Þjóðviljinn - 27.06.1985, Qupperneq 12
LJÓSMYNDIR
Hin
hiiðin á
V-Þýska-
landi
Öll þjóðfélög eiga sér tvær
hliðar, mismunandi andstæðar.
Bak við glæsta forhlið leynist oft
rnikil eymd og mikil fátækt og er
Vestur-Þýskaland engin undan-
tekning þar frá. Hér sjáum við
nokkrar myndir sem sænski Ijós-
myndarinn Ralph Nykvist tók á
sínum tíma í nokkrum borgum
þar. En sjón er sögu ríkari.
Borgarhverfið Bruckhausen
í Duisborg.
Hótel island brennur árið 1944. Ein af fréttamyndum Óskars.
Höfnin í Reykjavík frostaveturinn mikla 1918. Zimsenbryggja og kolakraninn.
Mynd frá námsárum Óskars.
barst fregn um að annar togari frá
sama útgerðarfélaginu á Eng-
landi og sömu gerðar hefði
strandað við Hafnarmúla í Patr-
eksfirði. Björgunarmennirnir
drifu sig auðvitað á stað og ég
með og þegar við komum á
strandstað tók að birta upp svo að
ég gat tekið kvíkmynd af björgun
mannanna í land. Svona gerist
ekki nema einu sinni á ævinni.
Petta var lán í óláni eins og Þórð-
ur á Látrum sagði.
- Ertu enn að taka myndir?
- Það er nú lítið, bara fyrir
kunningjana. Annars er ég alltaf
að rótast í mínum gömlu filmum.
Ég er að reyna að koma þeim á
skrá, klippa þær til og ganga al-
mennilega frá þeim. Ekki alls
fyrir löngu setti ég hljóð við lýð-
veldishátíðarkvikmyndina frá
1944. Hún var upphaflega tekin
þögul en ríkisútvarpið á upp-
tökur af hátíðardagskránni og ég
gat fellt þær inn í myndina. Hún
er orðin talmynd eins og ég hefði
tekið hana á venjulegan hátt. Ég
bauð nokkrum •gestum í Regn-
bogann í fyrra og sýndi þeini
þessa mynd í einum salnum.
Hljóðsetningin var mjög kostn-
aðarsöm fyrir mig. En Erlendur
Sveinsson í Kvikmyndasafninu
veitti mér ómetanlega hjálp. Ég
bauð sjónvarpinu myndina til
sýningar. Þeir tóku vel í það og ég
vissi ekki betur en sýna ætti
myndina núna 17. júní síð-
astliðinn. Svo voru þeir allt í einu
steinhættir við að sýna myndina,
eins og ákveðið var, og ég er
eiginlega hálf skúffaður.
- Líst þér ekki vel á þá þróun
sem orðið hefur síðustu ár í sam-
bandi við íslenska kvikmynda-
gerð?
- Mér líst vel á hana en í þessu
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
tilfelli hef ég sagt að við þolum
ekki meira en 4 kvikmyndir á ári,
ef þær eru fleiri eyðileggja menn
hver fyrir öðrum nema auðvitað
ef þeir eru svo heppnir að komast
á erlendan markað.
- Hafa þínar myndit; komist á
erlendan markað?
- Björgunarafr.ekið við Látra-
bjarg hefur verið sýnt gríðarlega
víða um heim og vakti mikla at-
hygli. Svo var hún klippt niður og
notuð sem kennslumynd hjá
slysavarnafélögum út um heim.
Þeir hjá Slysavarnafélagi íslands
fengu allan rétt til að nota og
dreifa kvikmyndinni.
- Þú hefur ekki orðið ríkur?
- Nei, ekki alveg.
Við fáum nú að glugga í gamlar
ljósmyndir hjá Óskari og þar var
svo sannarlega um auðugan garð
að gresja. Síðan kveðjum við
þennan gamla og virðulega mann
sem er brautryðjandi í íslenskri
kvikmyndalist og heiðursfélagi
ljósmyndara.
-GFr
Nýja tölvualdar vélin
TÝLI Austurstræti 3