Þjóðviljinn - 13.07.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 13.07.1985, Blaðsíða 9
Svava Jakobsdóttir skáld. Listaviðburður í máli og myndum Vladimir Sichov að störfum á íslandi. Bók, Ijósmyndasýning og kvikmynd undir samheitinu lceland Crucible Snorri Hjartarson skáld. Þetta bar þannig að að Thom- as Holton forstjóri Hildu hf. var að hlusta á Vigdísi Finnbogadóttur opna sýninguna Scandinavia To- day í Minneapolis ásamt 60 þús- und manns og honum fannst áberandi hvað Island og íslensk menning væri áberandi. Þá kviknaði hugmyndin. Hann fór þá að leita að rithöfundi sem væri nógu vitlaus til að taka að sér að skrifa verkið og þar sem hann hafði séð til mín vera að selja bæklinginn lcelandic Writing To- day á breiðstræti í Minneapolis kom hann að máli við mig. Hann hafði líka kynnst hinum heimsfræga Ijósmyndara Vla- dimir Sichov og hann fékkst til að koma hingað til að búa til sögu í Ijósmyndum um þessa skrýtnu menningu. Þetta sagði Sigurður A. Magnússon í samtali við Þjóð- viljann um aðdraganda þess að bókin lceland Crucible varð til. Á blaðamannafundi á Kjar- valsstöðum á fimmtudag var ljósmyndarinn sjálfur viðstaddur og hann var þar spurður hvort ekki hefði verið erfitt að finna út karakter 170 íslenskra lista- manna á hraðferð um landið og láta hann koma fram á ljósntynd- unt en mönnum ber sarnan um að það hafi Sichov tekist með ágæt- um í flestum tilfellum. Hann svaraði því til að fólk væri eins og opin bók og þetta væri aðeins spurning um hvort ljósinyndar- inn væri góður eða ekki. í dag verður opnuð sýning á 330 ljósmyndum Sichovs á Kjar- valsstöðum eða mun fleiri en birt- ast í bókinni. Þetta er stærsta mannamyndasýning sem nokkru sinni hefur verið efnt til hér- lendis. Samhliða bókinni hefur verið gerð hálftíma kvikmynd um grósku íslenskra lista í nútíman- um. Myndin nefnist einnig Ice- land Crucible og er gerð af tveimur kunnum bandarískum kvikmyndagerðarmönnum, Hal Calbom og Phil Davies, sem átta sinnum hafa verið sæmdir hinum eftirsóttu Emmy-verðlaunum fyrir sjónvarpsþætti sína. Kvik- myndin er í litum og koma þar við sögu ýmsir kunnir listamenn á mörgum sviðum. Kvikmyndin verður sýnd amk. tvisvar daglega meðan á kynningunni á Kjarvals- stöðum stendur. Bæði kvikmynd- in og ljósmyndir Vladimirs Sic- hovs voru gerðar að frumkvæði og á kostnað Hildu hf. Heimskynning Á næsta ári er ráðgert að fara með ljósntyndasýninguna og kvikmyndina urn þver og endi- löng Bandaríkin og Kanada og koma bókinni á framfæri við les- endur sem allra víðast vestan hafs. Bókaútgefendur og for- stjórar sýningarsala og sjón- varpsstöðva hafa sýnt þessu framtaki verulegan áhuga. Síðan er ætlunin að snúa sér að Evrópu og Asíu og þá fyrst og fremst Jap- an. Með því að hefja kynninguna hérlendis vakir fyrst og fremst fyrir aðstandendum bókar og sýninga að vekja athygli heima- manna á þeirri ótrúlegu blóm- gun, sem átt hefur sér stað í öllum listgreinum á undanförnum ára- tugum. Þar koma bæði við sögu listamenn sem unnið hafa afrek á heimavelli og fjölmargir lista- menn sem gert hafa garðinn fræg- an með öðrum þjóðum. Eðlilegt er að fólk spyrji: Hvers vegna eru einkaaðilar að ráðast í slíkt kynningarátak á ís- lenskri menningu og listum í út- löndum? Svarið er ekki einhlítt. Helsta ástæðan er samt sú, að þeir er að útflutningi standa og aðrir, sem tengjast íslandskynningu í út- löndum telja sig hafa séð að þörf sé orðin á viðameiri menningar- kynningu íslendinga erlendis en verið hefur. Kynning á náttúru, landslagi, landháttum og frarn- leiðsluvörum sé góð og gild, en landkynning, sem tengist menn- ingu og lífi fólksins í landinu verði yfirleitt áhrifameiri fyrir land og þjóð og um leið fyrir þá sem selja útlendingum vöru og þjónustu. Forráðamenn Hildu hf. sem hafa stundað viðamikinn ullar- vöruútflutning um árabil höfðu frumkvæði að þessari kynningu sem hlotið hefur yfirskriftina Ice- land Crucible, sent þýða mætti ís- lensk deigla. Með henni er ætlun- in að sýna hvernig alþjóðlegir straumar í listum blandast ís- lenskum áhrifunt og verða til þess að hér er nú meiri gróandi í listum en víðast hvar annars staðar. Líklegt er að fleiri fyrirtæki tengist þessu kynningarátaki á síðari stigurn, jafnframt því sem það gæti orðið all miklu víðtæk- ara. Vladimir Sichov Sichov er heimskunnur Ijós- myndari af rússnesku bergi brot- Laugardagur 13. júli 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.