjórnarráð íslands geti ekki
fengið inn í hluta Seðlabanka-
byggingarinnar.
Loks var samþykkt þingsálykt-
un um að samið verði frumvarp
að almennum stjómsýslulögum
og það lagt fyrir alþingi hið
fyrsta.
-ÁI
Föstudagur 21. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
I