Þjóðviljinn - 27.06.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Leitum áfram
Gullskipsmenn taka það rólega í sumar
eftir erfitt sumar í fyrra, sem endaði sem
kunnugt er á því að grafið var niður á skip
sem reyndist þýskur togari en ekki
kaupfar frá Vestur-Indíum. Þeir eru þó
ekki á því að gefast upp og með haustinu,
þegar vatn fer að minnka á sandinum
verður farið af stað með nákvæm mæli-
tæki sem keypt voru í fyrra og leitað á
sandinum.
„Við munum fara vel yfir svæðið og
ekki byrja að grafa fyrr en búið er að leita
mjög rækilega og fá ákveðin svör á mæl-
unum. Við munum halda áfram þar til við
finnum skipið, það eitt er víst. Og það er
enginn orðinn þreyttur,” sagði Kristinn
Kristinsson, sonur Kristins Guðbrands-
sonar, en þeir feðgar og fleiri hafa staðið
að leitinni að „Het Wapen Von Amster-
dam” á Skeiðarársandi undanfarin ár. -þs
Norrœna húsið
Opið hús í kvöld
í kvöld hefst árviss sumardagskrá Nor-
ræna hússins undir nafninu Opið hús. Þá
flytur Finnbogi Guðmundsson landsbók-
avörður erindi, sem nefnist: „Snorri
Sturluson skildring av de nordiske folk“,
en síðan syngur Hamrahlíðarkórinn ís-
lensk þjóðlög. Eftir kaffihlé verður sýnd
kvikmyndin „Eldur í Heimaey".
Bókasafn Norræna hússins og kaffi-
stofa verða opin til kl. 22.00 alla
fimmtudaga í sumar eða svo lengi sem
„Opið hús“ verður á dagskrá. Það síðasta
verður 22. ágúst. Aðgangur er ókeypis og
allir eru velkomnir.
Hafnarbúðir
Seljið ekki
Tœplega 180 aðstandendur
sjúklinga á Hafnarbúðum skora á
borgina að verja góða stofnun
IHafnarbúðum dvelja nú að-
standendur okkar, gamalt fólk
sem er orðið húsi og starfsfólki
vant, líður þarna eins vel og kost-
ur er en þolir illa allar breytingar
og röskun á högum. Þetta meðal
annars segir í áskorun aðstand-
enda sjúklinga á legudeild og dag-
vist Hafnarbúða, en fjármálaráð-
herra hefur fyrir hönd ríkissjóðs
gert kauptilboð i fasteignina
Hafnarbúðir.
í Hafnarbúðum er starfrækt
hjúkrunardeild og dagvist fyrir
aldraða. Hafa aðstandendur og
ættingjar skorað á borgaryfirvöld
að fallið verði frá öllum áformum
um sölu eignarinnar þar eð ekki
verði séð að sú ráðstöfun leysi á
nokkurn hátt vanda hjúkrunar-
sjúklinga þar sem sjúkrarúmum
sem til ráðstöfunar eru mun ekk-
ert fjölga.
„Hafnarbúðir eru að okkar
mati afburða góð stofnun, starfs-
fólkið hefur flest verið lengi og
þekkir því sjúklingana vel og
heimilisbragur er allur hinn not-
alegasti," segir í áskoruninni, en
undir hana skrifa 178 ættingjar og
aðstandendur.
-aró
Frjálsíþróttir
3 miljónir í völlinn
Við munum taka út völlinn í
kvöld og gera við það sem
krafist er að gert sé við, sagði
Júlíus Hafstein formaður Iþrótt-
aráðs Reykjavíkur á blaða-
Eldri borgarar
Heimili á
Mallorka
Oformlegur starfshópur heí'ur
unnið að athugun um að koma á
dvalaraðstöðu fyrir fullorðna ís-
lendinga á félagslegum grundvelli
í sólarlöndum.
Ljóst er að á þennan hátt geta
m.a. Iífeyrisþegar lifað góðu lífi
fyrir mun minni lífeyri en hér-
lendis, þar sem bæði húsnæði og
framfærsla öll er á miklu lægra
verði.
Starfshópurinn sem unnið hef-
ur að þessu máli, heldur al-
mennan fund á Hótel Borg,
fimmtudaginn 27. júní nk., kl.
17.00 og stofna þar undirbún-
ingsfélag til að hrinda þessari
hugmynd í framkvæmd. -sp
mannafundi sem ráðið boðaði til
vegna blaðaskrifa sem orðið hafa
um lélegt ástand frjálsíþrótta-
valla í Laugardal.
Eins og fram kom á baksíðu
Þjóðviljans í gær lýsti eftirlits-
maður Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandsins því yfir að Val-
bjarnarvöllur væri gersamlega
ónothæfur.
Júlíus sagði að íþróttaráð hefði
ákveðið að leggja í þær viðgerðir
sem krafist vteri og lagt það til við
borgarráð að fé yrði útvegað til
þeirra viðgerða. Kostnaður við
þær er áætlaður um 3 miljónir
króna.
„Ástæðan fyrir því að við höf-
um haldið að okkur höndum við
að halda vellinum við er sú að við
viljum þrýsta á um að ákvörðun
verði tekin um framtíðarupp-
byggingu á aðstöðu fyrir frjálsar
íþróttir í Reykjavík. Okkur er
það ljóst að Valbjarnarvöllur er
mislukkaður og hefur sennilega
verið það frá upphafi svo það þarf
að endurbyggja hann frá grunni
eða koma upp aðstöðu annars
staðar. Það er líka ljóst að þessi
viðbótarfjárútlát munu fresta því
um einhver ár að í það verði ráð-
ist,“ sagði Júlíus. -ÞH
Samningar
Sérsamningur
á Húsavík
Verkalýðsfélag Húsavíkur
skrifaði undir samninga í
fyrradag um kaup og kjör, sem
voru á svipuðum nótum og ASÍ/
VSÍ samkomulagið, að sögn Kára
Arnórs hjá félaginu. Verkalýðsfé-
lag Húsavíkur er aðili innan ASÍ
en semur sér. Að sögn Kára er
það vegna þess að menn vilja hafa
samningamálin nær sér og vegna
óánægju með ýmislegt innan ASÍ.
„Við fórum út úr samkrulli við
ASÍ í febrúar 1984. Menn hafa
verið óánægðir með ýmislegt sem
hefur verið þar uppi á teningn-
um. Það eru uppi efasemdir um
hvort ASÍ er nægilega öflugt bar-
áttutæki og hvort það sé praktískt
að vera innan samtakanna. Við
vorum mjög ósátt við margt í
þessum samningum og þær raddir
hafa heyrst sem tala um úrsögn úr
ASÍ. En það stendur nú samt
ekkert til og ég á ekki von á að af
því verði.“
-pv
Fimmtudagur 27. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
"En þeir sögðust
vera vanir...”
Nótulaus viðskipti geta virst hagstæð við fyrstu sýn.
En þau geta komið þér í koll því sá sem býður þér slíkt
er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki.
Taktu nótu - það borgar sig
Samkvæmt lögum og reglugerðum
um söluskatt og bókhald er öllum
sem selja vöru og þjónustu skylt
að gefa út reikninga vegna
viðskiptanna. Reikningar eiga að
vera tölusettir fyrirfram og
kaupandi á að fá eitt eintak. Sé
um söluskattsskylda vöru eða
þjónustu að ræða á það að koma
greinilega fram á reikningi.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYnÐ